Morgunblaðið - 06.02.2007, Síða 15

Morgunblaðið - 06.02.2007, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2007 15 MENNING FLESTIR tengja PlayStation- tölvuleiki við bardagaleiki, skotvopn og annað þvíumlíkt. Ráðamenn hjá Sony, sem fram- leiðir PlayStation, hafa því brugðið á það ráð að koma á samstarfi við ensku þjóðar- óperuna sem er til húsa í London Coliseum. Samstarfinu er þannig háttað að Sony styrkir fjár- hagslega uppfærslu á óperunni La Boheme eftir Ítalann Puccini, sem sett verður upp í áðurnefndu óperu- húsi síðar í mánuðinum. Í staðinn verður forsalur hins 103 ára London Coliseum fylltur af Play- Station 3 tölvum fyrir sýningar, auk þess sem sýningin nýtur stuðnings gagnvirkrar heimasíðu þar sem not- endur geta fylgst með uppfærslunni að tjaldabaki sem og á sviðinu. Auk þess geta notendur spreytt sig í söng á heimasíðunni og fengið leiðsögn í þeim efnum. Sony hefur á undanförnum 13 ár- um tryggt sig í sessi sem langstærsti tölvuleikaframleiðandi heims og hef- ur selt rúmlega 200 milljónir leikja- tölva frá upphafi. Síðustu ár hafa stjórnendur Sony reynt að ná til fleira fólks en ung- lingspilta, sem eru þeirra stærsti not- endahópur. Samstarfið við bresku þjóðaróperuna og önnur viðlíka menningarbákn á borð við Victoriu & Alberts safnið í London og bresku kvikmyndastofnunina, eru liður í þeim áætlunum. Nýjasta útgáfan, PlayStation 3, er væntanleg í Evrópu á næstu vikum en tafir urðu í dreifingunni vegna framleiðslugalla. Play- Station og Puccini Vilja fjölga not- endum leikjatölva London Coliseum. LEIKSTJÓRINN Ang Lee, sem er m.a þekktur fyrir Brokeback Mountain og Crouching Tiger, Hidden Dragon, mun leikstýra rómantísku gam- anmyndinni A Little Game. Handritið að myndinni var endurskrifað eftir að leikararnir Cameron Diaz og Jim Carrey drógu sig út úr myndinni á seinasta ári vegna handritsins. Sagan er byggð á franska leikrit- inu, A Little Game of Consequence, sem segir frá trúlofuðu pari sem þykist hætta við að gifta sig til að komast að því hvað vinum þeirra finnst í alvörunni um sambandið. Tilkynnt hefur verið að öðrum kvikmyndaleikstjóra, Clint East- wood, verði veitt mannúðarverðlaun Amerísku kvikmyndasamtakanna sem verða afhent við hátíðlega at- höfn í Washington DC í næsta mán- uði. Verðlaunin sem eru kennd við Jack Valenti fær hann fyrir menn- ingarnæmi sitt í kvikmyndum, sér- staklega fyrir þá dæmalausu ákvörðun að gera kvikmyndina Lett- ers From Iwo Jima sem samstæðu við Flags of our Fathers. En Letters from Iwo Jima fjallar um japönsku hlið árásarinnar á Iwo Jima. Eastwood hefur tvisvar fengið Óskarsverðlaun sem besti leikstjóri, fyrir Unforgiven og Million Dollar Baby, og er nú tilnefndur í þriðja sinn fyrir Letters From Iwo Jima. Lee og Eastwood Clint Eastwood SENN líður að Músíktil- raunum sem að þessu sinni verða haldnar í Loftkast- alanum vikuna 19.