Morgunblaðið - 14.05.2007, Page 12
12 MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
KOSNINGAR 2007
Inntökuskilyrði umsækjenda eru að þeir hafi lokið
iðnnámi eða 2 1/2 – 3 árum á framhaldsskólastigi eftir
því hvaða leið nemendur ætla sér. Umsækjendur sem
orðnir eru 25 ára eða eldri eiga mögugleika á að fá
starfsreynslu sína metna til eininga.
SkilyrðiFrumgreinadeild
Nám í frumgreinadeild veitir nemendum góðan undirbúning undir háskólanám og er
þróað í samstarfi við Háskóla Íslands í samræmi við inntökukröfur hans samkvæmt sam
starfssamningi Keilis við HÍ.
Námið er tvískipt. Hægt er að ljúka því á 2 önnum, fyrir þá sem ætla sér að stunda nám
í félags og hugvísindum. Einnig er hægt að ljúka því á 3 önnum með sumarnámi.
Slíkt er ætlað þeim nemendum sem vilja stunda háskólanám í tækni eða raunvísindum. Umsóknarfrestur er til 30. júní.
Tækifæri til háskólanáms
Frumgreinadeild Keilis:
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
KJÖRNUM konum á Alþingi fjölgar
um eina frá síðustu kosningum en
fækkar engu að síður á þingi þar sem
hlutfall þeirra hafði hækkað á kjör-
tímabilinu. Það kemur til af því að
konur komu inn í stað karla sem af
einhverjum orsökum hættu á þingi. Í
upphafi síðasta kjörtímabils voru
konur 30,2% en í lok þess 36,5% sem
er sama hlutfall og var 1999 þegar
hlutfall kvenna á þingi var hæst. Að
þessum kosningum loknum eru kon-
ur hins vegar 31,8% sem þýðir að Ís-
land fellur niður um nokkur sæti á
alþjóðlegum lista yfir hlutfall kvenna
á þjóðþingum og er að því er virðist í
kringum 15. sæti af tæplega 150
löndum. Hlutfall kvenna á Alþingi er
lægra hér á landi en á öllum hinum
Norðurlöndunum þar sem Svíþjóð
trónir á toppnum en þar er hlutfall
kvenna á þingi rúm 47%. Svíþjóð er í
öðru sæti á heimsvísu á eftir Rú-
anda.
Engin kona í Norðvestur
Þegar litið er til kjördæmanna
bera konur skarðastan hlut frá borði
í Norðvesturkjördæmi þar sem eng-
in kona náði kjöri en níu karlar taka
sæti á þingi. Þó munaði aðeins 105
atkvæðum að Herdís Sæmundar-
dóttir, Framsóknarflokki, kæmist á
þing og 612 atkvæðum á að Ingi-
björg Inga Guðmundsdóttir, Vinstri
grænum, fengi þingsæti. Á síðasta
kjörtímabili var hlutur kvenna einn-
ig dræmur í kjördæminu. Þá var
Anna Kristín Gunnarsdóttir, Sam-
fylkingu, ein í hópi níu karla en þing-
mönnum kjördæmisins var fækkað
um einn í þessum kosningum.
Í Suðurkjördæmi komst aðeins ein
kona á þing en níu karlar. Yfir tvö
þúsund atkvæði vantaði upp á að
kona næði kjöri í þessu kjördæmi. Í
öðrum kjördæmum er kynjahlutfall-
ið yfir 35% og alveg jafnt í Suðvest-
urkjördæmi þar sem sex konur og
sex karlar náðu kjöri. Hvergi eru
konur fleiri en karlar og enginn
stjórnmálaflokkur státar af því að
hafa jafnt kynjahlutfall í þingflokki
sínum.
Mest hefur kynjahlutfallið lækkað
í Framsóknarflokknum en í lok síð-
asta kjörtímabils var hlutfall kvenna
í þingflokknum tæp 46% en er núna
aðeins tæp 29%. Þá fækkaði konum
umtalsvert í liði Samfylkingarinnar,
frá því að vera tæpur helmingur
þingmanna flokksins og niður í þriðj-
ung en sex konur og 12 karlar náðu
kjöri fyrir flokkinn í þessum kosn-
ingum.
Hæst kynjahlutfall hjá VG
Nú er kynjahlutfallið hæst hjá
Vinstri grænum þar sem fjórar kon-
ur náðu kjöri og fimm karlar. Hlutur
kvenna jókst lítillega í þingmannaliði
Sjálfstæðisflokks og er nú 32%.
Þingflokkur Frjálslyndra er eftir
sem áður karlaflokkur en þar náðu
fjórir karlar kjöri og engin kona. Að-
eins munaði 200 atkvæðum að Kol-
brún Stefánsdóttir fengi þingsæti.
Konum á Alþingi fækkar og
eru nú innan við þriðjungur
!"
#
$
!"
%&
$
' !"
#
$
() !"
%&
$
*
() !"
'
%
$
+
' !"
',
$
+
-
Í HNOTSKURN
» Konur fengu kosningarétt áÍslandi árið 1915 en ekki til
jafns á við karla fyrr en árið
1920.
» Fyrsta konan var kjörin áþing árið 1922 en það var
Ingibjörg H. Bjarnason.
» Auður Auðuns varð fyrstkvenna til að setjast á ráð-
herrastól árið 1970.
» Konur hafa mest skipað tæp37% þingsæta á Íslandi.