Morgunblaðið - 21.04.2007, Síða 35

Morgunblaðið - 21.04.2007, Síða 35
fyrrverandi húsnæði bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli, og það- an gætu þeir ekið kvölds og morgna til náms í Reykjavík. Undir þessa hugmynd tók Jón Magnússon, fram- bjóðandi Frjálslynda flokksins. Satt best að segja veldur það mér nokkrum vonbrigðum og áhyggjum að Vinstri grænir og Frjálslyndi flokkurinn skuli ekki hafa meiri metnað fyrir hönd Félagsstofnunar stúdenta og stúdenta við Háskóla Ís- lands en raun ber vitni. Í raun er þetta skammarleg framkoma við stúdenta og stúdentaráð og mikil vanvirða við þá miklu uppbyggingu stúdentagarða sem átt hefur sér stað við Háskóla Íslands á undanförnum árum og áratugum. Framsóknarflokkurinn mun ekki taka þátt í slíkum hreppaflutningum á stúdentum við Háskóla Íslands. Á þess háttar vinstri gölnum hug- myndum verða aðrir að bera ábyrgð. Höfundur er alþingis- maður Framsóknarflokksins í Reykjavík. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007 35 MEGINUPPSLÁTTUR Morg- unblaðsins við upphaf landsfundar Sjálfstæðisflokksins hljóðaði svo: „Skerðingar á bótum lækki úr 40% í 35%“. Hér var verið að vísa til tillögu formanns flokksins um hags- bætur til handa eldri borgurum. Ennfremur kom fram að formað- urinn vildi beita sér fyrir að tryggja öll- um ellilífeyrisþegum lágmarkslíf- eyri frá lífeyrissjóði, t.d. 25 þús. krónur, og í þriðja lagi að fólk, 70 ára og eldra, geti aflað atvinnu- tekna án þess að það hefði áhrif á lífeyrisbætur viðkomandi. Þetta telur formaðurinn vera grundvall- arbreytingar og málsmetandi fólk innan flokksins hefur lýst þessar tillögur, sem allar voru sam- þykktar, merkustu tíðindin af landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Nú er frá því að segja að allt eru þetta vissulega hænufet í framfaraátt. En hænufet eru það og litlu verður Vöggur feginn ef þetta eru merkustu sporin sem stigin voru á þessum stóra og mikla fundi. Fjallið tók jóðsótt og fæddist lítil mús. Skal það nú útskýrt. Í fyrsta lagi man ég ekki betur en Alþingi Íslendinga hafi strax um síðustu áramót samþykkt að lækka skerðingar úr 40% í 38,35%. Lækkunin sem hér er verið að leggja til er því úr 38,35 prósent- um í 35%. Þegar þetta er svo reiknað út í peningum kemur í ljós að einhleypur ellilífeyrisþegi með kr. 50 þús. í tekjur frá lífeyrissjóði heldur eftir rétt rúmum eitt þús- und krónum, þegar tekið er tillit til skatta og bótaskerðinga. Þetta er nú öll kjarabótin! Hækkunin er auðvitað meiri hjá þeim sem hærri lífeyrissjóðsgreiðslur hafa og er þá enn og aftur verið að gera betur fyrir þá sem meira mega sín. Í öðru lagi er 25 þús. kr. trygg- ingin sýnd veiði en ekki gefin. Af þeim 25 þús. krónum sem ætlunin er að greiða þeim sem ekki hafa lífeyrisréttindi verður aftur að taka tillit til skatta og bótaskerð- inga og þá heldur lífeyrisþeginn eftir kr. 7.500 eða um 30% upp- hæðarinnar. Hér má lika benda á að með þessari breytingu geta efn- aðir fjármagnseigendur, sem hafa tekjur af sínu fjármagni, en ekki tekjur úr lífeyrissjóði, væntanlega gert tilkall til þessarar viðbót- argreiðslu. Og svo má spyrja: Til hvers að borga í lífeyrissjóð, ef þú færð þetta hvort eð er út úr kerfinu? Í þriðja lagi er sett fram sú til- laga að 70 ára og eldri geti aflað sér launatekna án þess að al- mannatryggingabætur skerðist. Þessi hugmynd er virðingarverð, að því leyti að hún hvetur til at- vinnuþátttöku, en hefur auðvitað þann annmarka að skilja aldurs- hópinn 67 ára til sjötugs útundan og felur þannig í sér mismunun og misrétti. Þessu fólki kæmi miklu