Morgunblaðið - 14.05.2007, Síða 16

Morgunblaðið - 14.05.2007, Síða 16
16 MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING SÝNING Finnboga Péturs- sonar, Teslatune, var opnuð í Galleríi 100° í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur á Bæj- arhálsi 1 í gær. Finnbogi er einkum þekktur fyrir hljóðlist, að eltast við hluti sem eru auganu ekki greinanlegir og setja í grein- anlegt form, til dæmis með því að gára vatn með hljóðbylgjum og teikna hljóðmyndir í sýning- arrýmið með því að varpa ljósi á gárurnar, eins og hann gerði í verkinu Sphere. Gallerí 100° er á Bæjarhálsi 1 í Reykjavík og er opið frá kl. 8.30 til 16 alla virka daga. Myndlist Finnbogi sýnir í Galleríi 100° Finnbogi Pétursson CRISTIAN Guttesen ljóðskáld les upp úr nýjustu ljóðabók sinni, Glæpaljóð, í bókabúð Ey- mundsson í Austurstræti ann- að kvöld kl. 21. Þetta er 87. skálda- spírukvöldið og mun Guttesen einnig lesa úr eldri verkum og varpa ljósi á aðdraganda þeirra og innihald. Reykjavíkurborg veitti Benedikt S. Lafleur, skipuleggjanda kvöldanna, styrk til að halda þau og hefur hann ekki slegið slöku við. Aðgangur er ókeypis og mega gestir taka með sér veitingar frá Te og kaffi sem er rétt við bókarýmið. Ljóðlist 87. skáldaspíru- kvöldið Ljóðskáldið Cristian Guttesen VÍKINGUR Heiðar Ólafsson heldur aukatónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld kl. 20. Á tón- leikunum leikur Víkingur Franska svítu nr. 4 í Es-dúr eftir J.S. Bach og Sónötuna nr. 3 í h-moll eftir F. Chopin, auk hinnar stórbrotnu Appassion- ata-sónötu eftir Beethoven. Þá frumflytur Víkingur glænýja píanósvítu eftir föður sinn Ólaf Óskar Axelsson. Víkingur þreytti frumraun sína með Sinfóníuhljómsveit Ís- lands aðeins sextán ára gamall, þegar hann lék Pí- anókonsert nr. 1 eftir Tchaikovsky. Aðgangseyrir á tónleikana er 2.000 kr. Tónleikar Víkingur heldur aukatónleika Víkingur Heiðar Ólafsson Eftir Helgu Kristínu Einarsdóttur helgakristin@gmail.com Tyrkjaránið – sjóræningar og kristnir þrælar nefnist sýning sem opnuð verður í Vélasalnum í Vest- mannaeyjum á morgun. 380 ár eru liðin frá Tyrkjaráninu, skelfilegasta sjóráni í sögu Íslands, og mun Vest- mannaeyjabær standa fyrir ýmiss konar viðburðum af því tilefni. Uppsetningin er í höndum Sögu- miðlunar ehf. og segir Ólafur J. Engilbertsson, eigandi fyrirtæk- isins, að um sé að ræða sögusýningu byggða á texta og myndefni. „Þó er reynt að koma efninu þannig á fram- færi að ógn þessara atburða og framandleiki hins íslamska menn- ingarheims fyrir hinum brottnumdu íbúum Vestamannaeyja skili sér,“ segir hann. Í sýningarrýminu eru 24 þriggja metra há segl sem segja sögu Tyrkjaránsins, sögu séra Ólafs Eg- ilssonar og sögu Guðríðar Sím- onardóttur, sem bæði voru í hópi hins brottnumda fólks. Einnig er greint frá sögu einstaklinga frá Dan- mörku og Noregi sem sjóræningjar rændu á 18. öld, greint frá því hverj- ir sjóræningjarnir voru sem rændu fólki í Vestmannaeyjum og hvernig þeirra heimaslóðir, í Barbaríinu svo- kallaða, voru. Á gólfinu er komið fyr- ir stóru korti sem sýnir ferðir skipa ránsmanna og ferðir hinna brottn- umdu til baka. Einnig eru þar upp- lýsingar um hversu mörgum var rænt víðsvegar um Evrópu. Þor- steinn Helgason og Hjálmtýr Heið- dal hjá Seylunni ehf. hafa gert heim- ildamynd um Tyrkjaránið sem valdir kaflar verða birtir úr á sýningunni. Ólafur segir jafnframt að vonandi sé sýningin aðeins fyrsta skref í þá átt að gera Tyrkjaráninu skil hér- lendis, en áhugafólk um stofnun Tyrkjaránsseturs mun kynna áform sín á sýningunni. Vildi ekki heim aftur Ólafur segir að varðveist hafi skrá frá árinu 1635 um herleidda fólkið frá Íslandi með