Morgunblaðið - 14.05.2007, Page 1
STOFNAÐ 1913 130. TBL. 95. ÁRG. MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
KOSNINGAÚRSLIT
TÖLUR, YFIRLIT, GREININGAR OG VIÐ-
BRÖGÐ. BLAÐAUKI UM KOSNINGARNAR
HELSINKIGLEÐI OG LÍF
OG LIST Í BORGINNI
FLUGUFÓTUR
AF FORSETABUXUM >> 48
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
8
1
3
1
VILDAR
KLÚBBUR
GLITNIS
» Þetta er auðvitaðnaumur meiri-
hluti en starfhæfur
meirihluti | 6
»Ég horfi fyrst ogfremst til þess að
hér verði mynduð
öflug ríkisstjórn | 8
» Þessi ríkisstjórner auðvitað fallin,
þótt hún hangi inni
tæknilega séð | 8
» Okkur er refsaðfyrir þá hluti sem
sjálfstæðismenn voru
verðlaunaðir fyrir | 6
»Menn geta gleymtþví að gefa út dán-
artilkynningar fyrir
okkar hönd | 8
» Við komum í vegfyrir að sjálfstæð-
ismenn ynnu stærri
sigur | 8
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ólaf Þ. Stephensen
olafur@mbl.is
MIKLAR líkur eru á því að stjórn-
arsamstarfi Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins verði haldið
áfram. Flokkarnir fengu samtals 32
þingmenn í kosningunum á laugar-
dag, minnsta mögulega meirihluta.
Formenn flokkanna, þeir Geir H.
Haarde og Jón Sigurðsson, hittust á
fundi í gærmorgun og í framhaldi af
honum byrjaði fólk í innsta kjarna
beggja flokka að leggja línur að
áframhaldandi samstarfi.
Varamenn inn fyrir ráðherra?
Meðal þess, sem er til skoðunar, er
hvernig leysa megi þau vandkvæði á
að manna stöður í stjórnarsamstarf-
inu sem hljótast af miklu fylgistapi
Framsóknarflokksins. Gengið er út
frá því að ráðherrum Framsóknar í
stjórninni fækki í fjóra eða fimm.
Jón Sigurðsson, formaður flokks-
ins, verður væntanlega áfram ráð-
herra þótt hann hafi ekki náð kjöri til
þings. Þá má reikna með að núver-
andi ráðherrar, sem náðu kjöri, geri
tilkall til ráðherrasæta. Þá eru aðeins
eftir þrír þingmenn, Birkir Jón Jóns-
son og nýliðarnir Bjarni Harðarson
og Höskuldur Þór Þórhallsson, til að
manna stöður á þingi.
Á milli stjórnarflokkanna er rædd
sú hugmynd, sem Jón Sigurðsson
viðraði í sjónvarpsumræðum í gær-
kvöldi, að kalla megi inn varamenn
fyrir þingmenn, sem gegna störfum
ráðherra. Fordæmi eru fyrir slíku,
t.d. frá Noregi, en til þess að svo megi
verða þarf að breyta lögum.
Pirraðir á Ingibjörgu
Innan Sjálfstæðisflokksins var það
sjónarmið engu að síður talsvert
áberandi í gær að ekki væri hægt að
treysta á eins manns meirihluta með
Framsókn og fremur ætti að freista
þess að taka upp samstarf með Sam-
fylkingunni. Formaður Samfylking-
arinnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
hafði þá sett sig í samband við forystu
Sjálfstæðisflokksins og þreifað á
möguleikum á samstarfi. Þó fór fram-
gangsmáti Ingibjargar eitthvað í
taugarnar á sjálfstæðismönnum, sem
töldu hana hafa nálgazt flokkinn af
hroka, sem væri ekki líklegur til að
skapa traust í samskiptum.
Þótt staða sjálfstæðismanna sé
sterk eftir kosningarnar, með því að
ríkisstjórnarmeirihlutinn hélt og Geir
Haarde þarf ekki að biðjast lausnar
fyrir stjórnina, er það þó ekki alveg
svo að þeir hafi öll tromp á hendi og
geti valið sér samstarfsflokk að vild.
Samfylkingin hefur látið þau boð
ganga til framsóknarmanna að þeir
séu velkomnir til vinstristjórnarsam-
starfs með Samfylkingu og VG. Ingi-
björg Sólrún ræddi þann möguleika í
sjónvarpsumræðum í gærkvöldi, jafn-
framt samstjórn Samfylkingar og
Sjálfstæðisflokks.
Áhætta að sleppa Framsókn
Í ljósi þess að framsóknarmenn
hafa sýnt vilja til að halda áfram sam-
starfinu við Sjálfstæðisflokkinn telja
margir í forystusveit flokksins vara-
samt að afþakka áframhaldandi sam-
starf og leita hófanna við Samfylk-
inguna. Það gæti þýtt – fyrst
Framsókn vill á annað borð setjast í
ríkisstjórn – að framsóknarmenn
sneru sér þá strax til Samfylkingar og
VG. Báðir flokkar myndu að öllum lík-
indum fremur taka tilboði um vinstri
stjórn en að taka þátt í að styðja Sjálf-
stæðisflokkinn til stjórnarforystu
fimmta kjörtímabilið í röð. Ef sjálf-
stæðismenn slitu sambandinu við
framsóknarmenn gætu þeir þannig
verið að bjóða upp á myndun vinstri
stjórnar, sem myndi útiloka þá frá
stjórnarsetu næstu árin.
Einhverjar þreifingar hafa líka far-
ið fram milli VG og stjórnarflokkanna
beggja. Framganga Steingríms J.
Sigfússonar í umræðum í Ríkissjón-
varpinu í gærkvöldi, þar sem hann fór
fram á að Jón Sigurðsson bæðist af-
sökunar á auglýsingum, sem ungir
framsóknarmenn birtu, hefur hins
vegar ekki aukið áhuga framsóknar-
manna á að tala við VG. Innan Sjálf-
stæðisflokksins virðist líka lítill áhugi
á samtölum við VG að svo stöddu.
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hélt velli með minnsta meirihluta
Ræðast við Geir H. Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins og Jón Sigurðs-
son formaður Framsóknarflokksins stinga saman nefjum eftir umræðuþátt
á Stöð 2 í gærkvöldi. Þeir eru nú í viðræðum um áframhaldandi samstarf.
Líklegast
að stjórnin
sitji áfram
Byrjað að leggja línur að áfram-
haldandi samstarfi stjórnarflokkanna
Samfylkingin stígur í vænginn við
bæði sjálfstæðis- og framsóknarmenn
Í HNOTSKURN
»Ríkisstjórnin fékk 48,3%atkvæða og samtals 32
þingmenn af 63.
»Framsóknarflokkurinntapaði sex prósentum og
fimm mönnum en sjálfstæð-
ismenn bættu við sig 2,9 pró-
sentum og þremur mönnum.
»Þetta er í fyrsta sinn í ís-lenzkri stjórnmálasögu
sem ríkisstjórn heldur meiri-
hluta sínum þrennar kosn-
ingar í röð.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti