Morgunblaðið - 17.01.2007, Page 44

Morgunblaðið - 17.01.2007, Page 44
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 17. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Norðaustan og austan 8–15 metr- ar á sekúndu og él norðan- og aust- anlands. Kaldast inn til landsins. » 8 Heitast Kaldast -2°C -15°C SAMHERJI er nú að vinna að kaupum á frystitogara frá Noregi. Um er að ræða fimm ára gamlan togara, sem er 55 metrar að lengd og 12,2 metrar að breidd. Hann er með 4.000 hestafla aðalvél, er búinn til að draga tvö troll í einu og er með heil- frystingu um borð. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, staðfestir að verið sé að vinna að kaupunum, en vill ekki tjá sig frekar um málið. Togarinn heitir Andenesfisk II og er frá Vesterålen í Noregi. Það er Andenes hav- fiskselskap sem á skipið ásamt öðrum. Framkvæmdastjóri félagsins segir í norsk- um fjölmiðlum að það sé rétt að verið sé að selja skipið og það verði selt án aflaheim- ilda. Það sé hins vegar ekki frágengið hvort flytja megi kvótann á hitt skip fé- lagsins, eða geyma hann, og hvort leyfi fá- ist til endurnýjunar á skipinu. Þetta þurfi að liggja fyrir til að hægt sé að ganga end- anlega frá sölunni. Samherji að kaupa togara Nýtt skip Togarinn Andenesfisk II sem Samherji er að kaupa frá Noregi. NÝTT lyf gegn offitu er nú komið á mark- að hérlendis en það virkar á aðra viðtaka en offitulyf, sem hingað til hafa verið not- uð við meðferð offitusjúklinga. Lyfið heit- ir Acomplia og hefur verið í þróun í tutt- ugu ár. Það hlaut samþykki íslensku Lyfjastofnunarinnar í nóvember sl. Acomplia blokkerar viðtaka í svoköll- uðu innankannabínoíðakerfi. Það tekur þátt í að viðhalda orkujafnvæginu, stjórn- ar matarlyst og líkamsþyngd, blóðfitu- og blóðsykursefnaskiptum. „Það er alltaf spennandi þegar fram á sjónarsviðið koma ný lyf, enda er offitu- vandamálið stórt. Þetta er hins vegar eng- in töframegrunarpilla nema jafnframt sé tekið á lífsstílsþættinum,“ segir Karl Kristjánsson, endurhæfingarlæknir á Grensásdeild, um lyfið. Lúðvík Á. Guð- mundsson, formaður Félags fagfólks um offitu, segir lyfið óskrifað blað. „En ég legg áherslu á að svona lyf muni ekki gagnast ef ekki er samhliða lögð vinna í grunnvandamálið sem er atferlisvandi við- komandi sjúklinga,“ segir hann. Offita hefur aukist á Íslandi bæði meðal barna og fullorðinna. | 20 Nýtt offitulyf „ÞETTA er náttúrulega svakalega kalt en það er mjög stillt þannig að það er ofboðslega fal- legt veður. Það er sól og allt kyrrt og fögur fjallasýn. Þetta er mjög fal- legt gluggaveður,“ sagði Sigurlína Tryggvadóttir, íbúi í Svartárkoti í Bárð- ardal, í samtali við Morg- unblaðið í gærdag, en þar fór frostið í rúmar 29 gráð- ur. Svartárkot er í rúmlega 400 metra hæð yfir sjáv- armáli og ábúendur þar því vanir köldum vetrum. Sig- urlína segir að á dögunum hafi frostið þar mælst um 20 gráður og nokkrir dagar undanfarið því ver- ið verulega kaldir, en enginn þó jafn kaldur og dagurinn í gær. Hún segir að klæði fólk sig vel sé lítið mál að bregða sér út fyrir dyr þótt kalt sé í veðri, ef veður sé stillt eins og var í gær. Í slíkum kulda kjósi heimafólkið þó heldur að halda sig inni við og sinna heimilisstörfum. Björn Sævar Einarsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að kaldast hafi und- anfarið verið fyrir norðan og austan, en engin kuldamet hafi þó fallið. Mesti kuldi sem mælst hefur á landinu er 38 gráða frost á Gríms- stöðum og Möðrudal 22. janúar 1918. Hiti í Vestmannaeyjum Ekki var þó alls staðar frost á landinu í gær. Í Vestmannaeyjum mældist um hálfrar gráðu hiti á hádegi, að sögn Björns Sævars. Mun- urinn á mesta hita og kulda á landinu í gær var því nálægt 28 gráðum, en Björn Sævar segir það í sjálfu sér ekki óvenjulegt. Oft sé mikill hitamunur milli staða sem ekki sé ýkja langt á milli. „Það getur oft verið ansi skemmtilega mikill hitamunur milli Dalatanga og Egils- staða,“ nefnir hann sem dæmi. Björn Sævar segir útlit fyrir að kalt verði áfram á landinu á næstunni og muni norð- austlægar áttir og svali í veðri ráða ríkjum. 