Morgunblaðið - 21.04.2007, Side 51

Morgunblaðið - 21.04.2007, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2007 51 Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is GYÐJAN í vélinni er heiti á leik- sýningu sem frumsýnd verður í varðskipinu Óðni þann 10. maí. Það eru þær Guðlaug Elísabet Ólafs- dóttir, Halla Margrét Jóhannes- dóttir, Katrín Þorkelsdóttir, Mar- grét Vilhjálmsdóttir og Sigrún Sól Ólafsdóttir sem fara með aðal- hlutverkin í sýningunni sem er hluti af listahátíð í Reykjavík. „Þetta er mjög sérstök sýning,“ segir Árni Grétar Jóhannsson, kynningarstjóri sýningarinnar. „Þessar leikkonur sem saman skipa Vatnadansmeyjafélagið Hrafnhildi voru bekkjarsystur í Leiklistarskól- anum og hafa haldið hópinn síðan þá með alls konar uppákomum og þess háttar. Núna ákváðu þær að leiða saman hesta sína í sýningu sem er rosalegur bræðingur því þarna verður steypt saman leiklist, myndlist, tónlist og hinu og þessu,“ segir Árni Grétar, en Vatnadans- meyjafélagið Hrafnhildur var stofn- að árið 1991. Káetur og klósett Í sýningunni er brugðið upp táknmyndum af konunni gegnum árþúsundir og saga hennar og sam- hengi viðrað á nýstárlegan hátt. Saumuð verða hjartasár, keppir fylltir og málshættir bróderaðir. Hugurinn baðaður í hlaupi, hun- angi, royal-búðingi og majónesi, eins og það er orðað í tilkynningu. Að sögn Árna Grétars er tekið á móti áhorfendum á bryggjunni og þeir síðan leiddir um skipið þar sem meðal annars er gengið um ganga og geymslur, káetur og kló- sett. Fjöldi listamanna kemur að sýn- ingunni, svo sem Davíð Þór Jóns- son tónlistarmaður sem sér um tón- listina og Halla Gunnarsdóttir myndlistarmaður sem verður með innsetningar. Árni Grétar segir að fáir miðar séu í boði á sýninguna sem er styrkt af menntamálaráðuneytinu og Reykjavíkurborg, en Landhelg- isgæslan er sérlegur samstarfsaðili verkefnisins. Vatnadansmeyjar í varðskipi Allsérstök leik- sýning sett upp á Listahátíð Morgunblaðið/ÞÖK Gyðjan Í sýningunni er brugðið upp táknmyndum af konunni gegnum árþúsundir. www.listahatid.is TÓNLISTIN skipar stóran sess í Gretti eins og jafnan vill vera með söng- leiki. Hallur Ingólfsson er tónlistarstjóri sýningarinnar og hefur hann sér til fulltingis þrjá hljóðfæraleikara. Hallur leikur sjálfur á trommur en auk hans skipa hljómsveitina þeir Þorbjörn Sigurðsson (píanó og gítar), Jón Atli Helgason (bassi) og Elís Pétursson (gítar). Hallur er enginn nýgræðingur þegar kemur að tónlistarflutningi og -smíðum fyrir leikhús. Hann segir það þó talsvert ólíkt að semja sjálfur tón- list og að flytja áður samið efni. „Ég byrja bara á að hlusta vel á tónlistina og finna hvað er gott í henni og leyfa því að njóta sín,“ segir Hallur. Tónlistin úr Gretti árið 1980 kom út á vínylplötu á sínum tíma og varð feykivinsæl. Ólafur Haukur Símonarson, einn höfunda verksins, upplýsti að til stæði að endurútgefa þau lög á geisladisk. Auk þess kemur tónlistin í verkinu nú að sjálfsögðu einnig út á plötu. „Breytingarnar urðu einhverjar á tónlistinni í okkar meðförum, það var óhjákvæmilegt og það stóð aldrei til að við spiluðum tónlistina eins og hún var. En við breyttum alls ekki bara til að breyta,“ segir Hallur og bætir við að hljómsveitin hafi ekki tekið meðvitaða ákvörðun um að færa tónlistina í einhvern ákveðinn búning. „Hún er þó rokkaðri, talsvert kraftmeiri og dramatískari en áður.“ Morgunblaðið/G.Rúnar Tónlistarstjórinn Hallur Ingólfsson sér um tónlistina í Gretti. Meira rokk og dramatík SÖNGKONAN Madonna hefur hitt hina þriggja ára Grace sem hún ætl- ar að ættleiða frá Malavíu en hún er stödd þar núna ásamt ættleiddum syni sínum David og dótturinni Lo- urdes. Tríóið heimsótti mun- aðarleysingjaheimilið þar sem Grace dvelur í vikunni. Þrátt fyrir að Ma- donna hafi neitað því við fjölmiðla að hún sé að ættleiða aftur, (hún segist vera í Malaví vegna hjálparstarfs), þá hefur hún sagt við vini sína að hún sé að leita að systur fyrir David sem hún ættleiddi á seinasta ári einnig frá Malaví. Stórstjarnan féll fyrir Grace þeg- ar hún sá hana á myndbandi frá munaðarleysingjaheimilinu sem hún styrkir fjárhagslega. Grace á enga ættingja og hefur búið á heimilinu frá þriggja mánaða aldri. En þrátt fyrir að Madonna hafi hitt litlu stúlkuna er hún ekki búin að taka endanlega ákvörðun um hvort hún ættleiðir hana eða ekki. Enda hefur hún líka hitt tíu önnur börn í Malavíu sem koma til greina til ættleiðingar. Madonna enn í Malaví Reuters Tríó Madonna, David og Lourdes.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.