Morgunblaðið - 14.05.2007, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2007 29
✝ Guðlaug HuldaValdimarsdóttir
fæddist á Fagra-
bakka í Ólafsvík 7.
desember 1923.
Hún lést á Hrafn-
istu við Kleppsveg
21. apríl síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru Anna
Hansína Gunnlaugs-
dóttir, f. í Ólafsvík
1. júlí 1895 og
Valdimar Guð-
laugsson, f. 18. jan-
úar 1899. Systkini
Guðlaugar Huldu samfeðra voru
Þuríður, Stella, Gunnar, Karl og
Erlendur.
Börn Guðlaugar Huldu frá
fyrra sambandi eru Eysteinn
Hreiðar, f. 4. júlí 1944, maki Lauf-
ey Jónsdóttir, f. 21. júní 1950,
Anna María, f. 19. mars 1946, og
Esther Helga, f. 4. júlí 1947.
Guðlaug Hulda giftist 1. desem-
ber 1964 Reyni Breiðfjörð Vigfús-
syni sjómanni í Flatey og síðar af-
greiðslumanni í Reykjavík, f. 16.
febrúar 1926, d. 9. júlí 1985. For-
eldrar hans voru Ingibjörg Ein-
arsdóttir, f. 24. júní 1889, og Vig-
fús Sigurbjörn Stefánsson, f. 21.
maí 1890. Dætur Guðlaugar
Huldu og Reynis eru Bára, f. 19.
nóvember 1949,
maki Smári Ein-
arsson, f. 20. októ-
ber 1950, og Þór-
unn Ingibjörg, f. 22.
desember 1951,
maki Gísli Magn-
ússon, f. 14. nóv-
ember 1948. Barna-
börn Guðlaugar
Huldu eru 20 og
barnabarnabörnin
eru á þriðja tug.
Guðlaug Hulda
ólst upp í Ólafsvík
til 18 ára aldurs en
flutti þá til Reykjavíkur þar sem
hún sinnti ýmsum störfum. Guð-
laug Hulda og Reynir fluttust til
Flateyjar á Breiðafirði og bjuggu
þar til ársins 1965. Þau fluttu þá
aftur til Reykjavíkur þar sem þau
bjuggu síðast á Bergþórugötunni.
Hulda hugsaði vel um fólkið sitt
sem húsmóðir og var mikil hann-
yrðakona sem saumaði, prjónaði
og heklaði. Hún var skapgóð
kona sem hafði gaman af lestri
góðra bóka og ferðalögum innan-
lands sem utan. Hún flutti á
Hrafnistu við Kleppsveg árið
1998 og bjó þar til dauðadags.
Útför Guðlaugar Huldu var
gerð frá Grafarvogskirkju 2. maí,
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Elsku mamma, til þín:
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(Valdimar Briem)
Þín dóttir
Bára
Kveðja til elsku móður minnar,
hafðu þökk fyrir allt.
Er lít ég yfir liðin ár
mér ljóst í hjarta skín,
þú þerraðir móðir trega tár
og traust var höndin þín.
Þú gafst mér allt, sem áttir þú
af ástúð, von og trú.
Og því er nafn þitt móðir mín
í mínum huga nú.
Þú leiddir mig, sem lítið barn
og léttir hverja þraut.
Við blómskreytt tún og hrímhvítt hjarn
ég hjá þér ástar naut.
Nú þegar lífs þíns lokast brá
frá langri ævi stund.
Er gott að hvílast Guði hjá
og ganga á Drottins fund.
(Einar Steinþórsson.)
Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tár-
um, hugsið ekki um dauðann með harmi
eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt tár
ykkar snertir mig og kvelur, þótt látinn
mig haldið.
En þegar þið hlæið og syngið með glöðum
hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins.
Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið
gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði
ykkar yfir lífinu.
(Kahlil Gibran.)
Þín dóttir,
Þórunn Ingibjörg Reynisdóttir.
Hulda amma fann loks friðinn.
