Morgunblaðið - 21.04.2007, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007 31
Nýjar rannsóknir sýna okk-ur að íslenskar konur fáfjórðungi lægri með-allaun en karlar og þegar
tekið hefur verið tillit
til þátta sem hafa áhrif
á laun eins og mennt-
un, starfsaldur, starfs-
stétt og starfsábyrgð,
þá stendur enn eftir
tæplega 16% launa-
munur sem ekki er
hægt að útskýra með
neinu öðru en kyn-
ferði. Þá segja þessar
kannanir okkur að
ekkert hefur miðað í
jafnlaunaátt s.l. 12 ár í
tíð núverandi rík-
isstjórnar. Það er
sannarlega kominn
tími til að skipta um forystu í stjórn-
arráðinu.
Ekkert lagast í tíð
ríkisstjórnarinnar
Aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar í
jafnlaunamálum var rækilega stað-
fest í rannsókn sem gerð var á veg-
um félagsmálaráðuneytisins. Hún
sýndi að óútskýrður launamunur
kynjanna væri tæp 16% og hefði
ekki breyst frá árinu 1994.
Launakönnun sem Capacent Gall-
up gerði á síðasta ári fyrir VR sýndi
svipaða niðurstöðu. Báðar rannsókn-
irnar hafa leiðrétt fyrir þáttum eins
og ábyrgð, starfsaldri, menntun o.fl.
Önnur rannsókn sýndi að launa-
munur kynja almennt er hér meiri
en í löndum ESB og Noregi. Þetta
er rannsókn Lilju Mósesdóttur pró-
fessors sem hún kynnti í liðinni viku.
Rannsóknin sem náði til 25 aðild-
arríkja ESB, Íslands og Noregs
leiddi í ljós að launamunur kynjanna
hérlendis var 28%. Meðaltal ESB-
ríkja var 15%. Rannsóknin var gerð
árið 2004 og er þar miðað við með-
allaun á greidda vinnustund. Á Ís-
landi var launamunur kynjanna
mestur.
Atvinnuþátttaka íslenskra kvenna
er meiri en kynsystra þeirra í sam-
bærilegum löndum. Þær hafa á und-
angengnum áratugum flykkst í
framhaldsskóla, öldungadeildir, há-
skóla og hvers kyns endurmenntun
til að styrkja stöðu sína á vinnu-
markaði. Samt miðar ekki betur en
þetta. Það er ekki víst
að allir geri sér grein
fyrir því að þetta eru
lögbrot. Það er ekki
heimilt að mismuna
fólki eftir kynferði.
Kynbundinn launa-
munur meiri meðal
láglaunastétta
Ein af niðurstöðum
Lilju Mósesdóttur er
sú að launamunur sé
meiri hjá láglauna-
stéttum en þeim sem
hafa meiri menntun og
hærri stöður. Þetta er
afleitt fyrir konur sem eru fleiri í
láglaunastörfum en karlar. Hennar
tilgáta er sú að þetta sé m.a. vegna
vanmats á hefðbundnum kvenna-
störfum, vanmats sem sé meira hér
en t.d. á Norðurlöndunum.
Launaleynd eykur
kynbundinn launamun
Rannsókn Guðbjargar Andreu
Jónsdóttur o.fl. hjá Capacent árið
2007 sýndi að í fyrirtækjum þar sem
ríkti launaleynd var kynbundinn
launamunur meiri en þar sem ekki
var launaleynd.
Samfylkingin hefur sett það sem
eitt áhersluatriða í komandi rík-
isstjórn að afnema launaleynd en í
því felst að öllum er frjálst að upp-
lýsa um laun sín og atvinnurek-
endum er ekki heimilt að semja við
fólk um að það afsali sér þeim rétti.
Á landsfundi okkar um síðustu
helgi fengum við þrjá af framsækn-
ari stjórnendum þessa lands, þau
Bjarna Ármannsson, Svöfu Grön-
feldt og Þórólf Árnason, til að ræða
um leiðir til að draga úr kynbundnu
launamisrétti og lýstu þau öll yfir
stuðningi við þessa aðferð. Eitt af
okkar fyrstu verkefnum verður að
leita eftir samstarfi við aðila vinnu-
markaðarins um þetta verkefni.
Reykjavíkurborg minnkaði kyn-
bundinn launamun um helming.
Þegar Reykjavíkurlistinn stjórn-
aði borginni gerðum við jafnrétti
kynjanna meðal borgarstarfsmanna
að einu af okkar lykilmálum. Ég
lagði metnað minn í það sem borg-
arstjóri að vera í forystu fyrir auknu
jafnrétti í borgarkerfinu. Þegar ég
hætti sem borgarstjóri árið 2003
voru jafn margar konur og karlar í
æðstu stjórnunarstöðum borg-
arinnar og óútskýrður launamunur
kynja hafði minnkað um helming.
Þetta sýnir að þar sem er vilji, þar
er vegur. Við erum ekki að glíma við
náttúrulögmál.
Næsta ríkisstjórn verði ríkis-
stjórn jafnréttis kynjanna
Samfylkingin lýsti á landsfund-
inum um síðustu helgi yfir skýrum
pólitískum vilja til að koma á fullu
jafnrétti milli karla og kvenna og er
reiðubúin að axla ábyrgð á árangri í
næstu ríkisstjórn. Til þess mun hún
samþætta jafnréttissjónarmið inn í
stefnumótun stjórnvalda á öllum
sviðum og fela forsætisráðuneytinu
ábyrgð á að fylgja henni eftir. Meðal
þess sem lögð verður áhersla á er að
ríkið gangi á undan með góðu for-
dæmi í baráttunni við kynbundinn
launamun með því að minnka hann
um helming hjá hinu opinbera á
næsta kjörtímabili. Markmiðið verð-
ur að útrýma honum að fullu. Enn-
fremur að markvisst verði unnið að
jöfnu hlutfalli kvenna og karla í hópi
forstöðumanna ráðuneyta og rík-
isstofnana sem og í nefndum og ráð-
um á vegum ríkisins. Fleiri tillögur
sem stuðla að jafnrétti kynjanna
voru samþykktar sem lesa má um á
heimasíðu okkar; www.samfylk-
ing.is
Það er hægt að tryggja
konum réttlát laun
Eftir Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur »Kynbundinn launa-munur er óréttlæti
sem við getum leiðrétt.
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Höfundur er formaður
Samfylkingarinnar.
fyrsti og eini kaþólikkinn sem setið hefur í
Hvíta húsinu fram til þessa. Stjórn-
málamenn af öðrum uppruna, litarhætti
eða trúarbrögðum hafa aldrei átt nokkurn
möguleika á að verða frambjóðendur til
forseta.
Frambjóðendur sem ekki passa
inn í staðalímyndina
Nú virðast ætla að verða merkileg kafla-
skipti sem verða athyglisverð. Allt í einu
er komið fram fólk sem passar ekki alveg
inn í staðalímynd forseta þessa voldugasta
ríkis heims, þ.e. hvítur karlmaður sem er
mótmælendatrúar.
Þar má fyrst nefna Barak Obama, öld-
ungadeildarþingmann demókrata frá Ill-
inois, sem á afrískan föður og hvíta móður.
Aldrei fyrr hefur blökkumaður náð jafn
langt á þessari braut og Obama. Hann er í
augnablikinu talinn eiga jafn mikla mögu-
leika á framboði og Hillary Clinton.
Hillary er fyrsta konan sem á mjög
sterka möguleika á að verða forseta-
frambjóðandi demókrata 2008. Fram að
þessu hefur engin kona náð svo langt. Hún
er nú öldungadeildarþingmaður frá New
York og mun engum vægja til að ná sett-
um markmiðum.
John McCain, öldungadeildarþingmað-
ur frá Arizona, sem um tíma virtist vera sá
maður sem repúblikanar myndu velja sem
frambjóðanda, er fyrsta væntanlega for-
setaefnið sem er yfir sjötugt, en kemur
samt til greina sem kandídat repúblikana.
Vegur McCains hefur að vísu dalað vegna
stuðnings hans við Íraksstríðið. Hann
verður 72 ára á kosningaárinu. Reagan var
73 ára þegar hann var endurkosinn forseti.
Mitt Romney, repúblikani og fyrrver-
andi ríkisstjóri í Massachusetts, er fyrsti
mormóninn sem hefur náð svo langt að
verða hugsanlega tilnefndur sem forseta-
efni. Hann er harður íhaldsmaður á
bandarískan mælikvarða og sonur fyrr-
verandi ríkisstjóra í Michigan sem hét
George Romney og lét sig líka dreyma um
Hvíta húsið. Mormónar hafa alla tíð átt á
brattann að sækja í þjóðarpólitíkinni þó að
þeir ráði lögum og lofum í Utah-ríki.