undirskriftum. „Steinunn Jóhannesdóttir birtir nöfnin í bók sinni Reisubók Guðríðar Símonardóttur. Þar eru nöfn 27 kvenna og 13 karla frá Eyjum sem eru þá í Alsír, auk þriggja karla sem eru í Túnis. Þar eru einnig nöfn 12 kvenna og 12 karla frá Austfjörðum, auk tveggja bræðra frá Grindavík og Benedikts Pálssonar bartskera. Ekkert er vitað um afdrif margra en á sýningunni eru frásagnir af nokkr- um, meðal annars Önnu Jasp- arsdóttur, sem auðugur Mári frá Spáni tók sér fyrir konu. Hann leysti Jaspar, föður hennar, út, svo hann gat haldið heim til Íslands, ári eftir herleiðinguna. Anna hafði það hins vegar svo gott í Alsír að hún vildi ekki snúa aftur heim. Samlandar hennar sögðu hana hafa gengið um götur Algeirsborgar í dýrindis klæð- um líkt og drottning. Aðrir voru ekki eins heppnir, til dæmis Einar Lofts- son, sem lenti í því að fremja helgi- spjöll með því að sækja vatn í brunn þar sem kristnir menn máttu ekki vera. Hann var dreginn fyrir dóm og hvattur til að kasta trú. Þegar hann neitaði var rist í andlit hans með hnífi, skorið framan af eyrum hans og af nefi, sneplarnir dregnir upp á band og settir um háls hans. Þannig var hann síðan leiddur um götur Al- geirsborgar uns hann missti meðvit- und. Nokkrum árum síðar tókst hon- um að kaupa sér frelsi og vinna fyrir sér með því að brenna brennivín og gera prjónahúfur,“ segir Ólafur. Vekur athygli Tyrkjaránssýningin var upp- haflega sett upp í árið 2004 í Fiskeri og Søfartsmuseet í Esbjerg í Dan- mörku. Þar vakti hún verðskuldaða athygli og var ári síðar sett upp í Osló. Lífi þúsunda manna sem als- írsku sjóræningjarnir rændu eru gerð ítarleg skil í máli og myndum og á vel við að setja sýninguna upp í Vestmannaeyjum, því Tyrkjaránið kom hvað harðast niður á Vest- mannaeyingum. Af þeim um 400 mönnum og konum sem rænt var á Íslandi voru 242 frá Eyjum. Ólafur segir jafnframt að sýningin í Eyjum sé algerlega ný af nálinni. „Bæði sýningartextar og hönnun er í hönd- um Sögumiðlunar ehf. sem hefur frjálsar hendur eins og efnið leyfir hverju sinni. Hins vegar er vitnað í tvær norrænar sýningar, dönsku sýninguna „Pirateer og kristne sla- ver“ og norsku sýninguna „Nordiske slaver – Afrikanske herrer“.“ Sýning um skelfingu Tyrkjaránsins á 17. öld opnuð í Vélasalnum í Vestmannaeyjum Framand- leiki og ógn Í HNOTSKURN » 380 ár eru liðin fráTyrkjaráninu á Íslandi. » 400 körlum og konum varrænt hér á landi. 242 var rænt frá Vestmannaeyjum. » Sýningin er hugsanlegavísir að Tyrkjaránssetri. Óhugnaður. Teikning af dæmigerðum þrælamarkaði með kristna menn.Hinir brottnumdu voru meðal annars fluttir til Alsírs og Túnis. LISTATÍMARITIÐ Modern Pain- ters fjallar í maíhefti sínu um Vatnasafn Roni Horn í Amts- bókasafnsbyggingunni í Stykk- ishólmi. Í langri umfjöllun Adrian Searle segir m.a. að í Reykjavík megi halda að veðrið sé „ekki rétt“. Árstíðirnar seú brenglaðar þar sem vorið komi í nóvember og fugla- söng megi heyra í febrúar. Stór hluti umfjöllunar Searle snýst um veðrið, enda hluti af verki Horn. Þá vitnar hann í veð- urfrásagnir bæjarbúa, sem eru hluti af verki Horn. Vatnasafn í Modern Painters vegna útgáfu á Sjónauka, tíma- rits um íslenska myndlist- armenn og viðburði í íslensk- um myndlistarheimi, og hins vegar LoFi Productions vegna erlendrar kynningar og dreif- ingar á Steypu, kvikmynd um íslenska myndlistarmenn. Lægri upphæðina fær Katr- ín Sigurðardóttir vegna útgáfu á skrá um listamannsferil sinn. Samanlagt eru þetta því 2,4 milljónir króna. Katrín tekur þátt í al- þjóðlegri sýningu listamanna og arkitekta í Berlín á vegum European Arts Project og Birgir Snæbjörn tekur þátt í sýningunni Painting Space and Society í Gautaborg. Bjargey fær styrk vegna ársdvalar í ISCP vinnustofunum í New York, svo nokkur verkefni séu nefnd. Í fagráðinu sitja Christian Schoen, forstöðumaður Kynn- ingarmiðstöðvarinnar, Halldór Björn Runólfsson, for- stöðumaður Listasafns Íslands og Rúrí, myndlistarmaður og fulltrúi Sambands íslenskra myndlistarmanna. FAGRÁÐ Kynningarmið- stöðvar íslenskrar myndlistar hefur tekið ákvörðun um að veita 15 myndlistarmönnum styrki vegna verkefna erlendis. 38 umsóknir bárust um styrk- ina. Fimm myndlistarmenn hlutu 200.000 króna styrk hver, en þeir eru Egill Sæbjörnsson, Guðjón Bjarnason, Olga Soffía Bergmann, Ragna Róberts- dóttir og Sigrún Ólafsdóttir. 100.000 króna styrki hljóta Kristleifur Björnsson, Birgir Snæbjörn Birgisson og Katrín Sigurðardóttir. Þá verða einnig veittir ferða- og dvalarstyrkir, 200.000 krónur hver, en slíka styrki fengu Bjargey Ólafs- dóttir og Hildur Bjarnadóttir. Lægri ferða- og dvalarstyrki hlutu tvær listakonur einnig, þær Sigríður Dóra Jóhanns- dóttir og Hildur Mar- grétardóttir. Kynningarmiðstöð veitir einnig 200 og 100 þúsund króna útgáfustyrki. Fyrr- nefnda upphæð hljóta annars vegar Anna Júlía Fríðbjörns- dóttir og Karlotta Blöndal 15 myndlistar- verkefni styrkt„Mér fannst baramjög fínt,“ sagðiHarpa, en hún fór á tónleika Sinfóníuhljóm- sveitarinnar á föstudaginn síð- astliðinn, sem voru hluti af Listahátíð í Reykjavík. Hörpu þótti hljómsveitin standa sig mjög vel. „Ég er ekki reglu- legur gestur en fer oftar en ég gerði,“ svaraði Harpa spurningu um hvort hún fari oft á Sinfón- íutónleika. Harpa sagðist aðspurð ekki hafa þekkt vel til þeirra verka sem leikin voru í gær en kunni þó vel að meta þau. Hún ætlaði að sækja fleiri við- burði á Listahátíð. „Það er í bígerð, ég er að gera það upp við mig.“ Hvernig var? Harpa Njáls Lögreglan óttaðist að Risessan myndi trufla kosningar á laugardaginn en svo fór nú ekki. En kannski varpaði hún ein- hverju ljósi á kosningarnar.     Þessi stórstíga og fremur þungeygða skessa varð að eins konar tákngervingi ríkisstjórnarinnar.     Hún byrjaði daginn á sturtu niðri við höfn rétt eins og ríkisstjórnin hefur eytt síðustu dögum og vikum í að snurfusa sig og stefnu sína fyrir kosningar og kannski má burt svörtustu blettina. En eins og hjá ríkisstjórninni var þetta ótta- legur kattarþvottur hjá Risessunni og kaldar vatnsgusurnar gengu yfir andlit okkar sem fylgdumst með.     Áður en hún lagði af stað í æv- intýragönguför um bæinn fór hún í ný föt (keisarans?) enda lá fyrir henni að hitta þann sem virtist hafa líf hennar í hendi sér, þursinn hann föður sinn sem er auðvitað holdgervingur okkar kjós- enda.     Á meðan Risessan þó af sér skítinn lá þursinn í langferðabíl, sem hafði oltið á hliðina (nema hvað), upp við Þjóðminja- safnið.     Nú, í tilefni dagsins reis þessi álkulegi og illa tilhafði þurs upp úr brakinu og hélt áleiðis niður í bæ til fundar við Ris- essuna og allt virtist stefna í mikið upp- gjör því að faðirinn var illyrmislegur á svip og sýndist eiga ýmislegt vantalað við stelpuskjátuna dóttur sína.     En Risessan lét sér hvergi bregða og kunni ljóslega á tætingslegan karlinn. Hún hafði nefnilega með sér sleikipinna og tókst þannig eftir nokkurt japl, jaml og fuður að leiða hann til fylgis við sig.     Þetta litla ævintýri endaði svo auðvit- að á því að hausinn var slitinn af heimsk- um þursinum. Risessan hafði betur MENNINGARVITINN Eftir Þröst Helgason vitinn.blog.is  Les Kunz – trúðar og töfrandi tónlist. 4. sýning hjá Leikfélagi Akureyrar kl. 20 í kvöld. Listahátíð í Reykjavík TENGLAR ................................. www.listahatid.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.