Hulda amma var í raun ekki amma
mín heldur amma konu minnar en
hún var mér jafngóð og mín eigin
amma. Mig langar til að skrifa nokk-
ur orð til þín og þakka þér fyrir árin
10 sem ég þekkti þig. Við gerðum
margt saman, til dæmis fórum við
saman í ferðalög, ísrúnta sem og á
kaffihús. Minnist ég þess þegar við
fórum út að keyra um helgi og fórum
að fá okkur ís. Þú varst alltaf búin
með ísinn fyrst af öllum því þér
fannst hann svo góður. Það var mjög
gaman þegar við vorum tvær vikur í
Portúgal í sólinni og það heyrðist
alltaf í þér púff, púff það er svo heitt
en gott og þér leið svo vel þar. Við
fórum einnig saman til London og ég
rúllaði þér um allt í hjólastól og þér
þótti það ekki leiðinlegt því við fór-
um svo víða um í London. Við fórum
til dæmis á vaxmyndasafnið og einn-
ig í tívolíið og fórst þú með í parísar-
hjólið. Ég man alltaf hvað þú varst
ánægð með allt sem við gerðum öll
saman því þú talaðir lengi um það á
eftir.
Hann Guð hann mun þess gæta,
þú getir sofið rótt,
hann lætur ljóssins engla,
lýsa þér um nótt.
(Kristján Hreinsson)
Elsku Hulda, þú munt alltaf vera í
huga okkar. Ég vil enda þetta á að
senda öllum í fjölskyldunni innilegar
samúðarkveðjur. Blessuð sé minning
Huldu ömmu.
Bjarki Þór Arnarson
Elsku amma mín, nú ertu búin að
kveðja þessa jarðvist, sem oft á tíð-
um reyndist þér þungbær og gleði-
leg í senn. Þú vildir öllum svo vel í
kringum þig og gafst af þér af heilum
hug. Það sem lýsir þér best er að ég
átti alltaf mitt skjól hjá þér á Berg-
þórugötunni. Þú áttir alltaf svörin
þegar ég spurði um tilgang lífsins og
alltaf leið mér vel þegar ég sat við
hliðina á þér þegar þú varst að
prjóna eða hekla og gafst mér styrk.
Þú sagðir svo oft að það væri í lagi að
gráta, það væri jafnteðlilegt og að
hlæja.
Mér er svo minnisstætt að það
voru ófáar ferðirnar sem ég labbaði
með þér upp á Skólavörðustíg, því
þegar ég spurði hvert þú værir að
skreppa, þá sagðir þú gjarnan að þú
værir að fara upp á Skólavörðustíg
og ég, sveitastelpan, hélt að það væri
vinsælasta gatan í Reykjavík.
Það var oft skondið sem veltist
upp úr þér, sem yljar mér núna um
hjartarætur og ég ætla seinna að
rifja upp með mínum dætrum. Mér
finnst svo aðdáunarvert af þér þá að
leyfa mér að búa hjá þér, því það er
ekkert sjálfgefið að leyfa unglingi,
eins og ég var þá, að búa inni á sér,
en ég reyndi eftir bestu getu að
hjálpa þér, sem ég sé núna á seinni
árum að ég hefði getað gert betur.
En mér þykir vænt um það að við
bjuggum saman allt fram á síðasta
dag þegar þú fluttir á Hrafnistu í
Reykjavík. Ég hugsa oft um það þeg-
ar við vorum að kveðjast, þegar þú
sagðir: Jæja elskan, nú skilja leiðir
okkar, og faðmaðir mig. Ég var þá
næstum farin að gráta, ég vissi ekki
þá hvernig þér leið en ábyggilega
leið þér ekkert vel í hjarta þínu en ég
samgleðst þér svo innilega að vera
búin að kveðja okkur. Það er ekkert
líf að lifa í heimi Alzheimerssjúk-
dóms eins og þú lifðir síðustu árin.
Það er næstum að ég brosi að vita til
þess að þú og afi eruð ábyggilega
núna að dansa tangó.
En núna ert þú svo sannarlega
komin heim – þá vil ég segja: Gangi
þér vel, elsku amma mín, ég elska
þig og takk fyrir að elska mig.
Svo skrýtin tilfinning sem um mig
fer,
nú farin ert frá mér nýjan veg.
Hann tekur á móti þér hinum
megin við,
veginn mun vísa þér, þér við hlið.
Í annan heim hann fylgir þér
á vængjum tveim vísar þér.
Það eitt mun ylja mér að vita af
þér
fylgja mér hvert sem er í hjarta
mér.
láttu mig vita ef ég get hjálpað
þér,
og vil þá sendu mér hvar sem er.
Í annan heim hann fylgir þér
á vængjum tveim vísar þér
(Birgitta Haukdal)
Þín elskandi
Berglind Bára
Elsku Hulda amma mín, nú ertu
farin á góðan stað og ég veit að þú
ert hjá mér því þú ert í hjarta mínu.
Ég er svo þakklát fyrir þær fáu
stundir sem ég fékk að kynnast þér
og fyrir það, að hafa fengið að eiga
Helgu ömmu líka. Ég veit að það hef-
ur verið erfitt að láta mömmu frá sér
en þetta voru svo erfiðir tímar þá.
Amma mín, mér þykir vænt um
þig.
Elsku fjölskylda, ég votta mína
samúð og megi Guð vera með okkur
öllum.
Helga.
Elsku amma mín,
nú ertu komin á betri stað, hefur
hitt hann afa og saman dansið þið í
takt við tónlistina ykkar. Ég sá ykk-
ur fyrir mér dansa út úr kirkjunni
þegar kistan var borin út og lagið
„Við eigum samleið“ hljómaði svo
fallega á meðan. Það gleður mig mik-
ið að þú hafir fengið hvíldina þína
sem þú áttir svo mikið skilið.
Ég er rosalega ánægð að hafa
þekkt þig og fengið að umgangast
þig því þú gafst svo mikið af þér. Þú
varst svo mikil handverkskona, öll
þín handavinna var unnin af svo mik-
illi vandvirkni. Sokkarnir sem þú
prjónaðir fyrst fyrir Önnu systur og
svo mig, voru mikið notaðir enda
vöktu þeir mikla athygli. Ég óska
þess oft að fá hlut af þolinmæðinni og
góðseminni sem þú hafðir og sýndir
öllum, það er ekki amalegur kostur.
Manstu þegar afi var alltaf að
hrekkja þig? Þá sagðir þú á þinn ró-
lega og yfirvega hátt „hættu þessu
nú Reynir“. Það hlógu allir að þess-
um uppátækjum hans og meira að
segja þú sjálf, en ég vorkenndi þér
svo, því ég hefði örugglega misst þol-
inmæðina við fyrsta hrekkinn. Þetta
sýnir hvað þú áttir mikla þolinmæði.
Þegar ég var lítil gengum við
mamma oft með þér niður á Lauga-
veg. Þó ég hafi haft litla þolinmæði í
búðunum situr þessi minning svo
fast í huga mér og ég sakna þess að
geta ekki farið niður Laugarveginn
með þér.
Ég kom oft á Bergþórugötuna til
þín og þá sérstaklega oft þegar ég
stundaði nám við Iðnskólann í
Reykjavík. Það var alltaf svo gott að
koma í heimsókn og vel tekið á móti
manni. Ég kom svo oft á sama tíma
og þá sast þú iðulega á sama stað í
sófanum þínum, hlustaðir á „Hvíta
Máva“ á Rás 2 í útvarpinu, prjónaðir
og trallaðir með lögunum sem þér
þóttu góð. Þeir voru ófáir bíltúrarnir
sem við fórum. Yfirleitt fórum við nú
í ísbúð í leiðinni og þú slóst öll met í
því hversu hratt væri hægt að borða
ís, þér þótti hann svo góður, þú slóst
meira að segja honum Bjarka mínum
við og þá er nú mikið sagt. Við fórum
líka í nokkrar utanlandsferðir með
þér amma mín, það var ofsalega
gaman hjá okkur og við skemmtum
okkur vel. Þar sem sjúkdómurinn
þinn var farinn að taka sinn toll af
þér létum við það ekki stoppa okkur,
þú leyfðir okkur bara að rúlla þér um
í hjólastól svo þú kæmist ferða
þinna. Þetta var ómetanlegur tími
með þér.
Elsku amma, mér þykir leiðinlegt
að litla Emilía Líf mín hafi ekki feng-
ið að kynnast þér eins vel og ég hefði
kosið og mér þykir leiðinlegt að sjúk-
dómur þinn hefur tekið þig smám
saman frá okkur, alltaf sá ég þig þó
bregðast við á sérstakan hátt þegar
ég birtist í heimsókn með litlu döm-
una. Það var eins og þið skilduð hvor
aðra mjög vel.
Ég er þakklát fyrir að hafa fengið
að vera hjá þér þegar þú lagðir upp í
stóra ferðalagið þitt og samgleðst
innilega yfir því að þú sért komin á
leiðarenda.
Mig langar að enda þessi orð á
kvæði sem þú fórst svo oft með og
minnir mig alltaf á þig. Takk fyrir
allt elsku amma og hvíldu í friði.
Blessuð sólin elskar allt,
allt með kossi vekur,
haginn grænn og hjarnið kalt
hennar ástum tekur.
Geislar hennar út um allt
eitt og sama skrifa
á hagann grænan, hjarnið kalt.
„Himneskt er að lifa!“
(Hannes Hafstein)
Þín dótturdóttir,
Ingveldur Gísladóttir
Guðlaug Hulda
Valdimarsdóttir
Elsku Hulda amma, nú
ertu farin á góðan stað og ég
veit að þú ert hjá mér því þú
ert í hjarta mínu. Ég er svo
þakklát fyrir þær fáu stundir
sem ég fékk til að kynnast
þér og fyrir það, að hafa
fengið að eiga Helgu ömmu
líka. Ég veit að það hefur
verið erfitt að láta mömmu
frá sér en þetta voru svo erf-
iðir tíma þá.
Amma mín mér þykir
vænt um þig.
Elsku fjölskylda, ég votta
mína samúð og megi Guð
vera með okkur öllum.
Helga.
HINSTA KVEÐJA
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
HÖRÐUR SÆVALDSSON
tannlæknir,
Sefgörðum 10,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn
15. maí kl. 13.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast Harðar er bent
á reikning 0372-13-110667, kt. 080657-5959, sem stofnaður hefur verið í
minningu hans. Það fé sem safnast verður sett í minningarsjóð og notað
til að efla þekkingu á sviði tannverndar og tannlækninga á Íslandi.
Ragnheiður Marteinsdóttir,
Helga Harðardóttir, Sturla Jónsson,
Hildur Harðardóttir, Óskar Einarsson,
Friðrika Þóra Harðardóttir, Friðbjörn Sigurðsson,
Hjördís Edda Harðardóttir, Arnór Halldórsson,
Ragnheiður Harðar Harðardóttir, Lýður Þorgeirsson,
Sævaldur Hörður Harðarson, Dagný Lind Jakobsdóttir,
Hörður Harðarson,
Sigríður Marta Harðardóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
MAGNÚS JÓNASSON
skipasmíðameistari,
hjúkrunarheimilinu Eir,
áður Hlíðargerði 5,
sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn
6. maí, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju
miðvikudaginn 16. maí kl. 13.00.
Óskar Magnússon, Kristín Eggertsdóttir,
Jónas Magnússon, Nanna Ólafsdóttir,
Guðrún Magnúsdóttir, Sigtryggur Jónsson,
Edda Magnúsdóttir, Guðmundur Björnsson,
afabörn og langafabörn.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari upp-
lýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er ekki
unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
Minningargreinar