Morgunblaðið - 14.05.2007, Síða 19
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2007 19
Skattskrár
vegna álagningar 2006
sem og virðisaukaskattsskrár vegna tekjuársins 2005
verða lagðar fram í öllum skattumdæmum
mánudaginn 14. maí 2007.
Framlagning skattskráa er samkvæmt ákvæðum
2. mgr. 98. gr. laga nr. 90/2003 og 46.gr laga nr. 50/1988.
Skrárnar liggja frammi hjá skattstjórum í hverju umdæmi,
hjá umboðs mönnum skattstjóra eða á sérstaklega auglýstum stöðum
í hverju skattumdæmi dagana 14. maí til 29. maí 2007
að báðum dögum meðtöldum .
14. maí 2007
Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson.
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson.
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Guðrún Björg Bragadóttir.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra, Bogi Sigurbjörnsson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra, Gunnar Karlsson.
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Karl S. Lauritzson.
Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Hreinn Sveinsson.
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi Tómas Björnsson.
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson.
Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • fax 511 4040 • utflutningsrad@utflutningsrad.is
www.utflutningsrad.is
Borgarstjóri Reykjavíkur, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, leiðir
viðskiptasendinefndina í heimsókn sinni til Moskvuborgar.
Í ferðinni verður sérstök áhersla lögð á orkumál og hefur verið
boðað til viðskiptaþings um nýtingu endurnýjanlegrar orku
og viðskipti tengd því fimmtudaginn 5. júlí.
Nú þegar hafa leiðandi fyrirtæki staðfest þátttöku sína í sendi-
nefndinni. Fyrirtækjum í tengdum greinum er hér með boðin
þátttaka á þinginu og einnig aðstoð við skipulagningu funda
með rússneskum fyrirtækjum meðan á heimsókninni stendur.
Frestur til að skrá þátttöku í ferðina er til 15. maí.
Nánari upplýsingar veita
Þorleifur Þór Jónsson thorleifur@utflutningsrad.is
og Guðjón Svansson gudjon@utflutningsrad.is
eða í síma 511 4000.
Viðskiptasendinefnd til Moskvu
orka í brennidepli
Útflutningsráð skipuleggur nú viðskipta-
sendinefnd til Moskvu dagana 4.- 6. júlí 2007.
hagstæð að verðið á
einni dós af ákveðinni
bjórtegund næmi að-
eins sem svarar seyt-
ján íslenskum krónum.
x x x
Danmerkurmeginvoru á hinn bóg-
inn fjölmargar klám-
búllur í litlum
landamærabæ og virt-
ust þær aðallega ætl-
aðar Þjóðverjum sem
af einhverjum ástæð-
um fara til Danmerkur
til að velta sér upp úr
óþverranum.
x x x
Víkverja þótti einnig athygl-isvert að hann varð ekki var
við eina einustu verslun sem tók við
kreditkortum, hvorki í Suður-
Jótlandi né Þýskalandi. Kaup-
mennirnir telja að kreditkortafyr-
irtækin taki alltof há gjöld fyrir
kortaviðskiptin og vilja ekki hleypa
upp vöruverðinu. Hér á landi þykir
það á hinn bóginn ekkert mál að
hækka vöruverðið vegna þess að ís-
lenskir neytendur láta allt yfir sig
ganga.
Víkverji naut þess líka að fara á
veitingahús og borða góðan mat á
sanngjörnu verði – án þess að þurfa
að taka lán með kreditkorti eins og
í okursamfélaginu á Fróni.
Víkverji dagsinsdvaldi í Dan-
mörku í rúma viku í
lok síðasta mánaðar
og kynntist þá danska
vorinu í fyrsta skipti.
Hann hefur alloft
komið til Danmerkur
og þá oftast til Kaup-
mannahafnar en aldr-
ei áður ferðast um
landið að vori. Reynd-
ar má segja að sum-
arið hafi verið komið
þessa viku í lok apríl
því öll tré voru orðin
græn og hitinn var
rúm 20 stig flesta dag-
ana og allt að 25 stig.
