Morgunblaðið - 21.04.2007, Side 14
14 LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
%!& %!& "
# $
#$
'
'
%!& ! (&
" %
#$
#$
'
'
)* + ,
"%
"
#$
# $
'
'
-./
)0&
" "
# $
#$
'
'
%!& "12
%!& 34
" " # $
#$
'
'
! "
#$%&
'
'%
562 7 $
08 9 : 7 $
0 8 7 $
08 ; ;<-
0 9 : 7 $
( 9 : 7 $
-= 9 : 7 $
9 > 7 $
$ / : ?
@ :A
> 7 $
=> @ 7 $
! 7 $
!8 -7 7 $
#( - $>$ 7 $
B 7 $
())
$*
+ /C 7 $
-
9 : 7 $
D8 9 :
7 $
D88 9 : 7 $
E7 7 $
%!& 0(
.F 7 $
.F
7 $
7 $
,
?
$
#
-
. )/
( 9 7 $
: 7 $
0 1 2
%$ $
%$
%$
$%
$%
$
$
$%
$
#
:
.>
: 5G3$H2H
I4H$651$4II
1$H25$J61
335$3H4
JH2$GH6$145
1$J63$IH1$12J
151$6I2$55I
1$IH4$41I$1HH
2G$44G$4H6
1$G62$61I$466
1$HI5$262$IGJ
26$G31$5H1
23$626$444
1$421$462$16G
6I$53J$31H
G52$64G$I4H
32$2GJ
6I$144$444
#
#
151$212$661
531$144
I3H$H43
#
#
#
5"21
IG"24
3"I4
6G4"44
I"41
6H"J4
JH"64
J6"G4
55"64
14H4"44
53"24
I2"44
1I"34
J4"G4
1JI"44
54"24
J"JI
J6"I4
6"G4
16"J4
3"G4
5I"H4
2"24
1"I4
11"32
I"54
5"25
IH"44
3"I3
6H5"44
I"4J
6H"24
JH"G4
J6"H4
53"44
14H1"44
53"I4
I6"44
1I"24
J4"H4
1JG"44
54"64
J"JG
J6"H4
6"H4
1I"64
3"G5
5G"54
6"44
I"24
: K
0.$ L 07
- :
1
I1
3
6
J2
JJ
JI
22
1G
64
2J
JH
15
2I
12
22
J
2
#
#
I
1
J
#
#
#
)
$
J4$3$J44I
J4$3$J44I
J4$3$J44I
J4$3$J44I
J4$3$J44I
J4$3$J44I
J4$3$J44I
J4$3$J44I
J4$3$J44I
J4$3$J44I
J4$3$J44I
J4$3$J44I
J4$3$J44I
J4$3$J44I
J4$3$J44I
J4$3$J44I
J4$3$J44I
J4$3$J44I
1G$3$J44I
16$3$J44I
1G$3$J44I
J4$3$J44I
J4$3$J44I
J4$3$J44I
J$5$J44I
JH$5$J44I
JG$5$J44I
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
KAUPÞING banki í Færeyjum
hyggst greinilega ná til sín umtals-
verðum hluta af sparnaði Færeyinga
og hefur um leið snarbreytt innláns-
vaxtalandslaginu í eyjunum. Bank-
inn býður viðskiptavinum sínum nú
3%–4% innlánsvexti á óbundnum
reikningum og 4,25% á reikningum
sem bundnir eru til þriggja mánaða.
Þetta eru umtalsvert hærri vextir en
Færeyingum hefur til þessa boðist
hjá þarlendum innlánsstofnunum en
vextirnir hafa lengi verið afar lágir
og nær engir á óbundnum reikning-
um eða um 0,1%.
„Kollveltir rentuna“
Frá og með áramótum hefur
Kaupþing banki í Færeyjum starfað
sem viðskiptabanki en fram til þess
tíma hafði starfsemin að mestu ein-
skorðast við verðbréfastarfsemi sem
hófst árið 2000.
