Morgunblaðið - 17.01.2007, Page 28

Morgunblaðið - 17.01.2007, Page 28
28 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Ágústa HrefnaÞráinsdóttir fæddist í Reykjavík 20. mars 1947. Hún lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi 7. janúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Ragnheiður Þ. Jó- hannesdóttir, f. 29.10. 1924, d. 7.3. 2004, og Þráinn Ar- inbjarnarson, f. 24.12. 1924, d. 27.6. 2006. Systur Ágústu eru Sigríður Kolbrún, f. 25.8. 1948, og Margrét Jóhanna, f. 12.10. 1953. Eiginmaður Ágústu er Jónas Guðmundsson, f. 17.4. 1939. For- eldrar hans voru Ólöf Pálsdóttir, f. 24.2. 1905, d. 3.10. 1955, og Guð- mundur Jónsson, f. 1.10. 1894, d. 30.9. 1969. Börn þeirra eru: 1) Ragnheiður, f. 31.3. 1966, maki Skúli Jónsson, f. 8.8. 1966. Börn þeirra eru: a) Hilmar, f. 19.1. 1994. b) Birg- ir, f. 3.7. 1996. c) Jón- as Þór, f. 15.6. 2006. 2) Guðmundur, f. 2.7. 1967, maki Guðfinna Helga Þórðardóttir, f. 17.12. 1968. Börn þeirra eru: a) El- ísabet, f. 13.11. 1989. b) Hrefna Lind, f. 27.8. 2000. 3) Þráinn, f. 5.7. 1977. Ágústa starfaði hjá Iðnaðarbankanum áður en börn hennar fæddust og fyrstu árin þar á eftir en helgaði sig uppeldi þeirra og heimilisstörfum þar til þau uxu úr grasi að hún hóf störf sem ritari á Kleppsspítalanum og síðan á Dval- arheimilinu Seljahlíð. Þar starfaði hún meðan heilsa hennar leyfði. Ágústa verður jarðsungin frá Seljakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Þó svo hún Ágústa eða Gústa eins og hún var oftast kölluð hafi verið mikið veik síðustu vikurnar, þá kom það samt mjög á óvart þegar mér bár- ust þær fréttir að hún væri dáin. Kynni okkar Gústu hófust fyrir um það bil 22 árum þegar við Guðmundur byrjuðum að vera saman. Þá strax var hún farin að finna fyrir sínum fyrsta sjúkdómi, MS, en ég yrði sjálfsagt fljótari að telja upp þá sjúkdóma sem hún fékk ekki því ansi mikið var lagt á þessa heiðurskonu. Það var samt alveg ótrúlegt með Gústu, hún kvartaði aldrei undan veikindum sínum og ræddi þau helst ekki nema þá kannski við sína allra nánustu. Hún átti það til að segja að hún hefði það skítt en þá var hún svo sárkvalin að annað hefði verið hé- gómi. Helst vildi hún heyra hvað væri að frétta af öllum öðrum og komu þá El- ísabet og Hrefna Lind dætur okkar Guðmundar oftast til tals, en annars gátum við setið tímunum saman og slúðrað um allt og ekkert. Gústa var ávallt tilbúin að aðstoða á allan hátt og kemur ein af mörgum minningum upp í hugann hjá mér. Við Guðmundur höfðum keypt okk- ar fyrstu íbúð í Spóahólum og var ég búin að kaupa efni í gardínur. Verð að viðurkenna að ég er ekki mikil sauma- kona en það átti samt að reyna fyrir sér í þeim efnum. Einhverra hluta vegna vissi Gústa það. Hún var fljót að senda eftir efninu því ekki ætlaði hún að hafa það á samviskunni að eyðileggja nýkeypt efni. Gardínurnar komu svo nokkrum klukkutímum seinna alveg eins og keyptar út úr búð því vandvirkni var einn af hennar mörgu kostum. Heimili Gústu var án efa einn af okkar föstu punktum í tilverunni. Jónas og Gústa byggðu húsið árið 1977–78 og bjó hún þar til hinsta dags. Þetta var einnig fyrsta heimili okk- ar Guðmundar því í kjallara hússins eru tvær íbúðir og bjuggum við í ann- arri þeirra fyrstu árin okkar. Heimili þeirra hefur alltaf verið fullt af hlýju og þar var alltaf ynd- islegt að koma við. Að lokum vil ég færa Jónasi, ásamt Ragnheiði, Guðmundi og Þráni, mín- ar innilegustu