Morgunblaðið - 09.06.2007, Qupperneq 42
42 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Henning EmilFrederiksen
fæddist í Søvang í
Køge í Danmörku
2. desember 1939.
Hann lést á Sjúkra-
húsi Suðurlands 3.
júní síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Jacob Emil
Vilhelm Frederik-
sen, f. 27. júlí 1902,
d. 5. september
1994, og Alda
Valdimarsdóttir, f.
1. júlí 1911, d. 2.
febrúar 1970. Systkini Hennings
eru Kristján Frederiksen, f. 3.
nóvember 1931, Inga Frederik-
sen, f. 5. október 1934, og Gréta
Frederiksen, f. 28. júlí 1938,
systkini Hennings sammæðra eru
Hilmar Bjarnason, f. 23. ágúst
1930, Ingibergur Magnússon, f.
25. júlí 1950 og Kristín Magnús-
dóttir, f. 26. nóvember 1951.
Henning kvæntist 23. desem-
ber 1968 Ingibjörgu Jónasdóttur,
f. 23. ágúst 1943. Foreldrar henn-
ar eru Jónas Larsson, f. 26. ágúst
1907, d. 18. apríl 2002, og Aðal-
björg Oddgeirsdóttir, f. 13. ágúst
1918. Synir þeirra Hennings og
Ingibjargar eru: 1) Jónas Henn-
ingsson, f. 1. september 1963,
Tómasi á Hólmsteini, reri frá Sand-
gerði og stundaði sjómennsku á tog-
urum. Henning festi kaup á Hásteini
gamla af Hraðfrystihúsi Stokks-
eyrar árið 1963 ásamt Grétari Zóp-
haníassyni og Einari Steindórssyni,
þeir áttu þann bát til ársloka 1968. Í
millitíðinni fór Henning í Stýri-
mannaskólann í Reykjavík og tók
þaðan Fiskimannapróf árið 1965. Í
framhaldi af því gerðist Henning
skipstjóri á Bjarna Ólafssyni sum-
arið 1966. Í janúar 1968 var nýr Há-
steinn smíðaður og var Henning
með þann bát fram á árið 1972.
Hraðfrystihús Stokkseyrar keypti
nýjan bát árið 1972, Geir Jónasson,
þar sem Henning var skipstjóri.
Hraðfrystihús Stokkseyrar keypti
svo Lárus Sveinsson haustið 1973,
báturinn var síðan skírður Njörður
og var Henning með hann til 1976.
Henning keypti þá með Hraðfrysti-
húsi Stokkseyrar Árna Magnússon,
og var með hann til ársins 1980. Í
maí það sama ár festi hann kaup á
Vísi með Baldri Birgissyni og Þórði
Guðmundssyni. Í september sama ár
keyptu þeir félagar Hástein af
Hraðfrystihúsinu á Stokkseyri.
Henning eignaðist svo útgerðina
einn árið 1987. Hann keypti Örn VE
haustið 1990 sem fékk svo nafnið
Hásteinn Ár 8. Henning var feng-
sæll mjög og lánsamur á sínum sjó-
mennskuferli.
Útför Hennings verður gerð frá
Stokkseyrarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
kvæntur Katrínu
Jónsdóttur, f. 3. maí
1963, börn þeirra eru
Númi Snær, f. 20. jan-
úar 1980, Henning
Eyþór, f. 24. júní
1983, Ingibjörg Ösp,
f. 29. apríl 1985, Ásta
Erla, f. 11. ágúst
1988, Eygerður, f. 1.
apríl 1995, og Vanda,
f. 23. nóvember 2001.
2) Vilhelm Hennings-
son, f. 6. júní 1966,
kvæntur Önnu Krist-
ínu Ingvarsdóttur, f.
22. júlí 1971. Börn þeirra eru Tara
Rögn, f. 19. janúar 1993, og Elmar
Darri, f. 24. maí 2000.
Henning var fæddur í Køge á
Sjálandi í Danmörku. Hann bjó þar
með fjölskyldu sinni til níu ára ald-
urs. Eftir skilnað foreldra sinna
flutti hann með móður sinni og
systkinum til Íslands. Þau settust
að á Stokkseyri þar sem Alda
stofnaði heimili ásamt seinni eigin-
manni sínum, Magnúsi Bjarnasyni,
f. 6. ágúst 1914, d. 16. ágúst 1995.
Sem unglingur var Henning í sveit
á sumrin. Hann byrjaði sína sjó-
mennsku á fimmtánda ári, fór þá
með Helga Sigurðssyni á Hásteini
II. Henning vann á mörgum bát-
um, var t.d. eitt sumar kokkur hjá
Í dag kveðjum við mág minn, vin
okkar og tengdason Henning Fre-
deriksen hinstu kveðju. Margs er
að minnast á slíkri stundu. Þar sem
Henning kom var jafnan slegið á
létta strengi og ekki verið að gera
of mikið úr hlutunum. Henning var
myndar maður, harðduglegur og
fylginn sér. Ævistarf hans var sjó-
mennska og var fast sótt á sjóinn.
