Morgunblaðið - 06.02.2007, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Seyðisfjörður | Sólin skein skært á þær Kristiönnu, Söru
og Elísu Björt á skíðasvæðinu í Stafdal ofan Seyðis-
fjarðar um helgina. Þótt aðeins gustaði um gestina létu
þeir það lítið á sig fá og renndu sér hverja bununa á fæt-
ur annarri. Ágætissnjór er í brautunum þótt að skað-
lausu mætti fara að bæta á, eins og einn gesturinn sagði.
Ljósmynd/EBB
Prýðisfæri til skíðaiðkunar í Stafdal
EFTIRLITSNEFND með fjármál-
um sveitarfélaga gerði í desember sl.
sveitarfélögunum Breiðdalshreppi og
Djúpavogshreppi að kanna mögu-
leika á sameiningu við Fljótsdalshér-
að vegna bágrar fjárhagsstöðu. Að
mati nefndarinnar leikur vafi á
rekstrarhæfi sveitarfélaganna
tveggja í núverandi aðstæðum.
Sveitarstjórn Breiðdalshrepps tel-
ur fýsilegra að líta til Fjarðabyggðar
vegna landfræðilegrar stöðu, tilkomu
Fáskrúðsfjarðarganga og möguleika
á að tengjast betur öflugu atvinnu- og
þjónustusvæði í uppbyggingu.
„Í þessu sambandi er einnig nauð-
synlegt að minna á ábyrgð ríkisvalds-
ins varðandi málefni sveitarfélaga
sem komin eru í líka stöðu og Breið-
dalshreppur. Þ.e. rekstrarlegar for-
sendur hæpnar, hagræðingarmögu-
leikar fáir og sveitarfélagið, vegna
ýmissa ástæðna, orðið útundan í sam-
einingarferlum og stækkun sam-
félaga,“ segir í bókun sveitarstjórnar
Breiðdalshrepps nýverið.
Djúpavogshreppur hefur farið
fram á viðræður um hugsanlega sam-
einingu við Fljótsdalshérað, sem hef-
ur samþykkt slíkar viðræður.
Knúin til sameiningar
Breiðdalur vill í Fjarðabyggð en Djúpivogur upp á Hérað
AUSTURLAND
Heilborun könnuð Bæjarráð Seyð-
isfjarðar hefur ráðið Sigurð Gunn-
arsson, hagfræðing og járnsmið, til að
taka saman upplýsingar um kosti heil-
borunar jarðganga á Mið-Austur-
landi. Sigurður hefur þegar hafið
vinnu, er ráðinn til eins mánaðar til að
byrja með og reiknar með skýrslu um
kosti og galla heilborunar að þeim
tíma liðnum. Sigurður var sveit-
arstjóri Búðahrepps á níunda áratug
síðustu aldar og kom þá m.a. að und-
irbúningi Fáskrúðsfjarðarganga.
Vegbygging í Skriðdal Vegagerð rík-
isins hefur boðið út byggingu 4,6 km
langs kafla þjóðvegar 1 á milli Vatns-
dals- og Haugaáa í Skriðdal. Í veginn
fara um 130 þúsund rúmmetrar af
efni auk vegriðs og ræsa. Tilboðs-
frestur rennur út 27. þessa mánaðar
en framkvæmdinni skal lokið 1. sept-
ember í haust.
Horfir illa Hæstiréttur hefur synjað
starfsmannaleigunni 2b um leyfi til að
áfrýja dómi Héraðsdóms Austurlands
frá í haust, þar sem 12 félagsmönnum
AFLs er unnið
höfðu á vegum
starfsmanna-
leigunnar voru
dæmdar sam-
tals um fjórar
milljónir í van-
greidd laun og
vegna ýmissa
frádráttarliða
sem ekki stóð-
ust lög og kjara-
samninga, auk um tveggja milljóna
króna í málskostnað.
Lögmaður AFLs, Jón Jónsson hdl
hjá lögmannsstofunni Regula, hefur
því óskað aðstoðar lögreglu við fram-
kvæmd fjárnáms hjá starfsmanna-
leigunni en forráðamenn fyrirtæk-
isins hafa tvívegis hunsað boðun í
fjárnám.
Samkvæmt heimildum AFLs er
starfsmannaleigan ekki skráð fyrir
neinum eignum utan 15 ára gamals
bíls og má því búast við að fjárnámið
verði árangurslaust.
