Morgunblaðið - 14.05.2007, Side 40
40 MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
GOAL 2 kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i. 7 ára
THE REAPING kl. 8:10 - 10:20 B.i. 16 ára
BLADES OF GLORY kl. 6 - 8:10 B.i. 12 ára
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ DIGITAL 3D
300 kl. 10:20 B.i. 16 ára DIGITAL
/ KRINGLUNNI
THE REAPING kl. 5:50 - 8 -10:10 B.i.16.ára
SPIDER MAN 3 kl. 3:30 - 6 - 9 - 10:30 B.i.10.ára
SPIDER MAN 3 VIP kl. 6 - 9
BLADES OF GLORY kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.12.ára
SHOOTER kl. 10:30 B.i.16.ára
BREACH kl. 8 B.i.12.ára
MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 4 LEYFÐ
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
WILD HOGS kl. 8 B.i.7.ára
BECAUSE I SAID SO kl. 6 LEYFÐ
/ ÁLFABAKKA
eee
V.J.V. TOPP5.IS
WWW.SAMBIO.IS
M A R K W A H L B E R G
eee
MMJ, Kvikmyndir.com
eeee
SV, MBL
BECAUSE I SAID SO
Diane Keaton Mandy Moore
FRÁ FRAMLEIÐANDA
MATRIX, DIE HARD OG
LETHALWEAPON
SUMT ER EKKI HÆGT AÐ ÚTSKÝRA MEÐ VÍSINDUM
STÓRSTJÖRNUR ÚR
Hraðskreiðir bílar, súpermódel og partý...
Þarf ekki eitthvað meira til að sanna að þú sért frábær leikmaður?
HILARY SWANK REAL MADRID...
KÖLLUN Katherine (Swank) er að
þeytast um heiminn til að afsanna
guðdómleg kraftaverk og sanna vís-
indalegar rætur þeirra. Hún er ný-
komin frá Chile þegar henni berst
neyðarkall frá fenjabæ í Lúisíana
þar sem Loren (Anna Sophia Robb),
12 ára telpukind, er sökuð um reiði
guðs. Katherine heldur á vettvang,
sem er þjakaður plágum Biblíunnar:
Vatnið blóðrautt, froskaregn af
himni, engisprettuplága geisar,
nautpeningur genginn af göfl-
unum …
Upphafið lofar góðu, Swank hent-
ar í hlutverkið, annað er úr sér geng-
ið. The Reaping er eitt margra
slakra verka hugmyndasnauðra
hrollhöfunda sem kunna engin ráð
til bjargar þræðinum og að ná sýn-
ingartíma í boðlega lengd önnur en
útjöskuðustu brellur hrollvekjanna:
Leysa óútskýranleg atvik með mar-
tröðum aðalpersónunnar; ofnota
óþægileg hljóð, skorkvikindi, um-
merki djöfladýrkenda, ófélegar
mannverur og það er segin saga,
þessi mannskapur hefur ekki græn-
an grun um hvar á að hætta. B-
hrollar eru undantekningalítið með
mörgum vondum endum.
Útkoman er bærilega gerð en
nauðaómerkileg hrollvekja í anda
framleiðandanna, Zemeckis, Silvers
og félaga. Fyrirtækið stendur fyrir
uppákomur nákvæmlega sem þessa:
Ódýrt brellumoð í einnar-helgar
myndum.
Kraftaverk og klikkaðar kýr
KVIKMYNDIR
Sambíóin
Leikstjóri: Stephen Hopkins. Með Hilary
Swank, David Morrissey. 95 mín. Banda-
ríkin 2007.
Uppskeran / The Reaping
Sæbjörn Valdimarsson
Blóðrautt Swank fer um heiminn til að afsanna guðdómleg kraftaverk.
BARNABÓKAHÖFUNDURINN
Claire (Anwar), hefur draumfarir
hrottalegar, þar sem mýrarfen,
grimmúðlegur húskumbaldi og lítil
telpa koma við sögu. Sálfræðingi
skáldkonunnnar list ekki á blikuna.
„Það er eitthvað að gerast,“ segir
hann. Sem reynast orð að sönnu því
Claire sér húsið á netinu og leitar
það uppi.
Íslandsvinurinn Whitaker, eða
öllu frekar Óskarsverðlaunin hans,
hafa forðað The Marsh frá því að
rykfalla að eilífu. Það hefði verið
mátulegt á ómerkilegan hroll sem
hefur af litlu öðru að státa en jað-
arleikurunum tveimur. Sjálfsagt á
Whitaker nokkur góð hlutverk í
vændum, sakir The Last King of
Scotland, en Anwar, sem byrjaði fer-
ilinn í minnisstæðum myndum
(Scent of a Woman, Wild Hearts
Cańt be Broken), þarf öflugri afrétt-
ara fyrir ferilinn en þetta gutl.
Fenið opnast
MYNDDISKAR
Fenið (The Marsh)
Bandaríkin 2006. Sam myndir. 88 mín.
