Morgunblaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 27
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007 27
miðbik síðustu aldar og
fram undir lok hennar.
Að fulltrúar Engeyj-
arættarinnar eigi nú
stærstan hlut í því fyr-
irtæki, sem áður not-
aðist við vörumerkið
Essó er svona álíka
umbylting á tilverunni
eins og þegar Björg-
ólfur Guðmundsson
varð aðaleigandi bóka-
forlagsins, sem telur
meðal sinna vöru-
merkja Mál og menn-
ingu.
Það er gott að þessi
pólitíski tími í við-
skiptalífinu er liðinn.
En sennilega hafa þeir, sem hafa
skapað auglýsingaherferð N1, lagt
drög að nýjum tímum í markaðs-
málum fyrirtækja á Íslandi.
Líklegt má telja, að þessi auglýs-
ingaherferð verði viðmið, sem marg-
ir muni bera sig saman við á næstu
árum.
N1 hlýtur nú þegar að hafa fengið
byr í seglin undir nýju vörumerki og
augljóst, að Olíuverzlun Íslands,
Skeljungur og Atlantsolía þurfa að
hafa sig alla við til þess að missa
ekki af lestinni.
Nema þeir séu búnir að missa af
henni. Er hugsanlegt að svo sé?
Væntanlega kemur það í ljós.
Sennilega er auglýs-ingaherferð N1
bezt heppnaða auglýs-
ingaherferð, sem hér
hefur verið lagt út í í
langan tíma.
Auglýsingar N1 hafa
vakið mikla athygli.
Þær eru óvenjulegar
og eru til marks um
mikla hugmyndaauðgi
og sköpunarkraft.
Þótt Víkverji hafi lít-
ið gert af því um æv-
ina, að leggja leið sína
á Essó-stöðvar, liggur
við að honum finnist
benzínstöðvar N1 nýj-
ar og ferskar og jafn-
framt umhverfisvænar vegna þess-
arar auglýsingaherferðar!
Alla vega er nýjum eigendum
þessa olíufélags að takast á skömm-
um tíma að þurrka út þá ímynd gam-
als Sambandsfyrirtækis, sem gerði
það að verkum, að ákveðnir aldurs-
hópar Íslendinga vildu ekki eiga þar
viðskipti af hugsjónaástæðum með
sama hætti og annar hópur í sömu
aldursflokkum átti þar öll sín við-
skipti, líka af hugsjónaástæðum.
Auðvitað þykir yngri kynslóðum
Íslendinga það broslegt nú að við-
skiptavinir hafi skiptzt niður á benz-
ínstöðvar af pólitískum ástæðum en
það var hinn íslenzki veruleiki um
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Félagið Landsbyggðarvinir hefur
hrundið af stað verkefni sem nefnist
„Unglingar í sveit og bæ“ meðal
nokkurra skóla um allt land. Það eru
8. bekkingar í þessum skólum sem
taka þátt. Grunnskólinn á Hellu er
meðal þeirra skóla sem boðið var að
vera með og luku 8. bekkingar hér
sínu verkefni með málþingi sem má
líkja við hreppsnefndarfund, í fund-
arstofu hreppsnefndar Rangárþings
ytra. Viðstaddir voru gestir frá
Landsbyggðarvinum, þrír hrepps-
nefndarmenn, skólastjóri grunn-
skólans og Anna Ólafsdóttir umsjón-
arkennari bekkjarins.
Það voru 12 nemendur 8. bekkjar
sem tóku þátt. Verkefninu var skipt í
tvo hluta. Ritgerðir voru fyrri hlut-
inn þar sem hver og einn sagði frá
sjálfum sér, kostum og göllum á
sveitarfélaginu og gerði grein fyrir
hugmyndum sínum um það sem
gera megi til að bæta úr og gera
sveitarfélagið þannig eftirsóknar-
verðara til að búa í. Seinni hlutinn
fólst í nánari útfærslu á einni af hug-
myndunum sem komu fram í rit-
gerðunum. Bekkurinn kaus um það
hvaða hugmynd skyldi útfæra nánar
og varð fyrir valinu sú hugmynd að
byggja skautasvell, þó einhverjir
hefðu heldur kosið knattspyrnuvöll.
Leikskólinn Heklukot á Hellu efnir
þessa dagana til samkeppni um gerð
merkis (logo) fyrir leikskólann. Allir
mega taka þátt, ungir sem gamlir og
á að skila tillögum inn fyrir 10. maí
nk. Senda má tillögurnar í bréfa-
pósti eða tölvupósti og eins má skila
þeim í hugmyndakassa í leikskól-
anum á opnu húsi laugardaginn 28.
apríl. Það telst til nokkurra tíðinda
að undirstofnun sveitarfélagsins ætli
að nota sérstakt „logo“ fyrir sig, en
það hefur tíðkast að nota merki
sveitarfélagsins. Gæti þetta orðið
öðrum til eftirbreytni og aukið flór-
una í fallegum merkjum.
Hellubíó er nú að ganga í endurnýj-
un lífdaga eftir hrörnun og notk-
unarleysi undanfarinna ára. Húsið
fór frekar illa í jarðskjálftunum árið
2000 og hefur verið á sölulista síðan,
en bannað hefur verið að nota stóra
salinn þar til hverskonar samkomu-
halds, nema talsverðar endurbætur
verði gerðar á honum.
