Morgunblaðið - 09.06.2007, Side 38

Morgunblaðið - 09.06.2007, Side 38
38 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Gunnar HjörturHalldórsson fædd- ist í Bolungarvík 30. maí 1924. Hann lést á Sjúkraskýli Bolung- arvíkur 28. maí 2007. Foreldrar hans voru Halldór Þorgeir Jón- asson, f. 22. 5. 1877, d. 16.9. 1956 og Agnes Verónika Guðmunds- dóttir, f. 3.5. 1889, d. 21.3. 1976. Systkini Gunnars eru: Jónas, f. 28.7. 1912, d. 1.2. 1995. Mar- grét Rannveig, f. 29.5. 1914, d. 21.8. 1915. Óskar, f. 9.9. 1916, d. 31.3. 1941. Halldór, f. 20.12. 1917, d. 30.11. 1970. Margrét, f. 15.4. 1932 búsett í Bolungarvík. Eiginmaður Margrétar er Jónatan Sveinbjörnsson. Sonur þeirra er Halldór Þorgeir rafvirki, f. 25.3. 1959. Gunnar kvæntist 16.9. 1953 Helgu Guðmundsdóttur, ættaðri frá Blesastöðum á Skeiðum, f. 17.5. 1917. Foreldrar Helgu voru Guð- mundur Magnússon, f. 11.5. 1878, d. Reykjavík. Börn þeirra eru Gabríel Heiðberg, f. 18.1. 2003 og Eydís Ósk, f. 22.4. 2004. Fyrir átti Kristján soninn Benedikt, f. 1.3. 2002. c) Ar- on Ívar, f. 2.1. 1997. 3) Ósk grunn- skólakennari, f. 26.12. 1956. Dóttir hennar og Hauks Þorvaldssonar, f. 15.9. 1958, er Agnes Björk, f. 17.3. 1981. Ósk er búsett í Kópavogi. Börn hennar og Axels K. Bald- urssonar eru: a) Eiður Atli, f. 23.8. 2004. b) Bríet Sjöfn, f. 31.5. 2006. Gunnar var fæddur og uppalinn í Bolungarvík og bjó þar alla sína tíð. Á sínum yngri árum stundaði hann sjómennsku frá Bolungarvík, Akra- nesi, Reykjavík og var á síld á Siglu- firði. Hann stundaði um tíma eigin útgerð á eigin bátum, lengst af á Álftinni ÍS og síðar á Dóra Gutt ÍS. Gunnar stundaði verslunarstörf í verslun Bjarna Eiríkssonar í mörg ár. Hann vann einnig við fram- leiðsluvélar í rækjuvinnslu og við beitningu. Hann sat í hreppsnefnd Hólshrepps um tíma og var félagi í Lionsklúbbi Bolungarvíkur. Útför Gunnars fer fram frá Hóls- kirkju í Bolungarvík í dag og hefst athöfnin kl. 14. 20.10. 1972, og Kristín Jónsdóttir, f. 16.5. 1886, d. 2.9. 1971. Börn Gunnars og Helgu eru: 1) Agnar Halldór guð- fræðingur og bóndi, f. 23.1. 1953, kvænt- ur séra Döllu Þórðardóttur, f. 21.3. 1958. Þau eru búsett á Miklabæ í Skagafirði. Synir þeirra eru: a) Trost- an, f. 25.11. 1981. b) Vilhjálmur, f. 15.5. 1985. 2) Kristín grunnskólakennari, f. 12.8. 1954, maki Benedikt K. Krist- jánsson rekstrarstjóri, f. 19.9. 1952. Þau eru búsett í Keflavík. Börn þeirra eru: a) Ragnhildur Helga, f. 27.2. 1973, í sambúð með Hagbarði Marinóssyni, f. 4.8. 1973. Þau eru búsett í Bolungarvík. Börn þeirra eru Gunnar Hjörtur, f. 12.10. 1995 og Kristín Helga, f. 15.3. 1999. b) Kristján Heiðberg, f. 11.8. 1977, í sambúð með Ásdísi Ósk Viggósdótt- ur, f. 10.9. 1980. Þau eru búsett í Hann gengur á undan mér niður brekkuna, við erum báðir í klofstíg- vélum, svörtum með rauðu að ofan. Þau eru tvíbrotin neðan við hné en menn í svona stígvélum eru sjómenn, oft trillukarlar. Það er kyrrt, klukkan er fimm að morgni ég finn ilminn af sjónum og sjófuglinn lætur í sér heyra. Við göngum inn með íshúsinu framhjá Bjarnabúð og niður á Brjót. Pabbi fer inn í stýrishús á Álftinni og kveikir á gasinu til að hita vélina, á meðan vélin er að hitna förum við að ná Álftinni út úr röðinni. Það eru margir bátar við Brjótinn. Vélin er sett í gang og við siglum út Víkina undir taktföstu slagi glóðar- hausvélarinnar. Dagurinn bíður. Minningar hrannast upp. Dagurinn sem pabbi kom heim af sjónum með saumavél undir hendinni og sagði mömmu að hann hefði fengið þetta á færið í dag. Ég var hissa hvað pabbi var fiskinn, var líka undrandi á því hvað vélin leit vel út eftir veruna í sjónum. Þetta var á þeim dögum þeg- ar karlar gáfu konum sínum sauma- vélar og ekki mátti á milli sjá hvort væri hamingjusamara. Ég var að keyra norður Strandir þegar ég frétti lát pabba. Það var gott að frétta það á vestfirsku landi. Þegar ég steig út úr bílnum við sjúkraskýlið var logn, víkin slétt sem spegill og ég fann ilminn úr fjörunni. Minningar æskunnar eru að hluta til tengdar lykt úr fjöru. Pabbi var skemmtilegur maður, sagði sögur og lifði sig inn í sögur af Manga Halla, Jónsa Ella, Kitta sala og mörgum fleirum. Sögurnar hans pabba voru sagðar til að skemmta, hann sagði aldrei sögur til að gera lítið úr ein- hverjum. Sögupersónur urðu oftast enn þá merkilegri og skemmtilegri eftir að hafa lent í sögu hjá pabba. Sjórinn var hálfa lífið hans. Að veiða og vera á Brjótnum það var lífið sjálft. Ég sé hann sitja við eldhúsborðið ný- kominn af sjó. Það er kvöld, mamma að gefa honum heitan mat, við systk- inin að fá að skoða í kassann og fá að borða það sem hann hafði ekki klárað. Ekkert var eins spennandi eða gott og fá að borða bita úr kassanum og alltaf hafði hist svo á að hann hafði ekki alveg klárað úr kassanum. Þegar pabbi var í Bjarnabúð kom hann heim í hádeginu á drynjandi dí- sel Land-Rover. Við hlustuðum á fréttirnar, ekkert mátti tala meðan þær voru. Pabbi lagði sig eftir mat- inn, fékk sér svo kaffi og eina Camel með áður en hann fór aftur til vinnu. Dagur er kominn að kvöldi. Það er erfitt að kveðja föður sinn. Ég sé hann fyrir mér aftan við stýr- ishúsið á Álftinni. Stefnið snýr til hafs, að baki honum blasa við hin vestfirsku fjöll og sér inn Djúpið. Álftin veltur á báru, pabbi lyftir hægri hendinni hátt upp og heldur í færið, það færist bros yfir andlitið, hann kallar til okkar Dóra: Drengir, ég held ég sé búinn að ná honum und- ir, ég held þið ættuð að renna aftur. Agnar H. Gunnarsson. Að eiga ljúfar minningar um föður sem manni þykir vænt um er það besta sem hægt er að eiga. Þegar litið er yfir liðna tíð flýgur margt í gegn- um hugann. Í félagsskap var pabbi hrókur alls fagnaðar og alltaf tilbúinn með gam- anyrði og sá lífið oft í spaugilegu ljósi. Það er mikil gæfa að vera þeim kost- um búinn að sjá það skemmtilega í líf- inu og pabbi átti auðvelt með að koma fólki til að hlæja. Hann kunni ógrynni af sögum af samferðafólki sínu lífs og liðnu og glæddi þær lífi og færði í stíl- inn svo unun var