Morgunblaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007 19
MENNING
OPIÐ HÚS
Í DAG 21.apríl 2007 í
Myndlistaskólanum í Reykjavík
• Ný námsbraut MÓTUN - leir og tengd efni 2ja ára fullt nám, leiðir til BA gráðu.
• Myndlistar- og hönnunarsvið 1 árs nám - umsóknarfrestur rennur út 25.maí.
• Sýning á verkum nemenda skólans.
• Tilraunir á verkstæði með Camera Obscura 6 - 12 ára.
• Litaleikhús 3 - 5 ára.
• Rennsla á keramikverkstæði fyrir alla aldurshópa.
• Fjölbreyttar sýningar í tengslum við afmælið sjá nánar á heimasíðu.
• Skráð á sumarnámskeið sem verða í júní og ágúst fyrir börn og unglinga.
ALLIR VELKOMNIR vöfflur og kaffi
Hringbraut 121 • www.myndlistaskolinn.is • sími 551 1990
1 9 4 7 - 2 0 0 7
GULI 20 sæta salur Listasafns
Einars Jónssonar á Skólavörðuholti
var auðvitað aldrei hannaður fyrir
tónleikahald, eins og m.a. má sjá á
kringilstigóttu aðgengi. Samt kann
hann að hugnast hörpuleikurum
þar eð jafnvel minnsta gómstrok
heyrist, og ekkert þarf til að fram-
kalla þvílíkt foráttuveður á erki-
hljóðfæri engla að glymur í hverju
kuðungshári hlustandans.
Flutt voru 6 verk eftir Áskel
Másson er haslaði sér fyrstur hér-
lendra tónhöfunda völl á slag-
verkssviði fyrir aldarþriðjungi.
Elzta atriðið, Lament [9’], samið f.
Manuelu Wiesler 1978, var jafn-
framt hvað ferskast og frábærlega
blásið „lontano“ úr hliðarsal af
Martial Nardeau. Nýjast var Mi-
rage f. einleikshörpu er féll í marg-
leitri túlkun Elísabetar Waage
sömuleiðis dável að heildarfyr-
irsögninni Úr huliðsheimi.
Eftir tónölu smálögin Canzona
(fl. & h.) og Berceuse (h., við nærri
bretónskan þjóðlagakeim) kom Íma
f. slagverk [9’]; tæknilega krefjandi
stykki þrátt fyrir einfaldan hryn-
grunn þar sem Frank Aarnink lað-
aði fram ævintýralegan krist-
alsdropahelli á ýmis málmslagtól.
Loks var tríóið Cantilena [7’], unnið
úr Fiðlukonsert Áskels (2006), er
þrátt fyrir samstilltan flutning og
tónalan aðgengileika sligaðist svo-
lítið af þúfustígum fjórtakti og
kassalaga hendingaskipan.
Klingjandi kristall
TÓNLIST
Listasafn Einars Jónssonar
Áskell Másson: Lament, Mirage
(frumfl.), Canzona, Berceuse (fr.fl. í nýrri
gerð), Íma (fr.fl. á Ísl.) & Cantilena. El-
ísabet Waage harpa, Martial Nardeau
flauta og Frank Aarnink slagverk. Sunnu-
daginn 15. apríl kl. 15.
Kammertónleikar - Ríkarður Ö. Pálsson
LISTASALUR Mosfellsbæjar er
staðsettur í verslunarmiðstöðinni
Kjarna, innst í Bókasafni Mosfell-
sæjar. Salurinn er tiltölulega nýr af
nálinni en vera má að yfirstandandi
sýning verði til þess að koma honum
á kortið. Hún heitir Sjömílnaskór og
er samsýning sjö myndlistarmanna
af „ungu kynslóðinni“ sem eiga það
sammerkt að vera fæddir í Mos-
fellsbæ.
Unnar Örn Jónasson Auðarson er
aldursforsetinn, fæddur 1974, og er
nokkuð sjóaður í sýningarhaldi.