samúðarkveðjur. Guðfinna. Með uppáhaldsbæninni minni kveð ég þig, amma mín: Kristur minn, ég kalla á þig, komdu að rúmi mínu. Gjörðu svo vel og geymdu mig, Guð, í skjóli þínu. (Höf. ók.) Þín Hrefna Lind. Elsku amma, mest af öllu í heim- inum vildi ég að þú værir hér enn hjá okkur, ég sakna þín svo mikið! Ég minnist þín á hverjum einasta degi og hversu sárt það er að vita að ég á aldr- ei eftir að fá að sjá þig aftur. Innst inni veit ég að þér líður betur og ert komin á betri stað. Allar þær góðu stundir sem við áttum saman hér um árið, allar slikkferðirnar okkar út í búð, hvað við gátum setið lengi saman og slúðrað; og það varst frekar þú sem sagðir mér slúður en ég þér. Eitt af því sem ég man ef ég hugsa til baka var þegar ég var ekki nema fimm ára lítil stelpa og við lágum í símanum í marga tíma í símaleik sem við höfðum verið að búa til. Ef ég ætti að fara að telja upp allt sem við gerðum og þær góðu minningar sem við áttum, myndi ég skrifa fleiri, fleiri blaðsíður. Þú varst yndislegasta amma í öllum heiminum. Það var alltaf hægt að treysta á þig og ræða hluti við þig sem ekki allir skildu. Mér leið alltaf vel í kringum þig enda sóttist ég mjög mikið eftir að vera hjá þér. Með þessum orðum kveð ég, þar sem tárin renna óspart. Ég mun alltaf elska þig. Megi guð vera með þér. Þín Elísabet. Það er sárt að missa systur sína svona unga en það veitir okkur sem eftir erum huggun að eiga góðan minningasjóð um góða systur. Með fyrstu minningum frá æskuárunum er þegar pabbi sendi okkur eldri dæt- urnar á sundnámskeið, þá fimm og sex ára gamlar, sem höfðu þá aldrei séð stærra baðkar en þvottabala og áfallið sem systurnar fengu þegar inn í Sundhöllina var komið. Fjölskyldan að flytja í stærra hús á Tunguveg- inum og við systurnar fengum ný rúm og skrifborð og okkur fannst við eiga allan heiminn. Við í sveitinni í Ásakoti og Gústa dugnaðarforkurinn við úti- störfin. Við búnar að gifta okkur og eignast börnin okkar að hittast með fjölskyldur okkar í heitu súkkulaði á Tunguveginum á sunnudögum. Við að halda þorrablót með fjölskyldum okkar þar sem allir skiptust á að sjá um skemmtiatriðin. Gústa greindist með MS-veikina sem fór rólega af stað en ágerðist svo með árunum og seinna fékk hún svo krabbamein en aldrei kvartaði hún yfir veikindum sínum og þess vegna fannst okkur oft erfitt að átta okkur á hversu veik hún var því hún bar sig alltaf svo vel. Einu sinni sem oftar hittumst við systurn- ar ásamt mönnum okkar í matarboði hjá Siggu og Ella þar sem við ákváðum að kenna mönnunum okkar að tjútta og Gústa hló manna mest því að hún hafði þá orðið svo slæma stjórn á fótunum vegna veikinda sinna og sagðist ekki vita hver væri mesti flækjufóturinn hún eða menn- irnir okkar sem höfðu alls ekki mjög góða stjórn á sínum fótum í tjúttinu. Við munum líka eftir ferðinni okkar til Flateyjar en þá átti Gústa orðið mjög erfitt með gang, en aldrei hvarflaði að henni að gefast upp. Þar sem engir bílar eru í Flatey var sótt- ur traktor með kerru aftan í og hún keyrð í henni heim að Myllustöðum. Þar áttum við síðan frábæran dag hjá Helenu og Ingólfi. Síðast en ekki síst var það ógleymanlega ferðin okkar systranna til Flórída. Þar var mikið hlegið einkum þegar við ætluðum að fara að hjálpa Gústu að versla og hún neitaði að vera í hjólastólnum og þetta endaði nánast með því að við hlupum á eftir Gústu með hjólastól- inn en hún frekar af vilja en mætti var svo áköf í að kaupa eitthvað til að færa fólkinu sínu þegar heim væri komið. Gústa hafði mjög gaman af handavinnu og gerði marga fallega hluti alveg fram á síðasta dag. Ótrú- legt var að sjá jólakortin frá henni sem hún skrifaði sjálf með sinni fal- legu rithönd rétt fyrir andlát sitt. Gústa bakaði frábærar kökur og oftar en ekki mætti hún með fullan disk af pönnukökum ef eitthvað var um að vera hjá stórfjölskyldunni. Það var ótrúlega mikið á hana systur okkar lagt með öllum þessum sjúkdómum sem hún fékk og við dáðumst alltaf að dugnaði hennar og æðruleysi. Við viljum að lokum þakka henni sam- fylgdina og votta Jónasi, börnum þeirra og fjölskyldum innilegustu samúð okkar og látum fylgja vísu sem pabbi okkar orti: Ég hef áður sitt af hvoru séð og siglt hann jafnvel nokkuð krappan stundum. En alltaf Drottinn ráðum mínum réð og reisti við á neyðarinnar fundum. (Þráinn Arinbjarnarson) Sigríður og Margrét. Mig langar til að minnast Ágústu mágkonu minnar með nokkrum orð- um. Gústa eins og hún oftast var köll- uð var mjög þægileg og viðræðugóð manneskja. Hún var bæði fróð og minnug og vel að sér í ættfræði og það þurfti ekki annað en að hringja í Gústu ef menn greindi á um ætterni fólks því oftar en ekki gat Gústa leyst málið. Ofarlega í huga mér eru góðu kökurnar í afmælunum hjá Gústu í gegnum árin. Einnig kemur upp í hugann Flórídaferðin þegar Gústa fór með okkur út. Þá eldaði ég alltaf hafragraut fyrir okkur bæði á morgn- ana því hún var sú eina sem kunni að meta grautinn hjá mér og nutum við þess að borða hann saman og spjalla. Þetta var góð ferð og alveg ótrúlegt hvað Gústa var dugleg þar sem hún var þá nýlega komin úr krabbameins- meðferð. Gústa talaði oft um það hvað hún hefði haft gaman af því að fara þessa ferð. Það var líka gaman þegar við hittumst öll, systurnar þrjár og við svilarnir heima hjá okkur Möggu þegar ég dró fram gítarinn og var þá spilað og sungið saman. Skemmtileg- ast fannst Gústu að syngja lagið Und- ir bláhimni því henni fannst það svo fallegt lag. Síðast þegar ég hitti Gústu var þegar við Magga heimsótt- um hana á sjúkrahúsið nokkrum dög- um fyrir andlát hennar til þess að sýna henni myndir af fyrsta barna- barninu okkar sem hún sýndi mikinn áhuga á að fá að sjá þrátt fyrir að hún væri orðin mjög veikburða. Mikið var lagt á Gústu og fjölskyldu hennar vegna þeirra sjúkdóma sem herjuðu á hana síðasta áratuginn. Hún kvart- aði aldrei yfir veikindum sínum held- ur tókst á við þau af æðruleysi. Ég votta Jónasi, börnunum hans, tengdabörnum og barnabörnum inni- lega samúð mína og bið Guð um að styrkja þau í sorginni. Torfi. Nú þegar komið er að kveðjustund og við kveðjum frænku okkar hana Gústu viljum við þakka fyrir allar þær góðu stundir sem við höfum átt með henni í gegnum tíðina. Við systk- inin eigum ótal margar minningar frá heimsóknum Gústu og Jónasar til mömmu og pabba hingað í Keflavík. Oftar en ekki kíktum við inn þegar við vissum að þau væru í heimsókn. Gott var að sækja þau hjón heim í Stekkjarselið og móttökurnar alltaf hlýjar og notalegar. Sennilega var það síðastliðið sumar á hlaðinu í Ása- koti sem við systkinin drukkum síð- ast kaffi með Gústu. Þar sat hún í bílnum og Eygló bar út kaffi og með því til hennar þar sem fætur hennar báru hana ekki lengur. Það verður skrítið að koma saman og Gústa verð- ur ekki á meðal okkar. Stórt skarð hefur myndast í hópinn og hláturinn og fíflagangurinn þegar þær systur