á að hlusta. Pabbi var mjög hagmæltur og orti mikið af tækifærisvísum. Í þessum vísum kom glettni hans glögglega fram og sá hann oft skondnar hliðar á hversdagslegum atburðum. Hann hélt þessum vísum til haga og hafði gaman af að lesa þær fyrir fólk sem kom í heimsókn til hans. Pabbi var vinmargur og fannst mikilvægt að gefa sér tíma í amstri dagsins til að staldra við og segja eina og eina sögu til að gleðja samferða- fólk sitt. Pabbi hafði mikið yndi af lestri og bar þar hæst þjóðlegan fróðleik, ljóð og ævisögur. Hann talaði fallegt og rétt mál og notaði gjarnan orð sem eru að hverfa úr okkar máli s.s. að brúka, forakta, t.d. þegar við vorum að koma með tillögur sem honum leist ekkert á, og sagði stundum: ég for- akta ykkur. Pabbi var mjög fastheld- inn og ekki mikið fyrir nýjungar og lífsgæðakapphlaupið alls ekki að trufla hann. Hann var mjög nýtinn og óþarfa bruðl var ekki í hans anda og hann taldi óþarfa að skipta út hlutum sem voru fullbrúklegir, eins og hann sagði svo oft. Í minningunni er gott að hugsa til þeirra góðu hefða sem hann hélt í heiðri. Fastar hefðir voru á heimilinu, og við lærðum fljótt að ekki þýddi að annað en að taka ábyrgð á því sem við tókum að okkur, að standa sína „pligt“ svo notuð séu hans orð. Fyrir þetta erum við þakklátar, því þetta er gott veganesti út í lífið og verður bor- ið áfram til næstu kynslóða. Pabbi var einstaklega heppinn með lífsförunaut, hana móður okkar sem settist að á milli fjallanna úr víðfeðmri sveit að sunnan. Mamma var kjölfestan hans pabba og hafði góð áhrif á hann með létt- leika sínum og jákvæðni. Það hefur sýnt sig síðustu ár, eftir að heilsu pabba fór að hraka, hvað mamma hef- ur stutt hann og verið honum mikill styrkur. Blessuð sé minning ástkærs föður okkar. Þínar dætur Kristín og Ósk. Þá er komið að hinstu kveðjustund. Hugljúfar myndir og minningar streyma fram í hugann, sem gott er að ylja sér við. Við vorum sex systk- inin, fjórir bræður, systir sem lést á öðru aldursári og ég sem var yngst. Í huga þeirra var ég ávallt litla systir þótt árin færðust yfir, sem var góð til- finning. Nú eru þessi góðu bræður mínir horfnir yfir móðuna miklu. Bol- ungarvík er bærinn okkar og mátti með sanni segja um þig Gunnar minn að þú sást ekkert nema Bolungarvík þar sem þú vildir lifa og starfa. Þótt þú færir í ferðalag sem þér fannst gaman að var ávallt best að koma heim aftur: Því útnesin binda og binda fast þau börn sem þau að sér draga. En oftlega næðir hvasst og kalt, um hvern þann sem býr úti á skaga. (Jónas Halldórsson) Milli heimila okkar var mikill sam- gangur. Á jólum og öllum viðburðum í fjölskyldunni var fagnað í samein- ingu. Á hverjum degi eftir að þú hætt- ir að vinna, meðan þú gast keyrt bíl- inn þinn, komst þú í heimsókn. Þá settumst við niður með kaffibolla, töl- uðum um lífið og tilveruna, höfðum útsýni yfir hafið í öllum sínum breyti- leika. Sólarlagið var líka heillandi í nóttlausri vík móti norðurpól, er náð tekur sólin að kveldi. Við fylgdumst