Morgunblaðið - 09.06.2007, Side 20

Morgunblaðið - 09.06.2007, Side 20
Lánið Leikur við þig Ef þú tekur nýtt bílalán hjá Avant í júní færðu 10.000 kr. Innkort frá N1. Innkortið getur þú notað til að kaupa vörur eða þjónustu á öllum afgreiðslustöðum N1, til dæmis eitthvað fyrir bílinn eða grillið. TakTu Lánið hjá avanT og njóTTu sumarsins! E N N E M M / S ÍA / N M 2 7 9 5 6 20 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT UM 30 mönnum hefur verið bjargað úr múrsteinaverksmiðju í Shanxi- héraði í Kína þar sem þeir höfðu verið hnepptir í þrældóm. Menn- irnir voru mjög illa á sig komnir líkamlega og andlega eftir vinnu- þrælkunina. Þeir unnu launalaust í 20 klukkustundir í senn og fengu aðeins brauð og vatn. Verksmiðjan er í eigu sonar leiðtoga komm- únistaflokksins í héraðinu og feðg- arnir hafa verið handteknir. Reuters Þrælar frelsaðir í Kína Eftir Arndísi Þórarinsdóttur arndis@mbl.is GEORGE W. Bush var eflaust ekki sá eini sem var með í maganum þeg- ar niðurstöður G8-fundarins voru kynntar. Það var samþykkt að minnka „um- talsvert“ útblástur kolefna, og að „íhuga alvarlega“ það markmið sem Evrópa hefur sett sér, að hafa náð að minnka útblástur um helming árið 2050. Þykir sumum það gagnrýni- vert hve óljós þessi takmörk eru. Angela Merkel, Þýskalandskansl- ari, viðurkenndi fyrir fjölmiðlamönn- um að samþykkt fundarins hefði ekki verið jafnvíðtæk og hún hefði óskað, en engu að síður liti hún á hana sem stórsigur. Merkel hefur barist fyrir samþykkt þess efnis að hækkun hitastigs yrði ekki meiri en tvær gráður, og að sett yrðu skýr markmið í útblástursmálum. En aðrir voru kátari. Yvo de Boer, framkvæmdastjóri Rammasamn- ings Sameinuðu þjóðanna um loft- lagsbreytingar, sagði að hann hefði ekki getað óskað sér betri niður- stöðu. „Í yfirlýsingunni er þess kraf- ist að viðræður hefjist í Balí í desem- ber og hún krefst þess að þeim viðræðum ljúki á næsta ári, svo að loftslagsstjórn á vegum Sameinuðu þjóðanna eftir 2012 verði komið á.“ Boer bætti við að það væri mjög skammt síðan stjórnvöld í Wash- ington héldu því fram að það væri alltof snemmt að huga að því hvað tæki við eftir árið 2012, en þá rennur Kyoto-samningurinn úr gildi. Þetta væri því skýr hugarfarsbreyting hjá Bandaríkjastjórn. Bush hélt fast við fyrri yfirlýsing- ar um að Bandaríkin krefðust þess að nýhagkerfi eins og Indland og Kína kæmu að samningaborðinu. Hann segist ekki undir nokkrum kringumstæðum fallast á að gefa þessum löndum markaðslegt forskot með því að gera þau undanþegin loftslagssamkomulögum. Hundruð milljarða í þróunarhjálp Leiðtogarnir samþykktu að veita 60 milljörðum bandaríkjadala, eða 3.880 milljörðum íslenskra króna, til þess að berjast gegn eyðni, malaríu og berklum í Afríku. Fyrir tveimur árum samþykktu leiðtogarnir að auka framlög til Afríku um 50 millj- arða bandaríkjadala, en lítið hefur orðið um efndir, eins og góðgerða- samtök hafa ekki þreyst á að minna á. Þetta samkomulag var ítrekað á fundinum nú í ár. Muhammad Yunus, sem hlaut friðarverðlaun Nóbels í fyrra, gagn- rýndi ákvörðun leiðtoganna, og sagði að nær væri að hjálpa Afríkuríkjum að berjast gegn fátækt og bæta heil- brigðiskerfi sín. Það væri alls óvíst hvort fjármunir af þessum toga skil- uðu sér þangað sem þörfin væri mest. Aðstoðin við Afríku aukin G8-ráðstefnunni lýkur með samþykkt- um um umhverfis- og þróunarmál París. AFP. | Bandaríska leyniþjón- ustan CIA starfrækti leynileg fang- elsi í Póllandi og Rúmeníu á ára- bilinu 2003-2005, ef marka má nýja skýrslu sem Evrópuráðið birti í gær. Höfundur skýrslunnar, Dick Marty, svissneskur þingmaður, kveðst hafa gögn sem sanni þetta og fullyrðir að æðstu embættismenn landanna tveggja hafi vitað af fangelsunum. Marty segir m.a. í skýrslunni að Atlantshafsbandalagið (NATO) og Bandaríkjastjórn hafi gert leynileg- an samning sem hafi gert CIA kleift að starfrækja fangelsin. Talsmaður NATO neitaði þessu í gær og sagði að bandalagið skipti sér ekki af eft- irliti með flugi milli landa. Stjórnvöld í Póllandi og Rúmeníu neituðu einnig staðhæfingu skýrsluhöfundarins. ESB vill hlutlausa rannsókn Vart má á milli sjá hvort löndin sem um ræðir eða CIA taka þessum tíðindum verr. Fyrrum varnarmála- ráðherra Póllands, Jerzy Szmajdz- inski, sagðist ekki svara pólitískum skáldskap og talsmaður CIA sagði að skýrslan væri dæmigerð fyrir þann „sora“ sem Evrópumenn væru linnulítið „að reyna að klína á leyni- þjónustuna“. Helst þykir vanta að heimildar- manna sé getið í skýrslunni, en Marty fullyrðir að hann hafi átt þá marga, og beitt sínum eigin rann- sóknaraðferðum til að fletta ofan af hneykslinu. Talsmaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins hvatti Pólland og Rúmeníu til að hefja hlutlausa rannsókn á málinu eins fljótt og auð- ið væri. Sannanir fyrir leyni- fangelsum? BRESKA heilbrigðisráðuneytið fullyrðir að að minnsta kosti tvær milljónir Breta séu vannærðar, en margir næringarfræðingar segja að fjöldinn sé líklega tvöfalt meiri, eða 6% bresku þjóðarinnar. Samkvæmt gögnum sem ráðu- neytið hefur safnað síðastliðinn áratug er helmingur allra sjúklinga sem lagðir eru inn á sjúkrahús með einkenni vannæringar, og fjórð- ungur er greindur sem vannærður. Þessar tölur fara undarlega sam- an við þá staðreynd að 75% bresku þjóðarinnar eru yfir kjörþyngd, og 22% hennar þjást af offitu. Það er algengur misskilningur að ekki sé hægt að vera of feitur og vannærður um leið. Margir borða of mikið, en fá engu að síður ekki nóg af þeim næringarefnum sem líkaminn þarfnast. Dr. Colin Waine, formaður Nat- ional Obesity Forum, segir að það sé undarlegt til þess að hugsa að þjóðin hafi verið betur nærð meðan á skömmtun síðari heimsstyrjald- arinnar stóð. Þrátt fyrir að mörg- um fyndist naumt skammtað var magn næringarefna í skömmtunum hámarkað. Á dögum skyndibita og tilbúinna máltíða er ekkert sem tryggir að Bretar fái þau næring- arefni sem þeir þurfa. Bretar borða almennt mat sem er of feitur, of saltur og of fitandi, en næringarsnauður. Einungis 20% Breta borða ráðlagðan dagskammt af grænmeti og ávöxtum. Ástand almennings er svo slæmt að fyrr í mánuðinum mæltist Mat- vælaráð Bretlands til þess að fól- ínsýru yrði bætt í allt hveiti í land- inu, til þess að lauma góðmetinu að borgurunum, sem fá það ekki með öðrum leiðum. Vannærðar fitu- bollur í Bretlandi Lélegt mataræði veldur því að breska þjóðin er bæði feit og vannærð Jerúsalem. AP. | Stjórn Ísraels hefur skýrt sýrlenskum stjórnvöldum frá því að hún sé tilbúin að hefja við- ræður um friðarsamning sem fæli í sér að Gólan-hæðirnar yrðu aftur hluti af Sýrlandi gegn því að Sýr- lendingar slitu samskiptum við stjórnvöld í Íran. Ísraelska dagblaðið Yediot Ahro- not hafði þetta eftir embættismönn- um sem starfa með Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels. Þeir sögðu að Olmert hefði sent Bashar Assad, forseta Sýrlands, skilaboð um þetta fyrir milligöngu þýskra og tyrk- neskra stjórnar- erindreka. Assad hefur ekki enn svarað tilboðinu, að sögn Yediot Ahronot. Blaðið sagði að George W. Bush Bandaríkjafor- seti hefði lagt blessun sína yfir til- boðið í símasamtali við Olmert í síð- asta mánuði. Olmert vill semja við Sýr- land um Gólan-hæðirnar Ehud Olmert

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.