Morgunblaðið - 19.03.2007, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 19.03.2007, Blaðsíða 44
44 F MÁNUDAGUR 19. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ Híbýli Fasteignasala SUÐURGÖTU 7, 101 REYKJAVÍK www.hibyli.is, hibyli@hibyli.is, sími 585 8800, fax 585 8808 SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK, • www.hibyli.is • hibyli@hibyli.is Ingibjörg Þórðardóttir, löggiltur fasteignasali. BALDURSGATA - STÚDÍÓ- ÍBÚÐ Nýuppgerð stúdíóíbúð í miðbænum. Sérinn- gangur. Parket og flísar á gólfum. Íbúðin er laus við kaupsamning. Verð 13,5 millj. Áhv. 8 millj. á 4,15% vöxtum. HJÁLMHOLT - SÉRHÆÐ MEÐ BÍLSKÚR Afar vönduð og glæsileg 5 herb. 144 fm efri sérhæð í tvíbýlishúsi ásamt 28 fm bílskúr, alls 172 fm. Eikarparket og flísar á gólfum. Tvennar svalir. Verð 44,9 millj. EIGN Í SÉR- FLOKKI MIÐVANGUR - RAÐHÚS Mjög fallegt og mikið endurnýjað 226 fm tví- lyft raðhús með 38 fm innb. bílskúr. Á neðri hæð eru stórar saml. stofur með suðurgarði þar útaf, rúmgott eldhús, forstofa og gesta- snyrting. Á efri hæð eru fjögur svefnherb. auk stórrar sjónvarpsstofu sem nýlega var byggð ofan á bílskúrinn. Baðherbergi nýlega endurnýjað og flísalagt í hólf og gólf. Eikar- parket og flísar á gólfum. REYNIGRUND - RAÐHÚS 126,6 fm tvílyft raðhús úr timbri á þessum eftirsótta stað. Húsið skiptist í saml. stofur með suðursvölum, 3 svefnherbergi, eldhús, baðherb. og snyrtingu. Timburpallur og gró- inn garður. Gott geymslupláss. FRÁBÆR STAÐSETNING VIÐ FOSSVOGSDALINN, RÓLEGT UMHVERFI. STUTT Í FALLEGAR GÖNGULEIÐIR, GRUNNSKÓLA, LEIK- SKÓLA OG VERSLUN. HÚSIÐ ER LAUST Í MARS. ÁSBRAUT - MEÐ BÍLSKÚR Mjög góð 4ra herb. 86 fm endaíbúð á 3. hæð í góðu fjölbýlishúsi ásamt 25,2 fm bíl- skúr. Íbúðin skiptist í saml. stofur með stór- um suðursvölum útaf, tvö svefnherb. bað- herb. og eldhús með nýlegri, vandaðri inn- réttingu. Glæsilegt útsýni úr allri íbúðinni. Verð 23,8 millj. KLAPPARSTÍGUR - GLÆSIÍBÚÐ Vorum að fá í sölu sérlega fallega og vand- aða 79 fm 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í nýlegu lyftuhúsi auk stæðis í bílageymslu. Íbúðin skiptist í borð- og setustofu með svölum þar útaf. Eldhús með vandaðri inn- réttingu úr kirsuberjaviði. Tvö svefnher- bergi og baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf. Massíft parket á gólfum. Í kjallara er góð geymsla. Íbúðin getur selst með öllum húsbúnaði. Allar frekari uppl. á skrifstofu. NÝBÝLAVEGUR - EFRI SÉRHÆÐ BJÖRT OG FALLEG 5 HERB. 152 FM EFRI SÉRHÆÐ Í ÞRÍBÝLISHÚSI ÁSAMT 31 FM BÍLSKÚR, ALLS 183 FM. Eikarparket á allri íbúðinni. Fjögur svefnherbergi. Innbyggður bílskúr. Fjögur sérbílastæði fylgja. Mikið útsýni. Tvennar suðursvalir. Áhv. hagstæð langtímalán, 27 millj. m/4,15% vöxum. LAUS STRAX. SKÓLABRAUT - ELDRI BORGARAR Vorum að fá í sölu eina af þessum eftir- sóttu íbúðum í húsi eldri borgara á Sel- tjarnarnesi. Íbúðin er 58 fm 2ja herbergja á 3. hæð auk geymslu. Góð stofa, stórt eld- hús, svefnherbergi og baðherbergi. Vand- aðar innréttingar og parket úr beyki. Bað- herbergi með sturtuklefa og góðri innr., t.f. þvottavél. Stórar suðaustursvalir. Mikil sameign á jarðhæð, þar sem m.a. er hægt að fá hádegismat, þjónustu hjúkrunarfr. o.fl. Hús nýviðgert og málað að utan. Íbúðin er til afh. strax. Nánari uppl. á skrifst. SÓLVALLAGATA - 5 HERB. Afar falleg og björt 104 fm 5 herb. íbúð á 2. hæð í fjórbýli. Samliggjandi stofur. Þrjú svefnherb. Baðherb. endurnýjað og flísalagt í hólf og gólf. Massíft parket og flísar á gólfum. Suðursvalir. Sérlega góð eign á frábærum stað í Vesturbænum. Verð 31,5 millj. EIÐISTORG - TVÍSKIPT EIGN Vorum að fá í sölu 111,4 fm íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi sem skiptist í tvær einingar, þ.e. 3ja herb. 76,5 fm íbúð sem er stór stofa með sólstofu í suður og góðar svalir þar útaf, eldhús opið við stofuna, baðherbergi með sturtu og góðri innréttingu og tvö svefnher- bergi og 27,1 fm einstaklingsíbúð á hæðinni fylgir, þ.e. stórt íbúðarherbergi með eld- húskróki og sérbaðherbergi með sturtu. Geymsla