Morgunblaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 54
Sumir voru jafnvel orðnir hámenntaðir í því að skrúfa ónýtar snældur í sundur og lagfæra þær þannig... 59 » reykjavíkreykjavík Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is „MAÐUR áttaði sig ekki á því út í hvað maður var kominn fyrr en mað- ur var kominn í danstímana,“ rifjar Pálmi Gunnarsson upp um fyrstu för Íslendinga í Evróvisjón árið 1986. Hann var sem kunnugt er þriðjungur ICY-tríósins goðsagnakennda sem einnig innihélt Helgu Möller og Eirík sjálfan Hauksson. Pálmi segist hafa fylgst með keppninni í ár með öðru auga og eyra en segir ekkert eitt lag hafa hrifið sig meira en annað. „Ég er hrifnastur af þessum þjóðlegri lögum en annars er ég þeirrar skoðunar að færa eigi keppnina aftur í sama horfið þegar sérfróð dómnefnd velur sigurvegara keppninnar,“ segir Pálmi. Helga er nýkomin að utan og hefur því ekki fylgst mikið með aðdrag- anda keppninnar síðustu vikur. „Það er þó eitt lag sem ég hef heyrt í útvarpinu og finnst fínt þar sem sungið er um einhverja Maríu en söngurinn minnir á Ricky Martin. Ég kemst kannski að því í kvöld hvaða land sendi þetta lag í keppn- ina,“ segir hún. Sprengja við Gleðibankann „Ég kann ágætlega við þetta lag. Það er ekkert yfirþyrmandi flott en það virkar vel í hans meðförum,“ seg- ir Pálmi aðspurður um skoðun sína á „Valentine Lost“. Þau Pálmi og Helga liggja þó hreint ekki á skoð- unum sínum á Eiríki. „Eiki er svo æðislegur,“ segir Pálmi og Helga tekur undir þá full- yrðingu. „Eiríkur er snillingur í marga ætt- liði. Hann hefur aldrei verið betri söngvari og verður bara flottari með árunum. Ég hef því engar áhyggjur af honum í kvöld,“ segir Helga. „Að fenginni reynslu held ég að það sé samt best að stilla væntingum í hóf,“ bætir hún við og hlær en mörgum er eflaust í fersku minni undrunin hér heima á Fróni þegar ICY-tríóið lenti í 16. sæti árið 1986. Þau Pálmi og Helga ætla að sjálf- sögðu að fylgjast með frammistöðu félaga síns í kvöld og Pálmi ætlar að vera „eins og vitleysingur hérna heima að hvetja minn mann“. Þau koma svo bæði fram í Evró- visjónpartíi Páls Óskars á NASA á laugardagskvöldið. „Maður er ævi- ráðinn þar held ég og ætli manni verði ekki rúllað þarna inn í hjólastól undir lokin,“ segir Pálmi en „Gleði- bankinn“ verður að sjálfsögðu flutt- ur. „Það verður alltaf sama sprengj- an þegar upphafstónar lagsins heyrast.“ Eiríkur aldrei betri ICY tríóið Eiríkur, Helga og Pálmi við æfingar á Gleðibankanum árið 1986. Eftirvæntingin var mikil enda taldi íslenska þjóðin sigurinn vísan. Söngvakeppnin: Stóra stundin rennur upp í kvöld  Útgáfa nýju Mínus- plötunnar seinkar um viku og kemur út mánudag- inn 21. maí. Platan sem kallast því stóra nafni; The Great Northern Whalekill, var tekin upp í Los Angeles í nóvember og desem- ber á síðasta ári og ku vinnuheiti plötunnar þá hafa verið Flugstöð Eiríks Haukssonar. Hvort hér hafi verið um að ræða framsýni Mínus- drengja um komandi glæsta sigra Eiríks Haukssonar í Evróvisjón og í framhaldinu að íslenska ríkið myndi nefna flugstöð eftir honum til heiðurs, á enn eftir að koma í ljós en öruggt má telja að