Morgunblaðið - 17.01.2007, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 17.01.2007, Qupperneq 19
KOKKUM hugnast alls kyns græjur. Hver kannast ekki við að hafa ein- hvern tímann séð eitthvert tæki sem heillar mjög í versluninni, glansandi og fallegt, en þegar heim var komið og tækið góða komið úr umbúðunum var það sett inn í skáp á svo góðan stað að það gleymdist um aldur og ævi. Guardian hefur tekið saman lista yfir slík tæki sem lent hafa í græju- grafreitnum, ef svo má að orði kom- ast. Wok-hjálpartækin Það er ekkert endilega wok- pannan sjálf sem dagar uppi, heldur allir fylgihlutirnir. Pönnunni var nefnilega ábyggilega hent þegar í ljós kom að án kröftugrar gaseldavélar gæti hin lystuga áferð sem fæst með alvöru hræristeikingu aldrei náðst og hráefnið varð einhvern veginn ólyst- ugt, gufusoðið drull. Hálfhrings- grindin, bambus-fylgihlutirnir og sér- hönnuðu wok-sleifarnar eru þess vegna ábyggilega einhvers staðar í eldhússkápunum – þó að fólk haldi að það hafi hent þessu fyrir mörgum ár- um. Óskýranlegur plasthlutur Þetta gæti verið eggjasjóðari fyrir örbylgjuofninn eða eitthvað til að búa til heilsteyptan morgunverð í brauð- rist, vandamálið er að minnið svíkur þegar rifja á upp hvort það var. Þetta virtist svo rosalega góð hugmynd á sínum tíma en nú orðið tekur þetta bara pláss í skápnum og bíður þess að vera hent. Hinar og þessar kaffivélar Það er ábyggilega til kaffivél án glerkönnu af því að hún brotnaði og það náðist aldrei að kaupa nýja. Að öllum líkindum leynist líka í skáp eða geymslu einhver frönsk eða ítölsk kanna fyrir eldavélarhellu sem var al- gjörlega nauðsynlegt að kaupa í frí- inu á sínum tíma en þegar heim var komið framleiddi hún bara einhverja fituga, grugguga leðju sem bragð- aðist eins og úrgangur úr ólöglegri amfetamínverksmiðju. Þeir sem eru ginnkeyptir fyrir nýjungum gætu líka lumað á arabískri kaffigerðarvél sem safnar bara ryki. Tilfallandi matargerðar- minjagripir Undir þetta falla allir kómísku pottarnir og tólin sem of auðmýkj- andi er að hafa til sýnis, þ.á m. hrís- grjónasuðukarfa, paella-pönnur, kola-fiskigrill, mexíkóskur sítrónu- kreistari, framreiðsluskeiðar úr skel og svo mætti telja. Þetta allt saman hefur fólk dröslast með heim úr fríinu við lítinn fögnuð fjölskyldunnar, not- að einu sinni og uppgötvað að venju- legir pottar og pönnur eru til ná- kvæmlega sömu hluta brúklegir. Safapressa Á einu pínlega stuttu tímabili var safapressan lífsnauðsynleg til að hægt væri að fara eftir stífu líkams- ræktarprógrammi. Sá tími sem fór í að tína pínulitlar leifar af sítrónu, gul- rótum, eplum eða einhverju þaðan af verra varð til þess að líkaminn brenndi þúsundum kaloría í reiðikast- inu sem fylgdi. Eftir að hafa eytt fleiri klukkustundum í að þrífa draslið til að fá eitt glas af vel laxerandi vökva varð allt í einu meira aðlaðandi að höggva af sér útlim en standa í því strögglinu. Hvítlauksverkfæri Venjulegt fólk – þessir sem gata filmuna sem strekkt er yfir kvöldmat- inn og bíða svo eftir að bjalla ör- bylgjuofnsins klingi – heldur að mat- seld snúist fyrst og fremst um hvítlauk. Þessir hinir sömu gefa þess vegna þeim sem hafa áhuga á mat- argerð gjarnan einhverjar algjörlega gagnslausar hvítlaukstengdar græjur í jólagjöf á hverju ári. Það sem þeir vita hins vegar ekki er að eina rétta leiðin til að kremja hvítlauk er með breiðu hnífsblaði – svo er líka svo gott að hafa hvítlaukslykt af fingrunum! Lengi mætti halda þessari upptaln- ingu áfram og af nógu að taka. Rétt verður þó að teljast að hætta hér – kannski væri þó rétt að stofna stuðn- ingshóp þannig að allir gætu safnað öllu dótinu úr græjugrafreitnum og hent því í stóran svartan ruslapoka og komið honum svo á haugana. Öllum liði miklu betur á eftir og ekki nóg með það … hugsa sér allt plássið sem myndi skapast fyrir nýjar græjur! Grafreitur græjanna daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2007 19 EFTIR nokkur ár munu m.a. sjúklingar sem glíma við sótthita af óþekktum ástæð- um geta skipt út hefðbundnum lyfjum fyr- ir tyggigúmmí, að sögn dansks tyggjó- framleiðanda. Þetta kemur fram á vef Berlingske tidende. Tyggjóframleiðandinn Fertin í Vejle í Danmörku vinnur nú með nýja tegund af lyfjatyggigúmmíi sem m.a. er ætlað sjúk- lingum með sótthita og sykursýki 2. Tyggjóið inniheldur minni lyfjaskammta en hefðbundnar töflur en talið er að lík- aminn taki lyfin betur upp í gegn um slímhimnuna í munninum en í gegn um magann. Tyggjólyfjaformið hefur þó verið gagn- rýnt, m.a. fyrir að vera „undarleg blanda af lyfjum og sælgæti,“ eins og einn sér- fræðingurinn orðar það. Aðrir telja að verkunin verði ekki meiri heldur verði lyf- in einungis dýrari með þessu móti. Lyf í tyggjóformi Morgunblaðið/Sverrir heilsa

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.