líka með bátunum fara og koma af sjónum, þú þekktir þá alla með nafni, varst líka búinn að vera sjómaður og kunnir þar vel til verka. Marga ferðina áttir þú á bryggjuna til að vita hvað væri að fiska og á hvaða miðum var verið. Sjálfur hafðir þú átt trillu, lengst af Álftina sem var hvítmáluð. Á henni var sjórinn sóttur, mest þó yfir sum- arið, og líkaði þér það vel. Lestur góðra bóka var þér ánægjuefni. Til var í fórum þínum ýmislegt sem þú hafðir sett á blað og var í formi sögu- ljóða, var það flest á léttari nótunum því þú varst næmur á spaugilegu hlið- ina í tilverunni og einstaklega orð- heppinn enda vildu margir hlusta á frásagnir þínar. Elsku Helga mágkona, Agnar, Kristín, Ósk og fjölskyldur ykkar, það er gott að eiga minningu um góðan fjölskylduföður. Guð veri með ykkur öllum. Ég og mín fjölskylda þakkar þér samfylgdina gegnum árin. Dagsverki er lokið, dvöl minni hér út við sæinn. En komið að kveldi míns síðasta ævidags. (Jónas Halldórsson) Hvíl í friði elsku bróðir. Margrét systir. Gunnar Halldórsson tengdafaðir er nú allur. Hann hafði dvalið á Sjúkra- húsinu í Bolungarvík frá því sumarið 2005. Gunnar hafði oft á orði hvað vel væri um sig séð á skýlinu. Hann gerði sér grein fyrir því að heim á Hlíðaveg færi hann ekki aftur til að búa þar. Hann var ekki í rónni fyrr en búið var að tryggja Helgu íbúð í Árborg. Þeg- ar það gekk eftir, þá var eins og búið væri að hnýta ákveðna enda áður en hann kveddi. Ég kom í fjölskylduna fyrir 35 ár- um þegar ég kynntist Kristínu dóttur hans. Gunnar tók mér alltaf vel frá fyrsta degi. Aldrei bar skugga á vin- skap okkar. Það voru forréttindi að ala upp börnin í Bolungarvík. Kosturinn að vera í nálægð við afa og ömmu var einstakur. Samgangurinn var mikill á milli okkar. Á fyrstu árum búskapar okkar var á sunnudögum farið í heimsókn á Hlíðarveginn. Gunnar og Helga áttu litasjónavarp, en við ekki, og það mátti ekki missa af Húsinu á slétt- unni, né Stundinni okkar. Þau voru líka ófá handtökin sem Gunnar lagði okkur til þegar við hófum að byggja okkar hús í Bolungarvík. Gunnar hafði einstakt lag á að segja sögur um samferðamenn sína og færa þær í þann búning að unun var á að hlýða. Gunnar hafði þá eiginleika að gera að gamni sínu um menn og málefni líð- andi stundar auk þess að rifja upp skemmtileg atvik lífsleiðarinnar. Eftir að Gunnar fór á skýlið reynd- um við að fara eins oft vestur til að heimsækja hann og við gátum, ýmist saman eða ég fór það skiptið og Stína fór þá seinna. Við vildum ekki að hann upplifði það, þótt við hefðum flutt bú- ferlum, að fjölskyldan í Bolungarvík gleymdist eða yrði ekki sinnt. Þegar að því kom að við urðum að gera það upp við okkur hvort við ætluðum að vera í Bolungarvík eða flytja búferl- um þá ræddi ég það við Gunnar og Helgu, en þar kom að mér bauðst að starfa á öðrum vettvangi, en það kost- aði okkur að flytja búferlum. Þegar ég sagði þeim frá þessu var afstaða þeirra hjóna alveg skýr. Tækifærið skyldum við grípa. „Þú ert alveg með