Í frétt í færeyska blaðinu Sosial-
urinn undir fyrirsögninni: „Kaup-
thing kollveltir rentuna“ er haft eftir
Peter S. Holm, forstjóra Kaupþings í
Færeyjum, að bankinn ætla sér að
umtalsverðan hlut á færeyska
bankamarkaðinum. „Innlánsvextir í
Færeyjum hafa lengi verið litlir eða
engir. Kaupþing býður nú einstak-
lingum og fyrirtækjum háa innláns-
vexti sem eru ekki langt frá mark-
aðsvöxtum – og þetta eru til muna
hærri vextir en menn eru vanir að fá
í Færeyjum,“ segir Holm.
Kaupþing í leiftur-
sókn í Færeyjum
Morgunblaðið/Ómar
Betri ávöxtun Kaupþing býður Færeyingum nú mun hærri vexti.
● LANDSTEINAR
Strengur (LS)
stóð á dögunum
fyrir ráðstefnu í
Portúgal fyrir full-
trúa þeirra fyr-
irtækja sem
mynda alþjóðlegt
net samstarfsaðila undir merkjum
LS Retail, sem er verslunarkerfi er
LS hefur þróað. Um er að ræða ár-
legan viðburð en í ár mættu fulltrú-
ar 53 samstarfsaðila, auk starfs-
manna frá LS og Microsoft sem
sóttu ráðstefnuna, alls um 130
manns. Megindagskrá ráðstefn-
unnar fór fram í höfuðstöðvum
Microsoft í Portúgal. Þar kom m.a.
fram í máli framkvæmdastjóra
verslunarlausna hjá Microsoft,
Sandana Kichenane, að LS Retail
og samstarfsaðilar hefðu í fyrra
bætt 160 nýjum viðskiptavinum í
hópinn og meira en tíu þúsund
verslunarkössum. Þessi fyrirtæki
stuðluðu á marktækan hátt að
framgangi Microsoft Dynamics á
þessu tiltekna sviði.
Rætt um verslunarkerfi
Landsteina Strengs
● ALLT að 92 starfsmenn Wynde-
ham Press Group, sem er í meiri-
hlutaeigu FL Group, munu missa
vinnuna ef fyrirhuguð lokun dótturfyr-
irtækjanna Westway og Blacketts í
Luton gengur eftir og er erfiðum
markaðsaðstæðum kennt um.
Verði Luton lokað er það nýjasta
aðgerðin í röð endurskipulagning-
arferlis sem hófst þegar Dagsbrún
keypti Wyndeham í mars en seldi
síðan til FL Group í desember. í Print-
week er haft eftir Paul Utting for-
stjóra Wyndeham, að uppsagnirnar
séu liður í endurskipulagningu sem
hófst áður en íslensku eigendurnir
komu til sögunnar og neitar hann því
að þeir eigi aðild að uppsögnunum.
Alls mun Wyndeham því hafa sagt
upp um 350 starfsmönnum á innan
við ári eða um fjórðungi starfsmanna
við prentframleiðsluna.
Áframhaldandi upp-
sagnir hjá Wyndeham
● ROBERT
Tchenguiz og fjöl-
skylda hafa fært
ríflega 5% hlut
sinn í Exista milli
félaga. Glenalla
Properties Ltd.,
sem skráð var á
Bresku jóm-
frúareyjunum,
færði til hlut að
andvirði um 17
milljarða króna til dótturfélags síns,
Castel, sem skráð er í Lúxemborg og
er í 100% eigu Glenalla Properties.
Glenalla er síðan í 95% eigu Investec
Trust Ltd. á Guernsey, fyrir hönd
Tchenguiz Family Trust.
Exista-hlutur færður
til Lúxemborgar
Robert
Tchenguiz
GREININGARDEILD Lands-
bankans hefur sent frá nýja af-
komuspá fyrir fyrsta ársfjórðung hjá
félögunum í kauphöllinni. Um er að
ræða afkomuspá fyrir 14 félög og
vogunarráðgjöf fyrir 17 félög. Býst
deildin við góðri afkomu hjá flestum
fyrirtækjunum á fyrstu mánuðum
ársins og að 365 og Eimskipafélagið
verði þau einu sem skili tapi.
