Morgunblaðið - 17.01.2007, Síða 18

Morgunblaðið - 17.01.2007, Síða 18
Glaðbeitt kona í gulum kjólmeð rúllur í hárinu bernýsteiktar kleinur ístrákpjakk með rjóðar kinnar. Prúðbúin frú með sjal yfir herðar og blúnduhatt í hári snæðir sviðakjamma við orgel. Þetta eru apríl- og marsstúlkur dagatals kennara Grandaskóla en fyrirsæt- urnar eru sjálfar úr hópi útgefand- anna. „Þetta er hluti af fjáröflun vegna námsferðar okkar kennaranna til Birmingham í mars,“ útskýrir Birna Margrét Júlíusdóttir mynd- menntakennari sem ásamt Erlu Stefánsdóttur, kennara og ljós- myndara, stýrði útgáfu dagatalsins. „Það var kveikjan að þessu hjá okk- ur. Svo fengum við þá hugmynd að nota þetta sem sjálfsprottna ímynd- arherferð fyrir okkur kennarana í Grandaskóla en Félag grunnskóla- kennara hefur staðið fyrir slíkri herferð í fjölmiðlum frá því í haust.“ Hugmyndin er ekki ný af nálinni að sögn Birnu. „Þetta hefur verið gert mjög víða. Margir kannast við dagatal sem slökkviliðið gaf út og sömuleiðis hinar þekktu „Calender- girls“ í Bretlandi sem sátu fyrir naktar. Við tókum hins vegar þann pól í hæðina að vera í fötunum – okkur fannst það mun meira spenn- andi en hitt,“ segir hún hlæjandi. Togstreita konunnar Sem fyrr segir stýrðu þær Birna og Erla, sem tók myndirnar, hug- myndavinnunni í kringum dagatalið og fengu svo kennara við skólann til að sitja fyrir. „Við ákváðum að hafa bara kvenkyns kennara á mynd- unum enda fannst okkur það end- urspegla stéttina best. Þannig gát- um við líka útvíkkað hugmyndina og leikið okkur með stöðu konunnar og þessa eilífu togstreitu hennar milli starfsins, heimilisins og barnanna um leið og hún reynir að líta vel út og halda í þjóðlegar hefðir – vera í öllum þessum hlutverkum sem kon- ur taka á sig.“ Auk kennaranna sitja börn sumra þeirra fyrir á myndunum en að sögn Birnu voru ekki nokkur vandkvæði á því að fá kollega hennar til að sitja fyrir. „Fólk var svolítið hikandi í byrjun en þegar boltinn fór að rúlla voru allir til og það komust færri að en vildu. Þetta var mjög skemmti- legt verkefni sem lífgaði mikið upp á vinnuandann hjá okkur enda höfðu allir ofsalega gaman af þessu sem tóku þátt í því.“ Birna segir dagatalið hafa fengið virkilega góðar viðtökur en það má m.a. nálgast í verslununum Mela- búðinni, Úlfarsfelli, Illgresi og á heimasíðu skólans, www.granda- skoli.is. Ljósmynd/Erla Stefánsdóttir Október Vísitölufjölskyldan í hversdagsklæðum bíður í stofunni eftir því að húsmóðirin ljúki áríðandi símtalinu. Mars Prúðbúin nærist hún á sviðakjamma og sítrónum við gamalt orgel. Kostulegar kennaramyndir Fyrirhuguð námsferð til Birmingham á Englandi varð til þess að kennarar við Grandaskóla ákváðu að fara óhefðbundnar leiðir í fjáröflun. Berg- þóra Njála Guðmunds- dóttir skoðaði nýútkomið dagatal þeirra. Litríkar Birna og Erla stýrðu vinnunni í kringum dagatalið sem kennarar Grandaskóla prýða. „Þetta var mjög skemmtilegt verkefni sem lífgaði mikið upp á vinnuandann hjá okkur.“ Morgunblaðið/ÞÖK Desember Ísbjörn og orabaunir eru í forgrunni. ben@mbl.is |miðvikudagur|17. 1. 2007| mbl.is daglegtlíf Hver kannast ekki við að eiga tæki sem nota átti reglulega en lenti svo inni í skáp og gleymd- ist um aldur og ævi? » 19 daglegt líf Góður svefn er nauðsynlegur til að hægt sé að mæta nýjum degi. Til eru nokkur góð ráð sem gagnast til að sofa vært. » 21 svefn Nýtt lyf gegn offitu er komið á markað. Það er engin töfra- lausn og lífsstílsbreyting þarf að fylgja með. » 20 heilsa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.