Morgunblaðið - 31.03.2007, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
I-LISTI Íslandshreyfingarinnar –
lifandi lands fengi 5,2% kjörfylgi ef
kosið yrði nú samkvæmt niðurstöð-
um könnunar Gallups sem gerð var
vikuna 21.–27. mars. Fylgi annarra
flokka er svipað og í síðustu könn-
un nema VG sem tapar 3,6 pró-
sentustigum frá síðustu könnun og
Frjálslynda flokksins sem tapar 1,3
prósentustigum.
Samkvæmt niðurstöðum könnun-
arinnar fengi Sjálfstæðisflokkurinn
36,7% atkvæða, en fékk 36,2% í
síðustu könnun Gallups fyrir viku.
VG fengi 24% en framboðið fékk
27,6% í síðustu könnun og tapar
því 3,6 prósentustigum frá síðustu
könnun. Eftir sem áður eru þeir
næststærsti flokkurinn, eins og
þeir hafa verið í þessum vikulegu
könnunum Gallups undanfarnar
fimm vikur.
Samfylkingin fær 19,9% fylgi og
eykur fylgi sitt lítillega frá síðustu
könnun. Framsókn fær 8,3% og
tapar lítillega og Frjálslyndi flokk-
urinn fær 5,3% fylgi og tapar 1,3
prósentustigum frá könnuninni fyr-
ir viku.
Þegar fylgi við einstök framboð
er skoðað eftir kyni kemur í ljós að
hlutfallslega mun fleiri konur en
karlar styðja Samfylkinguna og VG
en Framsóknarflokkinn og Sjálf-
stæðisflokkinn og hlutfallslega
mun fleiri karlar styðja Frjáls-
lynda flokkinn og Sjálfstæðisflokk-
inn en konur. Þannig er fylgi karla
við Sjálfstæðisflokkinn 42,6% en
fylgi kvenna mælist 29,5%. Rúm
32% kvenna styðja VG en 20%
karla og tæp 24% kvenna styðja
Samfylkinguna og rúm 16% karla.
Þá er fylgi meðal karla við Frjáls-
lynda flokkinn 8,4% en 3,4% meðal
kvenna. Hlutfallslega minni munur
er á stuðningi kynjanna við Fram-
sóknarflokkinn, en 9,3% karla
styðja flokkinn og 7,8% kvenna.
Könnunin leiðir einnig í ljós að
flokkstryggð er mest meðal sjálf-
stæðismanna og vinstri grænna, en
tæp 90% þeirra sem studdu VG í
síðustu kosningum ætla að kjósa
flokkinn aftur og 84% sjálfstæð-
ismanna. Hins vegar ætla 48%
þeirra sem studdu Framsókn í
kosningunum að kjósa flokkinn aft-
ur nú. Sambærilegt hlutfall er
45,6% hjá Frjálslynda flokknum og
tæp 58% hjá Samfylkingunni.
Litlar breytingar á fylgi stjórnmálaflokkanna í nýrri skoðanakönnun en VG og Frjálslyndir tapa þó fylgi
Íslandshreyfingin mælist
með 5,2% fylgi hjá Gallup
! "#$
%!#
!%&
'
(
")
UM 63% fólks telja að frumvarp
ríkisstjórnarinnar um nátt-
úruauðlindir í þjóðareign hafi
dregið mikið eða nokkuð úr
trausti fólks á ríkisstjórninni. 19%
telja að frumvarpið hafi aukið
traust á ríkisstjórninni nokkuð eða
mikið en 18% segja að það hafi
hvorki aukið né dregið úr trausti á
ríkisstjórninni.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í nýrri skoðanakönnun Gall-
ups sem gerð var vikuna 21.–27
mars og náði til 1.210 manns sem
valdir voru með tilviljunarúrtaki
úr þjóðskrá, en svörunin var tæp
62% og 65% tóku afstöðu.
Framsóknarmenn skera sig úr
Fleiri konur en karlar telja að
frumvarpið hafi veikt traust á rík-
isstjórninni eða 66% kvenna sam-
anborið við 61% karla. Þá er það
einungis meirihluti stuðnings-
manna Framsóknarflokksins sem
telja að frumvarpið hafi aukið
traust á ríkistjórninni. 51,4% eru
þeirrar skoðunar en tæp 26% sjálf-
stæðismanna eru þeirrar skoð-
unar. Hins vegar telur 81% stuðn-
ingsmanna Samfylkingarinnar að
frumvarpið hafi veikt traust á rík-
istjórninni og 77% stuðningsmanna
VG.
Frumvarpið
veikti traust
YFIRVÖLDUM borga og bæja á
höfuðborgarsvæðinu hefur ekki
gengið sem skyldi að tengja saman
skipulagsmál einstakra bæjarfélaga
og sameiginlega vatnsverndarhags-
muni. Þetta kom fram í erindi sem
Páll Stefánsson, hjá Heilbrigðiseft-
irliti Hafnarfjarðar- og Kópavogs-
svæðis, flutti á málþingi um vötn og
vatnasvið á höfuðborgarsvæðinu.
Páll sagði að neysluvatn á höfuð-
borgarsvæðinu væri gott. Styrkur
umhverfisgerla væri mjög lítill og
nánast óþekkt að óæskilegir gerlar
mældust í vatninu. Styrkur upp-
leystra efna væri sömuleiðis lægri en
almennt gerðist í Evrópu. Vandi
vatnsveitna og eftirlitsaðila væri
fremur fólginn í því að tryggja að til-
skilinn fjöldi sýna væri tekinn en að
sýnin uppfylltu ekki gæðakröfur.
