Morgunblaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 63
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
1. SÆTI Í NORÐAUSTURKJÖRDÆMI
KJÓSUM NÝJA
RÍKISSTJÓRN
ALLT ANNAÐ LÍF! – með vinstri grænum
Stuðlagátt 22. ágúst 2006 Stuðlagátt í Hálslóni 15. október 2006 Stuðlagátt í Hálslóni sumarið 2007
Arinbjörn Þorbjörnsson
Ekkert stopp
SPÆNSKA leik-
konan Penelope
Cruz er nú sögð
eiga í nánu sam-
bandi við banda-
ríska rokkarann
Lenny Kravitz.
Cruz varð 33 ára
þann 28. apríl síð-
astliðinn og hélt
upp á daginn
ásamt Kravitz á
skemmtistað í
New York, og síð-
ar á heimili rokkarans þar í borg.
„Penelope á að vera farin til Evrópu
til þess að sitja fyrir á myndum fyrir
Mango fyrirtækið, en hún er alltaf
að fresta því til þess að geta farið
með Lenny á tónleikaferðalag. Þau
hafa verið vinir lengi,“ sagði heimild-
armaður í samtali við dagblaðið New
York Post. „Ég tjái mig ekki um
einkalíf skjólstæðinga minna,“ sagði
blaðafulltrúi Cruz þegar hann var
spurður um sambandið.
Cruz hefur áður átt í ástarsam-
bandi við leikarana Orlando Bloom
og Josh Hartnett. Hartnett hætti
með leikkonunni Scarlett Johansson
á síðasta ári og hefur nú ítrekað sést
með dönsku fyrirsætuna Helenu
Christensen upp á arminn.
Kravitz hefur ekki verið við eina
fjölina felldur í kvennamálum, en
frægt er ástarsamband hans við
leikkonuna Nicole Kidman. Eins og
margir vita eflaust er Kidman fyrr-
verandi eiginkona leikarans Tom
Cruise, en Cruise var einmitt unn-
usti Penelope Cruz um tíma.
Reuters
Falleg Leikkonan Penelope Cruz.
Eru Cruz
og Kravitz
saman?
Lenny Kravitz
PAMELA And-
erson vill ættleiða
barn, en hin 39
ára gamla leik-
kona heimsótti
nýverið mun-
aðarleysingjahæli
í Rússlandi. Hún
á fyrir tvö börn
með rokkaranum
Tommy Lee, en
er nú að hugsa um ættleiðingu. „Það
væri frábært að gera eitt barn til
viðbótar hamingjusamt,“ sagði hún í
samtali við breska dagblaðið OK!
„Mér fannst mjög gaman að heim-
sækja munaðarleysingjahæli rétt
fyrir utan Moskvu. Það opnaði augu
mín, það var vissulega sorglegt en
það var einnig sérstakt að sjá hversu
glöð börnin voru, þrátt fyrir að þau
ættu ekki neitt, ekki einu sinni for-
eldra,“ sagði leikkonan.
Pamela vill
ættleiða
Pamela Anderson
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111