Morgunblaðið - 17.01.2007, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2007 17
LANDIÐ
Reykjanesbær | Nærri 40%
af kærðum líkamsárásum í
Reykjanesbæ eru inni á
skemmtistöðum eða úti á
götu í nágrenni þeirra. Um
helgina verður efnt til nám-
skeiðs fyrir starfsfólk stað-
anna og er vonast til að það
dragi úr slysum vegna lík-
amsárása vegna áfengis- og
vímuefnaneyslu.
Lýðheilsustöð efnir til
námskeiðsins í samvinnu við
Reykjanesbæ. Er þetta
fyrsta námskeiðið af þessu
tagi sem stofnunin efnir til.
Margar árásir
Á árinu 2005 var 101 líkamsárás í
Reykjanesbæ kærð til lögreglunnar.
Flest málin komu upp inni á
skemmtistöðunum, 24 talsins, og 16
til viðbótar utan dyra í nágrenninu.
Verulegur hluti þessara árása var
eftir klukkan fjögur um næturnar en
opnunartími er frjáls á skemmtistöð-
unum í Reykjanesbæ.
Ragnar Örn Pétursson, íþrótta- og
tómstundafulltrúi Reykjanesbæjar,
segir að ætlunin sé að veita dyra-
vörðum og fólki sem afgreiðir áfengi
upplýsingar sem það getur nýtt sér í
starfi. Markmiðið er að koma í veg
fyrir eða draga úr slysum og ofbeldi
á veitingastöðum, í tengslum við
neyslu áfengis og annarra vímuefna,
draga úr áfengisveitingum til þeirra
sem þegar eru orðnir ofurölvaðir og
þeirra sem ekki hafa náð aldri til
áfengiskaupa. Einnig að efla getu og
kunnáttu starfsfólks til að koma í
veg fyrir ofbeldi og taka rétt á mál-
um við þær aðstæður þegar ofbeldi
gæti komið upp.
Sex skemmtistaðir eru í Reykja-
nesbæ og vonast Ragnar Örn eftir
almennri þátttöku á námskeiðinu.
Ekkert námskeiðsgjald er greitt og
starfsfólkið er á launum hjá veitinga-
húsunum á meðan á því stendur og
er gert ráð fyrir að forvarnarsjóður
Reykjanesbæjar veiti þeim styrk til
þess.
Fræðsla til að
draga úr ofbeldi
Mýrdalur | Víða má sjá fallegar
náttúrumyndanir í snjó, klaka og
birtu um þessar mundir. Þannig
fellur falleg birta inn í stóran opinn
helli sem er í Flúðanefi, vestast í
Fagradalshömrum í Mýrdal. Grýlur
virðast búa í hellinum, eða að
minnsta kosti hanga þar stórir
klakaströnglar sem gjarnan eru
nefndir kertin hennar Grýlu.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Grýlur gera kerti
Eftir Hafþór Hreiðarsson
Húsavík | Það var svo sannarlega
kátt í höllinni um síðustu helgi þegar
Kvenfélag Húsavíkur hélt hið marg-
rómaða þorrablót bæjarins. Þar með
þjófstörtuðu Húsvíkingar þorranum
eins og þeir hafa nú gert um all-
nokkurt skeið.
Var þorrablótið haldið í íþrótta-
höllinni þar sem Fosshótel Húsavík
er ekki lengur í stakk búið að taka
við þeim fjölda sem sótt hefur þorra-
blót kvenfélagsins á undanförnum
árum. Höllin var sett í sitt fínasta
skart og öllu tjaldað til sem hægt var
til að gera hana sem hlýlegasta og
óhætt að segja að þeim kvenfélags-
konum hafi tekist vel til.
Matur í trogum
Friðrika Baldvinsdóttir, formaður
Kvenfélags Húsavíkur, segir að það
hafi alltaf verið mikil eftirvænting
eftir þessu blóti og færri komist að
en vildu á undanförnum árum. Það
hafi því verið haft á orði áður að það
þyrfti að flytja blótið í íþróttahöllina
og sitt sýndist hverjum um þessar
breytingar.
„Þrjú hundruð og fimmtíu manns
sóttu blótið og var ekki að heyra
annað en almenn ánægja væri með
það. Lýstu margir undrun sinni yfir
því hversu vel hefði til tekist með að
gera sal íþróttahallarinnar að fal-
legum veislusal,“ sagði Friðrika og
bætti við, að að sjálfsögðu hefðu
blótsgestir komið með matinn í trog-
um en allur búnaður var leigður frá
veisluþjónustu Bautans á Akureyri.
Kvenfélagskonur sáu alfarið um
skemmtidagskrána og var ekki ann-
að að heyra á gestum en vel hefði
tekist til. Veislustjórinn var Guðrún
Kr. Jóhannsdóttir sem einnig er
kvenfélagskona og Danshljómsveit
Kristjáns Svavarssonar lék svo fyrir
dansi en þá hljómsveit skipa hús-
vískir tónlistarmenn.
Kvenfélag Húsavíkur hefur haldið
þorrablót í fjöldamörg ár fyrir fé-
lagskonur og gesti þeirra. Friðrika
formaður segir ekki vera nema
fimmtán til tuttugu ár síðan blótið
varð opið öllum bæjarbúum og eins
og áður segir er ásóknin slík að það
hefur verið haft á orði að fara með
það í íþróttahöllina miklu fyrr.
