Morgunblaðið - 11.06.2007, Síða 1

Morgunblaðið - 11.06.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 157. TBL. 95. ÁRG. MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is                    BEÐIÐ EFTIR GOSI MIKE MCCARTNEY, BRÓÐIR PAULS, VILL VITA HVORT ÍSLAND ER GALDRASTAÐUR >> 34 NÆSTBESTI ÁRANGUR BIRGIS LEIFS SÁTTUR ÍÞRÓTTIR >> 1 FRÉTTASKÝRING Eftir Fríðu Björk Ingvarsdóttur fbi@mbl.is Í HVERT sinn sem Feneyjatvíæring- urinn er haldinn er spurt hvort vægi hans sé ekki ofmetið í listheiminum. Þeir sem koma þangað reglulega svara nánast án undantekninga að svo sé ekki. Hann er elsti tvíæringur í heimi [haldinn í fyrsta sinn 1895], býr yfir ríkustu hefðinni og er sá sem dregur flesta að úr hópi þeirra sem hafa völd og þekkingu í listheiminum. Bent hef- ur verið á að jafnvel þegar Feneyjatvíær- ingurinn átti undir högg að sækja vegna óánægju með stjórn hans og skipulagningu, mættu samt allir til leiks. Hugsanlega vegna þess að þótt aðrir viðburðir hafi kom- ið fram á sjónarsviðið og njóti virðingar og vinsælda, þá er andrúmsloftið á þessu myndlistamóti í Feneyjum einstakt. Öfugt við flesta aðra staði, þar sem slíkir við- burðir eru haldnir, er þar ekki einungis hægt að ganga að nýjustu stefnum og straumum vísum, heldur er borgin sjálf hið fullkomna athvarf þess á milli. Þátttaka Íslands að þessu sinni hefur þótt takast vel foropnunardagana. Íslenski skálinn með sýningu Steingríms Eyfjörð er nú utan meginsýningarstaðanna, Giardini og Arsenale. Þótt allir vilji auðvitað vera á aðalsýningarsvæðinu ef þess er nokkur kostur, því þar fara flestir um, er þó ljóst að staðsetning íslenska skálans er með af- brigðum góð; sýningin blasir við af stærsta síkinu og auðvelt er að finna hana við stóra verslunargötu. Því má heldur ekki gleyma að nú er svo komið að þjóðir sem eru með skála á aðalsýningarsvæðinu eru færri en þær er sýna í miðborginni, eða 34 á móti 42. Gullna ljónið fyrir ljósmyndun Á laugardag var tilkynnt að Afríkumað- urinn Malick Sidibé hefði hreppt heið- ursverðlaun gullna ljónsins fyrir ævistarf sitt, sem fyrst og fremst byggist á ljós- myndun. En vegna þess hversu umfangs- mikill tvíæringurinn er orðinn, var þó ákveðið að geyma aðrar verðlaunaveitingar þangað til í haust. Lítið hefur verið deilt um þá ákvörðun; flestum þykir hún sanngjörn, þar sem dómnefndinni gefst meiri tími til vinnu sinnar. Áhorfendur geta því rólegir haldið áfram að geta sér til um vinnings- hafa allt fram í október. Enn spá flestir Sophie Calle í franska þjóðarskálanum sigri og ef sú verður raunin er það í annað skipt- ið í röð sem Frakkland er hlutskarpast. | 15 AP Listaverk Brasilíski listamaðurinn Renato Dias við verk sitt, „Morrinho“. Feneyja- tvíæring- urinn ekki ofmetinn ÞORSTEINN I. Sigfússon, prófessor við Háskóla Íslands, tók við Al- heimsorkuverðlaununum (e. Global energy international prize) úr hendi Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta á laugardaginn. Í kjölfarið hélt forsetinn einræðu þar sem hann ræddi um stöðu orkumála í heiminum og tengdi hana m.a. við leiðtogafund átta helstu iðnríkja heims, G8, sem lauk í þýska sumardvalarstaðnum Heiligendamm á laugardag. „Menn störðu á þetta því það var greinilegt að ræðan var alveg utan dagskrár,“ segir Þorsteinn. | 4 