Morgunblaðið - 06.02.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.02.2007, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Hannes Arn-órsson skrift- vélavirki fæddist á Ísafirði 18. ágúst 1917. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 28. janúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru Halldóra Bærings- dóttir, f. 4. sept- ember 1895, d. 30. mars 1978, verka- kona og húsmóðir, og Arnór Jónsson, f. 13. ágúst 1892, d. 1. febrúar 1919, sjómaður. Hálf- bróðir Hannesar, sammæðra, er Hafsteinn Ólafsson, f. 26. sept- ember 1927. Hinn 24. maí 1953 kvæntist Hannes Guðlaugu Guðmunds- dóttur, f. 5. maí 1912, d. 10. apríl 1974, frá Læk í Hraungerð- ishreppi. Börn þeirra eru: 1) Guð- mundur, f. 10. ágúst 1949, löggilt- ur endurskoðandi, kvæntur Ester Adamsdóttur. Börn þeirra eru: Hannes Adam, f. 6. júlí 1982, og Halldór Fannar, f. 13. mars 1988. 2) Arnór, f. 8. ágúst 1951, raf- eindavirki, sambýliskona Aðal- björg Úlfarsdóttir. Fyrri kona hans heitir Stefaníu G. Guðmunds- dóttir og börn þeirra eru: Guðlaug, f. 25.2. 1977, og Hannes, f. 24.11. 1982. 3) Halldóra, f. 25. ágúst 1953, sambýlismaður Karl Jensson. Hannes fluttist til Reykjavíkur 1925 og ólst upp hjá móður sinni og stjúpföður, Ólafi Ólafssyni verk- stjóra. Á sínum yngri árum var hann mikið í skákinni og tók meðal annars þátt í skákmótum og vann til nokkurra verðlauna. Hannes stundaði nám við Verzlunarskóla Ís- lands og lauk námi 1939. Fyrst eftir út- skrift vann hann sem verkamaður, en síðan hóf hann störf hjá Rit- símanum í viðgerðum og viðhaldi tækja. 1949 hóf hann starf hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli og sá um viðgerðir og viðhald tækja hjá þeim. Hann fór meðal annars til Bandaríkjanna til að læra lásamíði og opnun pen- ingaskápa. Árið 1956 hóf hann starf hjá G. Helgason & Melsted hf og var hjá Olivetti verksmiðjunum á Ítalíu í eitt ár. Hann var einn af stofnendum Félags Íslenskra skriftvélavirkja og var formaður þess félags um nokkurra ára skeið. Síðustu starfsár sín vann hann sem vaktmaður hjá Eimskipafélagi Ís- lands. Hannes verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Elsku besti afi minn, ég sakna þín mjög mikið og mun alltaf gera, því þú varst mér svo mikils virði. Minning- arnar um þig hafa komið sterkt upp í huga minn nú síðustu daga. Ég man alltaf eftir ferðunum niður í bæ þegar þú gafst mér pylsu og kók, þegar ég var lítil. Minningar þegar þú lást á gólfinu í herberginu mínu og last fyr- ir mig bækurnar um Línu langsokk, þegar ég var að fara að sofa á kvöld- in. Ég gleymi ekki heimsóknunum til þín í Borgarskálann eða þegar þú kenndir mér að tefla. Þú varst einstaklega duglegur og góður maður sem kvartaði aldrei yfir nokkrum hlut. Þú stóðst alltaf eins og klettur við bakið á okkur eftir að mamma og pabbi skildu. Ég gat alltaf leitað til þín og aldrei sagðir þú nei við mig, þú til dæmis hjálpaðir mér við bókakaup og skólagjöld sem er ómetanlegt. Þú varst svo stoltur af okkur systkinunum, þú ljómaðir þeg- ar við útskrifuðumst úr framhalds- skóla og síðar meir úr háskóla. Ég mun varðveita allar dagsferð- irnar sem við fórum með þér. Það var alltaf jafn gaman að fara á hverju sumri til Þingvalla og síðan til Hvera- gerðis, þar sem við fengum kaffi og kökur. Minnisstæðasta dagsferðin er þegar við fórum til Þingvalla og end- uðum á pitsustað á Selfossi. Þú borð- aðir pitsuna með bestu lyst. Þú komst á hverjum degi heim í hádeginu að heilsa upp á mömmu og fékkst kaffi og eitthvað með því. Þú byrjaðir að bera út Dagblaðið Vísi fyrir okkur systkinin þegar ég var 13 ára og þú 73 ára og barst það út í 12 ár. Þú varst eins og klukka, fólk sagði við mig að það hefði getað stillt klukkuna eftir þér. Mamma spurði þig þó nokkrum sinnum hvort þú vildir ekki hætta að bera út blaðið, en alltaf sagðir þú nei. Laugardagskvöld eru góð í minn- ingunni, því þú komstu svo oft til okk- ar í mat og varst hjá okkur langt fram eftir kvöldi, enda var stutt að fara heim frá okkur, aðeins tveggja mínútna gangur. Gamlárskvöldin eru einkar minn- isstæð þar sem við áttum yndislegar stundir saman og var alltaf jafn gam- an að vera með þér. Nýliðið gamlárs- kvöld var með öðru sniði en vanalega, þar sem við vorum búsett tímabundið heima hjá móður mömmu og Sigríði. Ég er mjög glöð að hafa getað verið með þér gamlárskvöldið sem var að líða og mun ég varðveita minninguna um þig um ókomna tíð. Ég mun alltaf muna hversu góður og hjálpsamur þú varst við mig. Mér þykir afskaplega vænt um þig og mun ég sakna þín ákaflega. Hvíl í friði, elsku afi minn. Þín Guðlaug. Hannes frændi er fallinn frá. Að lokinni langri lífsgöngu lagði hann í ferðina skömmu áður en hann hefði orðið níræður, sem hefði orðið á næsta afmælisdegi Reykjavíkur, 18. ágúst. Hannes var úr Furufirði á Hornströndum í móðurætt og þaðan liggja ættir okkar og skyldleiki sam- an. Hannes var einhver nánasti vinur föður okkar, Eyþórs Magnúsar Bær- ingssonar, á meðan báðir lifðu enda náskyldir og ólust upp saman eins og bræður, fyrst á Faxastöðum í Grunnavík og síðar á Skólavörðustíg 42 í Reykjavík. Samgangur var löngum tíður á milli heimila okkar og Hannes er og verður í minningu okk- ar systkinanna þessi léttlyndi og sí- káti frændi, sem átti auðvelt með að sjá flestar hliðar lífsins með jákvæð- um augum og ekki spillti einstakt skopskyn hans fyrir þeirri lífssýn sem hann bar með sér. Hann sat oft að tafli með föður okkar þar sem þeir æfðu skáklistina og ekki laust við að ungviðið á heimilinu fengi einnig að spreyta sig á hvítum reitum og svört- um þegar best lét. Hannes flutti ýmsar nýjungar með sér. Hann lærði ungur skrifvélavirkj- un og starfaði hjá G. Helgason og Melsteð, sem versluðu með hinar ítölsku Olivetti-vélar. Natni hans var viðbrugðið þegar glíma þurfti við flókin reikniverk hinnar mekanísku tækni. Stilla margföldun og deilingu, samlagningu eða frádrátt sem öll byggðist á hreyfanleika einstakra hluta í reiknivélinni. Hann var einnig natinn við að stilla talnalása og hyggjum við að hann hafi komið ýms- um til hjálpar þegar talnalínan hafði gleymst. Einbeitni hans og starfsvilji urðu til þess hann var sendur til Sviss og Ítalíu haustið 1956 til að kynna sér skrifvélar. Á þeim tíma voru utan- landsferðir fátíðari en nú og því mik- ið ævintýri að fá tækifæri til takast slíka ferð á hendur. Okkur þótti líka nokkurt ævintýri að fá póstkort frá honum frá svo fjarlægum löndum en 18. október skrifaði hann föður okkar frá Ivrea á Ítalíu: „Nú snýst allt um Hannes Arnórsson ✝ GuðmundurFriðriksson fæddist í Seldal í Norðfirði 24. júní 1913. Hann lést á Hrafnistu í Reykja- vík 31. janúar síð- astliðinn. Hann var sonur hjónanna Guðríðar Guð- mundsdóttur, f. á Sveinsstöðum í Hellisfirði 20.3. 1879, d. 13.10. 1939, og Friðriks Jóns- sonar, f. í Hamra- gerði í Eiðaþinghá 6.9. 1874, d. 17. 6. 1920. Guðmundur var næst- yngstur fimm systkina sem lifðu en auk þessara fæddist þeim Guð- ríði og Friðriki andvana dóttir sem var frumburður foreldra aðeins 6 mánaða gömul, þá Hulda Elma skrifstofumaður sem býr í Neskaupstað, hún tvö börn og yngstur er Friðrik rafeindafræð- ingur, kvæntur Þórheiði Ein- arsdóttur flugfreyju, þau eiga tvær dætur en fyrir átti Friðrik tvo syni. Guðmundur og Oddný slitu samvistir. Guðmundur nam rafvirkjun hjá Hannesi Jónssyni og tók próf í þeirri grein frá Iðnskóla Austur- lands sem var undanfari Verk- menntaskóla Austurlands í Nes- kaupstað og vann hann að iðngrein sinni þar til hann hætti störfum sakir aldurs. Kveðjuathöfn um Guðmund verður í Fossvogskirkju í dag og hefst hún klukkan 15. Jarðsett verður á Norðfirði laugardaginn 10. febrúar. sinna. Elst var Sig- ríður, þá Gísli, næst kom Jón, þá Guð- mundur og yngstur var Guðlaugur. Jón er einn