Morgunblaðið - 06.02.2007, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 06.02.2007, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2007 27 ✝ GuðmundurEinar Þórð- arson fæddist í Reykjavík 6. nóv- ember 1945. Hann lést á Landspít- alanum föstudaginn 2. febrúar síðastlið- inn. Hann var sonur hjónanna Geir- þrúðar Önnu Gísla- dóttur, f. 1906, d. 1954, og Þórðar Kjartans Ein- arssonar, f. 1906, d. 1981. Guðmundur Einar átti eina alsystur, Eddu, f. 1948, sammæðra systkini hans eru Sigríður, f. 1931, Einar, f. 1933, d. 1969, og Inga Ingibjörg, f. 1934. Guðmundur Einar giftist fyrst Svanhvíti Jónsdóttur og átti með henni tvö börn. Þau eru: 1) Elín Anna skrifstofumaður, f. 1965, gift Sigurði Gunnarssyni, f. 1960, börn þeirra eru Unnur, f. 1986, og Bjarki, f. 1992. 2) Brynja við- skiptafræðingur, f. 1967, börn hennar eru Guðjón Pétur, f. 1987, Eiginkona Guðmundar er Hulda Theódórsdóttir. Börn hennar eru Kristján, f. 1965, og Margrét, f. 1966. Guðmundur útskrifaðist frá Menntaskólanum á Akureyri 1967 og sem viðskiptafræðingur frá Há- skóla Íslands 1972. Hann var eig- andi og framkvæmdastjóri Vél- arinnar sf. í Reykjavík 1963–76. Framkvæmdastjóri Heildar sf. í Sundaborg Reykjavík frá 1973–74. Framkvæmdastjóri Gunnars Ás- geirssonar hf. Reykjavík 1974–86. Eigandi og framkvæmdastjóri Ak- urvík – Ís ehf. Akureyri, frá 1986– 1990. Eftir að hann flutti suður var hann m.a. framkvæmdastjóri Ís- orku ehf. og yfirmaður Hörkutóla hjá BYKÓ. Hann starfaði fyrir Lionsklúbbinn Ægi og sat í mörg- um nefndum fyrir Félag íslenskra stórkaupmanna. Guðmundur Ein- ar hafði mikinn áhuga náttúru Ís- lands og ferðaðist um hálendið bæði á jeppum og vélsleðum. Útför Guðmundar Einars verð- ur gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Kristján, f. 1989, Svanhvít Anna, f. 2003, og Stefán Smári, f. 2005. Guðmundur giftist svo Öldu Benedikst- dóttur og átti með henni þrjú börn. Þau eru: 1) Ingibjörg við- skiptafræðingur, f. 1972, börn hennar eru Karen, f. 1999 og Óttar, f. 2001. Ingi- björg er í sambúð með Eyþóri K. Guð- jónssyni, f. 1968. 2) Eyvindur Ívar viðskiptafræð- ingur, f. 1975, í sambúð með Ey- rúnu Steinsson, f. 1979. 3) Eyrún Ýr tölvunarfræðingur, f. 1977, dóttir hennar er Emilía, f. 1997. Eyrún Ýr er í sambúð með Ara Rafni Vilbergssyni, f. 1979. Alda átti fyrir Pálínu R. Sigurð- ardóttur, f. 1965, gift Kristjáni G. Kristjánssyni, f. 1966, börn þeirra eru Einar Orri, f. 1986, Viktor Ingi, f. 1990 og Alda Marín, f. 1999. Elsku pabbi, ekki hvarflaði það að manni þegar við sátum saman að spjalla á aðfangadag að mánuði seinna værir þú horfinn á braut. Þú varst svo hress en enginn veit sína ævi alla og þetta minnir mann enn og aftur á það að lifa fyrir daginn í dag. Það er skrítið hvernig allt gerist á sama tíma eins og sl. fimmtudag þeg- ar ég var allan daginn uppi á hjarta- deild vegna hjartaaðgerðar sonar míns sem tók mjög langan tíma. Það tók mjög á að bíða í marga klukku- tíma meðan á aðgerðinni stóð. En við eigum frábæra lækna, svo allt gekk vel að lokum. Ég hafði vaktaskipti við föður stráksins um kvöldið til að hvíla mig og ég átti svo að koma aftur eld- snemma morguninn aftur. En ég var ekki búin að vera lengi í burtu þegar Inga systir hringdi og sagði að þú hefðir fengið hjartastopp og værir á leiðinni upp á spítala með sjúkrabíl, á sama stað og sonur minn var. Ég þaut upp á spítala til þess að athuga um þig ásamt okkur systkinunum. Seinna um kvöldið komu læknarnir og töluðu við okkur og sögðu okkur að ástandið væri ekki gott. Annar læknirinn var sá sami og hafði verið í aðgerðinni á syni mínum fyrr um daginn, en hann hafði verið kallaður aftur út. Skrítið hvernig örlögin eru stundum. Við systkinin fengum að vera hjá þér þar til þú varst kallaður á annan vettvang og ég efast ekki um að þú lætur til þín taka þar. Þótt þetta hafi verið mjög erfiðar stundir þá var svo mikilvægt fyrir okkur að geta verið með þér undir lokin, þótt ekki tækist að koma þér aftur til meðvitundar. Þín er sárt saknað. Efst í huga mér er þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast þér, pabbi. Við hittumst ekki oft meðan ég ólst upp, en alltaf var ég þó hjá þér á ann- an í jólum og þá hitti maður alla fjöl- skylduna þína og á maður góðar minningar frá þessum veislum. Síðan eftir að maður varð eldri þá kynnt- umst við betur og alltaf gat maður leitað til þín, þú hafðir ráð við öllu. Það er svo skrítið, miðað við það að ég og elsta systir mín ólumst ekki upp með hinum systkinunum, hvað við er- um öll ótrúlega lík. Það er svo margt gott sem við fengum frá þér í vöggu- gjöf og við munum búa að alla ævi. Einnig er ég mjög þakklát fyrir þær stundir sem eldri strákarnir mínir fengu með þér í gegnum tíðina. Þeim fannst ekkert smá spennandi að fara í pössun til Gumma afa og bralla eitt- hvað með þér. Og ekki síst að leika við hundinn þinn, hana Donnu. Það eru ekki allir sem fá tækifæri til að kynn- ast svona ekta afa. Elsku pabbi, takk fyrir allt og ég vona að það bíði þín góðir tímar á nýj- um stað. Þín dóttir Brynja. Elsku pabbi minn, það er sárt að kveðja þig. Við ræddum oft hversu heppin fjölskylda við værum, engin óvænt dauðsföll né alvarleg veikindi í ættinni. En það kom í þinn hlut að verða fyrstur. Ég á margar góðar minningarnar, flestar frá hálendi Íslands, þar sem þú naust þín best. Saman fórum við ótroðnar slóðir og sjaldfarna fjalla- vegi sem í dag eru líkastir þjóðbraut. Öll kennileiti voru rædd út frá jarð- fræðinni og sögunni. Kverkfjallaferð- in okkar 1983 var okkur eftirminni- legust. Í þeirri ferð var Bjöggi Halldórs margspilaður, sungið með og textarnir lærðir utan að. Öðru hverju létum við vita af okkur með því að kalla í Gufunesradíó: H-1312, „Halldór“-1312 kallar! Farartækið okkar, Lappinn, var svo vel innrétt- aður og útbúinn að við gátum sofið hvar og hvenær sem var. Lappinn vakti mikla athygli hvert sem komið var og alltaf tókst þú vel á móti þeim sem vildu svala forvitni sinni um þetta undratæki. Mörg voru ævintýrin í ferðum okk- ar og mikið hlegið. Vélsleðaferðir um hálendið voru líka tíðar en við systk- inin vorum ung þegar þú fórst með okkur fyrst á vélsleða og dróst okkur um á dekkjablöðrum og skíðum, við mikinn fögnuð litla fólksins. Þegar þið mamma skilduð fórstu með okkur yngstu systkinin í eftir- minnilega ævintýraferð með Nor- rænu til Norðurlandanna og að sjálf- sögðu á aðaltryllitækinu, Lappanum. Á ferð okkar voru allir dýragarðar, tí- volí og skemmtigarðar heimsóttir. Stóð Lególand þar hæst upp úr. Ég minnist líka sunnudagsmorgn- anna í Vesturberginu þegar þú þand- ir græjurnar og vel valdir smellir látnir hljóma um allt hús. Þú fannst þig vel í tónlistinni þrátt fyrir að vera skemmtilega laglaus og spilaðir ekki á neitt hljóðfæri. Þjóðsögurnar lastu stundum á kvöldin með þeim tilþrif- um að hárið á okkur reis og langan tíma tók fyrir gæsahúðina að hverfa. Þú varst alltaf ráðagóður og þrýst- ir okkur aldrei út í neitt, heldur leið- beindir okkur og varpaðir upp mis- munandi möguleikum. Kannski á broslegan og lúmskan hátt varðstu þess valdandi að þrjú af sex börnum þínum urðu viðskiptafræðingar rétt eins og þú. Þegar eitthvað bjátaði á í lífinu okkar var alltaf hægt að leita til þín og ráðin voru ætíð jákvæð þar sem þú beindir okkur fram á við, með áherslu á að við skyldum nota styrk- leika okkar við lausnirnar og gleyma fortíðinni nema þá til að læra af. Hjálpsemi þín var endalaus og skipti engu máli á hvaða sviði leitað var til þín – alltaf var svarið: Ekkert mál, reddum þessu! Jákvæðni og lífsgleði voru þín einkenni. Þú varst eldklár og mjög fróður og gátum við rætt allt milli himins og jarðar. Besta lýsingin er kannski sú að nú síðast ræddum við í nokkra tíma um rafstöðvar og loftpressur. Þú varst stoltur af fjölda barna- barna þinna og þau elskuðu að fara til afa Donnu, eins og þau kölluðu þig, þar sem gamanið og hlýleikinn lét aldrei á sér standa. Elsku pabbi minn, þú varst og verður mín langbesta fyrirmynd, takk fyrir alla þá gæðatíma sem þú gafst mér og næst hjarta mínu geymi ég fal- legu orðin þín í minn garð núna um jólin. Þín Ingibjörg. Við munum öll daginn bjarta er við lukum síðasta stúdentsprófinu fyrir nær 40 árum. Og dimmissionar á köld- um vetrardegi þar sem þú varst fyr- irliði bekkjar að kveðja kennara í vatnaskilum ungdóms og manndóms. Gleði þína og drifkraft er dró vagninn okkar fram og smitaði út frá sér. Við hrifumst með og fundum í brjósti okk- ar mátt og hlekkir brustu innra með okkur. Við urðum margir bekkjar- félagarnir börn á nýjan leik en fræjum fullorðinsáranna var líka sáð. Og vin- átta og samheldni félaganna í stærð- fræðideildinni brást aldrei. Við munum upplestrarfríið vorið 1967 og sigurviljann er í okkur bjó í ætlunarverki huga, og agann er við öll þurftum að beita. Upplifðum von- brigði og sigra í senn. Við minnumst skipulagsgáfu þinn- ar, er þú kallaðir okkur saman til að hlusta á verk dúxins á erfiðum þýð- ingum sitjandi flötum beinum hver heima hjá öðrum. Samt vannstu allra manna mest með námi og allan Háskólann í við- skiptafræðinni er þú ókst langferða- bílum norður um heiðar og áttir samt tíma til lestrar og náms. Þú stóðst uppi sem sigurvegari hátt á tindi en þekktir líka dali og straum- inn þunga með fossum og flúðum. Þú naust þín best er járnin voru sem flest í eldinum, þar sem að komst útsjón- arsemi og frumleiki er þú áttir í ríkum mæli. Á kveðjustundu minnumst við glaðværðar þinnar og tryggðar og minning þín er greypt í hugann. Og strengurinn sem ofinn var forðum tíð í MA slitnar aldrei þótt dauðinn aðskilji okkur. Að leiðarlokum sendum við öllum ástvinum samúðarkveðjur og biðjum guð að blessa þig á ókunnum vegum. Hvað er það í hjarta manns er kallar fram þá æsku hans, vinarbrag og fyrri fund farinn veg og skólastund? Strembinn lestur stúdentsvor skál og gleði, hliðar spor, eða bara hversdags hjal hugar dæmi er leysa skal? Við þekkjum vel þann sterka streng og syrgjum okkar góða dreng. Örlög vísa veg um slóð vak þú minning kyrr og hljóð. Bekkjarfélagar 6.sb 1967. Guðmundur Einar Þórðarson skrifstofuvélarnar, en það er allt áensku, öllu erfiðara er það þegar maður á frí og á að fara að skemmta sér á ítölsku. Er búinn að læra að borða spaghetti. Það er gert með skeið og gaffli. Enn sem komið er hefur alltaf verið gott veður. Annars finnst mér allt dýrt á Ítalíu.“ Minning um frænda okkar tengist bílum. Á þeim árum var fremur fátt um bíla. Þeir stóðu ekki á hverju götuhorni eða í innkeyrslu þegar gjaldeyriskreppa var allt um kring og stjórnvöld skömmtuðu hvern út- lendan eyri úr hnefa. Einn stóð þó fyrir framan heimili hans á Skóla- vörðustígnum. Franskur Renault, trúlega árgerð 1946 eða 47 með bresku Morrislagi og framhurðirnar opnuðust að framan eins og á nýj- ustu sportgerðinni af Rolls Royes 60 árum síðar. Í augum okkar systkin- anna var þetta Rolls Royes þeirra tíma. Þessir bílar voru hins vegar oftast kallaðar „hagamýsnar“ sem tæpast gat átt við enskan aðalsvagn. Ötull kaupmaður og bílasali hafði flutt þá hingað til lands án þess að hafa fengið gjaldeyrisleyfi fyrir inn- flutningnum. Bílarnir fengust því ekki afgreiddir og voru geymdir í Vatnsmýrinni á meðan þjarkað var um hvað um þá skyldi verða. Nafn- giftin