Morgunblaðið - 06.02.2007, Page 40

Morgunblaðið - 06.02.2007, Page 40
Það gleðjast eflaust margir yfirvæntanlegri endurkomu hljóm- sveitarinnar Smashing Pumpkins en ekki er víst að öllum hugnist nýjustu fregnir úr herbúðum sveit- arinnar. Umboðsmaður Smashing Pumpkins, Paul Geary, sagði það nefnilega afar ósennilegt að allir fyrrverandi hljómsveitarmeðlim- irnir fjórir kæmu saman á ný. For- sprakkinn Billy Corgan og trommuleikarinn Jimmy Chamberl- in hafa staðfest að þeir muni koma fram undir merkjum Smashing Pumpkins á nýjan leik en ósenni- legt þykir hinsvegar að gítarleik- arinn James Iha og bassaleikarinn D’Arcy Wretzky verði með að þessu sinni. Og meira af endurkomum hljóm- sveita. Fregnir herma að hljóm- sveitin Wham! ætli að leiða saman hesta sína á ný. Dúettinn var sem kunnugt er skipaður þeim George Michael og Andrew Ridgeley og átti mikilli velgengi að fagna á ní- unda áratug síðustu aldar. Smellir á borð við „Wake Me Up (Before You GoGo)“ og „Careless Whisper“ áttu sinn þátt í að gera þá félaga fræga og nú virðist sem endurtaka eigi leikinn því þeir tví- menningar ætla víst til Bandaríkj- anna í sumar til að taka upp ný lög saman. Michael óskaði eftir því að Ridgeley kæmi fram með sér á tón- leikum í Wembley Arena í London í fyrra en úr því varð ekki. Nú er Ridgeley hinsvegar orðinn til- kippilegur í samstarf. Wham! lagði upp laupana árið 1986. Michael hefur sem kunnugt er átt farsælum sólóferli að fagna á meðan Ridgeley hefur mest samið lög fyrir aðra undir dulnefni.    Jennifer Hudson segist klípasjálfa sig daglega til að athuga hvort hana sé ekki að dreyma alla þá miklu velgengni sem hún hefur átt að fagna síðustu mánuði. Hudson komst á kortið þegar hún hafnaði í öðru sæti American Idol keppninnar í Bandaríkjunum. Í kjölfarið bauðst henni eitt aðal- hlutverkanna í kvikmyndinni Dreamgirls sem nú er tilnefnd til átta Óskarsverðlauna. Þar á meðal Fólk folk@mbl.is 40 ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is NIGHT AT THE MUSEUM kl. 8 LEYFÐ BABEL kl. 8 B.i. 16 APOCALYPTO kl. 10 B.i. 16 / KEFLAVÍK BLOOD DIAMOND kl. 8 B.i. 16 ára VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ FORELDRAR kl. 8 LEYFÐ FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ / AKUREYRI DREAMGIRLS kl. 6 - 9 - 10:20 LEYFÐ BLOOD DIAMOND kl. 6 - 9 B.i. 16 ára FORELDRAR kl. 6 - 8 LEYFÐ BABEL kl. 6 - 9 B.i. 16 ára CHILDREN OF MEN kl. 8 B.i. 16 ára FLAGS OF OUR FATHERS kl. 5:30 B.i. 16 ára THE DEPARTED kl. 10:10 B.i. 16 ára ÓSKARSTILNEFNINGAR m.a. fyrir aðalhlutverk karla/ Leonardo dicaprio5 FRÁ LEIKSTJÓRA “THE LAST SAMURAI” eeee L.I.B. - TOPP5.IS eeee S.V. MBL. SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI EDDIE MURPHY BEYONCÉ KNOWLES JAMIE FOXX eee DÖJ, KVIKMYNDIR.COM FRÁ HANDRITSHÖFUNDI RAIN MAN OG GOOD MORNING VIETNAM GÆTI ÞESSI MAÐUR ORÐIÐ NÆSTI FORSETI? Sjáið grínistann Robin Williams fara á kostum sem næsti forseti Bandaríkjanna ÓSKARSTILNEFNINGAR8 eeee L.I.B. TOPP5.IS eeee S.V. MBL. ÓSKARSTILNEFNINGAR2SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLASÝND Í HÁSKÓLABÍÓI eeee H.J. MBL. eeee B.S. FRÉTTABLAÐIÐ ÓSKARSTILNEFNINGAR m.a. fyrir besta handrit ársins3 hlutavelta ritstjorn@mbl.is Ómar og rúnturinn Það er einkennilegt þegar fólk finn- ur hjá sér þörf til að koma höggi á einhvern sem það óttast að gæti ruggað litla bátnum þeirra. Þannig er það í dag. Hver vitringurinn að fætur öðrum geysist fram á ritvöll- inn, fullur vandlætingar yfir hug- mynd Ómars Ragnarssonar um að endurvekja „rúntinn“. Þessi hugmynd er í sjálfu sér góð, hún myndi auka umferð fólks í mið- borginni, hugsanlega hjálpa til að draga hálftruflaða unglinga út frá tölvunni, gefa fólki tækifæri til að hittast og gleðjast. En þetta sjá for- pokaðir fýlupúkar ekki, aðalmálið er að „umhverfisverndarsinninn“ Ómar Ragnarsson hefur skoðun sem ekki samrýmist þeirra skoðunum. Þá er gripið til svona vopna. Ykkur til upplýsingar veit ég eng- an sem notar jafn sparneytna bíla og Ómar. Ef maður setti í samhengi: notað eldsneyti deilt með eyddum tíma í að upplýsa og fræða þjóðina um náttúru Íslands, þá er ég hrædd- ur um að þessir vandlætingafullu sjálfskipuðu umhverfissinnar, sem sjá náttúruna helst í sjónvarpi (í þáttum eftir Ómar) yrðu í mínus. Ég vona að Ómar Ragnarsson haldi baráttunni áfram, það vantar fólk sem þorir að stíga fram til að vernda náttúruna, við höfum nú þeg- ar nægilega mörg sófadýr við stjórn- völinn! Ævar Sigdórsson, Tröllagili 1, Mosfellsbæ Þakkir til sjúkraþjálfara Sú stétt innan heilbrigðiskerfisins sem vinnur mest í hljóði er sjúkra- þjálfarar en er ein af þeim nauðsyn- legustu. Ég hef sjálf ásamt eig- inmanni mínum þurft í mörg ár að þiggja hjálp frá einum slíkum og ég veit ekki hvernig við hefðum farið að án okkar manns, sem er frábær fag- maður að mörgum öðrum ólöst- uðum. Það mætti fjalla meira um þessa stétt sem er ákaflega vel menntuð og örugglega margir sem sleppa við stórar aðgerðir en eru undir handleiðslu sjúkraþjálfara. Við eiginmaður minn erum hjart- anlega þakklát fyrir mikla hjálp. Hildur Hilmarsdóttir, Viktor Aðalsteinsson, Lækjasmára 8, Kóp. Fótbolti í óskilum Nýlegur fótbolti fannst við Gróttu- völl fyrir stuttu. Fæst afhentur gegn lýsingu. Sími 694-5215. Bröndóttir kettlingar Sérlega fallegir og vel gerðir kett- lingar vilja komast á góð heimili. Kassavanir. Upplýsingar í síma 6957304. velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Hlutavelta | Þessir duglegu krakkar, Íris Ösp Benjamínsdóttir 9 ára, Heba Lind Hjartardóttir 9 ára og Ási Benja- mínsson 3 ára, voru með tombólu við Krónuna, Norðurbrún og söfnuðu 3.345.- krónum. Peningarnir koma að góðum notum og verða sendir til að- stoðar bágstöddum börnum í Afríku. MORGUNBLAÐIÐ birtir til- kynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sín- um að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudags- blað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgð- armanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100 eða sent á netfangið ritstjorn- @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. Öðru hverju er Vík-verji minntur á þá óþægilegu stað- reynd að hann til- heyrir örþjóð, litlum 300 þúsund sálum, á mörkum hins byggi- lega heims. Und- anfarna daga er það einkum tvennt sem hefur minnt Víkverja á þennan sannleik. x x x Í fyrsta lagi er það„útreið“ íslenska handboltalandsliðsins á HM í Þýskalandi. Við heimtuðum gullið og ekkert annað, ekki síst eftir að hafa lagt Frakka að velli. Síðan var komið að ögurstund gegn Dönum, okkar öldnu yfirboðurum. Hvernig í ósköp- unum getur okkur dottið í hug að við eigum að leggja hverja stórþjóðina á fætur annarri að velli? Þjálfaranagl- inn Alfreð hefur þó ekki misst alla skynsemi og hafði skýringar á reiðum höndum; að leikmannahóp- urinn væri ekki nógu breiður. Með öðrum orðum: Ísland er ekki nógu stórt land til að útunga boltabeljök- um á færibandi. Víkverji segir nú bara eins og unglingarnir: Face it! Í öðru lagi er þaðundankeppni Evr- óvisjón Sjónvarpsins. Augljóslega erum við ekki nógu mörg til að framleiða góða lagahöf- unda. Upp úr keppn- inni stendur eitt og eitt þokkalegt lag en í það heila tekið var þetta óttalegt rusl. Þær stað- reyndir, að sama skáld- ið átti annan hvern lagatexta, sami tónlist- armaðurinn var í öðru hverju lagi og sömu höfundarnir komust í gegn með allt að þrjú lög, duga ágætlega til að sanna kenningu Víkverja. Einna verst var að sjá suma höfunda hafa þvílíka trú á smíðum sínum að hið hálfa væri nóg. Í að minnsta kosti einu tilviki ætti niðurstaða und- ankeppninnar að sýna einum ónefndum höfundi að hann ætti að snúa sér að öðru en lagasmíðum. Bubbi Morthens hitti naglann á höf- uðið, er hann mætti í útsendingu síð- ustu undankeppninnar og sagði að keppnin sem slík væri ágæt fyrir tónlistariðnaðinn. Lögin væru hins vegar að megninu til drasl. Heyr, heyr!     víkverji skrifar | vikverji@mbl.is dagbók MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF: ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Í dag er þriðjudagur 6. febrúar, 37. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Því hvar sem fjár- sjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera. (Lúk. 12, 34.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.