Morgunblaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Helgarferð til Barcelona 27. apríl frá kr. 29.990 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Vegna forfalla bjóðum við frábært tilboð á örfáum sætum um næstu helgi til Barcelona. Frábær helgarferð, föstudagur til mánudags og frídagur daginn eftir heimkomu (1. maí). Barcelona er einstök perla sem Íslendingar hafa tekið ástfóstri við. Borgin býður frábært mannlíf og óendanlega fjölbreytni í menningu og afþreyingu að ógleymdu öllu því úrvali fjölbreyttra verslana sem eru í borginni. Gríptu þetta frábæra tækifæri strax! Verð kr.29.990 Netverð á mann. Flug báðar leiðir með sköttum, út 27. og til baka 30. apríl. Örfá sæti - vegna forfalla Eftir Andra Karl andri@mbl.is STÆRSTI vinnustaðurinn af þeim fyrirtækjum sem illa fóru í stórbrunanum í miðborg Reykja- víkur á miðvikudag er skemmti- staðurinn Pravda. Þar störfuðu yfir fimmtíu manns og að sögn forsvarsmanna eru allir án at- vinnu í dag. Starfsmannafundur hefur verið boðaður eftir helgi. Einar J. Ingason, einn eiganda Pravda, segir að starfsmanna- fundur hafi ekki verið boðaður fyrr því eigendur hafi í raun engin svör fyrir starfsfólkið. „Eins og staðan er núna þá er þetta fólk án atvinnu og það er auðvitað gríð- arlegt áfall fyrir það. En við von- um að hægt verði að hefja rekstur í þessu húsi sem fyrst.“ Pravda er vel tryggt – með rekstrarstöðv- unartryggingu – þannig að starfs- fólkið fær þó laun borguð á meðan leitað er að annarri vinnu. Eitt þeirra fyrirtækja sem höfðu aðsetur í Lækjargötu 2 var HL adventures sem sérhæfir sig í ævintýraferðum fyrir ferðamenn. Sama óvissa ríkir innan herbúða HL og annarra fyrirtækja en Jón Ólafur Magnússon, fram- kvæmdastjóri, segist þó ekki gera ráð fyrir að til uppsagna komi. „Við vorum í því ferli að ráða inn þrjár manneskjur en það breytist eðlilega því við missum af ferða- mannatímanum.“ Jón Ólafur segir að fyrirtækið muni tapa tugum milljóna vegna rekstrarstöðvunar en 85% af tekjum fyrirtækisins eruaf þrem- ur mánuðum; júní, júlí og ágúst. „Gangandi vegfarendur koma við hjá okkur og kaupa fyrir tugi milljóna – það verður ekki.“ Fyr- irtækið hefur þegar haft samband við Eik fasteignafélag, eiganda húsnæðisins og óskað eftir áfram- haldandi húsnæði. Fastagestir heimilislausir Café Rósenberg hefur verið af- drep margra listhneigðra þjóð- félagsrýna auk þess sem fjöl- margir tónlistarviðburðir hafa verið haldnir þar á síðustu miss- erum. Fastagestum finnst þeir nú heimilislausir og hefur Eyvindur Karlsson blásið til styrkt- artónleika. „Þetta er enn á byrj- unarstigi en farið verður á fullt um helgina við að koma þessu af stað.“ Markmiðið er að fá sem flesta þeirra tónlistarmanna sem troðið hafa upp á Rósenberg til að spila, eða líkt og Eyvindur orðar það „Þennan Rósenberg-hóp“. Þórður Pálmason, eigandi Rós- enberg, segir að um fimm manns hafi unnið í fullu starfi á staðnum og vonast hann til þess að hægt verði að hefja framkvæmdir á næstunni og jafnvel finna þeim einhverja vinnu við þær. Hann segist hafa fundið fyrir miklum stuðningi eftir að staðnum var lok- að, og hefur fullan hug á að opna á nýjan leik. Fá flestir önnur störf Veitingastaðinn Café Óperu átti að opna að nýju eftir endurbætur í lok maí og segir Tómas Krist- jánsson, framkvæmdastjóri 101 heildar, líklegt að flestir starfs- menn fái störf á öðrum veit- ingastöðum fyrirtækisins. Ekki náðist í forsvarsmenn Kebab-hússins né Tourist booking, sem nefnist í daglegu tali Fröken Reykjavík. Tjón vegna rekstrarstöðv- unar jafnframt geysimikið Morgunblaðið/Árni Sæberg Rústir Slökkviliðsmenn unnu við það í gær að breiða yfir rústir skemmtistaðarins Pravda. Er það gert vegna fokhættu sem og til að verja þau menningarverðmæti sem enn eru til staðar undir brakinu.  Störf hátt í hundrað einstaklinga í hættu og innbú allra fyrirtækja ónýtt GUÐNÝ Gerður Gunnarsdóttir borgarminjavörð- ur segir það eindreginn vilja allra hlutaðeigandi yfirvalda að götumyndin á horni Aðalstrætis og Lækjargötu verði endurbyggð í þeirri mynd sem hún var fyrir brunann á miðvikudag. Fundur var haldinn um málið í ráðhúsi Reykjavíkur í gær- morgun þar sem rætt var um hvernig hægt verði að koma í veg fyrir frekari skemmdir á húsunum, hvað gera þurfi til að vernda minjar sem eftir eru og hvernig eigi að ganga frá rústunum svo að al- menningi stafi ekki hætta af. Borgarstjóri mun funda um framhaldið með eigendum húsanna og forsvarsmönnum VÍS í dag. Guðný Gerður sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins að samþykkt hefði verið á fundinum í gær að leita eftir samráði og sam- vinnu við eigendur húsanna og lóðanna en hvorki húsin né lóðirnar eru í eigu borgarinnar. Þá sagði hún hugmyndir hefðu verið uppi um það meðal eigenda lóðanna að auka byggingarhlutfall á þeim sam- kvæmt skipulagi frá árinu 1986. Minjavernd hefði hins vegar barist fyrir því að götumyndin fengi að halda sér og að það yrði tryggt í skipulagi svæðisins. Byggingafulltrúi Reykjavíkurborgar lagði tímabundið bann við niðurrifi húsanna í gær og stendur það um ótiltekinn tíma til að veita fulltrúum Minjasafns Reykjavíkur og Húsfriðunarnefndar tækifæri til að skoða aðstæður. Tímabundið bann við niður- rifi húsanna sett á í gær Guðný Gerður Gunnarsdóttir Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is BÆTUR sem matsnefnd eignar- námsbóta ákvarðaði að Landsvirkj- un skyldi greiða landeigendum Brú- ar á Efri-Jökuldal greiðast ekki út fyrr en niðurstaða liggur fyrir í þjóðlendukröfum ríkisins um svæð- ið. Gangi kröfur ríkisins eftir verður hið bótaskylda land þjóðlenda og þar með ekki lengur í eigu núver- andi landeigenda Brúar. Bætur hafa verið ákvarðaðar 64 milljónir króna af sérstakri mats- nefnd eignarnámsbóta til tveggja eigenda jarðarinnar Brúar á efri Jökuldal vegna 3000 ha lands sem fara undir Hálslón (43% af lóninu) og athafnasvæðis meðfram lóninu. Þetta er u.þ.b. 120 þúsund krónur pr. ha. og mun af nefndinni hafa verið miðað við markaðsverð al- mennra heiðarlanda. Dæmi eru um að bætur fyrir hektara heiðarlands sem fór undir línulögn Landsnets á Fljótsdalslínum 3 og 4 milli Kára- hnjúkavirkjunar og álvers Alcoa Fjarðaáls hafi numið allt að 400 þúsund krónum pr. ha. Jörðinni Áreyjum í Reyðarfirði voru úr- skurðaðar 15,5 milljónir króna í bætur af úrskurðarnefnd eignar- námsbóta árið 2006 og jörðinni Mýrum í Fljótsdal rúmlega 8 millj- ónir króna. Miðað var við markaðs- virði og að fyrir bestu landsvæðin kæmu 400 þúsund kr. pr. ha en 100 til 200 þúsund krónur fyrir lakara land. Spyrt við þjóðlenduúrskurð Ekki liggur fyrir ákvörðun um hvort bótamáli Brúareigenda verð- ur skotið til dómstóla. Óljóst er