Morgunblaðið - 17.01.2007, Page 35

Morgunblaðið - 17.01.2007, Page 35
                                          ! "     !        #     $  %                  ! "  #  "$    %& & ''' Morgunblaðið/Steinunn ÁsmundsdótAndri Snær Magnason „Líklega hefur ekkert ófriðarrit orðið jafn vinsælt síðan Íslendingasögur voru lesnar/sagðar á hverjum bæ.“ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2007 35 menning Fyrsti konsert er frír SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS Sinfónía og fiðlukonsert FIMMTUDAGINN 18. JANÚAR KL. 19.30 Hljómsveitarstjóri ::: Petri Sakari Einleikari ::: Judith Ingólfsson rauð tónleikaröð í háskólabíói Wolfgang Amadeus Mozart ::: Fiðlukonsert nr. 5 Anton Bruckner ::: Sinfónía nr. 7 í boði FL Group og Sinfóníuhljómsveitarinnar Sinfónían fagnar komu góðra gesta til að flytja með hljómsveitinni hinn dramatíska fiðlukonsert Mozarts og þekktasta verk Bruckners. í Sunnusal Hótels Sögu kl. 18.00. Halldór Hauksson kynnir efnisskrá kvöldsins. Boðið verður upp á súpu og kaffi. Aðgangseyrir er 1.200 kr. tónleikakynning vinafélagsins Eftirréttir Hagkaupa, semmun vera uppskriftabók,seldist mest allra íslenskra bóka á síðasta ári, samkvæmt bók- sölulista Morgunblaðsins og Fé- lagsvísindastofnunar. Ekkert meira er um það að segja. Arnaldur Indr- iðason átti næstmest seldu bók árs- ins, Konungsbók. Það kemur ekki á óvart. Draumalandið eftir Andra Snæ Magnason var í þriðja sæti listans. Það eru tíðindi! Eða hvað skyldi vera langt síðan ádeilurit á borð við þetta var metsölubók á Ís- landi? Íslendingar eru auðvitað ekk- ert sérstaklega gefnir fyrir ádeilu. Þeir vilja hafa rólegt í kringum sig. Þeir vilja frið til þess að vinna og frið til þess að borða og leika sér og horfa á sjónvarpið. Þeir vilja frið til þess að sofa á sínu græna. Og þeir vilja hafa frið í bókum sínum og frið fyrir bókum, ágengum bókum. Lík- lega hefur ekkert ófriðarrit orðið jafn vinsælt síðan Íslendingasögur voru lesnar/sagðar á hverjum bæ.    Annars eru margir forvitnilegirhlutir á þessum lista. Á lista yf- ir íslensk og þýdd skáldverk eru að- eins þrjár þýðingar og engin þeirra myndi teljast til meiriháttar bók- menntaverka (Flugdrekahlaup- arinn, Munkurinn sem seldi sportbíl- inn sinn og Viltu vinna milljarð? – allar frá JPV-útgáfu). Á síðasta ári voru gefnar út mjög vandaðar þýð- ingar á heimsbókmenntum svo sem Umskiptunum eftir Kafka, Laug- ardegi eftir Ian McEwan, Theresu eftir François Mauriac, Borgarstjór- anum í Casterbridge eftir Thomas Hardy, Brestum í Brooklyn eftir Paul Auster, Wuthering Heights eft- ir Emily Brontë og þannig mætti áfram telja. Engin þeirra er á lista yfir tíu mest seldu skáldverkin og þó mætti auðveldlega telja sumar þess- ara bóka til metsölubóka eins og bækur Austers og McEwans. Ástæð- an fyrir því að þessar bækur eru ekki meðal söluhæstu bóka er vænt- anlega sú að útgefendur hafa ekki auglýst þær nógsamlega. JPV aug- lýsti þær þrjár þýddu bækur sem eru listanum mjög vel.    Það segir líka sitt um íslenskaljóðabókamarkaðinn að Sálma- bók íslensku kirkjunnar situr í öðru sæti yfir mestseldu ljóðabækur síð- asta árs. Það verður að teljast und- arlegt því fáar þjóðir rækja trú sína jafn lítið og Íslendingar ef marka má kannanir. Jólin koma eftir Jóhannes úr Kötlum var mest selda ljóðabók síðasta árs, 75 ára gömul bók! Ný ljóðabók Hannesar Péturssonar, Fyrir kvölddyrum, var í þriðja sæti sem er merkilegt. Hún slær meira að segja bók Einars Más Guðmunds- sonar við, Ég stytti mér leið fram hjá dauðanum. Og einnig spútnikbók Ingunnar Snædal, Guðlausir menn – Hugleiðingar um jökulvatn og ást, en sú forvitnilega bók fór langt á miklu umtali og verðlaunum. Í ní- unda sæti voru Hávamál og í því tí- unda Spámaðurinn eftir vitringinn Kahlil Gibran. Enn einu sinni Kahlil!    En kannski er mesta fréttin áþessum listum sú hvað fyr- irferð Eddu og JPV er mikil á ís- lenskum bókamarkaði. Þessi tvö for- lög eru langsöluhæst. Af tíu mest seldu bókum ársins á Edda fjórar og JPV fjórar. Af sextíu titlum á sex listum eiga þessar tvær útgáfur meira en tvo þriðju, Edda 25 og JPV 20. Önnur útgáfufélög eiga einn eða tvo titla hvert á þessum listum en þar á meðal er gæðaforlag á borð við Bjart. Hið íslenska bókmennta- félag á ekki eina einustu bók á list- unum. Enn af listum AF LISTUM Þröstur Helgason » Það segir líka sittum íslenska ljóða- bókamarkaðinn að Sálmabók íslensku kirkjunnar situr í öðru sæti yfir mestseldu ljóðabækur síðasta árs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.