Morgunblaðið - 14.05.2007, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 14.05.2007, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2007 33 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin kl. 9-16.30. Botsía kl. 10. Listmuna- og handverkssýningin opin kl. 13-17, ath. síðasti sýningardagur. Árskógar 4 | Bað kl. 8-16. Handav. kl. 9-12, smíði/útskurður kl. 9-16.30. Söngstund kl. 10.30, Félagsvist kl. 13.30. Myndlist kl. 16. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, morgunkaffi, dagblöð, búta- saumur, fótaaðgerð, samverustund, hádegisverður, bútasaumur, kaffi. Uppl. í s. 535 2760. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Kaffitár kl. 13.30. Dans- kennsla Sigvalda, línudans kl. 18. Samkvæmisdans, byrjendur kl. 19 og framhald kl. 20. Félagsheimilið Gjábakki | Handa- vinna kl. 9, leiðbeinandi verður við til hádegis. Gler- og postulínsmálun kl. 9.30 og kl. 13. Lomber kl. 13. Canasta kl. 13.15. Skapandi skrif kl. 20. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 9.05 postulínsmálun, kl. 10 ganga, kl. 11.40 hádegisverður, kl. 13 handa- vinna og brids (tvímenningur), kl. 20.30 félagsvist FEBK. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Kvennaleikfimi kl. 9, 9.50 og 10.45 í Kirkjuhvoli, vatnsleikfimi kl. 12 í Mýri. Bíó í Garðabergi kl. 13, opið til kl. 16.30. Tekið á móti skráningu í ferð eldri borgara Garða- og Bessa- Vesturgata 7 | Mánudagur: kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9.15- 15.30 handavinna. Kl. 9-10 botsía. Kl. 11-12 leikfimi. Kl. 11.45-12.45 hádeg- isverður. Kl. 14.30-15.45 kaffiveit- ingar. Þórðarsveigur 3 | Kl. 13 opinn sal- urinn. Kl. 13.15 leikfimi. Kl. 14 boccia. Kirkjustarf Áskirkja | Morgunsöngur kl. 9.30 á Dalbraut 27 og Göngum til góðs kl. 10.30 frá Dalbraut 27 í umsjá djákna Áskirkju. Fríkirkjan Kefas | Ísraelskvöld kl. 20. Flutt verður tónlist í anda Ísraels og hr. Jan Rosenberg mun kynna hjálp- arstarf Keren Hayesod sem vinnur að því að hjálpa Gyðingum alls staðar að úr heiminum að flytja til Ísrael. Á eftir verður samvera og eitthvert góðgæti á boðstólum. Allir velkomnir. Hjálpræðisherinn á Akureyri | Síð- asti heimilasambandsfundurinn fyrir sumarið verður í dag kl. 15. Allar kon- ur velkomnar. Vídalínskirkja, Garðasókn | Hin ár- lega ferð Garða- og Bessastaðasókn- ar á uppstigningardag 17. maí. Farið verður um Skeið og Gaulverjabæ. Lagt af stað kl. 10 frá Vídalínskirkju, heimkoma um kl. 17.30. Skráning í síma: 565 6380 í dag. Bíll ekur um Hleinarnar kl. 9.40. Leiðsögum. Guð- björn Gunnarss. og Halldór S. Magn- úss. Verið velkomin. staðasóknar á uppstigningardag í Kirkjuhvoli. S. 565 6380 og Garða- bergi s. 820 8565. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9-16.30 vinnustofur opnar. Spilasalur opinn frá hádegi. Kl. 14.20 kóræfing. Kl. 16.30 vortónfundur gítarnemenda Tónskóla Sigursveins D. Kristins., um- sj. Símon H. Ívarsson. Allir velkomnir. S. 575 7720. Strætisvagnar S4, 12 og 17 stansa við Gerðuberg. Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 9, aðst. við böðun, bókband. Kl. 13.15 létt leikfimi og sagan kl. 14. Kaffiveit- ingar kl. 15. Allir velkomnir. Hraunbær 105 | Kl. 9-16.30 handa- vinna. Kl. 10-10.30 bænastund. Kl. 12- 12.30 hádegismatur. Kl. 15 kaffi. Hraunsel | Moggi rabb og kaffi kl. 9. Ganga kl. 10. Pútt kl. 10. Gaflarakórinn kl. 10. Glerbræðsla kl. 13. Félagsvist kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl. 9-16, kortagerð og prjónaðar handstúkur. Jóga kl. 9-11, Sóley Erla. Frjáls spilamennska kl. 13-16. Fótaað- gerðir s. 588 2320. Korpúlfar, Grafarvogi | Á morgun þriðjudag er sundleikfimi í Graf- arvogssundlaug kl. 9.30. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Iðju- stofa, málun, leirmótun, postulíns- málun o.fl. kl. 9-12 Handverks- og bókastofa kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30. Söng- og samverustund, nánar auglýst á töflu í anddyri, kl. 15. 