Fari svo að forráðamenn 2b geti
ekki bent á eignir sem duga fyrir
kröfum félagsmanna AFLs mun
lögmaður félagsins þegar í stað
krefjast gjaldþrotaskipta fyrirtæk-
isins.
Hampiðjan vill lóð Hampiðjan hefur
sent Vopnafjarðarhreppi erindi þar
sem farið er fram á um 2.000 fer-
metra lóð fyrir netaverkstæði á
hafnarsvæðinu í
Vopnafirði. Er-
indinu var vísað
til skipulags- og
bygginga-
nefndar með til-
mælum um að
fundin verði
besta staðsetn-
ing slíkrar lóðar
m.t.t. óska fyr-
irtækisins og skipulags á svæðinu.
Verður í kjölfarið gengið frá end-
anlegri lóðaveitingu. Á und-
anförnum misserum hefur hafn-
araðstaðan á Vopnafirði verið
betrumbætt til muna og hafa tekjur
af höfninni þar rúmlega tvöfaldast á
skömmum tíma.
700IS í undirbúningi Nú berast
verk víða að úr heiminum til Egils-
staða, vegna alþjóðlegu til-
raunakvikmynda- og vídeóhátíð-
arinnar 700IS Hreindýraland. Hafa
borist um 500 verk og að sögn Krist-
ínar Scheving, forstöðumanns hátíð-
arinnar, erfitt að velja úr verkunum
því flest séu þau mjög góð. Hátíðin
mun standa í viku, frá 24. til 31.
mars nk. Á opnuninni verða frum-
sýnd verk eftir austurrísku lista-
mennina Mathias Fuchs og Werner
Moebius í samstarfi við íslenskan
plötusnúð.
Einnig verða sýnd þau verk sem
valin hafa verið til sýningar og hald-
ið sérstakt kvöld ætlað heimild-
armyndum.
Umsvif aukast við
Vopnafjarðarhöfn.
Verkamenn bíða
launa sinna.
ÍRIS Guðmundsdóttir, sextán ára
skíðakona úr Skíðafélagi Akureyr-
ar, slasaðist alvarlega í keppni í
risasvigi í Noregi á föstudaginn, að
því er segir á heimasíðu félagsins.
Íris, sem var ásamt Höllu Sif vin-
konu sinni að keppa á norska ung-
lingameistaramótinu, missti jafn-
vægið í stökki á miklum hraða og
lenti mjög harkalega á bakinu og
fékk síðan einnig gríðarlegt högg á
andlit og höfuð.
Í slysinu brotnuðu þrír hryggj-
arliðir í baki Írisar auk þess sem
hún fékk slæman heilahristing og
er marin og skorin í andliti. Íris var
sem betur fer með bakhlíf sem
læknar hennar fullyrða að hafi
skipt sköpum. Foreldrar Írisar eru
komnir til hennar á sjúkrahúsið í
Þrándheimi. Þau segja hana fulla
bjartsýni og ákveðna í að koma
fljótt aftur til keppni.
Á heimasíðu SKA segir að þau
biðji öll fyrir bestu kveðjur heim og
þakkir fyrir þann stuðning og sam-
kennd sem þau hafa fundið fyrir.
Íris var ein átta skíðamanna sem
valdir voru til þess að keppa fyrir
Íslands hönd á vetrarleikum Ól-
ympíuhátíðar Evrópuæskunnar
sem haldnir verða í Jaca á Spáni
síðar í mánuðinum.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Íris slasaðist
illa í Noregi
HÁSKÓLINN á Akureyri og
Landsvirkjun hafa gert samstarfs-
samning í því skyni að efla grunn-
rannsóknir á þeim fagsviðum sem
tengjast rannsóknum og nýtingu á
orkulindum landsins og áhrifum
hennar á samfélag og umhverfi. Um
er að ræða framlengingu á samningi
sem HA og Landsvirkjun gerðu
2001.
Árlegt framlag Landsvirkjunar til
háskólans nemur einu stöðugildi
prófessors og á móti kemur árlegt
vinnuframlag Háskólans við rann-
sóknarverkefni og sérfræðistörf fyr-
ir Landsvirkjun.
50–60 milljónir
Samningurinn felur í sér mesta
fjármagn sem háskólinn fær frá ein-
um aðila, eða um 50–60 milljónir í
heild þegar allt samningstímabilið er
talið.
