Morgunblaðið - 14.05.2007, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2007 43
Four Seasons glerbyggingar
eru frábær lausn sem
hefur ver ið mikið notuð
á Ís landi .
Gler ið er háeinangrandi ,
með mjög góðri sólarvörn
og öryggisgler sem er
skylda að nota í þök.
Gler ið ger i r húsin að
100% hei lsárshúsum.
Tré-ál eða ál útfærsla.
Sem dæmi um notkun hér á
landi er:
Fyrir einkaheimili: Stofur,
sólstofur, borðstofur, eldhús,
svalalokanir, sumarbústaðir og
margt fleira.
Fyrir atvinnuhúsnæði:
Veitingahús, hótel, verslunar-
hús, söluskálar, barnaheimili og
margt fleira.
Verkhönnun
Kirkjulundi 13, 210 Garðabæ
Sími 565 6900
Netfang verkhonnun@simnet.is
SÓLSTOFUR - SVALALOKANIR
Viðhaldsfríar í húsið eða sumarbústaðinn
Heimsferðir bjóða frábært tilboð til Rhodos í byrjun júní. Bjóðum nokkrar
íbúðir á Kassandra íbúðahótelinu á frábæru verði. Skelltu þér til Rhodos
og búðu á fjölskylduvænu íbúðahóteli skammt frá Ialyssos ströndinni.
Kassandra býður góða aðstöðu á meðan á dvölinni stendur.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Rhodos
2. júní
Sértilboð - Kassandra
frá kr. 49.990
Örfáar íbúðir - síðustu sætin
Verð kr. 49.990 -
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-
11 ára, í íbúð á Kassandra í viku , 2. júní.
Aukavika kr. 14.000.
Verð kr. 59.990 -
Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð á Kassandra í
viku, 2. júní. Aukavika kr. 14.000.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
EINSTAKUR bræðingur skosku
stórsveitarinnar Salsa Celtica af
keltneskri tónlist og salsasveiflu
þótti takast vel á fyrsta Vor-
blótinu sem fram fór í fyrra. Svo
vel reyndar að mönnum þótti
ótækt annað en að lóðsa sveitinni
inn í landið aftur.
Blaðamaður ræddi við Toby
Shippey, leiðtoga sveitarinnar, í
fyrra vegna tónleika þeirra og
endurtók leikinn í ár. Fagn-
aðarfundir urðu í símanum, þó
Shippey væri eilítið ryðgaður eftir
gærkvöldið. En svo var og með
samtal okkar á síðasta ári. Skot-
arnir kunna að skemmta sér.
Shippey rekur enda í rogastans
þegar ég segi honum frá nýju
skosku kránni, Highlander, í
Lækjargötu. „Ó nei!“ segir hann,
„Nei, ég meina ... frábært! Ég
hitti þig þá þar!“
Brjálað að gera
Síðustu tólf mánuðir eða svo
hafa að mestu farið í að kynna
nýja plötu, El Camino, sem út
kom síðasta vor.
„Það var brjálað að gera síðasta
sumar,“ segir Shippey. „Við ferð-
uðumst víða um. Sumarið var
langt! En gott að geta komið því
sem við stöndum fyrir sem víðast
á framfæri.“
Vinnan við Salsa Celtica er því
sem næst stöðug en samt hefur
Shippey tíma fyrir önnur verkefni
– eins og reyndar flestir sveit-
armeðlimir.
„Ég er t.d. með band sem er að
blanda saman afríkutakti og jama-
ískri tónlist. Svo er ég að vinna að
tónlist fyrir nútímadansverk. Allir
eru í hinu og þessu meðfram Salsa
Celtica. Það er stundum erfitt að
koma öllum saman, því að hljóm-
sveitin samanstendur af frábærum
tónlistarmönnum sem eru allir
með eigin feril í gangi líka.“
Shippey hlær við þegar hann er
spurður um höfuðverkinn við það
að koma saman æfingaáætlun.
„Maður æfir stundum klukkan
hálfníu að morgni til, svo það sé
alveg ábyggilega búið áður en ein-
hver kemur og dregur mann á æf-
ingu fyrir eitthvað annað. En fyrir
atvinnutónlistarmenn verður það
leiðigjarnt að vera bara í ein-
hverju einu endalaust.“
Næsta plata
Shippey segir bandið vera orðið
ansi þétt í dag og samtaka í að
þróa þetta form áfram, ólíkt því
þegar það var að byrja.
„Þá spiluðum við eins hratt og
hátt og við gátum svo að fólk
myndi nú örugglega dansa. Sá út-
gangspunktur varð nú þreytandi
til lengdar og ég nýt þess betur að
vera í sveitinni í dag, þar eð tón-
listin sem slík er orðin mun
áhugaverðari.“
Hugað verður að næstu plötu í
haust og segir Shippey að mik-
ilvægt sé að finna einhverjar nýjar
leiðir í sköpuninni.
„Það er ekki hægt að framleiða
bara það sama aftur og aftur. Við
þurfum að finna einhvern nýjan
flöt á þessum sambræðingi okkar.
Við erum ekki AC/DC!“
Hálandahiti
Morgunblaðið/ÞÖK
Vorblót Salsa Celtica lék með KK, sem hér sést, á Vorblóti í fyrra. Í ár mun
hún leika með Stórsveit Samúels J. Samúelssonar, þann 18. maí.
Skoska stórsveitin Salsa Celtica leikur á Vorblóti þann 18.
maí ásamt Stórsveit Samúels J. Samúelssonar
Tónleikarnir fara fram í NASA. Sjá
nánar á www.vorblot.is
STÓRFENGLEGRI sýningu
götuleikhússins Royale de
Lux lauk á hafnarbakkanum í
Reykjavík í gær og það í
klassískum ævintýrastíl.
Risinn ógurlegi sem gengið
hafði berserksgang um borg-
ina, stungið trjám í gegnum
bíla og rifið strætisvagna í
tvennt meðal annars, var tal-
aður til af dóttur sinni Ris-
essunni.
Þau fengu sér göngutúr
saman og fylgdu þeim hundr-
uð fullorðinna og barna, þótt
napurt væri í borginni og alls
ekkert sumarveður. Leiðin lá
upp Hverfisgötu. Þar tóku þau
feðgin beygju og héldu sjáv-
arleiðina niður í bæ aftur og
enduðu við höfnina.
Þar fór illa fyrir risanum og
hlaut hann endalok í anda
Grimms-ævintýra, hausinn var
slitinn af honum og fleygt út í
sjó.
Sjálfsagt hefur smáfólkinu
þótt risinn ógurlegur og verið
í liði með Risessunni. Eftir að
risinn missti höfuðið hélt Ris-
essan um borð í dráttarbát,
sem sigldi með hana út höfn-
ina. Ferðinni mun hafa verið heit-
ið til Frakklands, þaðan sem Ris-
essan er ættuð.
Eflaust hafa margir velt því
fyrir sér hvernig fólkinu liði sem
stýrði þessu litla, eða öllu heldur
stóra, ævintýri. Það skartaði
fögrum klæðum, í hnjábuxum og
voru sumir sokkalausir í kuld-
anum.
Risessan fór í sturtu og skvett-
ist vel af vatni yfir götuleik-
húsmenn, og það mun örugglega
ekki hafa bætt úr skák. Vonandi
að blöðru- og lungnabólga hafi
ekki tekið við að sýningu lokinni. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hausinn slitinn af risan-
um og fleygt í sjóinn