Morgunblaðið - 14.05.2007, Síða 28
28 MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Elsku systir mín
Bryndís lést hinn 26.
júlí 2006. Í dag hefði
hún orðið 50 ára.
Gott er ein með guði að
vaka,
gráta hljótt og minnast þín,
Bryndís Gyða
Jónsdóttir Ström
✝ Bryndís GyðaJónsdóttir
Ström fæddist í
Reykjavík 14. maí
1957. Hún lést á
heimili sínu 29. júlí
2006 og var útför
hennar gerð í kyrr-
þey.
þegar annar ylur dvín, –
seiða liðið líf til baka,
og láta huggast, systir
mín!
Við skulum leiðast eilífð
alla,
– aldrei sigur lífsins
dvín.
Ég sé þig, elsku systir
mín.
Gott er þreyttu höfði að
halla
að hjarta guðs – og
minnast þín.
(Jóhannes úr Kötlum)
Hjördís Ström og fjölskylda
✝ Ása Lilja Guð-brandsdóttir
fæddist á Hóli í
Hörðadal í Dala-
sýslu, 9. ágúst 1909.
Hún lézt á Drop-
laugarstöðum 6.
maí síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Margrét Teits-
dóttir frá Hóli, f. 9.
október 1883, og
Guðbrandur Gests-
son frá Tungu, f. 12.
mars 1877. Börn
þeirra auk Ásu voru
Fjóla, Kristín, Guðný og Guð-
mundur.
Kristín giftist
Franz Jezorski
klæðskera. Synir
þeirra eru Franz
húsasmíðameistari
og Guðbrandur
gullsmíðameistari.
Ása fluttist til
Reykjavíkur um tví-
tugt og bjó þar æ
síðan og starfaði við
saumaskap.
Ása verður jarð-
sungin frá Foss-
vogskapellu í dag
og hefst athöfnin klukkan 11.
Það kemur margt upp í hugann
er ættingjar og vinir úr Dölunum
kveðja.
Nú þegar Ása frá Hóli, frænka
mín, hefur lokið sinni löngu jarð-
vist, dettur mér ýmislegt í hug, því
að milli foreldra minna og Hóls-
fólksins var ævilöng vinátta.
Ég hef ekki verið orðinn hár í
loftinu, þegar þær Hólssystur fóru
til Reykjavíkur, „fóru suður“, og
er þær komu aftur í sveitina voru
mér gefnir tuttugu og fjórir tin-
dátar og kastali fyrir þá úr kross-
viði. Það þótti heldur betur
skemmtilegt, er strákar úr ná-
grenninu komu að bjóða þeim í
tindátabardaga og það var oft
gjört. Þessa tindáta gaf ég ein-
hverjum strák í sveitinni, er við
fluttum til Reykjavíkur vorið 1943,
en þá voru komnir alvöru dátar
hingað til lands. Einn þeirra var
Valdimar Björnsson frændi okkar
Ásu. Heimsótti hann ættingja sína
oft.
Það var einhverju sinni, að am-
eríski herinn hélt hátíð og bauð
með sér gestum. Valdimar bauð
Ásu frænku sinni og hún klæddist
í því tilefni skautbúningi. Þegar
Valdimar leiddi frænku sína í sal-
inn sló þögn á liðið, menn stóðu á
fætur, það fór kliður um salinn
og þeir höfðu á orði, að þarna
kæmi fjallkonan, því að bæði var
að Ása var fögur og bar búning-
inn vel.
Þær Hólssystur fóru suður og
lærðu saumaskap og var til þess
tekið hve flinkar þær voru í
höndum sem og fleiri í þeirri ætt.
Eins og ég gat um í upphafi
var vinátta milli foreldra minna
og frændfólksins á Hóli og svo
hefur haldist æ síðan. Því er það
að ég kveð Ásu frænku mína með
söknuði. Hún var stór í sniðum,
einbeitt og lét ekki hlut sinn fyrir
neinum svo sem Dalamenn
gjörðu forðum.
Það verður eyðilegra að líta yf-
ir Hörðadalinn okkar, þegar Ása
er fallin frá, einni Daladóttur er
nú færra og þeirri sem setti svip
á umhverfið.
Ég kveð Ásu frænku mína og
þakka henni fyrir tryggð við mitt
fólk og votta Guðmundi frænda,
Franz og Guðbrandi og þeirra
fólki dýpstu samúð.