Meðal verkefna sem HA mun
vinna á næstunni í tengslum við
samninginn er gerð áhættumats fyr-
ir Landsvirkjun vegna fyrirhugaðra
virkjunarframkvæmda fyrirtækisins
á háhitasvæðunum á Norðaustur-
landi undir stjórn Axels Björnssonar
og úttekt á grunnvatni og afrennsli
grunnvatns frá Þeistareykjum og
Gjástykki undir stjórn Hrefnu Krist-
mannsdóttur. Sú úttekt verður liður
í almennu umhverfismati vegna fyr-
irhugaðra virkjana.
Axel rifjaði upp í gær að það hefði
einmitt verið á grundvelli samnings-
ins frá 2001 að skólinn auglýsti
fyrstu stöðu prófessors í jarðhita-
fræðum á Íslandi, og Hrefna hefði
verið ráðin í það starf árið eftir.
Stærsta verkefnið til þessa er, að
sögn Axels, rannsóknir á vatnsauð-
lindum landsins, gæðum vatnsins og
eðli, sérstaklega með tilliti til þess að
auðvelda það að uppfylla kvaðir
vatnstilskipunar ESB þegar þar að
kemur.
Einnig hafa starfsmenn háskólans
unnið við fjarkönnun á háhitasvæð-
um með innrauðum flugskanna, sem
nýtast mun Landsvirkjun.
Áhugaverð vinna
Axel sagði að nokkuð aðrar
áherslur væru í nýja samningnum en
þeim upprunalega, ekki síst að því
leyti að verkefnin sneru meira að
svæðum á Norðausturlandi.
„Framundan er mjög áhugaverð
vinna fyrir skólann því vinna hér á
þessu svæði er upplögð fyrir BS
verkefni og mastersverkefni í orku-
bransanum.“
Það voru Guðmundur Heiðar Frí-
mannsson, staðgengill rektors, og
Friðrik Sophusson, forstjóri Lands-
virkjunar, sem skrifuðu undir samn-
inginn.
HA rannsakar áfram
fyrir Landsvirkjun
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Samstarf Guðmundur Heiðar Frímannsson, staðgengill rektors Háskólans
á Akureyri, Hrefna Kristmannsdóttir prófessor, Friðrik Sophusson, for-
stjóri Landsvirkjunar, og Axel Björnsson prófessor eftir undirritun í gær.
Í HNOTSKURN
»Samstarf Háskólans á Ak-ureyri og Landsvirkjunar
heldur áfram, en það hófst
með samningi 2001.
»Landsvirkjun greiðir einaprófessorsstöðu í HA ár-
lega en skólinn stundar ýmsa
rannsóknarvinnu í þágu fyr-
irtækiins í staðinn.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Íslands
heldur tónleika í kvöld kl. 19.30 í
íþróttahúsi Síðuskóla. Á efnisskrá
er Trilogia eftir Jón Leifs, píanó-
konsert Edvards Grieg og sinfónía
nr. 5 eftir Dímítrí Sjostakovits.
Einleikari er rússneski píanóleik-
arinn Lilya Zilberstein og stjórn-
andi er Rumon Gamba, aðalstjórn-
andi hljómsveitarinnar síðan 2002.
Miðaverð er 2.500 kr. en 1.250 kr.
fyrir 16 ára og yngri. Þess má geta
að Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur
aldrei fyrr haft á svo fjölmennu liði
að skipa á tónleikum utan Reykja-
víkur.
Sinfónían
í Síðuskóla
MARGRÉT Heinreksdóttir flytur í
dag fyrirlestur á Lögfræðitorgi við
Háskólann á Akureyri. Kosovo á
krossgötum, kallar hún erindið, en
fyrirlesturinn hefst kl. 12.00 í stofu
L201 á Sólborg við Norðurslóð.
Héraðið Kosovo, sem áður fyrr
var sjálfsstjórnarhérað í fyrrver-
andi Júgóslavíu hefur verið undir
alþjóðlegri stjórn (Sþ, NATO, ESB
og ÖSE) síðan í júní 1999.
HA: Kosovo
á krossgötum
ERNA Ingibjörg Pálsdóttir, deild-
arstjóri í Álftanesskóla, flytur í dag
erindi á fræðslufundi skólaþróun-
arsviðs kennaradeildar HA. Erind-
ið nefnist Námsmat í höndum kenn-
ara og hefst kl. 16.30 í stofu 16 í
húsnæði HA við Þingvallastræti.
Erindið byggist á rannsókn á
námsmati kennara í íslenskum
grunnskólum, sem lögð var til
grundvallar meistaraprófs við HA.
Námsmat
kennara