–23. mars en úrslitakvöldið fer þetta árið fram í Verinu (Loftkast- alanum) laugardaginn 31. mars. Af því tilefni verður opnuð ljósmyndasýning í Ráðhúsinu í dag kl. 16 þar sem sýndar verða ljósmyndir af öllum þeim hljómsveitum og tónlistarmönnum sem tóku þátt í fyrra. Alls er þetta því 51 ein mynd sem ljósmyndarinn Brynjar Gunnarsson tók á undankvöldum Músíktilrauna 2006. Tónlist Styttist óðum í Músíktilraunir Foreign Monkeys DÚETTINN Picknick verður með tónleika á Domo í Þing- holtsstræti 5 í kvöld. Picknick er skipaður þeim Sigríði Ey- þórsdóttur og Þorsteini Ein- arssyni sem áður var söngvari í Hjálmum. Með þeim á tónleik- unum spila hins vegar þeir Birkir Rafn Gíslason á gítar, Einar Sævarson á bassa og Kristinn Snær Agnarson á trommur. Þau spila eins konar þjóðlagakántrí- blús. Það er Elín Eyþórsdóttir sem hitar upp en hún hefur leik um klukkan 21.30. Picknick tekur svo við um klukkan 22. Miðaverð er 500 krónur. Tónleikar Picknick spilar á Domo Picknick KVIKMYNDASAFN Íslands stendur í kvöld fyrir sýningu á kvikmynd Roberts Altman, Prét-á-Porter, frá árinu 1994. Myndin gerist á tískuviku í París og var kvikmynduð á einni slíkri. Aðalhlutverk eru í höndum Sophiu Loren, Marcello Mastroianni og Kim Basinger. Sýningar Kvikmyndasafns- ins fara fram í Bæjarbíói, Strandgötu 6, Hafn- arfirði, þriðjudaga kl. 20 og laugardaga kl. 16. Miðaverð er 500 krónur. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www.kvikmyndasafn.is. Kvikmyndir Robert Altman á tískuviku í París Robert Altman Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is HEILDARSKRÁ listaverka Sig- urjóns Ólafssonar kom út á prenti á árunum 1998 og 1999. Verka- skráin hefur nú verið sett upp á vef safnsins, www.lso.is. Til að kynna þetta framtak verður næsta sýning í Listasafni Sigurjóns tileinkuð vefskránni á þann hátt að grunnskólabörnum verður boðið að skoða ákveðið úr- tak úr skránni og velja eitt lista- verk sem viðkomandi óskar eftir að sjá á sýningunni. Heiti sýning- arinnar verður www.lso.is – Skóla- nemar velja verk á sýningu í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar, og verður hún opnuð á Safnanótt, föstudaginn 23. febrúar kl. 20. Börnin semja ljóð eða prósa Aðstandendur safnsins binda vonir við að verkalistinn á vefnum muni auðvelda mjög fræðslu um list Sigurjóns á öllum skólastigum. Af safnsins hálfu var leitað til myndmenntakennara um að þeir aðstoðuðu nemendur við að vinna verkefnið, sem felst í því, auk þess að velja verk, að skrifa stuttan texta, túlkun á listaverkinu, hug- hrif við skoðun á því, ljóð, prósa eða annað. Valdir textar úr bréf- unum verða birtir í sýningarskrá. Viðbrögð skólabarna góð Birgitta Spur, sem hefur veitt safninu forstöðu frá upphafi, segir að viðbrögð frá skólakrökkunum séu mjög góð, og að starfsmenn safnsins hafi þegar hafist handa við að vinna úr tillögum þeirra. „Það er mjög skemmtilegt að sjá val barnanna, og það virðist ætla að koma ágætlega út. Það eru krakkar úr 3., 6., 9. og 10. bekk sem hafa svarað, og alveg yf- irdrifið fyrir okkur að vinna úr því.“ Birgitta segir að hugmyndin með verkefninu hafi verið að kynna börnum vefinn, gefa þeim tækifæri til að velja verk á sýn- inguna gegnum nýja verkalistann og kynnast þar með verkum Sig- urjóns. „Við bjóðum börnunum að koma á opnunina, ásamt okkar fasta- gestum. Við það tækifæri verður veflistinn formlega opnaður – ef við fáum tölvu lánaða til þess. Ég vonast svo til að krakkarnir verði fúsir að segja gestum frá því hvers vegna þeir völdu sín verk á sýninguna og ég vona að við get- um skapað skemmtilega samræðu kringum það.