Morgunblaðið - 19.03.2007, Síða 29

Morgunblaðið - 19.03.2007, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2007 F 29 Nýjar íbúðir til sölu Rúmgóðar íbúðir á góðum stað í Grafarvogi Nýjar íbúðir í lágreistum og fallegum fjölbýlishúsum við Gullengi 2–6. Engjahverfið er gróið og heillandi hverfi á góðum stað í Grafarvoginum. Stutt er í alla þjónustu, í næsta nágrenni eru leik-, grunn- og framhaldsskóli og þjónustumiðstöðin Spöngin aðeins steinsnar frá. Húsin eru sérlega vönduð og viðhaldslétt, hönnuð af Tekton arkitektum. Útveggir eru með steiningaráferð og viðarklæddir að hluta og lóð frágengin með snjóbræðslu í hluta hellulagðra göngustíga. Aðeins níu íbúðir eru í hverju húsi, sex íbúðir eru fimm herbergja (130–140 fm), tvær fjögurra herbergja (120 fm) og ein þriggja herbergja (100 fm). Landslagsarkitektastofan Landslag sá um hönnun lóðar og leiksvæðis. Íbúðirnar eru bjartar og rúmgóðar og er þeim skilað fullbúnum án gólfefna en með flísalögðum þvottahúsgólfum og baðherbergjum. Innréttingar eru vandaðar og hægt er að velja milli þriggja viðartegunda í innréttingum og hurðum. Heimilistæki eru frá AEG eða sambærileg, með burstaðri stáláferð. Salerni eru vegghengd og sturtubaðker fylgir flestum íbúðum. Íbúðirnar eru 3ja, 4ra og 5 herbergja, 102–140 fm. Verð frá 24,7 millj. GULLENGI – REYKJAVÍK 3ja, 4ra og 5 herbergja Söludeild okkar er að Höfðabakka 9 s. 530 4200 Ítarlegar upplýsingar um eignirnar á vefsíðu okkar www.iav.is Í hjarta miðbæjarins Lindargata 27 er glæsilega hannað viðhaldslítið átta hæða lyftuhús. Íbúðum er skilað fullbúnum með parketi á gólfum og með flísalögðum baðherbergis- og þvottahúsgólfum. Sér þvottahús er í hverri íbúð og rúmgóðar geymslur í kjallara fyrir hverja íbúð. Innréttingar eru spónlagðar. Kaupendur geta valið um þrjár viðartegundir. Í eldhúsi verður keramikhelluborð með fjórum hellum, blástursofn og gufugleypir. Heimilistæki eru af AEG-gerð með burstaðri stáláferð eða sambærilegt. Dyrasími er tengdur myndavél í aðalanddyri. Sjónvarpsloftnets- og símatenglar eru frágengnir í stofu, borðkrók og svefnherbergjum. Í íbúðunum er tengikassi fyrir stjörnutengingar síma, loftnets, tölvu og ljósleiðara. Sameign og lóð eru fullfrágengin. Snjóbræðsla er við aðalanddyri, aðkomurampa og í bílastæðum. Göngustígar og hluti bílastæða er hellulagður. Frábær staðsetning og stutt í alla þjónustu. Nútímaleg hönnun og allur frágangur er sérlega vandaður. Íbúðirnar eru 2ja og 3ja herbergja, 80–135 fm. Verð frá 30,2 millj. LINDARGATA – REYKJAVÍK 2ja–3ja herbergja Nýr og heilsusamlegur lífsstíll Þjónustuhús við Lækjarbrún í Hveragerði veitir þér tækifæri til að njóta lífsins í faðmi einstakrar náttúru og hafa jafnframt aðgang að margvíslegri þjónustu Heilsu stofnunar Náttúrulækningafélags Íslands. Kaupendur gerast sjálfkrafa aðilar að samningi við HNLFÍ sem veitir aðgang að viðamikilli þjónustu Heilsustofnunarinnar gegn greiðslu mánaðarlegs grunngjalds. Rómuð náttúrufegurð, friðsæld og nálægð við hvers kyns þjónustu og heilsurækt eru nokkrir af þeim kostum til að njóta lífsins sem bjóðast í Hveragerði. Fallegar gönguleiðir allt í kring, golfvöllur, hesthús og margvísleg afþreying á svæðinu. Íbúðunum er skilað fullbúnum með parketi á gólfum og flísalögðum baðherbergis- og þvottahúsgólfum. Íbúðirnar eru 2ja og 3ja herbergja, 86–111 fm. Verð frá 22,2 millj. ÞJÓNUSTUHÚS – HVERAGERÐI 2ja–3ja herbergja

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.