Árni Páll Jóhannsson kvikmynda-
gerðarmaður keypti húsið fyrir
nokkru og nú er unnið að endurbót-
um á því. Að sögn Árna Páls verður
húsið aðallega notað í menningar-
legum tilgangi, svo sem til bíósýn-
inga, kóræfinga, sýningarhalds
o.s.frv., en hann hefur komið nokkuð
að því að setja upp sýningar og söfn.
Árni og félagar verða með vinnuað-
stöðu í norðurhlutanum, litla salnum
svonefnda og herbergið uppi á lofti
er lánað til minni funda. Árni segir
að húsið verði ekki rekið með gróða-
sjónarmið í huga. Það er ánægjulegt
að Hellubíó taki nú upp sitt fyrra
hlutverk sem menningarhús og
spennandi að sjá hvernig til tekst í
höndum einkaaðila.
Að sögn skrifstofu ÁTVR í höfuð-
stöðvunum bíða þeir nú eftir að
Kjarvalsmenn á Hellu geri húsnæðið
klárt fyrir nýja vínbúð, en samið var
við Kaupás eftir auglýsingu fyrr í
vetur. Innganginum í versluninni
verður breytt þannig að hann flyst
einu bili austar og eftir að komið er
inn verða tvennar dyr, önnur í
matvöruverslunina og hin í vínbúð-
ina. Hefja átti framkvæmdir eftir
páska en ekkert bólar á þeim ennþá.
Vonast ÁTVR til að opnað verði fyr-
ir ferðamannatímann, en ekki mun
alveg á hreinu hvenær hann telst
byrjaður, en ætti trúlega að verða
um miðjan júní.
Veðrið á sumardaginn fyrsta var
bjart og fallegt og tilvalið fyrir fólk á
öllum aldri að gera sér dagamun. Á
Hellu fór fram að venju firmakeppni
á vegum Rangárvalladeildar hesta-
mannafélagsins Geysis og hófst hún
með hópreið og síðan var keppt í
gæðingakeppni. Börn, unglingar og
eldra fólk tók þátt í keppninni og að
henni lokinni var haldin grillveisla í
hesthúsahverfinu.
Á Laugalandi var haldin skemmt-
un sem foreldrar og börn í ákveðn-
um bekkjum grunnskólans þar
skiptast á að sjá um milli ára. Þar
eru framreidd heimatilbúin
skemmtiatriði, ásamt margs konar
keppnum og atriðum úti og inni.
HELLA
Óli Már Aronsson fréttaritari
Morgunblaðið/ Óli Már Aronsson
Hreppsfundur Nemendur 8. bekkjar grunnskólans á Hellu halda málþing.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir áSandi í Aðaldal las vanga-
veltur Sigrúnar Haraldsdóttur
um að hún væri sjálf andskotinn
og yrkir:
Þetta trúi ég ekki á
engum fjanda er Sigrún lík,
en marga féndur, sjálf ég sá
samankomna í Reykjavík.
Vísunni fylgdi ljóðabréf frá
Hólmfríði: „Ég var semsé að
koma að sunnan og er að lesa
viku leir, sem mest fjallar um
andskotann.
Á Höfðingjanum hef ég trú
við hjátrú er ég fráleitt laus.
En andskotarnir ólmast, nú
aðallega í mínum haus.
Enda er ég heilsulaus eftir
vökur og vitleysu í Neðra.
Núna er ég fjári föl
fegin komin héðra.
Daga og nætur drakk ég öl
og djammaði í Neðra.
Eða er ekki Reykjavík neðar á
landakortinu? En það er kannske
hæpið að skáka í skjóli landa-
bréfs og kalla suður niður, þar
sem málvenjan segir alltaf norður
og niður á Íslandi, en eins og
fram kom í sögunni um
Húsavíkur Jón er líka til neðra
Neðra:
Húsavíkur Jón fór neðar Neðra
en nú á tímum, þjónustan er betri.
Ég pantaði því vist í efra Efra
og ímelinn ég sendi Lykla Pétri.
VÍSNAHORNIÐ
Enn af
andskota
pebl@mbl.is
Dagskrá helgarinnar
Sögusýning Landsbankans
Aðalstræti 6 (húsnæði TM)
Sími: 410 4300
Opið virka daga kl. 11:00-17:00
og um helgar kl. 13:00-17:00
Enginn aðgangseyrir
Á Sögusýningu Landsbankans er
margt markvert að sjá og skoða, ekki
aðeins úr bankasögunni heldur eru
dregnar upp myndir úr þjóðlífi fyrri
tíðar enda saga bankans og þjóðar-
innar samtvinnuð á ýmsan hátt.
Laugardag og sunnudag:
Sveinbjörn Guðbjarnarson verður á staðnum,
leiðbeinir gestum og svarar spurningum.
Sunnudag kl. 14.00:
Leiksýningin Brot úr sögu banka,
leikdagskrá í léttum dúr þar sem rakin er
saga Landsbankans í tónum og tali.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
B
I
37
28
1
04
/0
7
Misstu ekki af tækifærinu til að upplifa þessa
einstöku sýningu – henni lýkur á næstu vikum
ÁSKRIFTASÍMI
569 1100