Morgunblaðið - 17.01.2007, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2007 41
/ ÁLFABAKKA
THE PRESTIGE kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.12 .ára.
THE PRESTIGE VIP kl. 5:20 - 8 - 10.40
EMPLOYEE OF THE MONTH kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ
STRANGER THAN FICTION kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 8 - 10:40 B.i.16 .ára.
CHILDREN OF MEN kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16.ára.
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 3:20 - 5:40 LEYFÐ
HAPPY FEET m/ensku tali kl. 3:20 LEYFÐ
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 3:20 LEYFÐ
/ KRINGLUNNI
THE PRESTIGE kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12
STRANGER THAN FICTION kl. 8:10 - 10:30 LEYFÐ
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 5:50 LEYFÐ DIGITAL
HAPPY FEET m/ensku tali kl. 5:50 - 8:10 LEYFÐ DIGITAL
DÉJÁ VU kl. 10:30 B.i. 12 DIGITAL
ÁHRIFARÍK OG ÓVENJU-
LEG SPENNUMYND
Þ.Þ. FRÉTTABLAÐIÐ
HÖRKFÍN MYND
eeee
RÁS 2
eeee
H.J. MBL.
eeee
B.S. FRÉTTABLAÐIÐ
KVIKMYNDIR.IS
GOLDEN GLOBE TILNEFNING
BESTI LEIKARI : WILL FERRELL
eee
H.J. MBL.
eeee
KVIKMYNDIR.IS
SANNKALLAÐ MEISTARAVERK SEM KVIKMYNDAÐ VAR
AÐ MESTUM HLUTA Á ÍSLANDI
eeee
L.I.B. TOPP5.IS
eee
Þ.J. FRÉTTABLAÐIÐ
eeee
S.V. MBL.
FRAMLEIDD AF STEVEN SPIELBERG EFTIR
ÓSKARSVERÐLAUNAHAFANN CLINT EASTWOOD
eeee
RÁS 2
eee
A.Ó. SIRKUS
eeee
B.B.A. PANAMA.IS
eeee
V.J.V. TOPP5.IS
WILL FERRELL SÝNIR Á SÉR
NÝJA HLIÐ Í FRÁBÆRRI MYND
SEM SKILUR MIKIÐ EFTIR SIG.
eeee
B.S. FRÉTTABLAÐIÐ
ÞRÆLHRESS TEIKNIMYND
Þ.Þ. Fréttablaðið.
eeee
H.J. Mbl.
FRÁ FRAMLEIÐENDUM WEDDING CRASHERS
GEGGJUÐ
GRÍNMYND
eee
LIB, TOPP5.IS
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn er í yfirgengilegum stell-
ingum. Ef hægt er að ofgera er eins og
hugur undirvitundarinnar vinni á ofur-
hraða í leit að rausnarlegum og óhóf-
legum leiðum til þess að fara yfir strik-
ið.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Spenna að undanförnu hefur hrist upp í
mynstri nautsins. Því finnst þægilegt
að taka gamla rútínu upp aftur, en
samt er hún ekki alveg eins og verður
það kannski aldrei.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn þarf að vera eins og of-
urfóstra og skilja sjálfan sig frá "krökk-
um" sem hafa slæm áhrif. Það reynist
þrautin þyngri, því mælskustu vand-
ræðagemsarnir eru í hans eigin fjöl-
skyldu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ef allur endir markar nýtt upphaf þýð-
ir það þá, að öll byrjun marki líka enda-
lok? Krabbinn reynir hvað hann getur
að fjölga fólki í lífi sínu án þess að
breyta of miklu í samböndunum sem
fyrir eru.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið þráir að finna afl fossins, kaldan
gust norðlægra vinda og raka regn-
skógarins. Allt nema staðið inniloft.
Kannski er meiriháttar ævintýri utan
seilingar, en stutt frí gerir líka gagn.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Að hrapa að ályktunum er varasamt.
Spurðu, þótt þú efist ekki. Það er ekki
hægt að vera of varkár á degi sem
þessum, því minnsta dómgreindarleysi
gæti tapað mörgum vinnustundum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Taktu við hrósi. Ekki varpa því yfir á
samstarfsmenn og yfirmanninn. Þú átt
líka inni smávegis viðurkenningu. Vogin
er innblásin af fyrirheitum um ást í
kvöld og leggur virkilega mikið á sig til
þess að vekja spennu hjá einhverjum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Eitthvað sem einu sinni var fullnægj-
andi umbun virðist hreinir smámunir
núna. Bíttu í tunguna á meðan þú aflar
þér upplýsinga. Þú þarft að rökstyðja
launahækkun af list, annars færðu hana
ekki.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ástvinir þarfnast aðstoðar til þess að
yfirvinna neikvæðni. Ekki láta undan
ósannsögli þeirra. Varpaðu ljósi á það
hvernig lífið er í raun og veru. Bogmað-
urinn er góður í hreinskilni. Þakkirnar
koma síðar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Sambönd reynast flókin og reyna virki-
lega á steingeitina. Hún kýs erfiðan
valkost, þótt ekki sé gott að átta sig á
því hvort það krefjist meiri tilfinn-
ingalegs styrks að sleppa eða halda
fast.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Aðstæður sem vekja reiði lagast fljótt
ef vatnsberinn leyfir. Með því er mælt.
Það er margt sem maður getur ekki
með krepptum hnefa, eins og til dæmis
að opna hurðir og stýra bíl.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Glaðværð gefur þeim sem fiskurinn býr
með tóninn. Það merkir ekki að fisk-
urinn eigi ekki að beita sér á réttum
augnablikum. Keppinautar hörfa um
leið og hann stendur með sjálfum sér,
eigum sínum og viðhorfum.
stjörnuspá
Holiday Mathis
Orka steingeitarinnar er
ráðandi í bili. Margir líta
á steingeitina sem geit, en
sagan segir að einungis
efri helmingurinn sé geit
og sá neðri fiskur. Í stað
þess að láta togast á milli metnaðarins
(geitarinnar) og andlegrar visku (fisks-
ins) á maður að leita leiða til þess að
sameina þetta tvennt innra með sér, eins
og steingeitin hefur gert.
sem sýnishorn hafa verið sýnd í
kvikmyndahúsum landanna.
Leikkonunni EvuLongoriu, sem
fer með hlutverk
Gabrielle Solis í Að-
þrengdum eig-
inkonum, þykir
hreint ekki gaman
að því að taka upp
kynlífs- og kossa-
senur. Frá þessu
og ýmsu öðru
segir hún í við-
tali við tímaritið
Vegas.
„Ég þoli ekki kyn-
lífssenur og kossasen-
ur. Þær eru óþægilegar fyrir alla.
„Settu olnbogann þarna, vertu
hérna í ljósinu.“ Þetta er mjög óeðli-
legt og hreinlega vandræðalegt,“
segir Eva.
RÚV tekur þriðju þáttaröðina um
vinkonurnar við Bláregnsslóð til
sýninga í byrjun næsta mánaðar.
Ofurfyrirsætan NaomiCampbell hefur gengist
við því að hafa kastað far-
síma í húshjálp sína.
„Ég kastaði farsíma í
íbúðinni. Farsíminn skall á
Önnu,“ sagði Campbell við
vitnaleiðslur í glæparétti á Man-
hattan í New York í gær. „Þetta
var slys, af því ég ætlaði mér
ekki að kasta í
hana.“
Hin 35 ára
gamla Campbell
var sökuð um að
kasta símanum í
hnakka Önnu
Scolavino í mars sl. Scolavino var í
kjölfarið meðhöndluð vegna höf-
uðáverka. Campbell hefur verið
dæmd til að borga allan sjúkra-
kostnað Scolavino, sinna samfélags-
þjónustu í fimm daga og sækja nám-
skeið í reiðistjórnun.
Tveir rithöfundar hafa áfrýjaðdómi sem féll í Lundúnum í
fyrra í ritstuldarmáli vegna bók-
arinnar Da Vinci lykilsins. Höfund-
arnir halda því fram að Dan Brown,
höfundur Da Vinci lykilsins, hafi
notað hluta bókarinnar The Holy
Blood and the Holy Grail í eigin
verki.
Lögmenn þeirra Michaels Bai-
gents og Richards Leighs segja í
áfrýjunarstefnunni að dómur undir-
réttar hafi byggst á misskilningi, að
svo virðist sem dómarinn hafi ekki
skilið lögin og kröfur höfundanna.
„Áfrýjendurnir vilja vernda eigin
vinnu, dómgreind og hæfileika, sem
nýtt voru við að skrifa The Holy Blo-
od and the Holy Grail,“ segir í áfrýj-
unarstefnunni. „Málið snýst um að
leyfa ekki öðrum að nota þessa hæfi-
leika, dómgreind og vinnu í eigin
þágu eins og hr. Brown gerði við rit-
un The Da Vinci Code.“
Skoski leikarinnEwan McGre-
gor er þekktur
fyrir að fara í æv-
intýraleg mót-
orhjólaferðalög um
heiminn. Eignkona
Ewans mun víst
koma við sögu í næstu för en þá ætl-
ar leikarinn að ferðast frá Skotlandi
til Höfðaborgar í Suður-Afríku
ásamt ferðafélaga sínum Charley
Boorman. Eve McGregor mun slást
í för með þeim félögum í nokkrar
vikur og segir sagan að hún sæki
mótorhjólanámskeið þessa dagana.
Áður hafa Ewan og Charley
ferðast frá London til New York
með viðkomu í Mongólíu, Síberíu og
Alaska.
THE Power of Love sver sig í ætt leiksýninga sem eðli-
legast er að kenna við Hellisbúann. Eintöl þar sem karl-
ar – og konur – útmála á skoplegan hátt afstöðu sína til
hins kynsins. Þetta eru nokkurs konar varnarræður,
verða stundum dálítið MORFÍS-legar, og á köflum ákaf-
lega hvimleiðar.
The Power of Love er ekki hvimleið sýning. Hún er
einlæg, nokkuð frumleg og skemmtileg úttekt á því
hvernig það horfir við ungri konu að vera nánast ekki til
nema eins og hún birtist körlunum sem hún vill (eða tel-
ur sig verða) að nálgast.
Sýningin samanstendur af laustengdum atriðum sem
sameina dansleikhús, látbragð og trúð, stundum á nokk-
uð ómarkvissan hátt, stundum frábærlega, aldrei leið-
inlega. Textinn er lítill sem enginn, en þegar persónan
fær loks málið talar hún eingöngu í klisjulegum tilvitn-
unum í popptexta, og vekur þannig til umhugsunar um
hvað grunnhyggni og sölumennska er nánast allsráðandi
í umfjöllun um ástina, sem á hinn bóginn er sífellt mærð
sem dýpsta og dýrmætasta kennd okkar.
Halldóra Malin hefur mikinn sviðssjarma og kann að
nota hann. Hún var frá fyrsta andartaki í sambandi við
salinn, þótt sýningin byrjaði á atriði þar sem tærnar á
henni voru í aðalhlutverki. Líkamspartar léku reyndar
stórt hlutverk sýninguna út í gegn, tær, fingur, augu,
(óæskilegt) hár. Þetta var á köflum óborganlegt.
Sumt var að vonum klisjulegt. Tepruviðbrögð við
myndum í kynlífskennslubók eru gömul saga. Margt af
því var á móti útfært á frumlegan og skemmtilegan hátt í
takt við tónlistina. Hin spennta bið við símann var dæmi
um ferska nálgun á þreytt viðfangsefni.
Og gaman hvernig hún nýtir hið trúðska augnaráð út í
salinn, sem stöðugt biður um viðurkenningu. Því það á
sér augljósa hliðstæðu í því hlutskipti kvenna að finnast
þær knúnar til að uppfylla óorðuð og illa skilgreind við-
mið til að vera gjaldgengar í augum okkar sem á þær
glápum.
Mest var þó gaman að lokaatriðinu, þar sem persónan
lokkar til sín mann á stefnumót. Þar tókst sýningin á
flug, í líkingamáli sínu, í snjallri notkun á leikmunum og í
krafti leikkonunnar. Þá var nú gaman.
Sýning af þessu tagi er í eðli sínu í stöðugri þróun, og
það er ýmislegt sem mætti skerpa. Umgjörðin er tæt-
ingsleg, og þó svo það kunni að vera með vilja gert þá
hjálpar það ekki erindi hennar. Meiri nákvæmni væri af
hinu góða, svo lengi sem aginn gengur ekki af persón-
unni dauðri. Og svo má lengi skipta út atriðum fyrir önn-
ur betri eftir því sem hugmyndirnar kvikna. Halldóra
Malin er í þann veginn að halda í leiklistarhátíðavíking
með sýninguna. Sjáið hana endilega áður en hún fer, og
svo aftur þegar hún snýr heim.
Kella
í helli
Morgunblaðið/Kristinn
Sjarmerandi á sviði „Halldóra Malin hefur mikinn
sviðssjarma og kann að nota hann,“ segir m.a. í dómi.
LEIKLIST
Brilljantín og Ismedia
Höfundur, leikstjóri og leikari: Halldóra Malin Pétursdóttir. Aust-
urbær 14. janúar 2007.
THE POWER OF LOVE
Þorgeir Tryggvason