Framlag hans eru derhúfur áprent-
aðar textanum „Menningarbærinn
Mosó – Hér eru allir listamenn“ og
eins og Unnars er von þá virkjar
hann bókasafnið inn í listaverkið og
lofar húfu að gjöf handa þeim sem
eru komnir yfir á skiladegi og gera
upp skuldir sínar við safnið. Dregur
hann þannig myndlistina út úr
ramma listrýmisins og inn í athafna-
rýmið.
Berglind Jóna Hlynsdóttir fer öf-
ugt að málum miðað við Unnar þeg-
ar hún leitar að náttúrunni (eða list-
inni) inni í verslunarmiðstöðinni og
safnar saman pottablómum sem
voru þar á víð og dreif og raðar þeim
smekklega framan við innganginn í
bókasafnið.
Framlag Þórdísar Aðalsteins-
dóttur er lítið og ljúft málverk, verk
Ingibjargar Birgisdóttur þyrfti að
sprengja einhvern ramma utan af
sér til að njóta sín í svo jafnstilltri og
þéttri samsýningu, ljósmyndir Ey-
þórs Árnasonar af nýjum íslenskum
poppgoðum láta heldur ekki mikið
yfir sér og gegnsær kjörklefi Heiðu
Harðardóttur er hófsemin upp-
máluð, þar sem sýningargestir velja
sér málefni, kjósa um það sjálfir og
skila síðan kjörseðlinum í tætara.
Hnyttið en marklaust listaverk.
Ekki sakar að kosningar eru í nánd.
Portrettmyndir Oddvars Arnar
Hjartarssonar af Páli Óskari, söngv-
ara standa aftur á móti utan við alla
hófsemi. Eru æpandi dramatískar
og nær listamaðurinn að nýta sér
ýkta eiginleika fyrirsætunnar til
fullnustu.
Það er ekki hlaupið að því að gera
góða samsýningu þegar haldreipið
er fæðingarstaður listamanna og úr
því að verkin hrynja ekki saman í
sterkara þema virkar sýningin hálf
stefnulaus. Engu að síður halda sýn-
ingarstjórarnir Gunnar Helgi Guð-
jónsson og Hlín Gylfadóttir ágæt-
lega utan um sýninguna sem ku vera
umfangsmesta verkefnið sem
„menningarbærinn Mosó“ hefur lagt
í fyrir listasalinn og það skilar sér
svo sannarlega sem sjömílnaskref í
rétta átt.
Stórt
skref
MYNDLIST
Listasalur Mosfellsbæjar
Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 12-
19 og laugardaga frá 12-15. Sýningu lýk-
ur 28. apríl. Aðgangur ókeypis.
Samsýning sjö listamanna
Jón B.K. Ransu
Smekklegt Berglind Jóna Hlynsdóttir leitar að náttúrunni.
ÞAÐ var rafmagnað andrúm í Gler-
árkirkju á þessum tónleikum. Þétt-
setin kirkja áheyrenda sem svo
sannarlega létu hrifningu sína í ljós.
Enda fór fram sinfónískur galdur,
þar sem tónverk og flutningur létu
engan ósnortinn.
Corolian-forleikurinn var for-
smekkur stórra tíðinda, kraftmikill,
en fyrir kom að yfirvegun væri ekki
næg, en sannfærandi í heildina. Það
var svo með næsta verki, fiðlukons-
ert Max Bruch, sem kaupin gerðust
best á eyrinni. Einleikstónar fiðlu-
leikarans unga og snjalla, Ara Þórs, í
upphafi fyrsta þáttar (Vorspiel)
runnu þéttir, ljúfir og fallega mót-
aðir inn í innstu kviku tilfinninga og
saman sungu hljómsveit, hann og
Guðmundur Óli þetta mikla róm-
antíska verk af tilþrifum. Tónskáldið
Max Bruch samdi verkið ungur og
þótti verkið síðar skyggja á önnur
verk sín, enda er það rétt, því þetta
verk heldur minningu hans fyrst og
fremst á lofti. Bæði í Bruch og í
Beethoven síðar fannst mér hornin
hljóma sérlega glæsilega. Fimmta
Sinfónían með stórum stöfum ber
byltingamanninum mikla fagurt
vitni. Hún var samin á óhemju af-
kasta miklu skeiði í ævi meistarans,
1804–1808, og til að undirstrika hve
mikla þýðingu verkið hafði í huga
hans lauk hann á sama tíma fjölda
stórverka s.s. fjórðu sinfóníunni,
fiðlukonsertinum, fjórða píanókons-
ertinum og fleirum.
Sú fimmta vísar veginn langt fram
á við og tengist annar þátturinn
jafnvel tónmáli síðrómantíkera, eins
og Mahlers. Öllu fannst mér vel til
skila haldið, hraða, styrkleika og
þéttum og fallegum hljómi.
Þarna áttu allir stórleik, enda þótt
tréblásarar, selló og horn fái auka-
prik.
Þetta var tvímælalaust stjörnum
prýddur óður og hvatning fyrir
byggingu nýja menningarhússins.
Rafmagnað and-
rúm í Glerárkirkju
TÓNLIST
Glerárkirkja
Fiðlukonsert í g eftir Bruch og Corolian-
forleikurinn ásamt Sinfóníu nr. 5 í c-moll
eftir Beethoven. Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands og Ari Þór Vilhjálmsson ein-
leikari á fiðlu. Konsertmeistari: Greta
Guðnadóttir. Stjórnandi: Guðmundur Óli
Guðmundsson.
Fimmtudaginn 5. apríl kl. 16.
Sinfóníutónleikar – Jón Hlöðver Áskelsson
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is
STUTT hlé var gert á æfingu á
söngleiknum Gretti á stóra sviði
Borgarleikhússins í gær þegar
Guðjón Pedersen leikhússtjóri gekk
upp á sviðið og tilkynnti að nú færi
fram undirritun samstarfssamnings
Reykjavíkurborgar og Leikfélags
Reykjavíkur sem annast rekstur
Borgaleikhússins. Því næst stigu
Inga Jóna Þórðardóttir formaður
stjórnar Borgarleikhússins og Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson borg-
arstjóri inn á sviðið og skrifuðu
undir samninginn við góðar und-
irtektir viðstaddra. Samningurinn
felur í sér að framlag Reykjavík-
urborgar til menningarstarfs Leik-
félags Reykjavíkur, eykst um tæp-
lega 50 milljónir króna á þremur
árum. Um er að ræða 7% hækkun
á samningi sem gerður var 2004.
Að öðru leyti helst samstarfssamn-
ingurinn óbreyttur þeim fyrri í
megindráttum. Borgarstjóri hélt
ræðu við tilefnið og sagðist meðal
annars hafa mikla trú á því fram-
sækna starfi sem Borgarleikhúsið
hefur unnið undanfarin ár og að
aukning framlags Reykjavíkur-
borgar til LR væri viðurkenning á
því góða starfi.
„Í Borgarleikhúsinu er rekið ansi
metnaðarfullt starf og þar er mikil
gróska. Við viljum koma til móts
við félagið með því að styðja það
enn frekar,“ sagði Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson.
Aðspurður um áhrif samningsins
á leikhússtarf félagsins svaraði
Guðjón Pedersen leikhússtjóri að
þau væri fyrst og fremst andleg.
„Þetta er mikil viðurkenning á
því starfi sem við höfum innt af
hendi undanfarin ár og mun treysta
enn á þau samskipti sem við höfum
haft við Reykjavíkurborg. Svo von-
um við að með þessu aukna fram-
lagi getum við sýnt Reykvíkingum
enn betur hvers við erum megnug.
Og ég efast ekki um að við munum
gera það í framtíðinni,“ segir Guð-
jón og bætir við að það hafi vissu-
lega verið þörf á hækkuninni. „Við
vitum að það er þensla í samfélag-
inu og leikhúsið er hluti af sam-
félaginu. Þannig að það var kominn
tími á hækkun fyrir okkur og við
þökkum kærlega fyrir þá upphæð
sem við fengum.“
Viðurkenning
á metnaðarfullu
leikhússtarfi
Morgunblaðið/ÞÖK
Grettistak Inga Jóna Þórðardóttir, formaður stjórnar Borgarleikhússins, og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri við undirskrift samningsins. Að baki þeim má sjá leikhóp söngleiksins Grettis.
Reykjavíkurborg eykur framlag
sitt til Leikfélags Reykjavíkur