Morgunblaðið - 14.05.2007, Qupperneq 36
Við eldinn á sviðinu
sögðu nærstaddir
hitastigið hafa rokið upp um
nokkrar gráður … 38
»
reykjavíkreykjavík
Setning Listahátíðar fór fram í Listasafni Ís-
lands og fjölmenntu gestir í hátíðarskapi á
háhæluðum gullskóm, með risastór svört sól-
gleraugu og þessar líka fínu hárlagningar.
Meira að segja skartaði Hjálmar Ragnarsson
listaháskólarektor nýrri klippingu en Ágúst
Einarsson, rektor á Bifröst, lét sér nægja
einfaldan hársmekk. Ghostigital og listamað-
urinn Finnbogi Pétursson frömdu óskiljanleg
tónverk við inngang safnsins og Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra
var líka í svolítið óskiljanlega abstrakt kjól.
Framsóknarfjörkálfurinn Björn Ingi Hrafns-
son sprangaði brosandi um í skærgrænni
skyrtu sem hefur eflaust átt að vekja athygli
á umhverfisverndartauginni hans. Ómar
Ragnarsson, frambjóðandi og sjálfkjörinn
næsta fjallkona Íslands, var mættur, örlítið
út úr kú í svona snobbteiti. Sýningin CoBrA
Reykjavík var einnig opnuð á setningarhátíð-
inni og í öllum krókum og kimum safnsins
hangir nú uppi vitnisburður um sköpunar-
kraft ungra evrópskra listamanna á eftir-
stríðsárunum. Ólíku týpurnar Rannveig Rist,
forstjóri Alcan, og rithöfundurinn Guðrún
Eva Mínervudóttir voru mættar en sú síð-
arnefnda var sæt í svörtum leðurjakka og
þverröndóttum bol með dökkt hárið í tagli.
Gestir dvöldu lengi við spjall og hvítvíns-
birgðirnar hurfu eins og dögg fyrir kvöld-
sólu.
Flestir gestir úr fyrrnefndri samkundu
mættu svo daginn eftir á opnun sýningar
Roni Horn í Hafnarhúsinu; sumir ansi lúnir
eftir setningarstuðið kvöldið áður. Ingunn
Wernersdóttir var glöð í bragði enda nýbúin
að festa kaupa á Alliance-húsinu og leikstjór-
inn Kolbrún Halldórsdóttir var eina mann-
eskjan á svæðinu sem flaggaði barmmerki
flokksins sem var bara púkó. En frú Dorrit
hélt glæsileik sínum þrátt fyrir hækjur og
var með skærgula hanska og veski í sama
sumarlit. Herra Ólafur mætti hins vegar að-
eins huga að buxnasíddinni; þær jaðra við að
vera of stuttar. Linsan í Aðalstræti bauð til
teitis með stæl til að fagna 35 ára afmæli
verslunarinnar og opnaði líka sýningu á mál-
verkum Vignis Jóhannssonar. Gestgjafarnir
Sigrún Bergsteinsdóttir og Birgir Blöndal
tóku á móti gestum með gómsætustu snittum
sem fluga hefur bragðað á þessu ári sem
gaman var að gæða sér á og njóta um leið
listarinnar í málverkunum og nýju Alain
Mikli-gleraugunum. Daginn fyrir kosningar
spottaði fluga Íslandshreyfingardömuna Mar-
gréti Sverrisdóttur þar sem hún var afslöpp-
uð í handsnyrtingu á snyrtistofu Ágústu í
Hafnarstræti á meðan Ómar Ragnarsson var
að rembast við að koma svarta dvergbílnum
sínum í gang í Austurstræti. Já, kosninga-
undirbúningurinn er eins misjafn og fram-
bjóðendurnir eru margir. | flugan@mbl.is
Margrét Bóasdóttir og Felix Bergsson nutu
lífsins.
Páll á Húsafelli, Thor Vilhjálmsson og Tolli.
Guðný Dóra Gestsdóttir, Inga Jónsdóttir og
Þorgils Baldursson.
Jón Karl Helgason og Kristín Jóhannsdóttir.
Ingibjörg Kristinsdóttir og Magnús Oddsson.
Morgunblaðið/Eggert
Kristjana Thors, Svavar Örn Svavarsson og
Vignir Snær Vigfússon.
Helga Guðrún Steingrímsdóttir með dætrum
þeirra Eiríks Haukssonar, Eyrúnu og Hildi, í
Helsinki.
Þorbjörg Sæmundsdóttir, Telma Ágústsdótt-
ir, Þórhildur Rafns Jónsdóttir, Íris Guðna-
dóttir og Eva Rán Ragnarsdóttir.
Nína Markússon og Eva Gestsdóttir.
Sveinn Rúnar Sigurðsson og Anna Dögg Ein-
arsdóttir brosa breitt fyrir ljósmyndara.
Flugan
Ómar fjallkona
og gestir í gullskóm
… mætti aðeins huga að buxnasíddinni;
þær jaðra við að vera of stuttar …
Guðrún Gunnarsdóttir og Evróvisjónfræð-
ingurinn Thomas Lundin.
Elísabet Harðardóttir og Katrín Tryggva-
dóttir
Sigrún Hákonardóttir og Sigurður Hreið-
arsson.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ingunn Wernersdóttir, Sigrún Sandra Ólafs-
dóttir og Bára Magnúsdóttir,
» Íslendingar skemmtu sérkonunglega í Helsinki þrátt
fyrir að Eiríkur kæmist ekki í
aðalkeppnina
» Listahátíð í Reykjavík varsett í Listasafni Íslands
föstudaginn var og var margt
um dýrðir.
» Sýning á verkum Roni Horn var opnuð í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi.