Morgunblaðið - 11.06.2007, Side 4
4 MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bjóðum nú síðustu sætin til Mallorca 22. og 29. júní á frábæru tilboði. Þú
bókar flugsæti og gistingu og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú
gistir. Gríptu tækifærið og njóttu lífsins á þessum vinsæla áfangastað.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Mallorca
22. eða 29. júní
frá kr. 39.990
Allra síðustu sætin
Verð kr. 49.990
Netverð á mann , m.v. 2 fullorðna saman í
herbergi/stúdíó/íbúð, m.v. stökktu tilboð í viku.
Aukavika kr. 14.000.
Verð kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn,
2-11 ára, m.v. stökktu tilboð í viku.
Aukavika kr. 14.000.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
ÞORSTEINN Ingi Sigfússon, pró-
fessor við Háskóla Íslands, lýsir ferð
sinni til Rússlands sem einstakri
upplifun, fyrir sig og fjölskyldu sína.
Honum var á laugardag veitt ein
æðsta viðurkenning Rússneska lýð-
veldisins fyrir orkurannsóknir, Al-
heimsorkuverðlaunin, en Þorsteinn
hefur unnið að rannsóknum á vetni á
undanförnum árum með góðum ár-
angri. Hann er jafnframt nýráðinn
forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Ís-
lands sem tekur til starfa 1. ágúst
nk. og sameinar starfsemi Iðn-
tæknistofnunar og Rannsóknastofn-
unar byggingariðnaðarins.
Gríðarlega mikill metnaður er
lagður í athöfnina og segir Þorsteinn
að tekist hafi að byggja upp ákveðna
spennu. Fyrst hafi farið fram hring-
borðsumræður í stórum sal um orku
framtíðarinnar en þar voru sam-
ankomnir forstjórar helstu orkufyr-
irtækja heimsins, s.s. Shell, Exxon
og Total. Eftir tveggja tíma umræð-
ur var svo beðið eftir Vladimir Pútín
Rússlandsforseta en hann lét bíða
eftir sér í um 25 mínútur. Þá hófst
hin eiginlega athöfn og verðlauna-
hafarnir voru í kjölfarið kallaðir upp
á svið.
„Eftir það gerðist það skemmti-
lega að Pútín stökk í ræðustólinn á
nýjan leik, en það var ekki á dag-
skránni,“ segir Þorsteinn. „Hann hóf
heilmikla einræðu um stöðu orku-
mála í heiminum, loftslagsmálin og
tengdi það töluvert við G8 ríkin.
Menn störðu á þetta því það var
greinilegt að ræðan var alveg utan
dagskrár. Mér þótti hann að mörgu
leyti höfða til þeirrar endurnýj-
anlegu orku sem við Íslendingar er-
um að virkja í mesta mæli í heim-
inum.“ Þorsteinn segist hafa náð
orðaskiptum við forsetann en hafi þó
ekki náð að ræða við hann um orku-
mál.
Pútín stofnaði sjálfur til verð-
launanna og er þetta í fimmta skipti
sem þau eru veitt. Þorsteinn segir
greinilegt að forsetinn sé ákaflega
ánægður með verðlaunin. „Þeir
segja það Rússarnir að þegar Nób-
elsverðlaunin voru stofnuð var orka
ekki inni í myndinni en nú eru þeir
eiginlega að bæta sinni útgáfu við.“
Áhugasamir um djúpboranir
Þorsteinn hlaut helming verð-
launanna en hinn helmingurinn féll
breska vísindamanninum Goeffrey
Hewitt og rússneska vísindamann-
inum Vladimir Nakaryakow í skaut
fyrir rannsóknir og þróun í varma-
skiptafræði. „Þeir höfðu báðir mik-
inn áhuga á að beita sinni tækni og
aðferðum við íslenskan jarðhita. Það
þykir afar spennandi að við séum að
fara bora dýpra, því svo margar
áskoranir fylgja þessum djúpbor-
unarverkefnum.“
Eftir athöfnina var veisla í boði
Benedikts Ásgeirssonar, sendiherra
Íslands í Rússlandi. Þar voru m.a.
Magnús Þorsteinsson, ræðismaður í
Pétursborg, Björgólfur Guðmunds-
son, formaður bankaráðs Lands-
bankans, Ingimundur Sigfússon, fv.
sendiherra auk Kristínar Ingólfs-
dóttur, rektors Háskóla Íslands.
„Kristín var afar kát yfir þessu,
enda þarf að safna svona viðurkenn-
ingum fyrir starf skólans ætli hann
sér að komast í hóp hundrað bestu í
heiminum,“ segir Þorsteinn og bætir
við að einnig hafi rússneskir með-
limir úr 30 manna hópnum sem velur
verðlaunahafann mætt til veisl-
unnar. Þorsteinn var ráðinn forstjóri
Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
nokkrum dögum áður en hann hélt
til Rússlands. Hann segist hlakka til
að takast á við verkefnið, segir und-
irbúning í raun hafinn og vonast til
að hitta starfsfólk á Keldnaholti í
dag.