Víkverji dvaldi í litlum bæ í Suð-
ur-Jótlandi og gekk meðal annars
yfir landamærin að Þýskalandi til
Flensborgar þar sem fólk var farið
að streyma á strendurnar til að
spóka sig í sólinni og synda í sjón-
um.
x x x
Víkverji varð lítið var við landa-mærin að öðru leyti en því að
Þýskalandsmegin voru sérstakar
landamæraverslanir ætlaðar Dön-
um sem hamstra þar ýmsan varn-
ing sem seldur er á miklu lægra
verði en tíðkast í Danmörku.
Víkverji sá oft bíla sem voru
hlaðnir bjórkössum og honum var
sagt að stórinnkaupin væru svo
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Fundist hafa glerflögur í sænskri
Ikea-síld og hefur verslunin
ákveðið að innkalla alla síld und-
ir vörumerkinu „Ikea Food", sem
hefur síðasta söludag fyrir 13.
febrúar 2008.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá Ikea í Svíþjóð eru tilfellin
orðin tvö án þess að nokkur hafi
skaðast.
Að sögn Katrínar Eyjólfs-
dóttur, þjónustustjóra Ikea á Ís-
landi, er umrædd síld ekki seld í
Ikea á Íslandi og þarf því ekki að
grípa til innköllunar hérlendis.
„Við erum hinsvegar að selja
aðra síld undir vörumerkinu
Abba-síld.
En ef minnsti grunur er um
eitthvað hættulegt í vöru frá Ikea
er vinnureglan sú að innkalla
vöruna í öryggisskyni á meðan
málið er rannsakað niður í kjöl-
inn,“ segir Katrín.
Glerflögur í Ikea-síld
Það borgar sig aldrei að sleppa
morgunsturtunni því það er eins og
maður nái ekki alveg að hrista af
sér slenið og svefndrungann til að
komast almennilega í gang fyrir
daginn. Auk þess virðist sem menn
fái allar sínar bestu hugmyndir í
sturtu á meðan vatnið fær að fossa
niður bakið því hver hefur ekki
heyrt samstarfsmann segja:
„Heyrðu, ég fékk þessa „brilljant“
hugmynd í morgunsturtunni í
morgun …“
„Það er nefnilega engin tilviljun
að morgunsturtan virkar sem orku-
gjafi á fólk og eflir bæði skilning
og örvar skapandi hugsun,“ segir
Philip Rainer, sem starfað hefur
sem sálfræðingur í New York í á
þriðja áratug og hefur mikla
reynslu af því að fást við skap-
sveiflur, geðþótta, slökunarhæfi-
leika og sköpunargáfu svo eitthvað
sé nefnt.
Örvar taugaenda í húðinni
„Orka og vinnuþrek okkar eykst
eftir því sem við upplifum meiri
ánægju í lífinu. Starfsorkan hjálpar
okkur svo aftur við að halda ár-
vekninni og góða skapinu við,“
sagði Rainer í samtali við vefmiðil
StarTribune í Minneapolis í Banda-
ríkjunum fyrir skömmu.
Að sögn sérfræðinga eru vísinda-
legar skýringar að baki þessu því
þegar fólk fer í sturtu og notalegt
vatnið rennur eftir líkamanum örv-
ar það taugaenda í húðþekjunni.
Nýlega hefur verið uppgötvað að
frumur í húðinni innihalda nátt-
úrulegt ópíumskylt efnasamband,
þekkt sem beta-endorfín, sem or-
sakar þægilega tilfinningu þegar
um það losnar í heilanum. Þetta
ferli hrindir af stað virkni, sem get-
ur leitt til frjórra hugsana, og það
kann auk þess að hjálpa að í sturt-
unni ertu yfirleitt einn og óáreittur.
„Á meðan við erum sofandi hvíl-
ist og hressist hugurinn og vinnur
úr öllum þeim upplýsingum, sem
við höfum innbyrt frá því deginum
áður,“ segir Rainer. „En á meðan
við erum í morgunsturtunni geta
bæði hugsanir og hugmyndir tekið
á sig mjög áhugaverðar myndir og
form sem undir öðrum kring-
umstæðum myndu ekki láta á sér
kræla.“
Morgunsturtan
gefur gull í mund
Morgunblaðið/ÞÖK
Fréttir á SMS