Páll sagði einnig
nóg til af vatni á
svæðinu og að
gefnum tiltekn-
um forsendum
nýttum við tæp-
lega 10% vatns-
forðans. Vatns-
tökustaðir væru
hins vegar dreifð-
ir og ekki lægi
fyrir vitneskja um mögulegt nýting-
arhlutfall.
Framkvæmdagleði
og vatnsvernd
Páll benti á að „þensla og fram-
kvæmdagleði [hefði] ráðið ferðinni á
kostnað vatnsverndarsjónarmiða
undanfarin ár og misseri. Innan bæj-
arkerfa virðist vilji fyrir að aflétta
vatnsvernd af stórum svæðum innan
lögsögu þeirra eða a.m.k. að horfa
framhjá áhrifum fyrirhugaðra fram-
kvæmda sem þar er verið að áforma.
Opnun á aðra landnýtingu en nú er
samþykkt ógnar vatnsvernd á svæð-
inu þegar til lengri tíma er litið og
verði vernd aflétt gætu viðkvæm
vistkerfi, s.s. vatnasvið Elliðavatns
einnig verið í hættu“.
Páll sagði að ýmis fyrirtæki og fé-
lög sæktu nú um afnot af svæðinu.
Þessi áform gengju þvert á hags-
muni vatnsverndar. „Það er brýnt að
áður en frekari breytingar verða á
skipulagi vatnsverndarsvæðisins
verði fyrst farið í nauðsynlegar rann-
sóknir svo að hægt sé að leggja mat á
hvort breytingar á mörkum svæðis-
ins eða notkun þess geti haft í för
með sér skert öryggi,“ sagði Páll.
Opnun á aðra landnýt-
ingu ógnar vatnsvernd
Frekari rannsóknir nauðsynlegar áður en lengra er haldið
Páll Stefánsson HRAFN Jökulsson, forseti skák-
félagsins Hróksins, fylgdi þremur
erindrekum Hróksins úr hlaði er
þeir héldu til Grænlands fyrir
helgi til að kynna skáklistina fyrir
íbúum Ittoqqortoormiit á austur-
hluta Grænlands.
Þetta er fyrsta ferð Hróksins til
Scoresbysunds en skákfélagið hef-
ur haldið uppi reglubundnum
ferðum til annars bæjar á þessum
slóðum, Ammassalik. Ferðalang-
arnir, Ólafur Guðmundsson og
Arnar Valgeirsson, halda á tafl-
borði á myndinni, Íris Ragnars-
dóttir er þeim á vinstri hönd en
þremenningarnir munu dvelja eina
viku á Grænlandi, kenna börnum í
skólunum í Ittoqqortoormiit skák
og gefa þeim skáksett svo að allir
ættu að kunna að tefla er þau
halda heim.
Útrásin heldur áfram
Morgunblaðið/Kristinn
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt tvo karlmenn í
fangelsi fyrir hættulegar líkamsárás-
ir. Annar mannanna, Steindór Hreinn
Veigarsson, hlaut 4 ára fangelsi og
meðákærði, Kristján Halldór Jens-
son, 2 ára fangelsi. Voru þeir auk refs-
ingar dæmdir til að greiða einum
brotaþola sinna tæpa 1,1 milljón í
miskabætur en þeir klipptu af honum
litla fingur með garðklippum.
Steindór Hreinn var að auki
dæmdur til að greiða tveimur mönn-
um, sem hann réðst á, samtals tæpa
milljón kr. í bætur og nærri 1,1 millj-
ón kr. í sakarkostnað. Kristján Hall-
dór var dæmdur til að greiða tæpa
hálfa milljón í sakarkostnað.
Tveir menn aðrir voru einnig
ákærðir fyrir aðild að líkamsárásum
og húsbroti. Var annar sýknaður en
hinum ekki gerð sérstök refsing.
Alvarlegasta brotið sem þeir Stein-
þór Hreinn og Kristján Halldór voru
fundnir sekir um var framið í maí á
síðasta ári en þá ruddust þeir inn í
íbúð á Akureyri, kýldu mann í andlitið
svo hann kinnbeinsbrotnaði, og slógu
annan mann í hnakkann með hafna-
boltakylfu. Þá spörkuðu þeir ítrekað í
manninn liggjandi og Steinþór
Hreinn klippti síðan litla fingurinn af
honum með garðklippum.
Mennirnir tveir eru báðir á þrítugs-
aldri. Steindór Hreinn hefur frá 1999
þrettán sinnum verið dæmdur til refs-
ingar. Hann var m.a. dæmdur í 18
mánaða fangelsi í mars 2006 fyrir
tvær líkamsárásir, hótanir, fíkniefna-
lagabrot, umferðarlagabrot og brot á
vopnalögum. Kristján Halldór hefur
frá 1998 níu sinnum verið dæmdur til
refsingar fyrir brot á almennum
hegningarlögum, fíkniefnalöggjöf-
inni, vopnalögum og áfengislögum.
Málið dæmdi Freyr Ófeigsson
dómstjóri. Verjandi Steindórs Hreins
var Sigmundur Guðmundsson hdl. og
verjandi Kristjáns Halldórs Arnar
Sigfússon hdl. Sækjandi var Eyþór
Þorbergsson, fulltrúi lögreglustjór-
ans á Akureyri.
Klipptu litla fingur af
manni með garðklippum
Tveir karlmenn á þrítugsaldri í fangelsi fyrir líkamsárásir
Í HNOTSKURN
» Steindór Hreinn Veig-arsson hefur verið dæmd-
ur í 4 ára fangelsi fyrir hættu-
legar líkamsárásir og
meðákærði, Kristján Halldór
Jensson, í 2 ára fangelsi.
» Í alvarlegasta brotinuruddust þeir inn í íbúð og
m.a. spörkuðu ítrekað í mann
og klipptu af honum fingur.