Þorsteini I. Sigfússyni prófessor voru veitt Alheimsorkuverðlaunin við hátíðlega athöfn í Pétursborg
Í Pétursborg F.v.: Benedikt Ásgeirsson sendiherra, Magnús Þorsteinsson ræðism., Bergþóra Ketilsdóttir og eig-
inmaður hennar, Þorsteinn I. Sigfússon, Kristín Ingólfsdóttir rektor HÍ, Davíð Þór, Dagrún Inga og Þorkell Vikt-
or Þorsteinsbörn og yst til hægri eru Ingimundur Sigfússon, fv. sendiherra, og kona hans, Valgerður Valsdóttir.
Einræða for-
setans vakti
mikla athygli
Gríðarlegur metnaður er lagður í verðlaunin sem
voru afhent af Vladimir Pútín Rússlandsforseta.
Áður fóru fram umræður um orkumál sem for-
stjórar helstu orkufélaga heimsins tóku þátt í.
Í HNOTSKURN
»Þorsteini voru veitt Al-heimsorkuverðlaunin (e.
Global energy international
prize) við hátíðlega athöfn í
Pétursborg að viðstöddu fjöl-
menni á laugardag.
»Verðlaunin hlaut hann fyr-ir rannsóknir sínar og
samstarfsmanna sinna um
vetni, s.s. framleiðslu þess,
vetni sem orkubera og orku-
gjafa. Þorsteinn hlaut helming
verðlaunanna.
»Tilnefnt er til verð-launanna og í ár voru 146
vísindamenn tilnefndir. Þrjá-
tíu manna alþjóðlegur hópur
sér svo um valið.
HVALUR, sem að öllum líkindum
er hnísa af stærri gerðinni, gerði
sig heimakominn við höfnina á
Blönduósi í blíðunni í gær. Margir
urðu vitni að þessum atburði og
höfðu menn af skemmtan nokkra.
Krakkarnir hrópuðu upp að Keikó
væri kominn.
Fréttaritari Morgunblaðsins á
Blönduósi, Jón Sigurðsson, komst
svo að orði að það hefði verið æv-
intýraleg sjón að sjá hvalinn synda
um í höfninni og hin besta skemmt-
um sem var ókeypis að auki. Greini-
legt var að hvalurinn var í æti og
naut fuglinn góðs af tilburðum hans
við veiðarnar. Ef grannt var skoðað
mátti sjá eina og eina loðnu skjótast
upp úr sjónum undan hvalnum.
Fyrst sást til hans rétt rúmlega eitt
en hann ílengdist í höfninni fram
eftir degi og fór ekki fyrr en um
sexleytið.
Nokkur fjöldi safnaðist á bryggj-
una til að fylgjast með hvalnum og
stóð fólk á bryggjunni og hringdi í
vini og vandamenn til að bera þeim
fréttirnar. Það kemur nokkrum
sinnum fyrir að menn sjá hvali rétt
utan við ströndina og selir eru nán-
ast daglegir gestir við bæjardyr
Blönduósbúa.
Jón sagði að eftir kaldan maí
hefði orðið eins konar nátt-
úrusprengja eftir hvítasunnuna og
sumarið loks komið í öllu sínu veldi
og allt blómstraði nú, ungar, jörðin
og mannlífið sjálft. „Það var ekki
hægt að velja betri dag til að sýna
sig og sjá aðra,“ segir Jón og bætir
við að blankalogn hafi verið í gær
og 15-17 stiga hiti.
Skemmti bæjarbúum
langt fram eftir degi
Hvalur gerði sig heimakominn í höfninni á Blönduósi
Í FRÉTT af bloggi Herdísar Þor-
valdsdóttur í Morgunblaðinu í
gær slæddist orðið oft inn þar
sem það átt ekki að vera. Í frétt-
inni er haft eftir Árna Matthías-
syni, verkstjóra á mbl.is, að upp-
lýsingar um aldur bloggara verði
að taka með þeim fyrirvara að
fólk noti oft rangar kennitölur
þegar það skrái sig á blog.is, en
hið rétta er að fólk notar sjaldan
rangar kennitölur þegar það skrá-
ir sig.
Að sögn Árna notar lítið brot
þeirra sem skrá sig fyrir bloggi á
blog.is ranga kennitölu, eða innan
við 3% þeirra hátt í 9.000 notenda
sem þegar hafa skráð sig.
Í fréttinni kemur einnig fram að
meðalaldur bloggara á blog.is sé
22,77 ár, en rétt er að meðalaldur
bloggara á blog.is er 33,77 ár.
Rúmlega eitt ár er liðið síðan
blog.is var ýtt úr vör en í dag
heimsækja um 113.000 manns
bloggið í viku hverri.
Fáir bloggarar nota
ranga kennitölu