Morgunblaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR UM sjötíu borgarfulltrúar, embætt- ismenn og skipuleggjendur grasrót- arstarfs frá um tuttugu evrópskum borgum sóttu í gær vinnufund í Ist- anbúl í Tyrklandi um hvernig evr- ópskar borgir geti lært af forvarn- arstarfi sem rekið hefur verið undanfarin ár í Reykjavíkurborg. Vinnufundurinn er liður í forvarn- arverkefninu Youth in Europe sem rekið er frá Reykjavík. Youth in Europe-verkefnið bygg- ist á rannsóknum fræðimanna við Háskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands, forseti Íslands er verndari þess og Actavis styrktaraðili þess. Fimmtán borgir í Evrópu taka nú þátt í verkefninu en búist er við því að fleiri borgir bætist við. Á fundinum í Istanbúl kynntu þau Inga Dóra Sigfúsdóttir prófessor við Háskólann í Reykjavík og Álfgeir Kristjánsson vísindamaður, fyrstu niðurstöður fyrsta hluta verkefn- isins. Könnuð voru mynstur varð- andi áhættuhegðun ungmenna sem gera kleift að greina hversu líkleg þau eru til að hefja neyslu fíkniefna. Íslenska módelið svokallaða byggist á því að mestur árangur náist í for- vörnum með því að efla ungmennin, styðja við bakið á skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi og stuðla að aukn- um samverustundum foreldra og barna. Hafa niðurstöður íslensku fræðimannanna og reynsla af for- varnarverkefnum í Reykjavíkurborg vakið mikla athygli á meðal sérfræð- inga í Evrópu og Bandaríkjunum. Af hálfu Reykjavíkurborgar stýrðu fundinum þau Jórunn Frí- mannsdóttir formaður Velferð- arráðs og Dagur B. Eggertsson sem er formaður stýrihóps Youth in Eu- rope. Dr. John Alligrante prófessor í lýðheilsu við Columbia-háskólann í New York og dr. Katheleen M. Roe prófessor frá San José háskólanum í Kaliforníu stýrðu umræðum og út- skýrðu mikilvægi þess fyrir aðrar borgir að leita í smiðju Íslendinga sem hefðu náð markverðum árangri við að draga úr fíkniefnaneyslu ung- menna með jákvæðum forvörnum. Þá ávarpaði Melih Gursoy fram- kvæmdastjóri Actavis í Tyrklandi fundinn en Actavis hefur lagt ís- lensku forvarnarverkefnunum lið á síðustu árum, m.a. með því að standa að sérstökum forvarnardegi í öllum grunnskólum á Íslandi síðastliðið haust undir kjörorðinu Taktu þátt! Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sagði í ávarpi sem hann sendi fundinum að fíkniefnavandinn væri slíkur að engin ein borg gæti tekist á við hann ein síns liðs. Allir verði að vinna saman og deila reynsl- unni af því sem vel hafi tekist með öðrum. Reynslan frá Íslandi gefi til- efni til að reyna hliðstæðar aðferðir í öðrum löndum og þess vegna leggi hann svo mikla áherslu á að styðja Youth in Europe verkefnið. Borgarstjórinn í Reykjavík, Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, hefur boð- að til næsta fundar í Reykjavík í haust. Evrópskar borgir sækja í reynslu Reykjavíkur af forvörnum Læra af íslenskum sérfræðingum Ráðstefna Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík, er meðal þeirra sem taka þátt í ráðstefnunni í Istanbúl í Tyrklandi. Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is FULLTRÚAR framboðanna sex til alþingiskosninganna á laugardag ræddu í vikunni með starfsmönnum Brimborgar um til hvaða leiða mætti grípa til að stuðla að öruggari og um- hverfisvænni bílaumferð. Bar þar hæst forgangsröðun í útgjöldum til vegamála og hvernig megi fjölga vistvænum bifreiðum á götunum. Fulltrúar flokkanna voru Ómar Ragnarsson, Íslandshreyfingunni, Árni Þór Sigurðsson, Vinstri græn- um, Birgir Ármannsson, Sjálfstæð- isflokki, Össur Skarphéðinsson, Samfylkingunni, Jónína Bjartmarz, Framsóknarflokki, og Magnús Þór Hafsteinsson, Frjálslynda