hittust verður ekki eins. Með þessum orðum viljum við þakka Gústu samfylgdina og fyrir að vera okkur sú yndislega frænka sem hún var. Nótt eina dreymdi mann draum. Honum fannst sem hann væri á gangi eftir ströndu með Drottni. Í skýjum himins flöktu myndir úr lífi mannsins. Við hverja mynd greindi hann tvenns konar fótspor í sandinum, önnur hans eigin, hin Drottins. Þegar síðasta myndin birtist fyrir augum hans, leit hann um öxl á sporin í sandinum. Hann tók eftir því að víða á leiðinni voru aðeins ein spor. Hann sá einnig að það var á þeim augnablikum lífsins sem hve erfiðust höfðu reynst. Þetta olli honum miklu hugarangri og hann tók það ráð að spyrja Drottin hverju þetta sætti. „Drottinn, þú sagðir þeg- ar ég eitt sinn hefði ákveðið að fylgja þér myndir þú ganga alla leiðina í fylgd með mér. En ég hef tekið eftir að meðan á erfiðustu stundum lífs míns hefur staðið, eru bara ein spor í sandinum. Ég get ekki skilið hvernig þú gast fengið af þér að skilja mig ein- an eftir þegar ég þarfnaðist þín mest.“ Drottinn svaraði: Þú dýrmæta barn mitt, ég elska þig og myndi aldr- ei skilja þig eftir einan. Á meðan þessir erfiðu tímar lífs þíns liðu, þar sem þú sérð ein spor aðeins var það ég sem bar þig.“ Elsku Jónas, Ragnheiður, Guð- mundur og Þráinn, Guð gefi ykkur og aðstandendum öllum styrk í sorginni. Orð eru léttvæg þegar sárin eru djúp. Helena, Jóhann Björn og Hulda Rut. Ég kynntist Ágústu Hrefnu – Gústu vinkonu minni – sem í dag er borin til hinstu hvíldar, þegar við vor- um báðar á barnsaldri. Foreldrar okkar bjuggu hlið við hlið í sama húsi. Þetta var barnvænt hús því þar bjuggu níu fjölskyldur og börnin samtals fjörutíu og níu. Það gefur augaleið, að það var mikið um sam- skipti fólks, góð kynni og leiki barna. Við Gústa áttum ekki samleið í skóla, en á sumrin dvaldi hún löngum hjá móðurfólki sínum í Ásakoti í Biskups- tungum. Þar var ég í kaupavinnu eitt sumar og þar mynduðust vinatengsl við hennar fólk og hana sjálfa, sem enst hafa æ síðar. Við Gústa umgengumst ekki dag- lega en vegna sameiginlegra hugðar- efna áttum við oft samleið t.d. í leik- hús, tónleika og ekki síst á heimili hennar. Hún var einstaklega góð heim að sækja. Hún var áhugakona á fjölmörgum sviðum um menn og mál- efni og ákaflega viðræðugóð. Hugur minn varðveitir ótal minningar um ógleymanlegar samverustundir okk- ar og samræður. Í mínum huga var æviferill Gústu tvískiptur: Annars vegar fjölskyldu-, heimilis- og vinalán og hins vegar heilsufarsógæfa. Hún lauk gagn- fræðaprófi og átti auðgengið að vinnu á meðan heilsa hennar leyfði. Hún giftist ung Jónasi Guðmundssyni frá Hamri á Barðaströnd, góðum dreng, sem reyndist henni afburða vel þegar halla tók undan fæti í lífi hennar. Þau eignuðust þrjú mannvænleg börn sem öll eru á lífi. Öll hafa þau stutt móður sína á erfiðleikatímum hennar, en þó fyrst og fremst dóttirin Ragn- heiður sem hefur reynst foreldrum sínum einstök dóttir og vinur. Gústa kenndi oft líkamlegrar van- líðunar allt frá æskuárum og þrjátíu og sjö ára gömul greindist hún með MS-sjúkdóminn, sem síðar leiddi hana í hjólastól. Á næstu árum fékk hún hvert sjúk- dómsáfallið á fætur öðru. Hún gekkst undir margvíslegar læknisaðgerðir sem gáfu henni vonir og hún lifði með. Þrátt fyrir alla hennar sjúkdóma og hremmingar var hún ætíð virk bæði í anda og starfi. Hún sinnti heimili sínu eftir bestu getu, fylgdist með lífinu í landinu í gegnum fjölskyldu, vini