“ Verðlaun verða veitt fyrir fimm bestu textana og höfundum þeirra boðið að flytja þá í safninu að opn- uninni lokinni á Safnanótt. Fyrir almenning og skóla Með verkalista Sigurjóns á vefnum skapast að sögn Birgittu miklir möguleikar. „Almenningur hefur frían aðgang að upplýs- ingum um öll þau verk sem vitað er að Sigurjón hafi gert, og getur listinn meðal annars gagnast ef staðfesta þarf verk vegna sölu eða eignaskráningar. Þá geta þeir sem vita um verk, sem ekki hafa verið skráð hjá safninu sent upplýsingar og/eða leiðréttingar, þar sem skrá- in er í stöðugri uppfærslu. Síðast en ekki síst opnar skráin mögu- leika á beinni samvinnu við mynd- menntakennara skólanna um verk- efnagerð.“ Brýnt að gera við húsnæðið Það kostaði 40 milljónir króna að endurbyggja og bæta við vinnustofu Sigurjóns Ólafssonar á árunum 1985-88, til að gera mætti úr henni safn. Að sögn Birgittu er það eitt af brýnu verkefnunum fyrir afmælisárið að leita aðstoðar fyrirtækja til að hægt verði að sinna aðkallandi viðhaldi á fast- eigninni. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar var gert að sjálfseignarstofnun ár- ið 1989, en hefur frá upphafi notið rekstrarstyrks frá ríki og borg. Birgitta segir að á síðari árum hafi þessi framlög rýrnað, ekki síst frá borginni, þar sem styrk- upphæðin, 3,3 milljónir, hafi hald- ist óbreytt frá árinu 2003, og verði að óbreyttu sú sama til ársins 2009. Styrkur af fjárlögum nemi 8 milljón krónum á þessu ári sem svari til launakostnaðar starfs- manna og launatengdra gjalda. Næsta ár verður afmælisár Næsta ár, 2008, markar ald- arafmæli Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara og er undirbún- ingur að sýningarhaldi og öðrum viðburðum á afmælisárinu hafinn í safninu sem við hann er kennt og hýsir list hans, Listasafni Sig- urjóns Ólafssonar í Laugarnesi. Næsta ár markar jafnframt 20 ára afmæli safnsins. Börn velja verk á sýningu Skrá með verkum Sigurjóns Ólafssonar, aðgengileg á vef safnsins, býður upp á möguleika á samstarfi við skóla og eykur þekkingu á verkum listamannsins Börnin Þetta verk, Börn að leik, er meðal þeirra verka Sigurjóns Ólafs- sonar sem skólakrakkar hafa valið á sýningu með verkum hans. TENGLAR .............................................. www.lso.is TÓNLISTARHÁTÍÐIN Iceland Airwaves leggur land undir fót um næstu helgi og kynnir íslenska tón- list á stærstu tónlistarráðstefnu Skandinavíu, By:Larm í Noregi. Til- gangur ferðarinnar er að kynna Airwaves-hátíðina fyrir gestum By:Larm sem koma víða að til að taka þátt í margskonar vinnu- fundum, námskeiðum og fyr- irlestrum og sjá yfir eitt hundrað hljómsveitir koma fram. Mikilvæg hátíð Með í för eru: Lay Low, sem hlaut þrenn verðlaun á Íslensku tónlistar- verðlaununum; hljómsveitin Reykja- vík!, sem nýlega gerði það gott á við- skiptahátíðunum Eurosonic í Hollandi og MIDEM í Cannes og er á leiðinni á eina stærstu tónlistar- hátíð heims, South by Southewst í Texas; og síðast en ekki síst Ultra Mega Technobandið Stefán, sem vakti verðskuldaða athygli á síðustu Airwaves-hátíð. Tónlistarhátíðin og ráðstefnan By:Larm dregur árlega til sín hundr- uð starfsmanna tónlistariðnaðarins á Norðurlöndunum, Bretlandi og ann- ars staðar í Evrópu – auk venjulegra tónlistaráhugamanna. Iceland Airwaves til Noregs Ljósmynd/Kristinn Magnússon Stuðboltar Ultra Mega Technobandið Stefán fer með Lay Low, Reykjavík! og Iceland Airwaves til hátíðarinnar sem haldin er í Noregi. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.