Morgunblaðið - 14.05.2007, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2007 11
FRÉTTIR
Heilbrigði og almenn hreysti
getur haft stór áhrif á lífsgæði og hamingju.
Grunninn leggur þú í nýrri og glæsilegri
líkamsræktarstöð, Silfur Sporti, þar sem
boðið er upp á einkaþjálfun, ráðgjöf, fullkominn tækjasal,
upphitun og þol, lyftingasal og próteinbar,
svo eitthvað sé nefnt.
Í Silfur Sporti er lögð sérstök áhersla
á persónulega þjónustu og stresslaust umhverfi.
Leggðu grunninn
að heilbrigðri sál í hraustum líkama.
Hátún 12 • 105 Reykjavík • Sími 551 0011
www.silfursport.is • silfursport@silfursport.is
LEGGÐU
GRUNNINN
X
S
TR
E
A
M
D
E
S
IG
N
S
S
07 01 004
BRUNAVARNIR Vesturbyggðar
og Slökkviliðið í Tálknafirði voru
kölluð út á tíunda tímanum í gær-
morgun þegar elds varð vart í ein-
býlishúsi við Aðalstrætið. Húsið var
mannlaust þegar slökkvilið bar að
og greiðlega gekk að slökkva eld-
inn og má þakka skjótu viðbragði
hjá slökkviliði að ekki fór verr, að
því er segir á patreksfjordur.is
Í samtali við nýráðinn slökkvi-
stjóra, Davíð Rúnar Gunnarsson,
kom fram að ekki hefði mátt muna
nema nokkrum mínútum að húsið
hefði orðið eldinum að bráð. Elds-
upptök eru ókunn og er málið nú í
rannsókn hjá lögreglunni.
Snör viðbrögð
slökkviliðs
BJÖRGUNARSVEITIN Ingunn var
kölluð út eftir að bát hafði hvolft á
Apavatni með fjórum mönnum inn-
anborðs klukkan hálf sjö á laug-
ardagskvöld. Staðarhaldari bú-
staða Rafiðnaðarsambandsins sá
þegar bátnum hvolfdi, hringdi á
neyðarlínu og fór út á bát og bjarg-
aði mönnunum upp úr köldu vatn-
inu.
Þegar björgunarsveitarmenn
komu á staðinn hafði tekist að ná
mönnunum í land við orlofssvæði
Rafiðnaðarsambandsins í Apanesi.
Mennirnir voru nokkra stund í
vatninu og voru þeir mjög kaldir
þegar þeir komu að landi, en ekki
er talið að þeim hafi orðið meint af
volkinu. Mennirnir voru fluttir til
nánari skoðunar á sjúkrahúsinu á
Selfossi.
Mannbjörg varð
á Apavatni
Séð yfir til Apavatns.
KJÖRFUNDUR hófst í minnstu
kjördeild á landinu, sem mun hafa
verið í Mjóafirði í Fjarðabyggð,
klukkan 9 á laugardagsmorgun og
lauk klukkan 17. Í Mjóafirði eru 28
manns á kjörskrá, 14 konur og 14
karlar, og var kosið í Grunnskólan-
um á Sólbrekku.
Þegar kjörfundi lauk höfðu 27 af
þeim 28 sem eru á kjörskrá á Mjóa-
firði kosið, sem eru 96,4 %. Af þeim
sem eru á kjörskrá í Mjóafirði kaus
21 á kjörstað, 4 utankjörstaðar og 2
kusu annarstaðar á kjördag, sam-
kvæmt heimildkjörstjórnar á Mjóa-
firði.
Morgunblaðið/ Sigurður Aðalsteinsson
Innsiglað Að þjóðlegum sið er kjördagurinn innsiglaður með því að fá sér myndarlega í nefið,
en kjörsókn var einstaklega góð í þessu fámenna kjördæmi á Austurlandi.
Kjörfundi lokið Kjörstjórn gengur frá kjörgögnum til sendingar til yfirkjörstjórnar Norðaust-
urkjördæmis, frá vinstri Jóhann Egilsson, Heiðar W. Jones og Sigfús Vilhjálmsson, formaður.
Minnsta
kjördeildin
í Mjóafirði