jafnframt hvernig fer með bóta- greiðslur frá Landsvirkjun uns úr- skurður óbyggðanefndar um þjóð- lendur liggur fyrir, en í samningi milli fyrirtækisins og landeigenda er gengið frá því hvernig tillit verð- ur tekið til þess. Útgreiðsla bótanna er háð niðurstöðu þjóðlendumálsins og landeigendur verjast þjóðlendu- kröfum á öðrum vettvangi. Gangi ýtrustu þjóðlendukröfur ríkisins eftir eiga Brúarmenn ekki landið og fá ekki bætur. Landið sem er undir Hálslóni að öðru leyti er austan Jökulsár á Dal land Valþjófsstaðar og utan við Brú- arlandið, við Kárahnjúkastíflu í eigu Laugavalla. Enn er eftir að ganga frá bótum til landeiganda Lauga- valla en Valþjófsstað voru greiddar bætur fyrir nokkrum árum síðan. Bótagreiðslur vegna Háls- lóns eru enn í réttaróvissu Bætur ekki greiddar út vegna þjóðlendukrafna ríkisins FULLTRÚAR frá Vá- tryggingafélagi Íslands hafa verið á brunavettvangi í miðborginni frá því um miðjan dag á miðvikudag þegar eldurinn kviknaði. VÍS brunatryggir bæði Lækjargötu 2 og Austur- stræti 22 og ljóst er að tjónið fer umfram þeirra eigin áhættu. „Þetta er tjón í stærri kantinum hjá okkur,“ segir Ásgeir Baldurs, forstjóri VÍS. „Við erum að gera ráð fyrir að þetta sé tjón upp á hundruð milljóna króna, það er bæði eignirnar og rekstur. Við höfum því tilkynnt okkar endurtryggjendum um þetta þannig að þeir eru meðvitaðir um tjón- ið.“ Ásgeir segir að málið sé í einskonar bið- stöðu hjá félaginu þar sem beðið er eftir því að svæðið verði afhent. Tæknideild lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu tók aftur yfir vettvanginn í gærmorgun – en áður hafði ver- ið tilkynnt að aðgerðum á vettvangi væri lokið – auk þess sem borgaryfirvöld tilkynntu eig- endum og VÍS í gærmorgun að óheimilt væri að rífa húsin, enda þarf til þess byggingaleyfi. Stór krani sem búið var að koma fyrir á vett- vangi var því keyrður burtu á ný, án þess að vera notaður. „En við höfum verið að hitta eigendur fyrirtækja og fara yfir trygginga- stöðu þeirra og næstu skref. Svo er fundur [í dag] sem segja má að sé samræmingarfund- ur.“ Á fundinum verða borgaryfirvöld, eigendur húsanna og fulltrúar frá VÍS. Reynt verður að ná samkomulagi eigenda og skipulagsyfir- valda um hvað taki við. „Við gætum hagsmuna húseigenda með því að reyna að flýta fyrir því að rekstur þeirra geti hafist sem fyrst að nýju. Við hefðum viljað geta hafist handa strax enda er það ávinningur þeirra, og okkar, að reksturinn fari í gang sem allra fyrst.“ Ás- geir ber þá von í brjósti að fundurinn botn fá- ist í málið á fundinum á morgun svo hægt sé að takmarka tjónið sem mest og laga götu- myndina, því ekki er fögur sjón að sjá gapandi brunasár í miðborginni. Vel gekk að reykræsta í nágrenninu Fulltrúar frá VÍS hafa ekki setið auðum höndum, því að á sama tíma og búið var að ráða niðurlögum eldsins var farið í það að bjarga verðmætum og reykræsta hús í næsta nágrenni. Einnig var farið í að koma starfsemi nálægra fyrirtækja af stað aftur og segir Ás- geir að verkið hafi gengið vonum framar. „Svo reyndum við einnig að takmarka um- hverfistjón í Austurstræti í samvinnu við slökkviliðið, s.s. þrífa í kring og koma hlut- unum í gott horf.“ Vonandi fer að fást botn í málið Ásgeir Baldurs Forstjóri VÍS vill ráðast í framkvæmdir sem fyrst
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.