29 stiga frost í Svartárkoti Sigurlína Tryggvadóttir Eftir Andra Karl andri@mbl.is SAMKOMULAG milli Spalar ehf. og Vegagerðarinnar sem tryggir 250 milljónir króna til undirbúnings framkvæmda við tvöföldun þjóðveg- arins á Kjalarnesi og gerð nýrra ganga undir Hvalfjörð var undirritað í síðustu viku. Sérstök samstarfs- nefnd verður sett á fót til að fjalla um tilhögun verkefna og framgang. Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra fól Vegagerðinni að taka upp viðræður við Spöl í kjölfar fundar með fulltrúum stjórnar fyrirtækisins þar sem þeir kynntu hugmyndir um hvernig koma mætti undirbúningi nýrra Hvalfjarðarganga og vegabót- um á Kjalarnesi á dagskrá á þessu ári. „Það er alveg ljóst að framundan er það verkefni að auka afkastagetu jarðganganna og ég taldi nauðsyn- legt að gera samkomulag við stjórn Spalar um næstu skref,“ segir Sturla sem gerir jafnframt ráð fyrir að sam- komulagið flýti fyrir vegabótum á Vesturlandsvegi. Aðspurður hvort framkvæmdirn- ar feli einnig í sér að byrjað verði á fyrirhugaðri Sundabraut að norðan- verðu segir Sturla að til þess verði lit- ið. „Sundabrautin mun væntanlega tengjast inn á Vesturlandsveginn og það verður horft til þess.“ Klukkan farin í gang Gísli Gíslason, stjórnarmaður Spalar, segir að með samkomulagi Spalar og Vegagerðarinnar hafi fengist fjármagn til hönnunar og einnig sé ætlunin að kaupa land sem þörf er á vegna tvöföldunar þjóðveg- arins á Kjalarnesi og Hvalfjarðar- ganga. Gísli taldi að undirbúningur verkefnisins tæki þetta ár og fram á næsta ár. „Nú er klukkan farin í gang,“ sagði Gísli. Fyrstu skref í átt að nýj- um Hvalfjarðargöngum Samkomulag milli Spalar og Vegagerðarinnar tryggir fé til undirbúnings Í HNOTSKURN »Í samkomulaginu milliSpalar og Vegagerð- arinnar er kveðið á um að Spölur geri upp 150 milljóna kr. skuld sína við Vegagerð- ina í september 2007. »Þeim fjármunum verðurvarið til undirbúnings fyrirhugaðra framkvæmda, auk þess sem Vegagerðin leggur að minnsta kosti fram 100 milljónir kr. á árunum 2007 og 2008 í sama skyni. „ÉG BERST á fáki fráum fram um veg, mót fjallahlíðum háum hleypi ég.“ Þannig orti Hannes Hafstein, fyrsti ráðherra landsins, í ljóði sínu Fákum. Þessum hestamönnum, sem þeystu um á fákum sínum í Mosfellsdal, hefur kannski komið í hug þetta ljóð þjóðskáldsins. Aðstæður til hestamennsku eru góðar um þessar mundir þó frekar kalt sé í veðri. Menn þurfa bara að klæða sig vel. Morgunblaðið/ÞÖK „Ég berst á fáki fráum fram um veg …“ FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ og greiningar- deild Kaupþings gera ráð fyrir að hagvöxtur á þessu og næsta ári verði meiri en þessir aðilar gerðu ráð fyrir í októbermánuði síðastliðnum. Spá greiningardeildar Kaupþings um hag- vöxt er nokkru hærri en spá fjármálaráðu- neytisins sem skýrist að hluta til að minnsta kosti af því að bankinn gengur út frá því að nýr áfangi í stóriðjuframkvæmdum hefjist í Hafnarfirði með stækkun á álveri Alcans. Fjármálaráðuneytið gerir ekki ráð fyrir nýj- um stóriðjuframkvæmdum í þjóðhagsspá sinni. Spáir 4,1% hagvexti Þetta kom fram í gær en þá kynnti grein- ingardeild Kaupþings spá um efnahagshorfur á næstunni og fjármálaráðuneytið kynnti end- urskoðaða þjóðhagsspá sína. Fjármálaráðu- neytið gerir nú ráð fyrir 2,2% hagvexti í ár og 3,1% hagvexti árið 2008 en í eldri spá, frá því í október, var spáð 1,0% hagvexti á þessu ári og 2,6% hagvexti á árinu 2008. Kaupþing spáir því að hagvöxtur á þessu ári verði 3,4%. Í október í fyrra spáði bankinn því að landsframleiðslan, þ.e. hagvöxturinn, myndi dragast saman um 0,2% á þessu ári. Þá gerir bankinn nú ráð fyrir 4,1% hagvexti á næsta ári en í eldri spá var spáð 3,1% hag- vexti. Töluverður munur er á verðbólguspá Kaup- þings og fjármálaráðuneytisins á næsta ári. Þá gerir bankinn ráð fyrir 4,0% verðbólgu en ráðuneytið reiknar með því að verðbólgan verði þá komin undir 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans og muni þá mælast 2,3%. | 13 Spá nú hærri hagvexti en gert var í október

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.