Morgunblaðið - 19.03.2007, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2007 F 29
Nýjar íbúðir til sölu
Rúmgóðar íbúðir á góðum stað í Grafarvogi
Nýjar íbúðir í lágreistum og fallegum fjölbýlishúsum við Gullengi 2–6. Engjahverfið er gróið og heillandi hverfi á góðum stað í
Grafarvoginum. Stutt er í alla þjónustu, í næsta nágrenni eru leik-, grunn- og framhaldsskóli og þjónustumiðstöðin Spöngin aðeins
steinsnar frá.
Húsin eru sérlega vönduð og viðhaldslétt, hönnuð af Tekton arkitektum. Útveggir eru með steiningaráferð og viðarklæddir að hluta
og lóð frágengin með snjóbræðslu í hluta hellulagðra göngustíga. Aðeins níu íbúðir eru í hverju húsi, sex íbúðir eru fimm herbergja
(130–140 fm), tvær fjögurra herbergja (120 fm) og ein þriggja herbergja (100 fm). Landslagsarkitektastofan Landslag sá um hönnun
lóðar og leiksvæðis.
Íbúðirnar eru bjartar og rúmgóðar og er þeim skilað fullbúnum án gólfefna en með flísalögðum þvottahúsgólfum og baðherbergjum.
Innréttingar eru vandaðar og hægt er að velja milli þriggja viðartegunda í innréttingum og hurðum. Heimilistæki eru frá AEG eða
sambærileg, með burstaðri stáláferð. Salerni eru vegghengd og sturtubaðker fylgir flestum íbúðum.
Íbúðirnar eru 3ja, 4ra og 5 herbergja, 102–140 fm.
Verð frá 24,7 millj.
GULLENGI – REYKJAVÍK 3ja, 4ra og 5 herbergja
Söludeild okkar er að
Höfðabakka 9
s. 530 4200
Ítarlegar upplýsingar um
eignirnar á vefsíðu okkar
www.iav.is
Í hjarta miðbæjarins
Lindargata 27 er glæsilega hannað viðhaldslítið átta hæða lyftuhús. Íbúðum er skilað fullbúnum með parketi á gólfum og með
flísalögðum baðherbergis- og þvottahúsgólfum. Sér þvottahús er í hverri íbúð og rúmgóðar geymslur í kjallara fyrir hverja íbúð.
Innréttingar eru spónlagðar. Kaupendur geta valið um þrjár viðartegundir. Í eldhúsi verður keramikhelluborð með fjórum hellum,
blástursofn og gufugleypir. Heimilistæki eru af AEG-gerð með burstaðri stáláferð eða sambærilegt. Dyrasími er tengdur myndavél í
aðalanddyri. Sjónvarpsloftnets- og símatenglar eru frágengnir í stofu, borðkrók og svefnherbergjum. Í íbúðunum er tengikassi fyrir
stjörnutengingar síma, loftnets, tölvu og ljósleiðara. Sameign og lóð eru fullfrágengin. Snjóbræðsla er við aðalanddyri, aðkomurampa
og í bílastæðum. Göngustígar og hluti bílastæða er hellulagður.
Frábær staðsetning og stutt í alla þjónustu. Nútímaleg hönnun og allur frágangur er sérlega vandaður.
Íbúðirnar eru 2ja og 3ja herbergja, 80–135 fm.
Verð frá 30,2 millj.
LINDARGATA – REYKJAVÍK 2ja–3ja herbergja
Nýr og heilsusamlegur lífsstíll
Þjónustuhús við Lækjarbrún í Hveragerði veitir þér
tækifæri til að njóta lífsins í faðmi einstakrar
náttúru og hafa jafnframt aðgang að margvíslegri
þjónustu Heilsu stofnunar Náttúrulækningafélags
Íslands. Kaupendur gerast sjálfkrafa aðilar að
samningi við HNLFÍ sem veitir aðgang að viðamikilli
þjónustu Heilsustofnunarinnar gegn greiðslu
mánaðarlegs grunngjalds. Rómuð náttúrufegurð,
friðsæld og nálægð við hvers kyns þjónustu og
heilsurækt eru nokkrir af þeim kostum til að njóta
lífsins sem bjóðast í Hveragerði. Fallegar gönguleiðir
allt í kring, golfvöllur, hesthús og margvísleg
afþreying á svæðinu.
Íbúðunum er skilað fullbúnum með parketi á gólfum
og flísalögðum baðherbergis- og þvottahúsgólfum.
Íbúðirnar eru 2ja og 3ja herbergja, 86–111 fm.
Verð frá 22,2 millj.
ÞJÓNUSTUHÚS – HVERAGERÐI
2ja–3ja herbergja