og fjölmiðla. Hún skemmti sér við handavinnu og blómarækt. Hún naut barnabarna sinna sem hún ræktaði eftir föngum. Þrátt fyrir áralangt og erfitt heilsuleysi hafði hún hugprýði og kjark til að lifa með hversdagslífinu. Í öllu hennar langa stríði við sjúkdóma og vangetu var eiginmaður hennar Jónas hennar mikla stoð og stytta í einu og öllu og allar stundir. Fyrir það erum við vinir hennar þakklát. Að lokum vil ég færa fjölskyldu hennar og vandamönnum samúðar- og saknaðarkveðjur í hennar minn- ingu frá okkur systkinum og mágkon- um mínum. Margrét Matthíasdóttir. Elskuleg frænka mín er horfin, langt um aldur fram. Maður er alltaf jafn óviðbúinn og ég sakna hennar mikið. Hún var alltaf svo góð við mig, þegar hún vissi að það var erfitt. Nú kemur ekki kærkomið símtal, sem var svo hugljúft og skemmtilegt. Við gátum spjallað um svo margt. Indælt var líka að koma á fallegt heimili þeirra hjóna. Elsku Jónas og fjölskylda, systur og fjölskyldur þeirra. Góður Guð styrki ykkur í þessari miklu sorg. Blessuð sé minning elskulegrar konu. Fríða og Örn. Kær vinkona mín, Ágústa Hrefna, er látin. Vinátta okkar hófst fyrir 45 árum þegar við sátum saman í Lind- argötuskólanum. Við komum báðar úr Miðbæjarskólanum þar sem við höfðum kynnst lítillega. Aldrei bar skugga á þessa vináttu okkar, þótt sambandið væri misjafnlega mikið í gegnum árin eins og gengur og ger- ist. Þegar við útskrifuðumst úr „Lindó“ bauðst okkur báðum vinna í Iðnaðarbankanum. Þar unnum við Gústa, eins og ég kallaði hana, í nokk- ur ár við vélritun, en þetta var löngu fyrir tíma almennrar tölvunotkunar. Á þessum árum kynntist Gústa Jónasi manni sínum. Eignaðist hún með honum þrjú mannvænleg börn. Jónas hefur verið stoð hennar og stytta í gegnum veikindin þessi síð- ustu ár, enda ósjaldan sem Gústa sagði mér hvað hann væri duglegur og natinn við sig. Eitt lögðum við Gústa mikla áherslu á og það var að heimsækja hvor aðra á afmælisdegi okkar, sér- staklega núna seinni árin. Síðasta af- mælisdaginn minn komst Gústa ekki til mín vegna veikinda og var það í fyrsta skipti í mörg ár sem það gerð- ist og var hennar sárt saknað. Gústa var mjög fær að ráða kross- gátur og sagði stundum í gríni að það efldi heilabúið. Hafði hún alveg sér- staklega gott minni og var með ein- dæmum mannglögg og var alltaf hægt að leita til hennar ef maður mundi ekki eitthvað síðan í gamla daga. Gústa var ekki mikið fyrir að flíka tilfinningum sínum og þegar ég hringdi í hana og spurði hvernig hún hefði það vildi hún sem minnst gera úr veikindum sínum. Gústa hefur kennt mér að meta það hversu góð heilsa er mikils virði, það er ekkert al- veg sjálfsagt að vera frískur og geta hreyft sig að vild. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð hjartans þakkir fyrir liðna tíð lifðu sæl á ljóssins friðarströnd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Elsku Jónas, Ragnheiður, Guð- mundur og Þráinn. Ykkur og fjölskyldum ykkar vil ég votta mína dýpstu samúð. Ég kveð þig, elsku vinkona, þín verður sárt saknað. Katrín Eiríksdóttir. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þótt svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir, og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Við sendum Jónasi, Ragnheiði, Guðmundi, Þráni og fjölskyldum þeirra innilegustu samúðarkveðjur. Davíð Örn, Elvar Már og Heiða Millý. Ágústa Hrefna Þráinsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.