Morgunblaðið - 17.01.2007, Qupperneq 21
hollráð um heilsuna | landlæknisembættið
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2007 21
Við áramót strengir fólk þessoft heit að hefja nýttheilsusamlegt líf sem felstoftar en ekki í því að hreyfa
sig meira, borða minna og sinna fjöl-
skyldu og vinum betur. Allt er þetta
gott og gilt en kapp er best með
forsjá.
Hverjum manni er nauðsynlegt að
fá næga hvíld og góðan svefn. Svefn-
inn endurnærir og gefur okkur kraft
til að takast á við dagsins gleði og
amstur og er nauðsynlegur þáttur
heilbrigðra lífshátta. Hann hefur
áhrif á það hvernig okkur líður, sam-
skipti við annað fólk, starfshæfni og
lífsgæðin almennt.
Án svefns og hvíldar lifum við ekki
af hvað sem öllum sögum líður um
fólk sem þarf ekki nema nokkurra
klukkustunda hvíld á hverjum sólar-
hring. Þrátt fyrir að við eyðum um
það bil þriðjungi ævi okkar í svefn
hugum við ekki að mikilvægi svefns-
ins fyrr en svefnleysi fer að hrjá okk-
ur. Þegar svo er komið fer öll hugs-
unin að snúast um það á hvern hátt
hægt sé að ná góðum svefni. Til eru
góð ráð til að ráða bót á svefnleysi og
hér eru nokkur sem rannsóknir
benda til að gefi góðan svefn.
Vaknaðu á sama tíma á hverjun
degi. Að öllu jöfnu er í lagi að sofa
lengur þegar vinnan kallar ekki, en ef
svefnleysi hrjáir fólk þarf að koma
reglu á svefntímann.
Minnkaðu notkun á örvandi efnum
eins og nikótíni, koffeini, áfengi og
lyfjum (í samráði við lækni).
Það að hafa lítið fyrir stafni eða að
leggja þig á daginn getur truflað
bæði svefn og gæði hans. Stuttur lúr
eða slökun í um 20 mínútur að degi til
getur þó bætt líðan.
Hreyfðu þig reglulega þar sem það
bætir bæði lengd og gæði svefns. Of
mikil þjálfun fyrir svefn gæti þó
hugsanlega haft neikvæð áhrif.
Notaðu rúmið fyrir það sem það
er ætlað. Rúmið er að öllu jöfnu til að
sofa í, hvílast og að eiga góðar stundir
með sínum bólfélaga.
Að neyta matar og drykkjar á
helst ekki að eiga sér stað rétt fyrir
svefn. Hvort tveggja getur haft áhrif
á meltinguna þannig að brjóstsviði
eða salernisferðir trufli svefninn.
Búðu til svefnvænt umhverfi. Hiti,
lýsing og hljóð geta haft áhrif á
svefninn og mikilvægt er að þessir
þættir séu í lagi.
Leitastu við að leita lausna á
áhyggjum eða vandamálum áður en
þú leggst til svefns. Það getur hjálp-
að að setja á blað þau viðfangsefni
sem bíða, helst í lok vinnudags, alla-
vega fyrir svefninn.
Mikilvægt er að fara sáttur að
sofa. Fáðu aðstoð við að draga úr
streitu. Oft finnur fólk sínar eigin
leiðir til að draga úr streitu en stund-
um getur verið gott að leita til fag-
fólks sem hefur yfirsýn yfir fjöl-
breyttari leiðir. Íhuga ætti meðferð
hjá sérfræðingi. Sérfræðiráðgjöf
getur aðstoðað fólk til að greina
vandann og leita úrlausna við hon-
um.
Svefninn er þó ekki allt, við þurfum
að finna hvíld og sálarró. Reynum að
staldra við í amstri dagsins og njóta
samvista við vini og vandamenn. Þó
er það ekki síst mikilvægt að horfa
gagnrýnum augum á auglýsingar og
annað áreiti sem hvetur okkur til að
taka þátt í lífsgæðakapphlaupi sem
ekki er víst að sé til góðs. Ekki ein-
ungis svefn heldur líka slökun fær
okkur til að líða betur, hún gefur
hvíld, frið og endurnæringu.
Svefn hefur áhrif á
samskipti og starfshæfni
Morgunblaðið/Ásdís
Svefn Allir þurfa að hvílast vel til að geta tekist á við amstur daganna.
Salbjörg Bjarnadóttir geðhjúkr-
unarfræðingur og Anna Björg Ara-
dóttir yfirhjúkrunarfræðingur.
SÆNSK rannsókn bendir til þess að
þeir sem búa við mikinn umferð-
arhávaða geti fengið of háan blóð-
þrýsting. Í Svenska Dagbladet kem-
ur fram að þeir sem hafa búið lengi
við slíkar aðstæður og sofa í her-
bergi með glugga sem snýr að götu
séu í sérstökum áhættuhópi. Niður
af bílaumferð, flaut og ískur í
bremsum getur verið hvimleitt en
yfirleitt venst fólk slíkum hávaða
eftir smátíma. Ný rannsókn frá
Karolinska institutet í Stokkhólmi
bendir þó til þess að líkaminn sé á
annarri skoðun. 55 desibel er sá há-
markshávaði sem má vera í grennd
við íbúðarhúsnæði samkvæmt
sænskum reglum en tölur sýna að
yfir tvær milljónir Svía búa við
meiri hávaða. Rannsókn Karolinska
bendir til þess að líkur á háum blóð-
þrýstingi aukist með hverri 5 desi-
bela aukningu á hávaða. Eftir að
hafa búið lengi við umferðarhávaða
hefur streita myndast í líkamanum
og varnarkerfi líkamans hafa nóg
að gera. Þegar þetta ástand er
langvarandi getur það haft nei-
kvæð áhrif á hjarta- og æðakerfið. Í
undirbúningi er rannsókn á því
hvort umferðarhávaði geti einnig
leitt til hjartaáfalla. Forsvarsmenn
rannsóknarinnar leggja áherslu á
að niðurstöður af þessu tagi séu
teknar alvarlega þegar íbúðabyggð
er skipulögð.
Getur umferðar-
hávaði orsakað of
háan blóðþrýsting?
Morgunblaðið/Árni Torfason
Davíð Hjálmar Haraldsson ortiþegar listi Framsóknar í
Norðausturkjördæmi varð ljós:
Framsóknarmenn gjarna tel ég glópa;
gefa skakkt og syngja falskan brag
og skringilega heimskir upp til hópa.
Höfnuðu þó mútunum í dag.
Friðrik Steingrímsson sló á létta
strengi:
Við öðru búist ekki var
með allar þessar kosningar,
en færu á lista framsóknar
fífl og svín og hálfvitar.
Magnús Ólafsson frá
Sveinsstöðum kom Framsókn til
varnar:
Orðum raðar afar bratt
ei þig heillar flokkurinn.
Ef að þetta allt er satt
ertu göltur Friðrik minn.
Friðrik svaraði að bragði:
Framsóknar nú feig er sveit
fljótt hún liðast sundur,
hvort sem ég er göltur, geit
graðfoli eða hundur.
Þá Magnús:
Nú mér hleypur kapp í kinn
kannske er ég bara að vona
að flotta vísan, Friðrik minn,
fái brátt að verða svona:
Fram er boðin fögur sveit,
Framsókn liðast ei í sundur,
Friðrik ekki gerist geit
göltur, foli eða hundur.
VÍSNAHORNIÐ
Af
Framsókn
pebl@mbl.is
Ársalir - fasteignamiðlun Ársalir - fasteignamiðlun
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
Símar 533 4200
og 892 0667
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5 105 Rvk
533 4200
Nánari upplýsingar á skrifstofu okkar:
Ársalir ehf. - fasteignamiðlun
Höfum kaupendur að öllum stærðum og gerðum
atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Staðgreiðsla í boði.
ATVINNUHÚSNÆÐI ÓSKAST!
Er miki› álag
í vinnunni?
LGG+ er
fyrirbyggjandi vörn!
Oft koma fyrstu einkenni
streitu fram sem stöðug
þreyta og óþægindi í
maganum og ónæmis-
kerfið starfar af minni
krafti en áður. Rannsóknir
sýna að LGG+ vinnur gegn
þessum neikvæðu
áhrifum og dagleg neysla
þess tryggir fulla virkni.
Klappastíg 44 - sími 562 3614
Innleggsnótur og gjafakort í fullu gildi á útsölunni
ÚTSALA
Fjársterkur kaupandi óskar eftir einbýlishúsi á sunnanverðu
Seltjarnarnesi. Verðhugmyndir eru 80-150 millj.
Góðar greiðslur í boði.
Nánari upplýsingar veitir Hákon Jónsson lögg. fasteignasali.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
EINBÝLISHÚS Á SELTJARNARNESI