Greining Landsbankans gerir ráð
fyrir umtalsverðri hagnaðaraukn-
ingu hjá flestum framleiðslu- og
þjónustufyrirtækjum á árinu 2007 og
á árinu 2008 er gert ráð fyrir hagnaði
af rekstri allra félaganna sem spáð
er fyrir.
Vænt ávöxtun þeirra félaga sem
Landsbankinn fylgist með er tæp-
lega 10% á næstu 12 mánuðum. Ger-
ir greiningardeildin ráð fyrir að
hækkanirnar verði jafn hraðar það
sem eftir lifir árs og verið hefur frá
áramótum. Mælt er með yfirvogun á
fimm félögum og eru það eingöngu
framleiðslufyrirtæki. Fyrirtækin
eiga það sameiginlegt að gert er ráð
fyrir talsverðum rekstrarbata hjá
þeim á næstu árum. Um er að ræða
Alfesca, Eimskipafélagið, Marel,
Mosaic Fashions og Teymi.
Mælt er með undirvogum í sex fé-
lögum; 365, Atorku, FL Group,
Glitni, Icelandic Group og TM.
Greining LÍ spáir
góðum uppgjörum
BERLINGSKE Officin gefur ekki
upp hvert heildartapið af útgáfu
Dato var þá átta mánuði sem blaðið
var gefið út en segir það þó nema
að minnsta kosti meira en einum
milljarði króna. Viðskiptablaðið
Børsen ætlar að tapið hafi numið á
bilinu 1,8 til 2,4 milljarða íslenskra
króna.
Gegn Nyhedsavisen
Forstjóri Berlingske Officin, Lasse
Bolander, dregur ekki dul á að
Berlingske hafi hleypt Dato af
stokkunum til þess að bregðast við
innrás Íslendinga á danska dag-
blaðamarkaðinn: „Greint hafði ver-
ið frá fyrirhugaðri útgáfu Neheds-
avisen í eigu Íslendinga og við
litum á það sem ógn við markaðinn
fyrir morgundagblöð, þar á meðal
við Berlingske Tidende. Sókn er
besta vörnin og þess vegna hófum
við útgáfuna á Dato,“ segir
Bolander í frétt á vef Berlingske
Tidende.
Þótt dönsku fríblöðunum hafi nú
fækkað úr þremur í tvö, þ.e. 24tim-
er og Nyhedsavisen, eða úr fimm í
fjögur ef Metroxpress og Urban
eru talin með, telja margir sér-
fræðingar að að minnsta kosti einu
þessara fríblaða sé ofaukið. „Það
að útgáfu Dato hefur verið hætt
gerir hinum fríblöðunum auðveld-
ara að halda stríðinu áfram. En
það er enn einu blaði ofaukið – það
er að hámarki rými fyrir tvö blöð
sem dreift er á fjölfarna staði og
eitt frídagblað sem dreift er heim
til fólks í borgum og stærri bæj-
um,“ segir Anker Brink Lund, pró-
fessor í fjölmiðlastjórnun við Við-
skiptaháskólann í Kaupmanna-
höfn.
Nyhedsavisen í erfiðri stöðu
Í leiðara Børsen segir að nú, þegar
Dato er hætt að koma út, sitji ís-
lensku fjárfestarnir eftir á mark-
aðinum með „nauðstadda“ afurð
sem sé Nyhedsavisen. „Það er að-
eins hægt að framlengja líf þess
með nýrri, stórri fjármagnsinn-
spýtingu, í síðasta lagi eftir sumar-
fríin. Líf blaðsins hangir á blá-
þræði,“ segir í leiðaranum. Bent er
á að Nyhedsavisen sé víðsfjarri
markmiðum sínum um fjölda les-
enda; blaðið sé að vísu með nokkuð
sterka stöðu utan Kaupmannahafn-
arsvæðisins en það sé þó einmitt
þar sem úrslit fríblaðastríðsins
muni ráðast. Engin greinileg
merki séu um að Nyhedsavisen sé
að takast að leysa dreifingarvanda-
mál sín þar en þau geti einmitt orð-
ið örlagavaldur í lífi Nyhedsavisen.