betur að fá skattleysismörkin hækkuð, eins og öll sanngirni mælir með og allir sitja þá við sama borð. Skattleysismörk eru nú kr. 90 þús. en ættu að vera nær 140 þús. kr. ef miðað hefði verið við launavísitölu. Á landsfundi Samfylkingarinnar var sömuleiðis fjallað um hag eldri borgara. Þar voru staðfestar til- lögur og stefna flokksins í mál- efnum aldraðra, sem fela í sér 1) lækkun á sköttum lífeyrissjóðs- greiðslna úr 35,7% tekjuskatti nið- ur í 10%, 2) hækkun skattleys- ismarka, 3) hækkun frítekjumarks í kr. 100 þús. á mánuði, 4) afnám tekjutengingar við laun maka og svo í fimmta lagi að ráðist verði í stórátak varðandi hjúkrunarrými fyrir aldraða. Lesendur og kjósendur geta nú borið saman, hvor kosturinn er hagstæðari. Öllum er væntanlega ljóst að ofangreindum tillögum Samfylkingarinnar verður ekki hrint í framkvæmd nema í áföng- um, vegna þess að þær kosta sitt. En Samfylkingin vill setja málefni eldri borgara í forgang, í anda jafnaðar og réttlætis. Lækkun skattsins á lífeyrisgreiðslur, stig- hækkandi skattleysismörk og átakið í byggingu hjúkrunarrýma eru þar efst á blaði. Sérstök ástæða er til að vekja athygli á grein Péturs Blöndals alþm. í Mbl. 17 apríl sl. þar sem hann hafnar með öllu að skattur af lífeyristekjum verði lækkaður í 10%. Sjálfstæðisflokkurinn vill hins vegar og þvert á móti við- halda því félagslega órettlæti að sparifjáreigendur borgi ýmist 10% skatt eða 35,7% skatt eftir því hvers eðlis sparnaðurinn er. Þarf frekar vitnanna við? Sjálfstæðisflokkurinn hefur set- ið að völdum í sextán ár samfleytt. Nú á síðustu stundu fyrir kosn- ingar setja sjálfstæðismenn fram tillögur, sem þeir kalla grundvall- arbreytingar og merkustu tíðindin úr sínum röðum, en eru hvorki fugl né fiskur. Hænufet. Örvænt- ingarfull tilraun til að bæta fyrir vanrækslusyndirnar. Af því að þeir vita upp á sig skömmina. Þeir hafa skilið gamla fólkið eftir á köldum klaka. Aldraðir hafa orðið útundan í öllu góðærinu. Spilin hafa verið lögð á borðið. Nú er það ykkar að velja, kjós- endur góðir. Litlu verður Vöggur feginn Eftir Ellert B. Schram Höfundur er í 5. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið og verður alltaf stærsti stjórnmálaflokkur landsins vegna þess að í honum rúmast ólíkt fólk með ólíkar skoðanir á ólíkum málum. For- ystumenn flokks- ins hafa frá stofn- un hans haft ríkan skilning á þessu, stuðlað að öllum helstu framfaramálum Íslendinga og sameinað fólk úr öllum stétt- um og landshlutum undir merki flokksins. Með styrk sínum hefur flokkurinn haft mikil áhrif á mót- un hins íslenska þjóðfélags og stuðlað að velgengni og velferð allra landsmanna. Umhverfismál hafa verið í deiglunni síðustu misserin. Sam- fylkingin hefur sýnt í þeim mál- um eins og flestum öðrum ótrú- legt stefnuleysi. Vinstri grænir hafa náð betri fótfestu á kostnað þeirra m.a. með því að skipta um skoðanir eftir veðri og vindi. Hráskinnaleikurinn er alger. Svo er komin ný Íslandshreyfing sem er líka græn, blá og rauð. Fjölmargir einstaklingar sem hafa kosið Sjálfstæðisflokkinn til margra ára eru nú allt í einu orðnir vinstri sinnaðir eða græn- ir og telja það betra til þess að hafa áhrif á landsmálin. Fólk þarf ekki endilega að vera grænt, rautt, blátt eða vinstri sinnað til þess að þykja vænt um landið sitt, vera á móti eyðilegg- ingu ósnortinnar náttúru, mal- biki yfir hálendið eða hval- veiðum. Það er miklu áhrifameira að vera gamla flokknum sínum trúr, styrkja innviði hans og vinna með honum að hagsmunamálum sínum og landsins alls í stað þess að stofna nýjar hreyfingar sem koma litlu í verk, eru