í kjallara fylgir. Sameiginlegt þvotta- hús með vélum á hæðinni. Öll þjónusta við hendina. GRANDAVEGUR - MEÐ BÍLSKÚR Vorum að fá í sölu sérlega fallega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja 90 fm íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýlishúsi ásamt 25 fm bílskúr. Íbúðin skiptist í saml. stofur með vestur- svölum útaf, eldhús með nýrri og vandaðri innréttingu, tvö góð svefnherbergi og bað- herbergi, flísalagt í hólf og gólf. Nýlegt parket á íbúð. Þvottahús á hæðinni. Geymsla á jarðhæð fylgir. MJÖG GÓÐ STAÐSETNING, STUTT Í ALLA ÞJÓNUSTU. FLYÐRUGRANDI - 5 HERB. Vorum að fá í sölu eina af þessum eftir- sóttu íbúðum með sérinngangi við Flyðru- granda. Íbúðin, sem er 131,5 fm auk geymslu í kj., skiptist í stórar, saml. stofur, eldhús, þvottahús þar innaf, baðherbergi og þrjú svefnherbergi. Stórar suðursvalir útaf stofu. Sérlóð útaf hjónaherb. í vestur. Stutt í alla þjónustu, skóla o.fl. Frekari uppl. á skrifst. HRAUNBÆR - 5 HERB. Mjög falleg og rúmgóð 5 herb. 124,4 fm endaíbúð á 2. hæð í góðu fjölbýli í Hraun- bænum. Fjögur svefnherbergi. Íbúðin er töluvert endurnýjuð, s.s nýlegt parket, ný eldhúsinnrétting, tæki o.fl. Suðursvalir. Verð 24,9 millj. SUÐURGATA - 101 RVK Mjög rúmgóð 3ja herb. 106 fm íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýli með lyftu. Eldhús m. ný- legri viðarinnr. Stór og björt stofa. Baðherb. marmaraflísar. Suðaustursvalir. Sérgeymsla í kj. og sameiginlegt þvottahús á jarðhæð. Nánari uppl. á skrifstofu. HRINGBRAUT - M. BÍLSKÝLI Mikið endurnýjuð 80 fm 2ja-3ja herb. íbúð auk stæðis í bílageymslu. Gegnheilt eikar- parket í stofu. Eldhús með vandaðri eikar- innréttingu og stáltækjum. Hjónaherbergi, fataskápur. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, vönduð innrétting, hornnuddbaðkar með sturtu, t.f. þvottavél. Alaskaösp erein algeng-asta trjáteg-und sem ræktuð er á Íslandi en færri vita að um ýmsar gerðir er að ræða og geta þær verið mjög breyti- legar í vaxtarformi. Oftast eru hinar mismunandi gerðir, eða yrki eins og vanalega er talað um meðal rækt- enda, valdar til að geta orðið beinvax- in bolmikil tré og gjarnan með granna krónu, þessháttar yrki henta til að mynda vel til skógræktar. Til garðræktar eru tré gjarnan valin út frá öðrum forsendum, eins og að þau hafi fallega og mikla krónu, en ekki endilega hávaxin. Ræktendur velja gjarnan út eitt eða fleiri yrki og gefa hverju þeirra heiti til aðgreiningar frá öðrum, t.d. alaskaösp ‘Haukur’, ‘Pinni’, ‘Iðunn’ eða ‘Jóra’. Í Laugardalnum, nánar tiltekið á mjóum göngustíg sem liggur um bir- kilund neðan við húsin á Laug- arásvegi, er stórt og margstofna tré, sem dóttir mín vísaði mér á og kallaði „klifurtréð“. Tré þetta er myndarleg alaskaösp, líklega einir 10 metrar, sem hefur myndað margstofna krónu í um 1,5 metra hæð með mörgum sterkum greinum. Það er ósjaldan þegar við feðgin göngum um dalinn að komið er við hjá „klifuröspinni“ góðu og henni gerð skil; hún klifrar í trénu en ég dáist að vaxtarlagi þess. Skógræktarmenn myndu ekki velja þessa ösp sem yrki í nytjaskógrækt sína, en ég er búinn að taka nokkra sprota til ræktunar og ætla að rækta af þeim nokkrar klifuraspir við sum- arbústaðinn sem að vonandi barna- börn mín geta leikið sér í þegar tímar koma. Sveitarfélög gætu komið sér upp klifurtrjám hér og hvar á grænum svæðum sínum, klifursólgin börn framtíðarinnar yrðu þakklát fyrir framtakið. Vert er þó að benda fram- bjóðendum á að ekki er hægt að rækta klifurtré á einu kjörtímabili, til þess þarf mun lengri tíma, jafnvel marga áratugi. Það er kannski margt líkt með ræktun klifurtrjáa og „rækt- un“ góðra samfélaga; það krefst tíma, þekkingar og síðast en ekki síst al- úðar og vissu um örugga framtíð. BLÓM VIKUNNAR Eftir Samson B. Harðarson 606. þáttur Klifurösp Mynd: Samson Bjarnar Harðarson Laugardalur Þórdís Lilja og Katrín María í klifuröspinni góðu. Greinarhöfundur er Samson B. Harð- arson landslagsarkitekt og varaformaður GÍ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.