Hann var ætíð á meðal aflahæstu
skipstjóra. Með dugnaði og elju-
semi tókst honum að eignast eigin
skip. Fyrstu skipin eignaðist Henn-
ing ásamt félögum sínum. 1987
kaupir hann ásamt eiginkonu sinni
Hástein Ár. 8 og stofnaði í fram-
haldi af því útgerðarfélagið Hástein
ehf. Henning var skipstjóri á skipi
sínu en um borð voru einnig synir
hans, Vilhelm sem stýrimaður og
Jónas sem vélstjóri. Þeir feðgar
hafa verið samhentir mjög um allan
rekstur fyrirtækisins sem hefur
vaxið og dafnað í höndum þeirra.
Henning hélst alltaf vel á mann-
skap enda hugsaði hann um hag
allra, bæði áhafnar og útgerðar.
Það ber því vel við að í vor fetuðu
synir Hennings, sem nú stjórna um
borð í Hásteini, í fótspor föður síns
og urðu aflahæstir dragnótabáta á
landinu. Henning kvaddi á tákn-
rænan hátt sem sjómaður en hann
lést á sjómannadaginn sl.
Að leiðarlokum viljum við þakka
Henning fyrir hlýhug og vináttu á
liðnum árum.
Blessuð sé minning Hennings.
Elsku Imba, Jónas, Vilhelm og
fjölskyldur, okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Anný, Björgvin og dætur.
Aðalbjörg Oddgeirsdóttir.
Elsku pabbi, tengdapabbi og afi.
Við kveðjum þig með söknuði en
minnumst þín í gleði um ókomna
tíð.
Þú varst okkur góður faðir og afi.
Mikið dáður af okkur og þá sér-
staklega barnabörnunum sem þú
snerist í kringum og hafðir einstakt
lag á.
Þegar til baka er litið þá var hlát-
ur og fjör það sem einkenndi þig og
einnig eftir að þú veiktist var stutt í
þinn yndislega hlátur. Þú sást
spaugilegu hliðina á öllu og nenntir
ekki að vera með neitt volæði ef
eitthvað bjátaði á.
Þú varst hetja í starfi. Byggðir
upp stönduga útgerð ásamt þinni
konu. Vannst við hana af alúð og
natni sem skilaði sér á marga staði
sem njóta góðs af. Sjómennskan
var þitt líf og erum við viss um það
að þú hafir valið þér sjálfan hvíld-
ardaginn samkvæmt því, já þú vald-
ir sjómannadaginn til að kveðja
þetta líf …
Henning afi, það kemst enginn
með tærnar þar sem þú hafðir hæl-
ana, það er öllum ljóst sem þig
þekktu.
Við erum þakklát fyrir að hafa
haft þig og þekkt þennan tíma sem
að þú varst hér hjá okkur en við
eigum sjálfsagt eftir að hitta þig
annars staðar síðar, þangað til þá
segjum við hafðu þökk fyrir allt.
Vilhelm, Anna Kristín,
Tara Rögn og Elmar Darri.
Mig langar til að koma að nokkr-
um orðum í minningu um hann afa.
Afi var alltaf léttur í lundu og í
góðu skapi, sífellt brosandi. Ég
man svo vel þegar við systkinin
vorum yngri, þá kom hann á hverj-
um laugardegi og gaf okkur fimm-
tíu krónur fyrir blandi í poka en á
þeim tíma var það hellingur. Hann
keyrði mig oft á sundæfingar til
Þorlákshafnar og þar var okkar
mesti spjalltími. Hann beið eftir
mér í einn og hálfan til tvo tíma á
meðan ég synti og svo brunuðum
við heim. Hann vildi allt fyrir mann
gera.
Það var alltaf stutt í grínið hjá
honum afa Henning og oft þegar
hann kom í heimsókn þá var það
eingöngu til að leika við okkur
systkinin og til að sníkja smá kaffi
hjá henni mömmu því það fannst
honum gott.
Kæri afi, það eiga allir sem
þekktu þig eftir að sakna þín í
framtíðinni og við eigum líka öll eft-
ir að hugsa um þig og tala um þig
við hvert tækifæri sem gefst.
Takk fyrir allt.
Númi Snær.
Elsku besti afi minn.
Þó að ég hafi reynt að undirbúa
mig undir fráfall þitt þá er mikið
sárt að missa jafn góðan, skemmti-
legan og lífsglaðan afa eins og þig.
Ég á svo margar góðar minn-
ingar um þig, allt frá því þegar þú
varst að reykja pípuna úti í Miðtúni
talandi um sjómennskuna við pabba
og frá því fyrir stuttu að ég spilaði
fótbolta við þig á göngunum úti á
Kumbaravogi.
Mér fannst alltaf gaman að koma
út í Miðtún og ófá skiptin sast þú
við eldhúsborið og lagðir kapal. Ég
man svo vel eftir því þegar ég var
lítil, þá skildi ég aldrei neitt í því
hvernig þú gast verið svona flinkur
að stokka og fletja út kapalinn að-
eins með níu putta. Það var alltaf
nóg um kræsingarnar þegar maður
kom til ykkar ömmu og alltaf áttuð
þið til nóg af ís, þú varst nú mjög
duglegur að stelast í þær líka þó
svo að þú mættir það alls ekki.
Henning bróðir var líka vanur að
koma til þín alltaf þegar Manchest-
er United var að spila og fékk ég
oft að fljóta með. Þið sátuð þarna
saman í stofunni, Henningarnir,
stundum alveg öskuvondir, enda
mjög tapsárir báðir tveir, en oftast
voruð þið nú glaðir í bragði. Ég
man eftir því þegar við krakkarnir
gáfum þér United-búninginn í jóla-
gjöf og betri gjöf hefðirðu varla
getað fengið. Fyrir hvern leik þar
eftir komstu þér vel fyrir í stólnum
þínum, með kaffið þitt, og þú varst
alltaf í búningnum, það klikkaði
aldrei.
Aldrei gleymi ég því heldur þeg-
ar ég og Henning Eyþór vorum að
spila skák við eldhúsborðið hérna
heima og þú komst í heimsókn, ég
heimtaði að þú myndir tefla við
mig. Ég man svo vel að ég vann
þig, gamla skólaskákmeistarann
sjálfan. Mikið var ég stolt, en þú
botnaðir eitthvað lítið í því.
Þú vandir líka komur þínar til
okkar hvern einasta laugardag, á
sjálfan nammidaginn, og alltaf
komstu með pening til okkar og oft
var það fullur vasi af klinki sem þú
sturtaðir í litlu lófana okkar. Ég
man vel eftir því hvað við urðum
spennt á hverjum laugardegi, því
þá vissum við að þú kæmir pottþétt
í heimsókn.
Þú varst alltaf svo góður við okk-
ur, til í að gantast og alltaf svo létt-
ur í lund. Aldrei nokkurn tímann
man ég eftir þér í vondu skapi og
aldrei skammaðirðu okkur. Elsku
afi ég kveð þig langt fyrir aldur
fram með miklum söknuði.
Ljúfi drottinn lýstu mér,
svo lífsins veg ég finni.
Láttu ætíð ljós frá þér,
ljóma í sálu minni.
(Gísli frá Uppsölum)
Guð geymi þig.
Ösp.
Hann afi, hann var svo skemmti-
legur. Hann hafði alltaf tíma fyrir
okkur krakkana. Hann var alltaf að
smástríða okkur og það var svo
gaman. Afi gaf okkur alltaf laug-
ardagspening og ég man þegar ég
beið óþolinmóð á morgnana, „er afi
ekki að fara að koma“? Kom þá afi
arkandi inn í hús með falinn pening
í einhverjum vasa. Hann afi, hann
var svo góður afi, hann var besti afi
í heimi.
Bless, bless, kær kveðja, þín
Erla.
Elsku afi.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson)
Guð geymi þig
Eygerður og Vanda.
Ég mun aldrei gleyma þeim góðu
stundum sem ég eyddi með afa
mínum og nafna í Miðtúni. Frá
tveggja ára aldri átti ég það til að
stinga af að heiman hjólandi og lá
þá leiðin beint til afa og ömmu í
Miðtúni. Þar beið mín ávallt ís,
nammi og allt það sem krakka á
mínum aldri dreymdi um. Afa þótti
svo gaman að stjana við litla dekr-
aða strákinn sinn og auðvitað leidd-
ist mér það ekki heldur. Það er mér
enn í fersku minni þegar ég reyndi
að pína afa og enduðu mínar fjöl-
mörgu tilraunir til þess ávallt í hlát-
urskasti okkar beggja við uppgjöf
mína. Það þýddi lítið fyrir mig að
eiga við kallinn þar sem afi var með
hraustari mönnum sem fyrirfund-
ust. Um tíu ára aldurinn fékk ég
fyrst að fara á sjó með afa, pabba
og Villa. Eftir þá upplifun var sjó-
mennskan það skemmtilegasta sem
ég hafði nokkurn tímann gert. Það
skemmdi heldur ekki fyrir að afi
reddaði mér ávallt smáís þrátt fyrir
að hann ætti aðeins að vera til há-
tíðarbrigða á sunnudögum.
