Morgunblaðið - 14.05.2007, Side 10

Morgunblaðið - 14.05.2007, Side 10
10 MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Þetta var algert neyðarúrræði, vegna ólíðandi sjónmengunar, rektorinn neitaði alveg að láta skera hár sitt fyrr en skólinn fengi lóð Árni minn. VEÐUR Í umræðuþáttum ljósvakamiðl-anna frá því á kosninganóttina og fram á sunnudagskvöld var mik- ið rætt um tap Framsóknarflokks- ins í þingkosningunum en lítið sem ekkert um tap Samfylkingarinnar. Hvað skyldi valda því?     Samfylkinginhefur verið í stjórnarandstöðu frá stofnun flokksins. Yf- irleitt vegnar stjórnarand- stöðuflokkum vel, þegar sömu flokkar hafa lengi verið í rík- isstjórn. Og til þess að stórsigur í þessum kosn- ingum væri alveg tryggður var Öss- ur Skarphéðinsson felldur sem for- maður flokksins.     Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefurekki leitt flokk sinn fram á við heldur á byrjunarreit. Samfylk- ingin tapaði hvorki meira né minna en 4,2 prósentustigum í þessum kosningum og tveimur þingmönn- um. Og fyrir þetta var formaðurinn hylltur á kosninganóttina!     Samfylkingin er nú komin niður ísama fylgi og í fyrstu kosning- unum, sem flokkurinn bauð fram í árið 1999. Er þetta ekki þess virði að ræða í ljósvakamiðlum?!     Það er auðvitað ljóst, að innanSamfylkingarinnar eiga eftir að verða miklar umræður um þetta áfall flokksins í þingkosningunum nú. Þetta er sárt fyrir Samfylk- inguna þar sem aðalkeppinaut- urinn, Sjálfstæðisflokkurinn, bætti við sig kjörfylgi og þingmönnum.     Líklegt má telja að ný kynslóðkomist til valda í Samfylking- unni á næstu misserum og sú gamla hverfi á braut. Það eru efnilegir forystumenn að koma fram á sjón- arsviðið. STAKSTEINAR Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Tap Samfylkingar SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                  *(!  + ,- .  & / 0    + -                       12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (                    !   :  *$;<                    !  "#  $"      %  &'     ()   *  *! $$ ; *! "#$   #    %  &' =2 =! =2 =! =2 "% $ ( ) *+, -  >         =   "  &,  , %  " .))   ! , ,   ) /   " #  )    01)   2.  33, &    )  #' ) 4 )  ) # -  6 2  4$#  ,     '&  " !   )   ) / )   # ,   ')  4   /    )   #  5.  33   &0  ,& ( ) 3'45 ?4 ?*=5@ AB *C./B=5@ AB ,5D0C ).B / /      6           /6 / / / / / / / / / / / / /            Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Katrín Anna Guðmundsdóttir | 13. maí Úrslit Enginn flokkur er með jafnt hlutfall kynjanna inn á þingi, hvað þá að konur séu í meirihluta. Samkvæmt frétt á vis- ir.is eru kynjahlutföllin svona:VG: 44,4% Samfylking: 33% Sjálfstæðisflokkur: 32% Framsókn: 28,5% Frjálslyndir: 0% Konum fækkar á þingi úr 23 í 20 en fjölgar um eina frá síðustu kosningum þegar 19 konur náðu kjöri og 44 karlar. Meira: hugsadu.blog.is Rúnar Birgir Gíslason | 13. maí 2007 Féllu á eigin bragði Maður heyrði þær sög- ur að Wigan og Sheff- Utd væru búin að ákveða úrslit í leik þeirra, Wigan átti að vinna og fella þar með WestHam. Þeir gleymdu bara að gera ráð fyrir að WestHam gæti náð í stig á Old Traf- ford og þar með féll SheffUtd. Annars er minnir mig aðeins eitt lið sem vann ManUtd tvisvar í vetur og það heitir WestHam, ekki slæm- ur árangur það. Meira: rungis.blog.is Björg F | 13. maí 2007 Þökk sé mér... Þeir sem vilja þakka mér og hinum sem kusu Íslandshreyf- inguna fyrir að stjórnin haldi velli geta gert það hér í athugasemd- um eða með því að styrkja sjóðinn „Drekkjum Íslandi“ eða „Upp upp mín verðbólga og ekk- ert stopp“. Þá líst mér best á Sam- fylkingu og Sjálfstæðisflokk saman – þ.e.a.s. ef stefna Samfylking- arinnar „Fagra Ísland“ nær fram að ganga. Meira: .sigrunb.blog.is Stefán Friðrik Stefánsson | 13. maí 2007 Strika út Árna Johnsen Það er athyglisvert að heyra af því hversu margar útstrikanir Árni Johnsen hefur fengið í alþingiskosn- ingunum í gær í Suður- kjördæmi. Sé það rétt sem sagt er að Árni hafi fengið um eða yfir 30% útstrik- anir er það skýr vitnisburður um það hversu umdeildur Árni er meðal kjósenda Sjálfstæðisflokksins. Um leið er það skýr eftirmáli þeirrar umræðu sem varð í vetur vegna stöðu Árna Johnsen innan Sjálfstæðisflokksins eftir mjög vonda og óheppilega atburðarás þar sem hann sýndi enga iðrun á fræg- um afbrotum sínum. Það var veru- lega sorglegt allt saman, eflaust má kalla það mannlegan harmleik en það var fyrst og fremst skelfilegt mál fyrir Sjálfstæðisflokkinn í heild sinni. Það er mjög einfalt mál. Sjálfur hafði ég mjög afgerandi skoðanir á því máli. Þær tjáði ég með afgerandi hætti bæði hér á þessum bloggvef og eins í viðtali við Stöð 2. Það var nauðsynlegt skref, enda gat ég ekki setið hjá þegjandi vegna þess máls. Þar kom ég fram sem sjálfstæðismaður með skoðanir, skoðanir sem urðu að verða opinber- ar. Ég sé ekki eftir neinu í því sam- hengi og það var ekkert hik eða hangs yfir mínu tali hvað þetta varð- ar. Svona margar útstrikanir segja hug kjósenda Sjálfstæðisflokksins á þessu svæði til Árna og þessara um- deildu mála í fortíð hans og ekki síð- ur orða hans eftir prófkjörssigurinn í fyrra. Það var allt mjög óheppilegt. En það er auðvitað lýðræðislegur réttur kjósenda framboðslista að breyta honum telji þeir það mik- ilvægt. Stundum hefur það ekki ver- ið áberandi sveifla en það sem virðist hafa gerst í Suðurkjördæmi er mjög afgerandi sveifla í þessa átt og það er mjög hávær skoðun sem birtist þar. Það er mikilvægt að það kom fram með þessum hætti og persónulega tel ég þessar yfirstrikanir staðfesta endanlega hversu mjög umdeild pólitísk endurkoma Árna er og það að flokksmenn í kjördæminu hafi viljað tjá sig með afgerandi hætti. Meira: stebbifr.blog.is BLOG.IS FÆRRI ný atvinnuleyfi voru gefin út á fyrstu fjórum mánuðum ársins en á sama tíma árið 2006. Þetta gæti verið vísbending um að eitthvað væri að draga úr aðflutningi erlends vinnuafls til landsins. Á fyrstu fjórum mánuðum ársins voru gefin út 2.425 ný atvinnuleyfi, en á fyrstu fjórum mánuðum ársins í fyrra voru gefin út 3.449 ný atvinnu- leyfi. Þessar upplýsingar koma fram í skýrslu Vinnumálastofnunar um at- vinnuástandið í apríl. Aðeins voru gefin út 25 ný at- vinnuleyfi í apríl til íbúa utan hins Evrópska efnahagssvæðis. Ný- skráningar ríkisborgara frá nýjum ríkjum ESB voru 283 og þeir sem voru áður með leyfi voru 81 eða sam- tals 364. Til samanburðar voru gefin út 682 ný atvinnuleyfi í apríl 2006 þegar íbúar nýju ríkjanna þurftu at- vinnuleyfi til að koma hingað til starfa og er því um nokkra fækkun að ræða milli ára. Minnkandi atvinnuleysi Í skýrslunni kemur fram að skráð atvinnuleysi í apríl var 1,1% eða að meðaltali 1.866 manns, en það eru 68 færri en í marsmánuði. Atvinnuleysi er um 11,7% minna en á sama tíma fyrir ári þegar það var 1,3%. At- vinnuleysi er nú mest á Norðurlandi eystra, 2%, og á Suðurnesjum, 2,8%. Atvinnuleysi meðal kvenna er meira en karla eða 1,5% á móti 0,9%. Um 4,4% kvenna á Suðurnesjum eru án vinnu. Minnst er atvinnuleysið á Norðurlandi vestra, 0,5%, og Aust- urlandi, 0,4%. Lausum störfum fjölgar Yfirleitt dregur úr atvinnuleysi í maí. Lausum störfum í lok apríl í ár fjölgaði talsvert frá lokum mars en alls voru 560 laus störf í lok apríl en 414 í lok mars. Hins vegar voru 867 laus störf í lok apríl 2006. Vinnu- málastofnun telur líklegast að at- vinnuleysi í maí breytist ekki mikið og verði á bilinu 1–1,3%. Sem fyrr var atvinnuleysi mest í yngsta aldurshópnum. Atvinnuleysi meðal fólks á aldrinum 16–24 ára er þó minna núna en árið 2005. Lang- tímaatvinnuleysi (yfir 6 mánuði) er núna 37% eða 721 manns í apríl sl. Þetta er hærra hlutfall en verið hef- ur undanfarin ár. Vinnumálastofnun segir í skýrslu sinni að með minnk- andi atvinnuleysi fari þeir sem lengst hafa verið á atvinnuleysisskrá seinna út af skrá en aðrir. Færri atvinnu- leyfi gefin út Skráð atvinnuleysi er aðeins 1,1% samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.