á móti flestu og gera atkvæði fjölda landsmanna vægislaus. Benjamin Disraeli sem var vinsæll forsætisráherra Breta viðhafði þau fleygu orð að það væri betra að láta grundvall- arreglurnar lönd og leið og standa með flokknum sínum. Eftir þessum heilræðum hafa margir farið. Alls ekki allir. Það virðist vera tíska í íslenskum stjórnmálum að halda að það sé eitthvað betra að vinna að áhuga- og stefnumálum sínum með því að hlaupa á milli flokka eða stofna nýja í stað þess að gera það í gegnum þann stjórn- málaflokk sem fólk hefur verið trútt áratugum saman. Þessar tiltölulega smáu hreyfingar, fylk- ingar eða flokkar koma fáu í verk vegna smæðar og máttleysis. Sagan er þessum flokkabrotum ekki hagstæð og flest þeirra hafa dagað uppi eftir stuttan líftíma. Þeir sjálfstæðismenn sem hugsa sér að kjósa aðra flokka í næstu alþingiskosningum ættu að líta um öxl og velta þeim stór- kostlega árangri fyrir sér sem sjálfstæðisflokkurinn sameinaður hefur áorkað frá upphafi vega. Með samstilltu átaki hefur flokk- urinn þann kraft sem þarf til þess að standa vörð um velferð- armál Íslendinga og leiða þjóðina til enn frekari dáða. Sjálfstæð- isflokkurinn á hæfa og velviljaða forystu sem hefur alla burði til þess að vinna landinu og lands- mönnum öllum vel á komandi ár- um. Að vera flokknum sínum trúr Jón Kjartansson telur áhrifameira að vera flokknum sínum trúr Höfundur er bóndi og með- limur í Sjálfstæðisflokknum. Fréttir á SMS Handbók með ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir! Fæst á ESSO, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is Sumarhús í Skorradal - Til sýnis um helgina - Húsin eru til sýnis í dag laugardag og á morgun sunnudag. Nánari uppl. gefur Runólfur í síma 892 7798 Skrifstofur okkar í Reykjavík og Hafnarfirði eru opnar alla virka daga frá kl. 9-17 Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr., lögg. fast.- og skipasali Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali Sími: 533 6050 www.hofdi.is Fallegt og vinalegt 61 fm. sumar- hús á einni hæð í landi Dagverðar- ness í Skorradal. Landið er gróið og skógi vaxið með útsýni yfir Skorradalsvatn og víðar. Bústað- urinn skiptist m.a. í stofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Gólf eru flísalögð og með hitalögn. Stór verönd með geysifögru útsýni. Verð 17,9 millj. Um er að ræða 59,5 fm. sumarhús á einni hæð í Landi Dagverðarness í Skorradal. Bústaðurinn sk: m.a. í 3 svefnh. eldhús, WC og rúmgóða stofu. Í húsinu er rafmagn og vatn sem hitað er upp m/hitatúbu. Góðar innr. eru í eldhúsi, forstofu og baðh. Verönd og sólp. eru framanvið húsið með geysi fögru útsýni yfir Skorradalsvatn og víðar. Verð 18,9 millj. Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali. Sími 533 4800 286 fm einbýli sem skiptist í hæð, ris og kjallara á frábærum stað mið- svæðis í Reykjavík. Bílskúr þar af 23,2 fm. Eignin sk: í forstofu, borðstofu, tvö herbergi, eldhús, borðstofa, stofu og geymslu á hæðinni. Í kjallara er þvottahús, hol, geymsla, baðherbergi auk sér 2ja herbergja íbúðar með sérinngangi. Einnig er sér 2ja herbergja íbúð í risi. V. 75,0 m Opið hús í dag milli kl. 13.00 og 14.00 Unnarstígur 2 – Opið hús 300 fm glæsilegt enbýlishús við Unnarstíg á mjög góðum stað í miðbæ Reykjavíkur, þar af 18,4 fm bílskúr. Húsið er hæð, kjallari og ris. Möguleiki á að hafa sér íbúð í kjallara. Ýmiskonar eignaskipta koma til greina. Nánari upplýsingar á skrifstofu Miðborgar. V 82,0 m Opið hús í dag milli kl. 12.00 og 13.00 Unnarstígur 8 – Opið hús

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.