Á þessum aldri var ég mikið
byrjaður að fylgjast með enska fót-
boltanum, og eins og afi hélt ég
með Man. United. Það leið svo ekki
sá laugardagur í sjö ár þar sem við
afi sátum ekki saman og horfðum á
United-leik á meðan amma bar í
okkur kræsingar, kvartandi yfir há-
vaðanum í okkur, því báðir lifðum
við okkur af alhug inn í leikinn.
Lengi töluðum við um það að gam-
an væri að fara á völlinn, og láta
draum okkar rætast, að sjá United
spila á Old Trafford. Sá draumur
rættist loksins haustið 2001 en þá
fórum við tveir saman og sáum
United spila við Leeds í ógleym-
anlegri ferð.
Afi var mér alltaf svo góður og
ég mun aldrei gleyma öllum þeim
skiptum sem hann keyrði mig á æf-
ingar út um allar trissur og beið
svo rólegur eftir mér. Hann var
alltaf til staðar og það var ekkert
sem hann afi minn gerði ekki fyrir
mig.
Þú munt ávallt skipa stóran sess
í hjarta mínu og ég get lifað sáttur
ef ég kemst í hálfkvisti við þann
mann sem þú varst.
Þinn
Henning.
Elsku Henning.
Þá er þínu langa veikindastríði
lokið, en það er erfitt að trúa því að
þú sért farinn frá okkur.
Við höfum átt margar góðar
stundir saman í gegnum árin, bæði
hér heima og erlendis.
Manstu þegar við fluttum til Ís-
lands frá Danmörku? Við ætluðum
sko ekki að vera á Íslandi og stung-
um af niður í skip aftur og mamma
fann okkur þar. En þrátt fyrir allt
Henning minn, þá var Stokkseyri
þér eitt og allt, þar eignaðist þú
þína konu og drengina þína.
Þú byrjaðir snemma að vinna og
varst farsæll í starfi, sinntir þinni
sjómennsku vel og þú varst stoltur
af strákunum þínum sem tóku við
af þér á sjónum, eftir að þú veiktist,
og ekki varstu minna stoltur af afa-
börnunum þínum sem þú vildir allt
fyrir gera.
Þú og Imba hafið alltaf reynst
okkur vel í okkar raunum og verð-
um við alltaf þakklát fyrir það.
Takk fyrir allt elsku bróðir.
Guð geymi þig.
Elsku Imba, Jónas, Villi, Katrín,
Anna Kristín og barnabörn, inni-
legar samúðarkveðjur til ykkar.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Kveðja,
Gréta og Karl.
Elsku bróðir.
Mig langar að minnast þín í
nokkrum orðum.
Ég var svo stolt að eiga þig sem
stóra bróður og ógleymanlegar eru
allar þær gleðistundir, þegar þú
komst heim úr siglingum og færðir
okkur Inga, litlu systkinum þínum,
alltaf stórar og fallegar gjafir, þótt
við færum oft í taugarnar á þér
þegar við eltum þig niður eftir á
kvöldin. Það var ósjaldan að þú
tókst í hnakkann á okkur og rakst
okkur heim. Við litum alltaf upp til
þín enda annað ekki hægt því þú
varst sterkastur og mesti gæinn í
plássinu.
Eftir að ég fór að búa komstu oft
í heimsókn og þótti mér alltaf vænt
um það. Elsku Henning, nú ert þú
búinn að fá lausnina frá veikindum
þínum, horfinn yfir móðuna miklu
og kominn þangað sem engin veik-
indi eru til. Ég er viss um að
mamma hefur tekið vel á móti þér.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Elskur Imba, Jónas, Villi og fjöl-
skyldur, ég bið Guð að styrkja ykk-
ur í þessari miklu sorg.
Þín systir,
Kristín María.
Þar sem englarnir syngja sefur þú.
Sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú.
Að ljósið bjarta skæra.
Veki þig með sól að morgni.
Veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós.
Lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert, mín lífsins rós.
Tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta.
Vekja hann með sól að morgni.
Vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál.
Svala líknarhönd.
Og slökk þú hjartans harmabál.
Slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær.
Faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær.
Aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Hvíldu í friði elsku frændi, minn-
ing þín er ljós í lífi okkar.
Elsku Imba, Jónas, Kata, Villi,
Anna og börn, Guð styrki ykkur öll.
Elsku mamma mín, missir þinn
er líka mikill, þér þótti svo und-
urvænt um elskulegan bróður þinn
og það sáu og vissu allir. Guð gefi
þér allan þann styrk sem hann get-
ur.
Kær kveðja,
Alda Karlsdóttir.
Henning Frederiksen
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800