á það,“ sagði Gunnar, „að það er jafn- langt hingað og héðan,“ og hafði ekki áhyggjur af að við myndum ekki rækta tengslin við þau þótt við fær- um. Við fluttum til Keflavíkur fyrir fimm árum og þangað heimsóttu þau okkur og síðast Gunnar þegar við héldum upp á áttræðisafmæli hans 30. maí 2004. Við Gunnar töluðum oft saman í síma, stundum daglega og ekki sjaldnar en vikulega. Það var misjafnt hvernig heilsa hans var, það komu lægðir og hæðir og líðan hans var oft eftir því hvernig veðrið var. Gunnar gerði mér boð í byrjun maí. Hann hringdi og spurði mig hvort ég væri að koma vestur. Viltu að ég komi? Já ég þarf að tala við þig. Þegar Gunnar þurfti að ræða eitthvað sér- stakt þá var það ekki gert í síma, enda umræðuefni hans málefni sem hann trúði mér fyrir. Ég á Gunnari margt að þakka. Ég kveð hann með mikilli virðingu fyrir það sem hann var mér, þann trúnað og traust sem var á milli okkar. Þakklæti til allra er gerðu hon- umm lífið bærilegra síðustu árin. Guðmundi Hafsteini Kristjánssyni fyrir tryggðina og starfsfólki Sjúkra- skýlisins sérstaklega. Benedikt Kristjánsson. Elsku afi. Þó ég hafi ekki alist upp í Bolung- arvík þá hef ég alltaf litið á Hlíðarveg- inn sem mitt annað heimili. Ég dvaldi oft hjá ykkur langdvölum á sumrin og á hátíðisdögum, ýmist ein eða með fjölskyldu minni. Mér er minnisstætt hvað var gott að koma í kyrrðina til ykkar ömmu og þar þurfti sko ekkert að flýta sér, alltaf nógur tími fyrir spjall og notalegheit. Það eru forréttindi að hafa átt ömmu og afa sem alltaf var hægt að leita til og hægt að treysta því að ein- hver væri heima. Ég fylgdist spennt með þegar afi kom af sjónum og var tilbúin að fara niður á brjót til að fá að vera með þegar hann færði bátinn frá brjótnum yfir á Lækjarbryggju. Afi kenndi mér að veiða og áttum við afa- börnin skemmtilegar stundir saman að veiða úti á Víkinni á litla horninu hans Rjúpunni. Ég minnist líka allra góðu stund- anna þegar við vorum að fá okkur kaffi og með því, því hann afi var nú heilmikill sælkeri og fannst fátt betra en vínarbrauð og jólakaka með kvöld- kaffinu. Hvíl í friði elsku afi minn. Kveðja, Agnes Björk Hauksdóttir. Mig langar að kveðja afa minn sem var mér svo kær. Ég átti því láni að fagna að fá að alast upp í návist þeirra afa og ömmu. Það eru margar minn- ingar frá uppvaxtarárunum í Bolung- arvík. Afi kenndi mér að hnýta hnúta, veiða og ganga frá veiðinni. Afi gaf mér ýmislegt gamalt dót sem hann vildi ekki henda en gæti komið mér að gagni. Ég átti þess kost að fara oft út á Holt í hádegismat. Ég fylgdist með honum koma upp brekkuna, haldandi á leðurtöskunni sem innihélt nestis- boxið. Amma var alltaf tilbúin með matinn kl. 12 en þá kom afi í mat. Á borðum á virkum dögum var oft fisk- ur. Afi vissi að mér þótti hann góður og þá sérstaklega það sem ungt fólk borðar kannski ekki í dag eins og bút- ungur og siginn fiskur. Minnisstæður er mér stóllinn sem afi hafði í eldhús- inu þar sem hann sat stundum og borðaði eða drakk kaffi. Afi