Morgunblaðið - 09.06.2007, Síða 25

Morgunblaðið - 09.06.2007, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 25 ÁRBORGARSVÆÐIÐ Eftir Jón H. Sigurmundsson Þorlákshöfn – Það dylst engum sem sér Barböru Helgu Guðnadóttur, menningarfulltrúa sveitarfélagsins Ölfuss, að þar er á ferð kraftmikil og dugleg kona sem virkilega nýt- ur þess sem hún er að gera. Þessi dugnaður og óbilandi atorka hefur líka sýnt sig í stórauknu menning- arlífi í sveitarfélaginu síðan hún tók við starfinu. Spennandi verkefni „Þegar ég sá stöðu menningar- fulltrúa í sveitarfélaginu Ölfusi auglýsta hugsaði ég að þarna væri spennandi verkefni sem myndi henta mér, ég hafði nokkra teng- ingu við Þorlákshöfn þar sem föð- urbróðir minn, Ingimundur Guð- jónsson, var organisti og söngstjóri í mörg ár,“ segir Bar- bara Helga. „Á ferðum mínum til Þorlákshafnar hafði ég tekið eftir að bærinn var snyrtilegur og ótrú- lega vel upp gróinn og bar vott um dugnað og atorku íbúanna. Ég er menntaður bókmenntafræð- ingur frá HÍ og lauk meistara- gráðu frá háskóla í München í Þýskalandi. Pabbi minn er ætt- aður úr Austur- Landeyjunum en mamma erfrá Þýskalandi. Sjálf er ég alin upp í stórum systkinahópi í Garðabæ og er gift Viggó Dýr- fjörð Birgissyni. Við eigum tvo drengi, 5 og 7 ára. Það voru engin vandræði að telja þá feðga á að flytjast til Þorlákshafnar fyrir rúmum tveimur árum og ég get fullyrt að ekkert okkar sér eftir því. Það eru forréttindi að búa í sveitarfélagi af þessari stærð- argráðu þar sem er mikið framboð af íþróttalífi, tónlistarlífi og hvers konar menningar- og félagsstarfi og þar að auki allt við dyrnar hjá manni þannig að ekki þarf að keyra börnin langar leiðir. Skóli, leikskóli og íþróttahús og vellir eru á svipuðu svæði og nemendur stunda tónlistarnám innan veggja skólans og á skólatíma. Allt er þetta mögulegt vegna góðrar sam- vinnu og áhuga þeirra sem stjórna þessum málum. Það er í raun sama hvort aldursárin eru 5 eða 70, tækifærin til tómstundaiðk- unar eru óteljandi hér á svæðinu.“ Barbara sagði að nú væri verið að vinna við stefnumótun í ferða- og menningarmálum sveitarfé- lagsins og vissulega væru tæki- færin næg. Ströndin hefur aðdráttarafl „Það sýnir sig bæði á Eyr- arbakka og Stokkseyri að ströndin hefur aðdráttarafl, það er veruleg- ur munur á dreifbýlinu og þéttbýl- inu, í þéttbýlinu vantar vissulega að auka afþreyingu fyrir aðkomu- fólk en því er öðruvísi farið í dreif- býlinu. Til stendur að halda íbúa- fund 14. júní þar sem lagðar verða fram niðurstöður úr könnun sem gerð var meðal íbúanna varðandi þessi mál og leitað verður eftir hugmyndum bæjarbúa að frekari uppbyggingu ferða- og menningar- mála og þeim tækifærum sem sveitarfélagið býður upp á.“ Menningarfulltrúi af lífi og sál Moorgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson Menning Barbara Helga Guðnadóttir er menningarfulltrúi Árborgar. Í HNOTSKURN » „Á ferðum mínum til Þor-lákshafnar hafði ég tekið eft- ir að bærinn var snyrtilegur og vel gróinn og bar vott um dugnað og atorku íbúanna.“ » Það er sama hvort aldurs-árin eru 5 eða 70, tækifærin til tómstundaiðkunar eru ótelj- andi hér á svæðinu. » Leitað verður eftir hug-myndum bæjarbúa að frekari uppbyggingu ferða- og menning- armála og þeim tækifærum sem sveitarfélagið býður upp á. Barbara Helga Guðnadóttir vinnur nú að stefnumótun í ferða- og menn- ingarmálum sveitarfélagsins Árborgar og vissulega eru tækifærin þar næg Ármúla 42 · Sími 895 8966 mánudaga - föstudaga 10-18 laugardaga og sunnudaga 11-18Opið Gríptu tækifærið! sumarútsala á hágæða postulíngólfvösum Fjölbreytt úrval Feng-Shui vörum 30-70% afsláttur • Vasar • Diskar • Lampar • Pottar • Myndir • Gosbrunnar o.m.fl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.