Veri svo Ása frá Hóli kært
kvödd og árnað velfarnaðar á
löndum eilífðarinnar.
Halldór Ólafsson.
Ása Lilja
Guðbrandsdóttir
Litrík vinkona er
fallin frá. Öllum er
brugðið við fréttirnar
enda hafði Stína, þó veik væri, ekki
viljað láta neinn bilbug á sér finna.
Áræðin, ákveðin og óbangin var
hún fram undir það síðasta. Er ég
spjallaði við hana í síðasta sinn leit-
uðu æskuminningar sterkt á, en
það var eins og allur hennar
reynslubrunnur hefði þann tilgang
að draga einhvern lærdóm og lexíu
af og miðla öðrum. Áður en ég
kvaddi hana minnti hún mig á að
taka nú lýsi og að láta ekki mann-
inn minn afskiptan með því að vera
að vinna um helgar. Það verður
alltaf eftir vinna, sagði hún, en frí-
tímann sem þú nýtir ekki með
maka þínum færðu ekki aftur.
Ég kynntist Kristínu í mennta-
skóla og hún var fljótt miðdepillinn
og orkuboltinn í vinkvennahópnum.
Í henni bjó mikill gáski og kímni,
sem fór fullkomlega saman við það
hversu jafnframt alvörugefin og
einbeitt hún var í öllu sem hún tók
sér fyrir hendur. Fjögurra vikna
ferðalag um Evrópu, sem við lögð-
um í nokkrar vinkonurnar, hristi
okkur svo enn frekar saman, áður
en við héldum hver sína leið út í líf-
ið. Kristín var hinn fullkomni ferða-
félagi, sveigjanleg, úrræðagóð og
alltaf fyrst til að sjá skondnu hlið-
arnar á óhöppum okkar og ævin-
týrum.
Ég hélt til Frakklands í nám, og
Kristín hélt gangandi bréfaskrift-
um við mig af miklu trygglyndi,
reit mér heilu bunkana af bréfum,
því í þá daga voru bréf skrifuð á al-
vöru pappírsbréf. En ekki bara
það, heldur var hún áfram fasta-
gestur á bernskuheimili mínu, leit
til með fjölskyldu minni, spurði
frétta og jafnvel klappaði köttunum
fyrir mig í fjarveru minni. Svo fékk
ég skýrslu. Og allir tóku auðvitað
ástfóstri við þessa einstöku vin-
konu mína.
Síðastliðin tuttugu ár höfum við
búið sín í hvoru landinu. Einhvern
veginn tókst henni samt alltaf að
halda opinni líflínu á milli okkar. Í
þau skipti sem við náðum saman
var líka alltaf eins og við hefðum
síðast hist í gær. Kristín var mikið
náttúrubarn. Þannig tókst mér
aldrei að draga hana með mér á
kaffihús, henni fannst kaffihús,
held ég, mikill óþarfi. Að sitja á
hnjánum saman í berjalaut inni í
Keldudal í norðangarra og tína ber,
það var hins vegar allt annað mál.
Nýlega flutti ég mig yfir til Am-
eríku eins og hún gerði fyrir mörg-
um árum. Í og með bar ég þá von í
brjósti að nú myndi ég kannski fá
tækifæri til að sjá meira af henni,
jafnvel þó svo enn væru langar
vegalengdir á milli okkar. Ég trúi
Kristín Guðjónsdóttir
✝ Kristín Guðjóns-dóttir fæddist í
Reykjavík 17. júní
1966. Hún andaðist
á heimili sínu í Cha-
pel Hill í Norður-
Karólínu í Banda-
ríkjunum 21. apríl
síðastliðinn og var
útför hennar gerð
frá Kópavogskirkju
3. maí.
því hins vegar að við
eigum eftir að finna
fyrir nærveru hennar
áfram. Innilegar sam-
úðarkveðjur sendi ég
Davíð, Steina, Völu
og Atla og foreldrum
Kristínar, Bergþóru
og Guðjóni.
Fjóla Rún
Björnsdóttir.
Kær vinkona dótt-
ur minnar og mín hef-
ur kvatt þennan
heim. Hennar er sárt saknað.
Enginn sem kynntist Stínu fór
samur af fundi hennar. Hún var
gersemi. Smávaxin, fínleg og fal-
leg, yzt sem innst. Hún hafði áhrif á
allt og alla í kringum sig. Allt varð
einhvern veginn betra og fallegra
þar sem hún fór. Hún tókst á við líf-
ið af djörfung og dug og skilur eftir
sig meira en margur á lengri ævi.
Veturinn áður en hún hélt til
Bandaríkjanna til fundar við eig-
inmann sinn og til að stunda þar
nám kom hún tíðum heim til mín og
fyllti tómarúm sem dóttir mín hafði
skilið eftir sig þegar hún fór til
Frakklands í nám. Það voru góðar
stundir.
Ég man líka unaðsstund með
henni og gullmolunum hennar við
berjatínslu inni í Keldudal í Arn-
arfirði og kvöldstund á Ísafirði í
ágúst í fyrra. Ógleymanlegar
stundir. Ég varðveiti allar ljúfu
stundirnar með Stínu í hjarta mér.
Ástvinir allir, einlægar samúðar-
kveðjur.
Ýrr Bertelsdóttir.
Það fyrsta sem kemur upp í huga
mínum er smávaxin, nett, dökk-
hærð og feimin stelpa sem var allt-
af viðstödd en tranaði sér aldrei
fram. Kristín var er ein sú sterk-
asta og flottasta persóna sem ég
hef nokkurn tímann þekkt. Henni
fannst hún eiga eftir að gera svo
margt sem er svo líkt henni þar
sem hún hugsaði oftast um aðra
fyrstn svo sjálfa sig.
Ég vil kveðja hana með þessu
broti:
Hvert örstutt spor var
auðnuspor með þér,
– hvert andartak er tafðir þú hjá mér
var sólskinsstund og sæludraumur hár,
minn sáttmáli við Guð um þúsund ár.
(Halldór Kiljan Laxnes)
Samúðarkveðjur til ykkar Davíð,
Steini, Vala, Atli, Begga og Guðjón.
Hróðný María, Sverrir, Arnór
Smári, Björg, Sigvarður Ari og
Eðna Hallfríður.
Nú geng ég að gröfinni þinni
og grátur í huganum býr.
Samt er í minningu minni
myndin þín eilíf og skýr.
Þín orka var einstæð í öllu
í atorku, dirfsku og móð.
Þú bjargaðir blómskrúð á völlu
og bjástraðir við þau svo góð.
Er sólgeislar glitruðu á grundu
þú gekkst út í morguninn ein.
Þú vannst þar með leikandi lundu
og lyftir við sérhverjum stein.
Þú ein sást á steininum standa
stefnu að einhverri mynd.
Hugsun þín varð ei til vanda
þú virtir þá hagsmuna lind.
Þú lést ekki græsku þér granda
en gekkst um svo einlæg og hljóð.
Þú vissir, ef værirðu í vanda
að verkin þín ynnirðu hljóð.
Löng var sú stund oft að líða,
þú lífinu fléttaðir krans.
Þó oft væri stutt milli stríða
þú stefndir til eilífðar lands.
Kristín mín!
Ég vil þakka þér fyrir allt það
góða sem þú gafst mér á þessari
stuttu viðkynningu sem ég hafði við
þig. Þær gleymast seint þær fáu
stundir sem við áttum hér saman.
Ég var búin að hlakka svo mikið til
garðvinnslu með þér í sumar í þín-
um garði en svo fór sem fór. Nú
stundar þú þína garðvinnslu í þín-
um nýju heimkynnum, þar hittumst
við aftur. Megi guð liðsinna manni
þínum, börnum þínum, tengdafor-
eldrum og foreldrum þínum, ásamt
öllu frændfólki á ókomnum tímum.
Þín frænka,
Kristjana Sigríður Vagnsdóttir.
Ég kynntist Kristínu Guðjóns-
dóttur, Stínu eins og ég þekkti
hana, fyrst í gegnum vin minn og
kollega Davíð Aðalsteinsson, þegar
við vorum saman í stærðfræðinámi
við HÍ. En það var samt ekki fyrr
en við Davíð vorum saman að berj-
ast í okkar doktorsnámi í Berkeley
í Kaliforníu að ég kynntist Stínu
fyrir alvöru. Hún var þá að hefja
sinn litríka listamannsferil. Stína
bjó til frumleg og stór listaverk.
Stór í orðsins fyllstu merkingu. Það
kom ósjaldan fyrir að við Davíð of-
gerðum okkur við að flytja þessi
stóru listaverk milli staða og vorum
við þó báðir í góðu líkamlegu formi.
Verk Stínu voru öll steypt úr stáli,
gleri, kopari og leir, allt heilt í
gegn. Núna seinna meir átta ég
mig á að mörg þessara verka eru
einkar falleg og falla vel inn í nátt-
úruumhverfi, en á þeim tíma, þegar
við Davíð vorum að „hjálpa til“ við
að flytja verkin, hugsaði ég aðeins
um stærð þeirra og þyngd. (Sjá:
http://www.art.net/~stina/.) Stína
og Davíð voru áfram í Kaliforníu
nokkur ár áður en þau fluttu til
Norður-Karólínu, þar sem þau hafa
búið síðan. Ég fór hins vegar heim
til Íslands um tíma en kom síðan
aftur til Bandaríkjanna, og þá til
Virginíu, skammt norðan við Norð-
ur-Karólínu.
Ég man vel eftir því þegar við
unnusta mín heimsóttum Stínu og
Davíð eina þakkargjörðarhelgi fyr-
ir örfáum árum. Þau voru þá orðin
ráðsett fjölskylda, með tvö falleg
og heilbrigð börn, Steina og Völu,
og það þriðja á leiðinni að mig
minnir. Það var ekki svo löngu eftir
að Atli, þriðja barnið, fæddist að ég
frétti af meini Stínu. Ég hugsaði
ekki mikið um það þá, og „vissi“
með sjálfum mér að allt mundi
lagast og batna, slíkur var kraft-
urinn í Stínu. En, því miður, krabb-
inn náði yfirhendinni, hægt og bít-
andi. Mér þótti einkar vænt um að
fá alla fjölskylduna í heimsókn til
mín í Manassas, eina helgi í janúar
síðastliðnum, og kviknaði þá sú von
að þetta gæti orðið fastur liður hjá
okkur, að við skiptumst svona
reglulega á heimsóknum með
styttra millibili en fram að þessu.
Það var mikið fjör og hamagangur
hjá ungum sem eldri heima hjá mér
þessa helgi, og andinn var einstak-
lega góður, þó svo að ljóst væri að
Stína væri ekki frísk. Stína sagði
mér þá að þetta væri sérstaklega
erfitt fyrir þann elsta, Steina.
Ég skal játa, að það er að hluta
til af eigingjörnum ástæðum að ég
tek þungt inn á mig brottför Stínu.
Ég vissi alltaf að þetta væri löng og
erfið barátta, en samt vonaðist ég
alltaf til þess að Stína gæti tekið
þátt í þessum reglulegu heimsókn-
um, þau til mín í Virginíu eða við til
þeirra í Norður-Karólínu. Þetta
kom alltof fljótt fannst mér. Mér
fannst þetta óréttlátt og ég reiddist
við fréttirnar. Þannig stóð líka á að
ég var passlega viðkvæmur fyrir,
út af því að kexruglaður vesalingur
hafði skotið til bana 32 nemendur
og prófessora í Virginia Tech-há-
skólanum í næsta nágrenni við mig,
en ég þekki marga kollega í stærð-
fræðideildinni þar. Ég var því ekki
vel undirbúinn að heyra þessar
leiðinlegu fréttir um fráfall Stínu
og tók þessu mjög illa. Hvað sem
öðru líður, þá gengur lífið sinn
gang og nú er bara að njóta þess
sem Stína hefur lagt eftir sig. Mörg
stór og falleg listaverk, þrjú heil-
brigð og fjörug börn og margar
góðar og skemmtilegar minningar.
Sem arfleifð er jú þetta bara nokk-
uð gott.
Ég sendi Davíð og börnunum,
Steina, Völu og Atla litla, svo og
fjölskyldu Stínu og tengdafjöl-
skyldu samúðarkveðjur mínar.
Geir Agnarsson, Manassas,
Virginíu
Lokað
verður þriðjudaginn 15. maí vegna jarðarfarar HARÐAR
SÆVALDSSONAR.
Tannlæknastofan,
Tjarnargötu 16,
Reykjavík.
Blómabúð
MICHELSEN
ÞÚ VELUR AÐEINS ÞAÐ
BESTA Í GLEÐI OG SORG
44 ÁRA
STARFSREYNSLA Í
ÚTFARARSKREYTINGUM
MICHELSEN
HÓLAGARÐI
SÍMI 557 3460
Samúðar og
útfaraskreytingar
Bæjarhrauni 2 • sími 565 0300
Hafnarfirði