átti hjall sem hann herti sjálfur fisk í og þær voru ófáar ferðirnar sem við fórum þangað. Það var verið að snúa við á ránum, hengja upp eða taka niður. Heima áttum við hund, Tinnu. Tinna hændist mikið að afa. Stundum var hún horfin að heiman, en ekki þurftum við að hafa áhyggjur af því, því hún fór rakleiðis á Hlíðarveginn og gerði þar vart við sig. Afa þótti ekki tiltökumál að fara með Tinnu á rúntinn eða hafa hana, enda hændist hún að honum. Afi var einstakur áhugamaður um bíla og átti nokkra á lífsleiðinni. Hann var duglegur að koma og sækja mig og bjóða mér á rúntinn, fara niður á bryggju eða í hjallinn eða bara að keyra í bænum. Ég hafði það áhuga- mál að eiga flugmódel. Nokkur slík átti ég og fórum við oft inn á sand til þess að fljúga þeim. Oftar en ekki vorum við saman við það, ég, afi og að sjálfsögðu Tinna með. Afi hafði á orði við mig að þegar ég yrði sjálfur búinn að læra flug þá ætlaði hann að fljúga með mér. Ég hóf flugnám og lauk einkaflugmannsprófi á sínum tíma. Þegar afi lagði land undir fót og kom suður fórum við saman í flugferð. Sat hann frammi í og fylgdist með öllu sem fram fór af miklum áhuga og þurfti eðlilega að vita hverig allt virk- aði. Afi fylgdist vel með því sem ég tók mér fyrir hendur og varð að vita hvernig mér gengi. Hann gekk eftir því að ég svaraði öllum spurningum hans um bílaeign mína. Ef honum fannst eitthvað vanta upp á þá ítrek- aði hann það sem hann hafði spurt um. Fjölskyldan hittist um páska fyrir vestan, þá var afi mjög hress og hafði mestar áhyggjur af því að hann yrði útskrifaður af Skýlinu, en þar leið honum vel. Ég átti erindi vestur viku áður en afi kvaddi þennan heim. Þá áttum við saman góða stund. Hann vildi alltaf að ég gisti á Hlíðarveginum þegar ég kom vestur og gladdi það hann að vita af mér þar. Umræðuefn- ið var sem oftar það sem ég var að sýsla við hverju sinni. Hann vildi vita hvort ekki gengi allt vel hjá mér. Ég fullvissaði hann um það. Síðan kvödd- umst við. Ég þakka afa mínum fyrir allt sem hann gerði fyrir mig á lífsleiðinni og allar stundirnar sem ég naut með honum. Af honum lærði ég mikið. Nú veit ég að honum líður vel, er laus við þjáningarnar. Blessuð sé minnig hans. Kveðja, Kristján Heiðberg Benediktsson. Elsku afi. Þú varst eini afinn sem ég þekkti því Kristján afi minn dó sama ár og ég fæddist. Ég var svo lánsöm að búa í Bolungarvíkinni þannig að ég naut mikilla samskipta við þig. Ég og Kristján bróðir vorum mikið hjá ykk- ur ömmu í mat og kaffi og gistum oft hjá ykkur. Alltaf komum við í heim- sókn á sunnudögum til þess að horfa á „Húsið á sléttunni“ því þið voruð með litasjónvarp en við bara með svart- hvítt. Ég man svo vel eftir bláa ameríska kagganum þínum og okkur Kristjáni fannst mikið sport þegar þú tókst okkur á bryggjurúnt. Afi naut þess að fylgjast með langafabörnunum og kíkti oft í heimsókn. Seinni árin var fyrsta dagsverkið hans að fá sér rúnt Gunnar Hjörtur Halldórsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.