flokknum. Í fyrstu umferð umræðna um spurningar sem lagðar voru fyrir frambjóðendurna var leitað eftir af- stöðu þeirra til gerðar Sundabrautar og vegaframkvæmda almennt. Allir voru sammála um mikilvægi þess að ráðast í gerð Sundabrautar, enginn útilokaði einkaframkvæmd. Lýstu Ómar, Jónína og Össur sig andvíg veggjöldum, Magnús vildi tvöfalda veginn frá Hvalfjarðar- göngum og inn Kollafjörð, Birgir skoða kosti einkaframkvæmdar og Árni Þór hraða framkvæmdunum. Almennt voru frambjóðendurnir hlynntir jarðgangagerð um landið. Magnús lýsti sig hlynntan jarð- gangagerð, vel væri gerlegt að ljúka fyrirhuguðum framkvæmdum víðs- vegar um land á næstu tíu árum með fjögurra milljarða árlegu framlagi. Jónína lagði hins vegar áherslu á að ljúka tvöföldun Reykjanesbraut- ar, reisa mislæg gatnamót við mót Miklubrautar og Kringlumýrar- brautar. Hún var einnig hlynnt gerð Sundabrautar, lykilatriðið í sam- göngumálum væri að stytta vega- lengdir milli byggðakjarna. Össur tók undir mikilvægi þess að tvöfalda Suðurlandsveg og reisa Sundabrautina, ásamt því sem hann vildi nota umferðargöng mun meira til að leysa umferðahnúta. Birgir vildi minna á að meira fé væri nú varið til samgöngumála en nokkru sinni og að samgönguráð- herra hefði lagt fram umferðarör- yggisáætlun sem fæli í sér stórátak. Öll vilja hagræna hvata Ómar kvaðst hlynntur því að grafa göng til að stytta vegalengdir, þau væru æskilegri en þverun fjarða. Inntir eftir afstöðu sinni til gerðar Vaðlaheiðarganga sögðust fram- bjóðendurnir allir jákvæðir gagn- vart henni, þótt afstaðan til hvort og þá hvernig bæri að útfæra einka- framkvæmd væri misjöfn. Frambjóðendurnir vildu einnig stuðla að umhverfisvænni bílaflota. Árni Þór vildi draga úr neikvæð- um áhrifum bílaumferðar, auka al- menningssamgöngur og greiða fyrir hjólreiðum og gangandi. Hjólreiða- stígar ættu að fara á vegaáætlun líkt og reiðvegir. Þá vildi hann að Öskju- hlíðargöng yrðu grafin í Reykjavík. Einnig vildi hann bæta aðgengi að vistvænum bifreiðum og skoða norsku leiðina, þar sem gjaldatakan hefur verið sniðin að því hversu los- un gróðurhúsalofttegunda er mikil. Kvaðst Ómar vilja græn gjöld á bíla, þeir borgi sem mengi, auk þess sem hann vildi lægri gjöld á dísilbíla. Birgir vildi stilla gjaldtöku á bíla í hóf og skoða jafnræðissjónarmið út frá mismunandi gerðum vistvænna bifreiða. Jónína sagðist vilja skoða norsku leiðina, hún væri almennt hlynnt hagrænum hvötum. Össur vildi fella niður öll gjöld á umhverf- isvænstu bifreiðarnar og Magnús skoða reynslu Norðmanna af norsku leiðinni. Allir vilja Sundabraut og vistvænni bíla á göturnar Ljósmynd/Ragnar Th Kappræður Það var komið inn á mörg mál á fundinum í Brimborg. FJÓRÐA ráðstefna samtaka sveit- arfélaga á Norðurlöndum um skóla- mál, Brännpunkt Norden, hefst á Hótel Nordica í dag, fimmtudag, 10. maí og stendur yfir í tvo daga. Yf- irskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er Þekking - Kraftur og Sköp- un. Alls eru um 250 manns, víðs veg- ar af Norðurlöndum, skráðir til þátttöku, sveitarstjórnarmenn og starfsfólk sveitarfélaga við stjórnun skólamála. Þátttaka fór langt fram úr björtustu vonum. Undirbúningur ráðstefnunnar hefur staðið frá hausti 2005 í forsvari Sambands ís- lenskra sveitarfélaga. Ráðstefnan verður sú síðasta sem haldin verður með þessu sniði. Meginviðfangsefni ráðstefnunnar er tvíþætt. Annars vegar verður lögð áhersla á mikilvægi frum- kvöðlahugsunar og nýsköpunar í skólaumhverfinu og virkt samstarf skóla, sveitarstjórnar og atvinnulífs í því skyni. Hins vegar verður sjón- um beint að framgangsþáttum í skólastarfi og hagnýtingu þeirra í skólaþróun. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, setur ráðstefnuna og forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, mun flytja ávarp. Fundarstjóri er Gunnar Ein- arsson, bæjarstjóri í Garðabæ. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga, www.samband.is. Norræn skólamálaráðstefna Útimálning Viðarvörn Lakkmálning Þakmálning Gólfmálning Gluggamálning Innimálning Gljástig 3, 7, 20 Verð frá kr. 298 pr.ltr. Gæða málning á frábæru verði ÍSLANDS MÁLNING Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli. Afsláttur af málningarvörum 20% Sætúni 4 Sími 517 1500 Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður.Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður Sætúni 4, S. 517 1500 - Skútuvogi 13, S. 517 101 við hliðina á Bónus MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Landssambandi lögreglumanna: „Í kjölfar umfjöllunar sem hefur átt sér stað í þessari viku um auglýs- ingu frá dómsmálaráðuneytinu og lýtur að stöðu aðstoðarríkislögreglu- stjóra vill Landssamband lögreglu- manna koma eftirfarandi á framfæri. Eins og kunnugt er hafa miklar breytingar átt sér stað í uppbygg- ingu lögreglunnar á Íslandi á síðustu árum og til þess að það hafi gengið eftir hafa dómsmálaráðuneytið og Landssamband lögreglumanna þurft að eiga mikið samstarf og verður ekki annað sagt en að það samstarf hafi verið farsælt og samskipti góð. Lögreglumönnum, sem og öðrum sem fylgst hafa með, má vera það ljóst að núverandi dómsmálaráð- herra, Björn Bjarnason, hefur sýnt mikinn áhuga á starfsumhverfi lög- reglumanna og lagt sig allan fram við að styðja lögreglumenn til dáða. Þessu til stuðnings viljum við benda á að á sl. ári var Björn sæmdur gull- merki LL, fyrstur manna utan lög- reglu, og nú nýverið var hann sæmd- ur gullmerki Félags yfirlögreglu- þjóna fyrir störf sín í þágu lögreglu- manna. Við breytingar á lögreglulögum, sem nýverið tóku gildi, lagði LL mik- inn metnað í að þær tækjust sem best og möguleikar lögreglumanna á stjórnunarstöðum innan lögreglunn- ar yrðu sem mestir. Með mikilli eft- irfylgni og einurð varð niðurstaðan sú að lögreglumenn hafa samkvæmt lögreglulögum möguleika á að gegna öllum stöðum innan lögreglunnar að stöðum lögreglustjóra og ríkislög- reglustjóra undanskildum og er það m.a. forsenda þess að LL hefur tjáð sig um mál þetta. Landssamband lögreglumanna harmar þá umfjöllun sem átt hefur sér stað er lýtur að fjölskyldu- tengslum þess aðila sem sótti um áð- urnefnda stöðu inn til dómsmála- ráðuneytisins og telur hana ekki sanngjarna. Lögreglumenn þekkja vel til starfa Páls Winkels og að góðu einu og viljum við koma því á framfæri að hann nýtur fulls stuðnings LL sem og lögreglumanna og teljum við hann mjög vel hæfan í þetta embætti. Landssamband lögreglumanna mun ekki tjá sig frekar um mál þetta og er því lokið af þess hálfu. Reykjavík, 9. maí 2007. Hermann Karlsson, varaformaður Landssambands lögreglumanna. Páll Winkel nýtur fulls stuðnings LL ♦♦♦ YFIRVÖLDUM hefur verið sent er- indi þess efnis að aðbúnaður hrossa á sveitabæ í Rangárþingi ytra sé með allra versta móti. Á vefsvæði Hestaf- rétta má lesa bréfið og sjá myndir af aðbúnaði hrosanna. Þar segir m.a.: „Þau eru mögur, lúsug, með ein- hverjar sýkingar og kleprótt. Fyl- fullar merar eru það horaðar að rif- beinin sjást.“ Í bréfinu kemur jafnframt fram að nágrannar hafi í vetur látið dýra- lækni vita af hrosshræi sem lá á beitilandi hrossanna og í kjölfarið hafi verið mokað yfir það. Þá séu hrossin lokuð inni í niðurníddu, dimmu útihúsi án fóðurs í nokkra daga ef þau séu ekki útivið. Hræðilegur að- búnaður hesta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.