„Þetta er heilmikið fyrirtæki fyrir
fáar konur að græja en við fengum
svo frábæra aðstoð hjá öllum þeim
sem við leituðum til. Allir vilja gera
það sem þeir geta fyrir kvenfélagið
og gott er fyrir okkur að finna þann
hlýhug til þessa gamalgróna félags
sem kvenfélagið er í bæjarfélaginu,“
sagði Friðrika að lokum.
Morgunblaðið/Hafþór
Sungið Baldur Baldvinsson, Helga Eyrún Sveinsdóttir, Friðfinnur Her-
mannsson og Birkir Þór Jónasson sungu á þorrablóti kvenfélagsins.
Húsvíkingar þjófstarta
þorranum í Höllinni
Reykjanesbær |
Aðsókn barna í
Vatnaveröld,
sundmiðstöðina í
Reykjanesbæ,
jókst um 85% á
nýliðnu ári. Er
það rakið til þess
að börnin fá nú
frítt í sund.
Grunnskóla-
börn fengu frían aðgang í sund í
Reykjanesbæ í byrjun síðasta árs og
frá því að Vatnaveröldin og nýja
innilaugin voru teknar í notkun á
vormánuðum var öllum börnum gef-
inn kostur á því að fara í sund án
endurgjalds. Ragnar Örn Pétursson,
íþrótta- og tómstundafulltrúi, segir
að þessi aðgerð skýri mestan hluta
þessarar miklu aukningar en aukið
skólasund og fleiri sundæfingar
stuðli einnig að því sama.
Ragnar Örn segir ánægjulegt til
þess að vita að aðsókn annarra hafi
einnig aukist umtalsvert. Það bendi
til þess að foreldrar séu duglegri að
fara með börnum sínum í sund.
Á síðasta ári voru gestir sundstað-
anna liðlega 111 þúsund sem er 32%
aukning frá árinu á undan.
Þá vekur Ragnar Örn athygli á því
að þrátt fyrir að börn fái frítt í sund
hafi tekjur af seldum aðgöngumiðum
aðeins minnkað um 400 þúsund, eða
um tæp 5% frá fyrra ári.
Sundferðum
barna fjölgar
um 85%
Grímsnes | Hreppsnefnd Gríms-
ness- og Grafningshrepps hefur lýst
því yfir að hún muni ekki greiða
leigu fyrir afnot af nýbyggðu íþrótta-
húsi og sundlaug á Borg, fyrr en
mannvirkin hafi verið tekin út og
metin. Húsin eru í eigu Eignarhalds-
félagsins Fasteignar hf.
Framkvæmdum við íþróttahúsið
og sundlaugina lauk um áramót og
átti sveitarfélagið að greiða leigu
fyrir afnotin frá þeim tíma. Fram
kemur á fréttavefnum sudurland.is
að heimamenn telja frágang mann-
virkjanna ekki fullnægjandi. Benda
þeir á að veggklæðning springi og
molni við festingar á mörkum og
körfum. Einnig segja þeir að sund-
laugin sé ekki tilbúin til afhendingar
þar sem enn eigi eftir að stilla ýmis
stjórntæki.
Fréttavefurinn hefur eftir fram-
kvæmdastjóra Fasteignar að ákveð-
in atriði í frágangi verði löguð og
menn geti treyst því að byggingun-
um verði skilað í viðunandi horfi.
Frágangi ekki lokið
SUÐURNES
LEIGUÍBÚÐARFÉLÖG / FJÁRFESTAR
TIL SÖLU ÁTTA EINBÝLISHÚS Á HELLU
Höfum fengið til sölumeðferðar 8 steinsteypt einbýlishús með bílskúrum á Hellu sem byggð
voru á árunum 2002-2004. Húsin seljast í einu lagi til leiguíbúðafélaga en það eru félög sem
hafa leyfi frá Félagsmálaráðuneytinu til rekstur leiguíbúða.
Eigninar eru eftirtaldar: Sigalda 1, Sigalda 2, Sigalda 3, Sigalda 4, Sigalda 5, Sigalda 6,
Hraunalda 2 og Brúnalda 7.
Tvær stærðir eru af húsunum:
- Sigalda 1-6 og Hraunalda 2 eru 157,5 m² að stærð og samanstanda þau af forstofu, eldhúsi
og stofu sem er eitt rými, þremur svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu.
-Brúnalda 7 er 178,5 m² að stærð og samanstendur af forstofu, eldhúsi og stofu sem er eitt
rými, fjórum svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu.
Ýmsum frágangi er ólokið, bæði utanhúss sem innan, og verða eignirnar seldar í því ástandi
sem þær eru. Eignirnar hafa verið í útleigu og miðast afhendingartími þeirra við 1. febrúar
2007.
Nánari upplýsingar má fá á skrifstofu Lögmanna Suðurlandi
Fasteignasala Lögmanna Suðurlandi
Austurvegi 3 - 800 Selfossi - sími 480 2900 - www.log.is
Löggiltir fasteignasalar: Ólafur Björnsson hrl.
Sigurður Sigurjónsson hrl. og Christiane L. Bahner hdl.