Gríðarlegur heiður Verðlaunaður af Vladímír Pútín Eftir Unu Sighvatsdóttur unas@mbl.is EINAR K. Guðfinnsson landbúnað- ar- og sjávarútvegsráðherra sér ekki fram á neina stefnubreytingu hjá nýrri ríkisstjórn á næstunni varð- andi hvalveiðar. Þetta segir hann þrátt fyrir að Þórunn Sveinbjarnar- dóttir umhverfisráðherra lýsi sig andvíga hvalveiðum í viðtali sem birtist í Morgunblaðinu í gær. „Ég þekki alveg viðhorf Þórunnar og mér finnst hún lýsa sínum skoð- unum með yfirveguðum hætti. Þetta er mál sem við munum eflaust fjalla um þegar það er tímabært í ríkis- stjórninni en ég hef engar sérstakar áhyggjur hvað það varðar,“ segir Einar. Hann segir reglugerðina frá 17. október 2006 gilda út þetta fisk- veiðiár, það er að segja til 1. sept- ember, en ekki liggi fyrir hvort og hvenær þau mál verði endurskoðuð á Alþingi. Hvalveiðarnar hafi hins veg- ar gengið mjög vel hingað til. Erfið og sársaukafull umræða Sem fyrr segir lýsti Þórunn sig mótfallna hvalveiðum í Morgun- blaðinu í gær. „Engum [hefur] tekist að sannfæra mig um það ennþá að hvalveiðar í atvinnuskyni borgi sig,“ sagði Þórunn. „Fyrir mér eru hvalveiðarnar ein- faldlega hluti af auðlindanýtingu okkar,“ segir Einar og hann áréttar að hvalveiðar séu í samræmi við ís- lensk og erlend lög. Komist menn hins vegar að þeirri niðurstöðu, að þess háttar atvinnurekstur skuli ekki stunda á Íslandi, þá sé augljóst að slíkt bann muni einnig ná til ann- arra atvinnugreina en hvalveiða. Óbreytt stefna um hvalveiðar Sjávarútvegsráðherra segir orð um- hverfisráðherra ekki kalla á viðbrögð Í HNOTSKURN »Stjórnvöld veittu leyfi fyrirveiðum á níu langreyðum og 30 hrefnum í atvinnuskyni á veiðiárinu 2006/2007 og gildir leyfið út fiskveiðiárið eða til 1. september nk. »Alls hafa veiðst sjö lang-reyðar og tvær hrefnur það sem af er tímabilinu samkvæmt upplýsingum Hafrannsókna- stofnunar. Einar K. Guðfinnsson Þórunn Sveinbjarnardóttir Eftir Andra Karl andri@mbl.is UMFANGSMIKIL leit að tveimur erlendum kajakræðurum stóð enn sem hæst þegar Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöldi, en ekkert hafði spurst til þeirra frá því á laug- ardagsmorgun. Ræðararnir, sem eru mjög reyndir og afar vel útbún- ir, ætluðu að verða fyrstir til að þvera Faxaflóa. Kajakræðararnir, karl og kona, lögðu af stað frá Garðskaga á laug- ardagsmorgun og stefndu á Snæ- fellsnes. Reiknað var með að þau yrðu þar á laugardagskvöld eða sunnudagsmorgun en þegar þeir skiluðu sér ekki var leitað eftir að- stoð. Um fimmtán björgunarsveitir og Landhelgisgæsla Íslands tóku þátt í leitinni sem hófst fyrir alvöru síð- degis í gær. Björgunarmenn leit- uðu m.a. við strandlengjuna á svæðinu á harðbotna björgunar- bátum og björgunarskipi Slysa- varnafélagsins Landsbjargar var siglt þá leið sem ræðararnir ætluðu sér að fara. Jafnframt var leitað á landi auk þess sem þyrla Gæslunn- ar, TF-GNA, var notuð til að leita úr lofti. Veður til leitar var ágætt í gærkvöldi, fyrir utan smávegis þokuslæðing á Faxaflóa. Lögregla biður alla sem hafa orðið varir ræðarana að hafa sam- band við lögreglu í gegnum Neyð- arlínuna í síma 112. Tveggja erlendra kajakræðara saknað Víkurfréttir/Hilmar Bragi Leitað á sjó Fimmtán björg- unarsveitir voru kallaðar út.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.