er trúlega tilkomin af því að kúpt byggingarlagið gerði að verk- um að þeir litu út eins og músahópur úr fjarlægðinni. Á endanum voru þessir ágætu bílar þó keyptir inn í landið og þá eignaðist frændi okkar einn þeirra. Þessir höfðu þann eig- inleika að veifa til vegfaranda á gatnamótum. Renaultinn var með stefnuljós sem voru staðsett í hurð- arpóstunum á milli fram- og aftur- hurða og þaðan lyftist flipi með rauðu ljósi þegar stefnumerki var gefið. Hann vinkaði í orðsins fyllstu merkingu og blikkaði í sömu andrá. Hannes bauð okkur stundum í öku- ferð á sunnudögum, um Reykjavík eða jafnvel út fyrir bæinn enda var þetta fyrsti bíllinn sem náinn fjöl- skylduvinur eignaðist. Sannkallað ævintýri þeim sem annars treystu á fæturna og stundum á strætó. Þá söng hann oft undir stýri svona eins og er sagt að menn geri í sturtu og gjarnan sama lagið. „Allir hanar gala – allir hanar gala – vindhaninn galar ei – segi ég ónei …“ Nú er Hannes á ný tekin til við að syngja með sínu nefi laus við viðjar sjúkleika og elli. Gamansemin er honum örugglega förunautur hvort sem hún felst í að læra að borða spaghetti með skeið eða einhverju öðru. Við þökkum frænda okkar fyrir samfylgdina. Sigtryggur, Þórey og Hildur Eyþórsbörn. það oft að hann þurfti að skreppa til að bjarga hinu og þessu. Hann átti um tíma Raftækjaverkstæðið Raf- ölduna en þegar hann fór út úr þeim rekstri réðst hann sem rafvirki til Síldarvinnslunnar hf. og vann þar á meðan heilsan leyfði. Pabbi var einn af fyrstu íbúum Breiðabliks, íbúða aldraðra í Neskaupstað og undi hag sínum vel þar. Hann var duglegur að taka þátt í föndrinu og eftir hann liggja fjölmörg falleg verk. Honum fannst gaman að spila og ef pabbi var ekki mættur með spilastokkinn í setustofuna var víst að hann var las- inn. Síðasta ár bjó pabbi í góðu yfirlæti á Hrafnistu í Reykjavík og naut þar góðrar umönnunar. Það var með ólík- indum hvað hann, sem dvalið hafði í hartnær 93 ár í faðmi fjalla blárra, kunni vel við sig í Reykjavík og lét það einu sinni út úr sér að hann hefði alltaf verið til í að eiga þar heima. En tími þinn þar var ekki lengri en eitt ár. Nú þegar komið er að kveðju- stund þökkum við þér, pabbi minn, fyrir allt sem þú hefur verið okkur. Þó að skilnaðarstundin sé sár þá vit- um við að nú ertu leystur frá þraut- um lífsins. Þú mætir fyrir framan Guð þinn spariklæddur eins og alltaf og gilti þá einu hvort um spari- eða vinnufatnað var að ræða. Kannski geturðu tekið til hendinni þar sem þú ert nú, sett ljós í lítil jólatré eins og þú gerðir fyrir konurnar í Breiðabliki eða annað sem hendi er næst. Við elskum þig, pabbi. Ríkey, Elma og Friðrik. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ODDNÝ RÍKHARÐSDÓTTIR, Blikaási 12, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 2. febrúar eftir hetjulega baráttu sína. Hún verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju mánu- daginn 12. febrúar kl. 13:00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Jakob Guðnason, Aðalheiður Ásta Jakobsdóttir, Rachid Benguella, Jóhanna Kristín Jakobsdóttir, Finnur Geir Sæmundsson, Baldur Freyr og Ásta Lísa, Anja Ríkey Jakobsdóttir, Guðný Heiðbjört Jakobsdóttir, Guðjón Jóhannesson, Gunnhildur, Brynjar Gauti, Kolbrún Halla og Jóhanna Magnea. ✝ Ástkær eiginkona mín og móðir, BJÖRG HARALDSDÓTTIR, Breiðvangi 18, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum Hringbraut laugardaginn 3. febrúar. Jóhann Petersen, Katrín Þórhildur Jóhannsdóttir. ✝ Ástkær eiginkona mín, SIGRÚN BJÖRK STEINSDÓTTIR, Fjarðarási 28, Reykjavík, andaðist á líknardeild Landspítalans í Fossvogi föstudaginn 2. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Haukur Harðarson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.