Tap Dato á þriðja milljarð
Leiðari Børsen seg-
ir líf Nyhedsavisen
hanga á bláþræði
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fleiri feig Sérfræðingar spá því að dönsku fríblöðunum eigi eftir að fækka.
arnorg@mbl.is
● Á FYRSTA degi viðskipta á nýju
sumri hækkaði úrvalsvísitala aðal-
lista í kauphöll OMX á Íslandi um
0,24% í gær og endaði í 7.850 stig-
um. Hlutabréfaviðskiptin námu 10,3
milljörðum króna. Mestu viðskiptin
voru sem fyrr í bönkunum, frá einum
og upp í 1,9 milljarða króna, mest
með bréf Landsbankans. Þá voru
viðskipti með Bakkavarar fyrir 1,2
milljarða króna. Mest hækkuðu bréf
Marels, eða um 3,68%, bréf Össurar
hækkuðu um 3,63% og bréf Mosaic
Fashions fóru upp um 2,35%. Mest
lækkuðu bréf FL Group, um 1%, og
bréf Exista um 0,99%.
Krónan styrktist í gær um 0,79%
og gengisvísitalan endaði í 118,65
stigum.
Sumarið byrjar vel
ÞRÍR bjórfram-
leiðendur í Hol-
landi; Heineken,
Grolsch og Bav-
aria, hafa verið
sektaðir um 274
milljónir evra,
jafnvirði um 24
milljarða króna,
fyrir verðsamráð
í Hollandi á árun-
um 1996 til 1999.
Heineken fær langhæstu sektina,
219 milljónir evra, fyrir að hafa leitt
samráðið. Ákvörðun framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins verður
áfrýjað, að því er talsmenn fyrir-
tækjanna hafa fullyrt í fjölmiðlum.
Eru þeir agndofa yfir sektarfjár-
hæðunum en talsmenn fram-
kvæmdastjórnar ESB segja verð-
samráðið hafa verið alvarlegt og
þaulskipulagt. Háum sektum sé ætl-
að að fæla önnur evrópsk fyrirtæki
frá því að stunda hringamyndun,
eins og bjórframleiðendurnir hafi
stundað. Mun þetta vera sjöunda
hæsta sekt sem ESB hefur ákveðið í
samráðsmálum.
Fjórða fyrirtækið, InBev frá Belg-
íu, var einnig til rannsóknar en það
slapp við allt að sjö milljarða króna
sekt fyrir aðstoð við að koma upp um
samráðið og veita framkvæmda-
stjórninni haldgóðar upplýsingar.
Var þetta gert á grundvelli sérstakra
reglna um uppljóstrara eða „hvísl-
ara“ (e. whistleblowers).
Sektað
um 24
milljarða
Bjórsamráð hjá
Heineken, Grolsch
og Bavaria
SÆNSKA ferðaskrifstofan Ticket
jók sölu á fyrsta ársfjórðungi þessa
árs um 48% og EBITDA-hagnað um
40% borið saman við fyrsta árs-
fjórðung 2006, sem þó var besti árs-
fjórðungur í 17 ára sögu félagsins,
að því er segir í fréttatilkynningu.
Þetta boðuðu Matthías Imsland,
stjórnarformaður Ticket Travel
Group, og Lennart Käll forstjóri á
aðalfundi félagsins í vikunni.
Ticket er að stórum hluta í eigu
Northern Travel Holding, sem er
félag í eigu Fons eignarhaldsfélags,
FL Group og fjárfestingarfélagsins
Sunds.
Salan jókst hjá
Ticket um 48%
♦♦♦
ÞETTA HELST ...