hörkutólin í Mínus fylgjast grannt með for- keppninni í kvöld. Átti að heita Flugstöð Eiríks Haukssonar  Magnús Þór Hafsteinsson vara- formaður Frjálslynda flokksins upplýsti á opnum fundi Félags kvik- myndagerðarmanna sem haldinn var í síðustu viku að hann hefði á sínum tíma langað til að vera heim- ildarmyndagerðarmaður og hann teldi mikið verk óunnið í þeim geira. Sagði hann kvikmyndir vera merkilegar, með þeim væri unnið mikilvægt starf og í þeim væri fólg- inn þjóðarspegill. Magnús tilkynnti að hans flokkur myndi ekki láta sitt eftir liggja í málefnum kvikmynda- gerðarmanna. Þá sá Magnús sókn- arfæri í því að kvikmyndagerð- armenn gætu gert spennumyndir um málefni nýbúa þegar fram í sækti. Kemur þetta fram í frétta- bréfi sé félagið sendi frá sér. Spennumynd um nýbúa? Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is ÞAÐ ÆTTI ekki að fara fram hjá neinum hvar innkeyrslan er að gömlu kartöflugeymslunum í Ártúnsbrekku. Þar hafa útlitshönnuðir útskrift- arsýningar Listaháskóla Íslands, 2. árs nemar í grafískri hönnun, búið til hálfgerðan sigurboga, úr bílhræjum, en útskriftarsýning skólans verð- ur haldin í geymslunum í fyrsta sinn. Þegar mig bar að garði voru fáir hönn- unarnemar á ferð. Myndlistarnemi sagði mér að minni fyrirhöfn væri fólgin í því að koma fyrir verkum hönnuða, og tek ég það gott og gilt. Myndlistarnemar voru hins vegar önnum kafnir, í neðri geymslunum, við að líma, negla og festa upp ljós og gáfu fjölmiðlamönnum lítinn gaum. Stærðarmálverk af konu að kasta hári sínu fram og aftur, þrjú alls, voru áberandi á einum vegg. Skúlptúr af hesti að prjóna var á miðju gólfi, úr ónefndu efni. Jóhann Einar Jónsson frá Arkíbúllu, sýning- arstjóri fyrir hlut hönnunardeildar, var brosandi út að eyrum fyrir utan geymslurnar og aug- ljóslega ekki stressaður þegar ég tók hann tali. „Það er frumleikinn sem aldrei fyrr, frumleik- inn hjá öllum, tvímælalaust, inni í öruggum ramma,“ svarar Jóhann spurningunni um hvað einkenni sýningu hönnunarnema í ár. „Það er þessi heild, að vera kominn með þetta líf upp í þessa brekku, upp í þessa sprengju- geymslu, það er svo magnað.“ Geymslurnar hafi verið notaðar undir sprengjur, ekki bara kart- öflur. Kýs ég þá heldur kartöflur. Finnur Arnar Arnarsson, sýningarstjóri myndlistarhluta sýningarinnar, segir mynd- listina hráa í ár, kannski vegna þess að sýning- arstaðurinn er hrár. Nemendur séu óhræddir við að sleppa framan af sér beislinu og láta sköp- unarkraftinn ráða. Fyrir þá sem ekki vita þá er innkeyrslan að kartöflugeymslunum skammt frá gömlu rafstöð- inni í Elliðaárdal. Ekki má gleyma fatahönn- unarnemum, tískusýning þeirra verður haldin í Gvendarbrunnum kl. 20 annað kvöld. Þar verður væntanlega margt frumlegra klæða. Sýning LHÍ verður opnuð kl. 14 á laugardaginn. Henni lýkur 27. maí og er opið frá kl. 12 til 18. Morgunblaðið/RAX Undir bílhræjaboga Nokkrir útskriftarnema tóku sér hlé frá uppsetningu verka í gær og stilltu sér upp við innkeyrsluna að kartöflugeymslunum. Hrá verk í kartöflugeymslu Myndlistar- og hönnunarnemar úr LHÍ sýna útskriftarverk í Ártúnsbrekku
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.