Morgunblaðið - 21.04.2007, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VERKEFNIÐ Hálkuvarinn, frá
nemendum Iðnskólans í Reykjavík,
bar sigur úr býtum í landskeppni
Ungra vísindamanna sem var hald-
in í 19. sinn í Háskóla Íslands síð-
asta vetrardag. Sjö lið voru skráð
til keppni í ár og kepptu tvö verk-
efni til úrslita. Sigurverkefnið
mun keppa fyrir hönd Íslands í
Evrópukeppni ungra vísinda-
manna sem fram fer á Spáni í
haust.
Höfundar hálkuvarans eru
Magni Rafn Jónsson og Sigurður
Freyr Kristinsson, nemendur í Iðn-
skólanum í Reykjavík. Leiðbein-
andi þeirra er Pétur Hermannsson
kennari. Hálkuvarinn er umhverf-
isvæn lausn á hálkuvanda bíleig-
enda, sem ætlað er að auka öryggi
í umferðinni og hafa góð áhrif á
umhverfið. Búnaðinum er ætlað að
auka veggrip bifreiðar þegar hún
hemlar en einnig að auðvelda bif-
reið að fara af stað í mikilli hálku.
Í öðru sæti voru Atli Sæmunds-
son og Auðunn Eyvindsson, nem-
endur í Laugalækjarskóla í
Reykjavík. Leiðbeinandi þeirra er
Ólafur Örn Pálmarsson kennari.
Malt- og appelsínukönnu þeirra er
ætlað að auðvelda landsmönnum
að blanda þjóðardrykk Íslendinga,
malt og appelsín. Kannan hefur
þann eiginleika að notandinn get-
ur stillt styrkleika hvors drykkjar
eftir smekk.
Samstarfsaðilar um Unga vís-
indamenn á Íslandi eru Háskóli Ís-
lands, Marel, Menningarsjóður
Glitnis, Flugfélag Íslands og
menntamálaráðuneytið.
Hálkuvarinn sigraði í keppni
við malt- og appelsínukönnu
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
NIÐURSTÖÐUR liggja fyrir í Blað-
berakapphlaupi Morgunblaðsins í
mars. Að þessu sinni varð Arnar
Birkir Hálfdánsson hlutskarpastur
og hlaut hann ipod sem viðurkenn-
ingu fyrir framúrskarandi blað-
burð í mars. Arnar Birkir ber út í
Brúnalandi og Búlandi. Á myndinni
eru Arnar Birkir og Snjólaug
Hrönn Gunnarsdóttir frá dreifing-
ardeild Morgunblaðsins.
Blaðbera-
kapphlaup
Morgun-
blaðsins
STÚDENTARÁÐ hefur opnað heimasíðuna loford.is þar sem stefnuskrá
stúdentaráðs er borin saman við stefnuskrár þeirra stjórmálaflokka sem
bjóða fram til Alþingis. Stúdentaráð kynnti á dögunum stefnuskrá sína fyr-
ir kosningarnar og skoraði um leið á stjórnmálaflokkana að taka upp
stefnumálin og gera menntamál að kosningamáli. Í kjölfarið hafa allir
flokkar tekið undir markmið stúdentaráðs og stefnumál ráðsins að ein-
hverju leyti, segir í fréttatilkynningu.
„Á heimasíðunni getur fólk séð svart á hvítu hvaða stefnumálum flokk-
arnir eru sammála og hvaða flokkar leggja mesta áherslu á menntamál.
Stúdentaráð hvetur fólk til þess að kynna sér heimasíðuna því menntamál
eru með mikilvægustu málefnunum sem kosið er um í vor.“
Stefnuskrár bornar saman
Morgunblaðið/Kristinn
ORKUVEITA Reykjavíkur fékk á
dögunum afhenta fjóra nýja metan-
gasbíla og hefur þá keypt fimm
gasbíla frá áramótum. Nýju bílarn-
ir eru frá Heklu af gerðinni Volks-
wagen Caddy og eru bæði útfærðir
sem sendibílar og fólksbílar. Þá
hefur Orkuveitan auglýst útboð á
10 til 15 metangasbílum til viðbótar
og tveimur sk. tvinnbílum.
Metangasbílar
ÁSTRÁÐUR, forvarnarstarf
læknanema við Háskóla Íslands,
hlaut síðasta vetrardag íslensku
forvarnarverðlaunin árið 2007. Þau
eru veitt af forvarnarhúsi Sjóvár.
Verðlaunin er veitt Ástráði þar sem
félagið þykir hafa unnið mikilvægt
og vandað sjálfboðastarf til að efla
kynheilbrigði ungs fólks og er öðr-
um háskólanemum góð fyrirmynd
og hvatning. Ástráður heldur úti
fræðslu um kynlíf, forvarnir og
kynheilbrigði, meðal annars fyrir
nemendur í fyrstu árgöngum fram-
haldskóla. Ástráður rekur heima-
síðuna www.astradur.is, og svar-
þjónustu á netfanginu leyndo@ast-
radur.is. Starfsemi Ástráðs er að
mestu rekin í sjálfboðastarfi en hef-
ur einnig fengið styrki frá ríkinu.