Rudolph W. Giuliani, fyrrverandi borg-
arstjóri repúblikana í New York, sem
flutti hér ræðu í afmæli Símans í fyrra, er
fyrsti kaþólikkinn af ítölsku bergi brotinn
sem kemur til greina sem forseta-
frambjóðandi. Hann þykir mjög líklegur
sigurvegari þessa dagana, hvað svo sem
tíminn leiðir í ljós. Það stendur í kjós-
endum að Giuliani er þríkvæntur og mjög
frjálslyndur í ýmsum viðkvæmum málum
eins og vígðri sambúð samkynhneigðra.
Bill Richardson, fyrrverandi sendiherra
hjá Sameinuðu þjóðunum og núverandi
ríkisstjóri demókrata í Nýju Mexíkó, er
fyrsti frambjóðandinn af spænskum suð-
ur-amerískum ættum. Hann er kaþólskur
og var í innsta hring ráðgjafa Bills Clint-
ons fyrrverandi forseta.
Ýmsir fleiri koma til greina en þeir eru
allir steyptir í gamla mótið, þ.e. hvítir mót-
mælendur. Það er vonlaust að segja til um
það nú hvaða einstaklingar verða valdir
sem forsetaefni flokkanna. Engu að síður
er ljóst að kaflaskipti munu eiga sér stað í
sögu þessa risavaxna fjölmenningarsam-
félags. Framboðsflóran hefur aldrei fyrr
verið litríkari. Það verður gaman að sjá
hvort hinn venjulegi kjósandi geti hugsað
sér að velja forseta í nóvember 2008 sem
ekki er hvítur karlmaður og mótmæl-
endatrúar.
Suður-amerískar rætur Bill Rich-
ardsson, ríkisstjóri Nýju-Mexíkó.
Kaþólikkinn Rudy Giuliani, fyrr-
verandi borgarstjóri New York.
Clinton, öld-
r demókrata.
Mormóninn Mitt Romney, fyrr-
verandi ríkisstjóri Massachusetts.
áttu, sem fer í
ki síst frambjóð-
anna hingað til
n var ekki mót-
fjallar um þá fjöl-
kjast eftir emb-
rseti Bandaríkjanna
eða blökkumaður?
Reuters
Yfir sjötugu John McCain, öldunga-
deildarþingmaður repúblikana.
Höfundur er með BA-próf í banda-
rískri sögu og stjórnmálafræði og
stjórnar KOM Almannatengslum ehf.
ð í
æða til
rðandi
rnd-
ekki
jun
og
ra og
ur um.
anlegri
annað
þess
kað.
ða til
m yfir
rand-
ka
til
m verið
ndun
þeirri
stopp
sem stjórnarandstaðan boðar –
stöðvar og tefur merkasta fram-
lag Íslendinga til umhverfismála
í nútímanum sem er nýting ís-
lenskrar sérþekkingar á end-
urnýtanlegum orkugjöfum og út-
flutningur þeirrar þekkingar.
Við megum hins vegar ekki
láta andstöðu gegn stóriðju
blinda sýn. Virkjun fallvatna og
jarðhita getur verið neikvæð frá
náttúruverndarsjónarmiðum en
nýting endurnýjanlegrar orku er
jákvæð frá loftslagssjón-
armiðum, hvort sem hún er til
innanlandsnota eða til fram-
leiðslu á alþjóðamarkaði. Okkur
ber skylda að leggja okkar lóð á
vogarskálarnar í samfélagi þjóð-
anna í þeim málum.
Aðrar helstu áherslur okkar
framsóknarmanna í nátt-
úruverndar– og auðlindamálum
eru þessar:
Stjórnarskrárbinda sameign
þjóðarinnar á náttúru-
auðlindum landsins.
Að Ísland uppfylli áfram al-
þjóðlegar skuldbindingar sín-
ar í loftslagsmálum.
Stofna auðlindasjóð. Greiðslur
fyrir afnot af auðlindum í
þjóðareigu renni úr honum til
uppbyggingar, nýsköpunar og
framfara í landinu öllu.
Halda áfram að byggja upp
þjóðgarða og fjölga friðlýstum
svæðum, sérstaklega á
miðhálendi landsins.
Að Landsvirkjun og dótt-
urfyrirtæki hennar verði
áfram í eigu ríkisins.
hljópst á brott
Höfundur er umhverfisráðherra.