Morgunblaðið - 21.04.2007, Side 1

Morgunblaðið - 21.04.2007, Side 1
STOFNAÐ 1913 107. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is GRETTIR Á RÍTALÍN GLÍMA HELJARMENNISINS VIÐ GLÁM HELDUR ÁFRAM Í SÖNGLEIKNUM GRETTI >> 50 KARLAKÓR REYKJA- VÍKUR Í KJÓLFÖTIN TIL FORTÍÐAR ÚR SMALAFÖTUNUM >> 22 FRÉTTASKÝRING Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is HUGMYNDIR um að reisa olíuhreinsunar- stöð hér á landi eru aldeilis ekki nýjar af nálinni. Málið var fyrst athugað snemma á sjöunda áratugnum og hefur reglulega skotið upp kollinum á þeim tæplega fimmtíu árum sem liðin eru. Hugmyndir um byggingu olíuhreinsunar- stöðvar hér á landi virðast fyrst hafa komið upp á árinu 1961 þegar Eyjólfur Konráð Jónsson, ritstjóri Morgunblaðsins og síðar alþingismaður, og fleiri áhugamenn leituðu eftir samstarfi við erlenda aðila. Stjórnvöld tóku málið síðan upp á sína arma með því að stóriðjunefnd hóf viðræður við bandarískan fjárfesti, J.H. Whitney & Co., á árinu 1963. Þetta var á sama tíma og Búrfellsvirkjun var undirbúin og viðræður voru um bygg- ingu álvers í Straumsvík. Málið var lagt á hilluna til að hægt yrði að einbeita kröft- unum að álmálinu en einnig kom það til að skiptar skoðanir voru um málið, íslensku ol- íufélögin voru því andvíg, einhverjir höfðu áhyggjur af áhrifum þess á útflutning til Sovétríkjanna og einnig var samsetning markaðarins hér talin óhagstæð. Hugmyndin var aftur tekin upp undir lok sjöunda áratugarins þegar síldveiðarnar brugðust og viðræður teknar upp við nýjan aðila. Athuganir leiddu til þess að samþykkt voru lög frá Alþingi um olíuhreinsunarstöð á Íslandi. Ekki varð úr framkvæmdum því hagkvæmniathugun var neikvæð. Þótt at- huganir sem gerðar voru nokkrum árum síðar sýndu að slík stöð væri hagkvæm, miðað við forsendur sem þá voru, náði málið ekki lengra og loks voru lögin afnumin. Nýjar hugmyndir Aðild Íslands að Barentsráðinu varð til þess að þráðurinn var tekinn upp enn á ný á árinu 1997, þá í samvinnu við rússnesk og bandarísk fyrirtæki og byggðist það á fyr- irhugaðri olíuvinnslu í norðurhluta Rúss- lands og því að Ísland yrði í flutningaleið olíuskipanna til helstu markaðssvæða. Einkum var litið til Austurlands um stað- setningu en Skagafjörður kom til álita um tíma og lét Fjárfestingarskrifstofa Íslands vinna forathugun vegna stöðvar við Kolkós. Álverið í Reyðarfirði var talið álitlegri kost- ur. Ólafur Egilsson, þáverandi sendiherra í Rússlandi, hafði milligöngu um málið á þessum tíma, eins og nú þegar Vestfirðir eru komnir inn í umræðuna. Reuters Olía Leiðslur og geymslutankar eru meðal mannvirkja í olíuhreinsunarstöðvum. Lífseig hugmynd rædd á ný Olíuhreinsunarstöð undirbúin í hálfa öld Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is UMSÓKNUM útlendinga um dvalarleyfi hér á landi fjölgar enn og eru þau flest tengd atvinnu- þátttöku. Fyrstu þrjá mánuði árs- ins höfðu þegar verið gefin út 3.797 leyfi en á sama tíma í fyrra voru gefin út 3.509 leyfi. Útlend- ingastofnun býst við áframhald- andi fjölgun umsókna en á síð- ustu 2–3 árum hefur umsóknum um dvalarleyfi fjölgað gífurlega. „Það sem við höfum séð það sem af er ári gefur ekki vísbendingu um annað en að umsóknum um dvalarleyfi haldi áfram að fjölga,“ segir Ragnheiður Böðvarsdóttir, staðgengill forstjóra Útlendinga- stofnunar, og bendir á að oft komi toppar á vorin og sumrin. Á síðasta ári voru gefin út 12.669 dvalarleyfi og hafði þeim þá fjölg- að um 100% frá árinu 2004 þegar þau voru 6.042 talsins. Útgefnum atvinnuleyfum fer hins vegar fækkandi. Í mars í fyrra voru gef- in út 797 atvinnuleyfi en í mars á þessu ári voru þau 301. Á síðasta ári voru alls gefin út 5.486 leyfi til atvinnu. Árið 2006 fékk 5.391 ríkisborg- ari Evrópska efnahagssvæðisins útgefið dvalarleyfi eða um 43% af öllum útgefnum dvalarleyfum á Íslandi. Sé litið til þjóðernis eru Pólverjar langfjölmennastir eða rúmlega 5.200 þeirra sem fengu dvalarleyfi hér á síðasta ári. Til samanburðar fengu tæplega 1.200 Pólverjar dvalarleyfi árið 2004. Næstfjölmennastir eru Litháar. Vegna anna hjá Útlendinga- stofnun er meðalafgreiðslutími á umsókn um dvalarleyfi nú 60 dag- ar en var áður 30 dagar. „En við vinnum auðvitað eins hratt og við getum og oft tekst okkur að af- greiða umsóknir á skemmri tíma,“ segir Ragnheiður. Á tímabilinu frá 1. ágúst 2006 til 28. febrúar 2007 fengu 8.711 útlendingar kennitölu hjá þjóð- skrá en af þeim hafa einungis 2.227 tekið upp fasta búsetu hér á landi, þ.e. fengið dvalarleyfi og verið færðir af svokallaðri utan- garðsskrá inn í þjóðskrá. Margir standa því stutt við og rúmlega 1.400 eru búsettir erlendis og koma jafnvel aldrei hingað til lands. Fá þeir í mörgum tilfellum kennitölu vegna viðskipta hér á landi. Umsóknum um dvalarleyfi hér á landi fjölgar enn  8.133 karlar fengu dvalarleyfi á Íslandi á síðasta ári en 3.256 konur                          ARNA Sól Sævarsdóttir, sjö ára Akureyrarmær, var ræst fyrst í göngukeppni sjö ára og yngri á Andrésar andar-leikunum í Hlíð- arfjalli við Akureyri í gær og var einbeitt á svip, eins og sjá má, þegar henni var hleypt af stað í blíðskaparveðri um hádegisbil. Stúlkurnar gengu einn kíló- metra og þær sem næstar fóru á eftir Örnu Sól biðu rólegar en spenntar hjá Stefáni Jónassyni ræsi; Helga Dís Magnúsdóttir frá Ólafsfirði (með rásnúmer 6) og Ís- firðingarnir María Björg Fjöln- isdóttir (7) og Auður Líf Bene- diktsdóttir (8). Hátt í 800 börn, 6–14 ára að aldri, taka þátt í Andrésarleik- unum að þessu sinni, en þeir hóf- ust á fimmtudaginn og lýkur í dag. Þetta er í 31. skipti sem leik- arnir eru haldnir í Hlíðarfjalli. Þar er nægur snjór og gott færi.Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Arna Sól var einbeitt BORGARYFIRVÖLD munu í dag funda með eigendum Lækjargötu 2 og Austurstrætis 22, auk forsvarsmanna Vátryggingafélags Íslands, um hvaða skref verði tekin til uppbyggingar eftir stórbrunann á mið- vikudag. Í gærmorgun tilkynntu borgaryfirvöld að óheimilt væri að rífa húsin að svo stöddu og eftir fund í ráðhúsi Reykjavíkur var ákveð- ið að loka svæðinu með þar til gerðu neti. Lögreglan yfirtók brunavettvang aftur í gær til að kanna ákveðin atriði betur en síðdegis á fimmtudag hafði svæðið verið afhent VÍS. Að sögn Ásgeirs Baldurs, forstjóra VÍS, vonast hann til að fá botn í málið sem fyrst, rekstraraðilum og félaginu til góðs. „Við gerum ráð fyrir að þetta sé tjón upp á hundruð milljóna króna, það er bæði eignir og rekstur. Við höfum því tilkynnt endurtryggjendum okkar þetta, þann- ig að þeir eru meðvitaðir um tjónið.“ | 4 Framhaldið lík- lega ákveðið í dag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.