Læknadeild HÍ hefur styrkt starf-
semina með ýmsum hætti, m.a. með
aðstöðu og kennslu.
Ástráður
„ÉG TÓK upp þráðinn fyrir alvöru
þegar ég datt niður af pöllum í
minni vinnu,“ segir byggingaverk-
takinn Halldór Bergmann Þor-
valdsson um aðdraganda þess, að
hann fór að kenna Müllersæfingar
á bökkum Vesturbæjarlaugar 20.
apríl 1982. Í gær voru því 25 ár lið-
in frá því hinar víðfrægu æfingar
hófust og af því tilefni mætti fjöl-
menni í heiðurssamsæti í anddyri
laugarinnar, þar sem honum var
veittur áritaður skjöldur.
Halldór segist hafa numið Müll-
erslistina af Stefáni í Brautarholti.
„Eftir slysið var ég frá vinnu í
átta til níu vikur en fór á hverjum
morgni í pottana og æfði hjá honum
Stefáni í Brautarholti, þar sem
hann var með líkamsræktarsal. Ég
æfði þar á morgnana með Jóni Páli
Sigmarssyni og Hjalta Úrsus. Stef-
án fór þá að kenna mér æfingar og
upp úr því fór ég að gera þessar
Müllersæfingar fyrir alvöru. Svo
bætti ég bara við safnið hjá mér en
seinni árin hafa þær mýkst, enda er
þetta svo breiður hópur hjá mér.“
Halldór segir yfirleitt á milli 18
til 38 þátttakendur í æfingunum á
morgnana og hafa ýmsir þjóð-
þekktir einstaklingar, á borð við
Vigdísi Finnbogadóttur, Ísólf Gylfa
Pálmason og Valgerði Sverris-
dóttur, tekið þátt í þeim í gegnum
tíðina. Hann segist ekki hafa misst
úr æfingu, nema þegar hann hafi
verið erlendis, og játar að hann hafi
aldrei sett fyrir sig að þurfa að aka
alla leið ofan úr Mosfellsbæ og vest-
ur eftir í rauðabítið öll þessi ár.
Fékk áritaðan skjöld
Kappinn var eins og fyrr segir
heiðraður fyrir framlag sitt til
sundmenningar vesturbæinga og
afhentu fulltrúar Íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur, ÍTR, hon-
um forláta skjöld í þakklætisskyni
fyrir æfingarnar.
Heiðraður fyrir Müllers-
æfingar í aldarfjórðung
Alltaf góð mæting hjá Halldóri Bergmann í vesturbænum
Í HNOTSKURN
»Müllersæfingarnar,teygjuþjálfun án tækja,
hefjast í lauginni kl. 7.29 virka
daga, Kári Kaaber er yfirdóm-
ari og fær gammel dansk að
launum á föstudögum.
»Halldór kennir 9–10 af-brigði, það fyrsta heitir
flata í stein, önnur horfðu til
himins, Jenníar-æfingin, Stef-
áns-æfingin, jafnvægið, arm-
réttur, magaæfingin, hipp-
opp-æfingin, glasaæfing, og
að lokum Svínavatnið og þá
sungið með teygjunum.
Morgunblaðið/G. Rúnar
Fögnuður Halldór Bergmann skar sneið fyrir Vigdísi Finnbogadóttur, meðlim í æfingahópnum „Vinum Dóra“.
VARMÁRSAMTÖKIN efna til íbúa-
þings þar sem kynntar verða tillögur
að nýrri leið til og frá Helgafells-
hverfi að Vesturlandsvegi í Mos-
fellsbæ. Yfirskrift þingsins, sem
haldið verður í Þrúðvangi í Álafoss-
kvos í dag, laugardaginn 21. apríl, kl.
14, er: Heildarsýn: Mosfellsbær –
Vesturlandsvegur.
Markmið þingsins er að ýta undir
opna umræðu milli íbúa bæjarfélags-
ins við embættismenn ríkis og bæjar
og frambjóðendur Suðvesturkjör-
dæmis um samgöngu- og skipulags-
mál í Mosfellsbæ, segir í fréttatil-
kyningu.
Í brennidepli fundarins er erindi
Ólafar Guðnýjar Valdimarsdóttur
arkitekts um skipulagsvinnu og aðild
almennings að gerð skipulagstil-
lagna. Í kjölfarið kynna Varmársam-
tökin tillögur að nýrri leið til og frá
Helgafellshverfi að Vesturlandsvegi
sem unnar hafa verið á þrívíðan
grunn undir handleiðslu umferðar-
sérfræðinga.
Eftir hlé verða pallborðsumræður
sem frambjóðendum og fulltrúum
stjórnmálaflokkanna í Suðvestur-
kjördæmi hefur verið boðið að taka
þátt í.
Ný leið kynnt á íbúa-
þingi Varmársamtaka