eftirlifandi systkinanna og býr í Neskaupstað á 96. aldursári. Guðmundur hóf sambúð með Odd- nýju Sigurjónsdóttur á Norðfirði, 12. maí 1986. Hún var dóttir Petrúnar Gísladóttur og Sigurjóns Guðna- sonar og eignuðust þau fjögur börn. Elst er Jóhanna Ríkey, í sambúð með Sigurliða Guðmunds- syni rafvirkjameistara, þau búa í Kópavogi, hún á fjögur börn, næst var Hulda Guðrún sem lést Elsku pabbi. Þá er þessu lokið, allavega að sinni. Síðustu mánuðir voru þér erfiðir, bæði andlega og lík- amlega. Andlega af því að þú vildir ekki vera upp á aðra kominn og lík- amlega þar sem krabbameinið var farið að láta þig finna fyrir sér. Þú sem aldrei vildir vera upp á aðra kominn og ekki láta hafa fyrir þér varðst að sætta þig við það hlutskipti. Pabbi var fæddur í Seldal í Norðfirði 24. júní árið 1913. Hann var næst yngstur fimm barna hjónanna Guð- ríðar Guðmundsdóttur og Friðriks Jónssonar. Pabbi var aðeins 7 ára þegar faðir hans dó og 14 ára var hann farinn að vinna úti í þorpi við beitningar. Það harðræði sem fylgdi þeirri vinnu setti mark sitt á hann alla tíð. Pabbi vann alla almenna verka- mannavinnu, hann var landformaður á vertíðum í Sandgerði og á Horna- firði og honum var skemmt þegar hann var sæmdur heiðursmerki sjó- mannadagsráðs Neskaupstaðar. „Ég landkrabbinn,“ sagði hann „orðu á sjómannadaginn“. Þarna vísaði pabbi til þess að hann var afskaplega sjó- veikur og þoldi vart við þegar hann þurfti, eftir að hann varð rafvirki, að vinna um borð í bátum, við bryggj- una. Já, pabbi dreif sig í Iðnskóla Aust- urlands 35 ára að aldri og lærði raf- virkjun. Seinna kenndi hann tíma- bundið stærðfræði við sama skóla. Pabbi var eftirsóttur í sínu fagi og hann kunni ekki að segja nei. Því var Guðmundur Friðriksson ✝ Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRGVIN HANNESSON, Suðurhlíð 38B, Reykjavík, er látinn. Jarðarförin auglýst síðar. Margrét Hallgrímsdóttir, Ríkharður Sverrisson, Auður Pétursdóttir, Magnús Björgvinsson, Andrés Björgvinsson, Ingveldur Björgvinsdóttir, Eyþór Eggertsson, afabörn og langafabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVAVAR JÓNSSON, Öxl, Austur-Húnavatnssýslu, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi miðviku- daginn 31. janúar. Útförin verður gerð frá Blönduóskirkju laugardag- inn 10. febrúar kl. 14.00. Jón Reynir Svavarsson, Sigríður Bára Svavarsdóttir, Ásdís Svavarsdóttir, Jörgen Inge Persson, Guðmundur Jakob Svavarsson, Anna Margrét Arnardóttir, Dröfn Svavarsdóttir, Torfi Gunnarsson, Svavar Guðjón Eyjólfsson, Thelma Andrésdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ALFONS GUÐMUNDSSON vélstjóri, andaðist á Sólvangi í Hafnarfirði sunnudaginn 4. febrúar. Útförin verður auglýst síðar. Anna Þorleifsdóttir, Gunnar Jón Alfonsson, Guðmundur Rúnar Alfonsson, Hildur Kristín Hilmarsdóttir, Þorleifur Kristinn Alfonsson, Lovísa Agnes Jónsdóttir og barnabörn. ✝ Elskulegur sonur minn, bróðir okkar, mágur og frændi, GUNNAR FRIÐRIK ÓLAFSSON, Háholti 14, Hafnarfirði, sem lést 29. janúar, verður jarðsunginn frá Hafnar- fjarðarkirkju miðvikudaginn 7. febrúar kl. 13.00. Guðlaug Hanna Friðjónsdóttir, Hulda Ólafsdóttir Scoles, Dave Scoles, Anna Ólafsdóttir, Guðrún Ólafsdóttir, Adolf Örn Kristjánsson, Friðjón Ólafsson, Erna Herbertsdóttir og frændsystkini. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og bróðir, GARÐAR VIGFÚSSON, Húsatóftum III, Skeiðum, lést á heimili sínu laugardaginn 3. febrúar. Jarðsungið verður frá Skálholtskirkju laugardaginn 10. febrúar kl. 13.00. Elín Ingvarsdóttir, Helga Garðarsdóttir, Ingvar Garðarsson, Vigfús Garðarsson, Pascale Darricau, Unnar Garðarsson, Elínborg Harðardóttir, Sigríður Garðarsdóttir, Steinþór Guðjónsson, Davíð Garðarsson, Hrafnhildur Jónsdóttir, Hugrún Valgarðsdóttir, Sævar Valdimarsson, barnabörn og systkini hins látna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.