20ára afmæli. Ídag 14. maí er tvítugur Friðjón F. Helgason. Elsku Frissi okkar, til hamingju með daginn. Og í tilefni þess mun hann borða mömmumat um kvöldið hjá mömmu og pabba. MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynn- ingar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostn- aðarlausu. Tilkynningar þurfa að ber- ast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynningum og/ eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádeg- ismóum 2 110 Reykjavík. dagbók Í dag er mánudagur 14. maí, 134. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Daníel tók til máls og sagði: „Lofað verði nafn Guðs frá eilífð til eilífðar, því hans er viskan og mátturinn.“ (Daníel 2, 20.) Rosemarie Garland-Thomson flytur á morgun,þriðjudag, fyrirlesturinnÓvenjulegir líkamar: Ímyndir fatlaðra í bókmenntum list- um og dægurmenningu. Fyrirlest- urinn er haldinn í Norræna húsinu á vegum Rannsóknaseturs í fötl- unarfræðum við Háskóla Íslands og frá kl. 15 til 17. „Á síðasta áratug hafa fötl- unarfræði þróast á vettvangi hins bandaríska fræðasamfélags í metn- aðarfullt þverfaglegt rannsóknarsvið sem bræðir saman menningarlegar, félagslegar og heilbrigðisgreinar og skoðar fötlun sem víðtækt mannlegt ástand og upplifun. Að rannsaka fötl- un sem hluta af fjölbreytileika sam- félagsins, með hliðsjón af mannrétt- indum og menningarlegum áskorunum getur haft stórvægileg áhrif til framdráttar markmiðum lýð- ræðis um jafnrétti og þátttöku,“ segir Rosemarie sem er prófessor við Emory University í Atlanta. „Undanfarin 30 ár hafa mannrétt- indahreyfingar í Bandaríkjunum bar- ist fyrir menningarlegri fjölbreytni og réttindum minnihlutahópa. Á þessu tímabil hafa tekið gildi lög sem ætlað er að stuðla að félagslegu rétt- læti og koma í veg fyrir mimsunun,“ segir Rosemarie. „Þessum breyt- ingum hafa fylgt nýjar leiðir til að skoða og túlka birtingarmyndir fötl- unar í dægurmenningu. Fatlaðir ein- staklingar hafa stigið fram í sviðs- ljósið og tekið virkari þátt í samfélagi sem er aðgengilegra, jákvæðara og fylgir lögum sem tryggja rétt allra til þátttöku.“ Í fyrirlestri sínum skoðar Rosem- ary hvernig fötlun birtist í dæg- urmenningu: „Ég byrja á dæmum frá þeim tíma þegar fatlaðir byrja að verða sýnilegir opinberlega. Við sjáum eldri birtingarmyndir af fötl- uðum sem furðugripum og skjólstæð- ingum góðgerðarstarfs og skoðum dæmi um hvernig ímynd fötlunar þróast í listum frá hefðbundnum list- um til dagsins í dag.“ Fyrirlestur Rosemary er sá síðasti í fyrirlestraröð Fötlunarfræðaseturs í vor. Fyrirlestraröðin er hluti af menningarhátíð fatlaðra en að fyr- irlestrinum loknum verður boðið upp á léttar veitingar í sýningarsal Nor- ræna hússins þar sem stendur yfir sýning á vegum hátíðarinnar List án landamæra 2007. Nánari upplýsingar um Fötl- unarfræðasetur eru á slóðinni www.fotlunarfraedi.hi.is. Heimasíða Listar án landamæra er www.list- anlandamaera.blog.is. Fötlunarfræði | Fyrirlestur og listasýning í Norræna húsinu Ímyndir fatlaðra í listum  Rosemarie Garland- Thomson hlaut doktorsgráðu í enskum og am- erískum bók- menntum frá Brandeis Uni- versity í Massachusetts. Hún hefur stundað rannsóknir á sviðum kynjafræði, amerískra bók- mennta og fötlunarfræða. Hún kenndi við Howard University í Washington D.C. áður en hún tók við stöðu professors og umsjón- armanns framhaldsnáms við kynja- fræðideild Emory University í Atl- anta. Tónlist Salurinn, Kópavogi | Píanótónleikar Vík- ings Hreiðars Ólafssonar kl. 20 í kvöld. Á efnisskránni er verk eftir J.S. Bach og F. Chopin, auk hinnar stórbrotnu Appassio- nata-sónötu eftir Beethoven. Þá frum- flytur Víkingur píanósvítu eftir föður sinn Ólaf Óskar Axelsson. Miðaverð: 2000/ 1600 kr. í s: 570-0400 og á salurinn.is. Skartgripir Fjallkonunnar Reynomatic Café Mílanó -hágæðaheimilistæki Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Baldursnes 6, Akureyri Sími 588 0200 - www.eirvik.is Aðrir söluaðilar: Kokka, Laugavegi, Egg, Smáratorgi og Líf og list, Smáralind Törfa tæki Magimix matvinnsluvélin er óvenjulega stílhreint, kraft- mikið og endingargott töfra- tæki fyrir alla þá sem kunna að meta gæði og góðan mat. Vélin er sérstaklega auðveld í notkun og hárbeittir stálhníf- ar tryggja fullkominn skurð. Verð frá: kr. 21.500 stgr. Magimix matvinnsluvélin léttir þér lífið vi lb or ga @ ce nt ru m .is SERBNESKA söngkonan Marija Serifovic fagnaði vel og innilega sigrinum í Evróvisjón-söngvakeppninni í fyrrakvöld, en hún flutti lagið Molitva, eða Bæn. Hér sést hún lyfta verðlaunagripnum á loft. Morgunblaðið/Eggert Áfram Serbía! FRÉTTIR  NÝLEGA varði Snorri Björn Rafnsson doktorsritgerð sína í faralds- fræði við Háskól- ann í Edinborg. Ritgerðin bar yf- irskriftina Car- diovascular di- seases, risk factors and cogni- tive decline in the general population. Leiðbeinendur Snorra Björns voru F. Gerald R. Fowkes og Ian J. Deary, prófess- orar við Háskólann í Edinborg, og andmælendur við vörnina voru Keith Millar, prófessor við Glas- gowháskóla, og W. Cairns S. Smith, prófessor við Háskólann í Aberdeen. Meginmarkmið doktorsverkefn- isins, sem byggt var á gögnum frá hóprannsókn á eldra fólki í Ed- inborg (Edinburgh Artery Study), var að meta samband hjarta- og æðasjúkdóma, sem og tengdra áhættuþátta, við vitsmunahrörnun á efri árum yfir fjögurra ára tímabil. Upplýsingum um heilablóðfall, kransæðasjúkdóm og æðakölkun í neðri ganglimum, sem og um þekkta áhættuþætti fyrir hjarta- og æða- sjúkdóma, var safnað reglulega frá byrjun rannsóknarinnar árið 1987 fram til 2002. Taugasálfræðileg próf voru lögð fyrir 1998–1999 og end- urtekin 2002–2003. Í stuttu máli sýndu niðurstöður rannsóknarinnar að einstaklingum sem fengið höfðu heilablóðfall var hættara við stigmagnandi vits- munahrörnun en þeim sem ekki höfðu sögu um hjarta- og æða- sjúkdóm. Svipað kom í ljós hjá þeim sem fengið höfðu kransæðastíflu eða sýndu merki um æðakölkun í neðri ganglimum en ekki höfðu sögu um heilablóðfall. Ennfremur var tekið tillit til fjölda hugsanlegra raskandi þátta (confounding factors) sem margir hverjir tengdust á sjálf- stæðan hátt aukinni vitsmunahrörn- un, s.s. aukinnar líkamsþyngdar, reykingasögu, hækkaðs blóðþrýst- ings og aukins styrks bólguþátta í blóði. Í ritgerðinni var leitast við að ræða ofangreint samband hjarta- og æðasjúkdóma og annarra þátta við vitsmunaskerðingu í eldra fólki, undirliggjandi ástæður og tillögur að frekari rannsóknum. Til rannsóknar sinnar naut Snorri Björn námsstyrks frá læknadeild Háskólans í Edinborg og greinar, byggðar á doktorsverkefni hans, hafa verið samþykktar til birtingar í erlendum vísindatímaritum. Snorri Björn starfar nú sem rannsókn- arfélagi (research fellow) við lýðheil- brigðisdeild Edinborgarháskóla en undanfarin þrjú ár hefur hann jafn- framt séð um stundakennslu í far- aldsfræði bæði við Háskólann á Ak- ureyri og í Edinborg. Snorri Björn er stúdent af nátt- úrufræðabraut Verkmenntaskólans á Akureyri og lauk BS-prófi frá heil- birgðisdeild Háskólans á Akureyri árið 2000 en hann er fyrstur útskrif- aðra nemenda deildarinnar til að ljúka doktorsprófi. Deildin óskar honum til hamingju með þennan ánægjulega áfanga á afmælisári há- skólans og deildarinnar sem hafa starfað í tuttugu ár í haust. Árið 2002 lauk hann MS-prófi í faralds- fræði frá lýðheilbrigðisdeild Háskól- ans í Edinborg. Foreldrar hans eru Birna Á. Björnsdóttir og Rafn H. Þorsteinsson. Sambýliskona Snorra Björns er dr. Efrosyni Argyri, sér- fræðingur í máltöku tvítyngdra (grísk-enskra) barna við málvís- indadeild Háskólans í Edinborg. Doktor í faraldsfræði Dr. Snorri Björn Rafnsson doktor í faraldsfræði Fáðu úrslitin send í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.