Bönnuð yngri en 12 ára. Leikstjóri: Jor-
dan Barker. Með Gabrielle Anwar, Forest
Whitaker.
Hrollvekja Sæbjörn Valdimarsson
Ljótur Kvikmyndagagnrýnanda fannst lítið varið í Fenið.
LANGAR þig í draumaferð til suð-
urríkjanna upp úr aldamótunum
1900, þegar veröldin var vissulega
svart/hvít, en lífið kyrrlátt og gaml-
ar og misgóðar hefðir voru í heiðri
hafðar? Ef svo er skaltu drífa þig
að nálgast The Reivers, sem er
byggð á síðustu bók skáldjöfursins
Williams Faulkners. Það hefur tek-
ist að fanga þessa göróttu þroska-
sögu á mjög svo viðunandi hátt,
hún stendur ljóslifandi frammi fyrir
áhorfendum.
Blómlegar suðurríkjasveitir á
fyrsta áratug síðustu aldar eru bað-
aðar rómantík og ljúfsárri eftirsjá
horfinnar reisnar og litskrúðugs
mannlífs. Handritið leiftrar af
væntumþykju, alvöru og skopskyni
skáldsins. Bókin túlkuð sem upp-
rifjun gamals manns á tvísýnni ferð
til Memphis á nýja bílnum hús-
bóndans sem vinnumaðurinn Boon
(McQueen) tekur traustataki. Sögu-
maðurinn, Lucius (Mark Vogel), er
þá aðeins 12 ára og þriðji ferða-
félaginn er blökkumaðurinn Ned
(Crsse).
Sundurleitur félagsskapurinn
eyðir viðburðaríkri helginni mest-
megnis á hóruhúsinu, en Faulkner
minnist starfskraftanna sem glæsi-
kvenna með gullhjarta og dreng-
urinn lærir fyrir lífstíð ýmislegt um
mannlega kosti og bresti. Veröldin
er stór og skrýtin, oftast und-
urfalleg, en grunnt á ljótleikanum
og mannvonskunni
Titillinn merkir náunga sem taka
lífið ekkert of alvarlega, eru
skreytnir, laus höndin og upp á
kvenhöndina. Á hinn bóginn dreng-
ir góðir. Boon og Crosse (ósk-
arsverðlaunatilnefning) leika þessa
gaura af ósvikinni innlifun og býr
langbesta mynd Rydells yfir
ósviknum töfrum fyrir augað og
endursköpun aldargamalla tíma
hefur lukkast vel. The Reivers er
gerð á hispurslausan hátt að hætti
sögunnar, handritið, leikurinn,
kvikmyndatakan og ekki síst tónlist
Johns Williams endurspegla löngu
liðna tíma þegar suðrið bjó yfir
endalausum leyndardómum.
Litrík borgarispa
MYNDDISKAR
Gárungarnir
(The Reivers)
Bandaríkin 1956. Sam-myndir. 114 mín.
Leikstjóri: Mark Rydell. Með Steve
McQueen, Rupert Crosse. Íslenskur
texti. Öllum leyfð.
Gamandrama Sæbjörn Valdimarsson
McQueen Drengur góður.
MAX (Crowe), grjótharður kaup-
hallarmangari í London, fær skila-
boð um að Henry frændi hans (Fin-
ney), og nánast eina eftirlifandi
skyldmenni, sé látinn á vínyrkubúi
sínu í Frakklandi. Max verður að
taka sér fyrsta fríið í 15 ár frá
skuldabréfabraskinu, til að ganga
frá dánarbúinu syðra. Þá rifjast upp
fyrir honum sterk tengslin á milli
þeirra frænda, sem Max hafði látð
sitja á hakanum síðari árin sökum
kauphallarbrasksins.
Nokkuð fyrirsjáanleg kennslu-
stund í þeim gömlu sannindum að
ekki er allt falt fyrir fé, þó það sé
gott til viðbits. Umfjöllunarefnið
kemur á óvart, ekkert sem minnir á
fyrra samstarf Scotts og Crowe,
ólíkari myndir en Gladiator og A Go-
od Year, eru vandfundnar. Titillinn
merkir góðan vínárgang og myndin
er lofsöngur til grænna viðhorfa,
rómaðrar fegurðar franskrar sveita-
sælu, yndisþokka kvenþjóðarinnar,
gæða vínanna (með smá hnútukasti
frá Napa), og gómsætrar sælkera-
fæðunnar.
Þrátt fyrir sólríka daga, sætar
þrúgur og að enginn efist um ágæti
hinna kvikmyndalegu víngerð-
armeistara, veldur dauft eftirbragð
vonbrigðum.
Frá fanti að viðfelldn-
um vínyrkjumanni
MYNDDISKAR
Góður árgangur
(A Good Year)
England 2006. Sena 2007. 117 mín. .
Leikstjóri: Ridley Scott. Með Russell
Crowe, Albert Finney, Marion Cotillard.
Spennumynd Sæbjörn Valdimarsson
Vín og ást. Crowe og Cotillard.