Morgunblaðið - 11.06.2007, Síða 6

Morgunblaðið - 11.06.2007, Síða 6
6 MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Mikill hátíðarbragur varyfir Reyðarfirði á laug-ardaginn þegar opn-unarhátíð Alcoa Fjarða- áls var haldin. Fjölmargir listamenn og skemmtikraftar héldu uppi stuð- inu og margir lögðu leið sín til bæj- arins til að taka þátt í hátíðarhöld- unum. Hátíðin var haldin til að fagna opn- un álvers Alcoa Fjarðaáls. Nokkur ker álversins hafa reyndar verið í rekstri í nokkurn tíma en ekki er gert ráð fyrir að það komist í fullan rekst- ur fyrr en upp úr áramótum. Álfyr- irtækið taldi hins vegar rétt að efna til fagnaðar fyrir bæjarbúa en þeir hafa beðið lengi eftir að það yrði opn- að. Farið er að draga úr fram- kvæmdum á Austurlandi og starfs- menn álversins undirbúa nú rekstur þess. Opnunarhátíðin hófst um morg- uninn en fjölmargir æðstu yfirmenn Alcoa og Bechtel flugu snemma til Egilsstaða. Jafnframt komu ráð- herrar, þingmenn og sveitarstjórn- armenn flugleiðis ásamt ýmsum gest- um en kvöldið áður hafði fyrirtækið haldið þeim hóf í Viðey. Í Fjarða- byggðarhöll, íþróttahúsi staðarins, fór fram formleg opnunarathöfn ál- versins. Mergjuð dagskrá Að athöfninni lokinni fór hópurinn að álverinu þar sem plantað var trjám. Í ræðu sinni við opnunar- athöfnina sagði Alain Belda að það væri táknrænt fyrir samband Alcoa við samfélagið á Austurlandi og Ís- lendinga að planta trjám. „Gróð- ursetningin er táknræn fyrir framtíð- ina. Með því erum við að segja að þessar framkvæmdir snúist ekki bara um sement, heldur ekki síst um fólk og lifandi hluti,“ sagði Belda. Mikil gleði ríkti í bænum þar sem opnunarhátíðin hófst fyrir alvöru um leið og fyrirmennin fengu sýnisferð um álverið. Sólin skein sínu skærasta og heimamenn, sem og fjölmargir gestir, gengu á milli atburða sem fram fóru á ýmsum svæðum í bæn- um. Við Molann, verslunarmiðstöð þeirra Reyðfirðinga, var komið upp miklu skemmtanatorgi þar sem börn gátu prófað ýmiss konar leiktæki, grillaðar voru pylsur og boðið upp á 16 fermetra súkkulaðiköku. Sett var upp markaðstjald þar sem bæjarbúar seldu handunna muni. Margar hljóm- sveitir spiluðu á útisviði sem komið var fyrir í Félagslundi. Mátti þar hlusta á Modus domire, Concrete, Arachnophobia, Álbandið, Hnakkana, Out Loud, Dúkkulísur, SúEllen og Nylon. Í grunnskólanum var mikil barnaskemmtun þar sem Skoppa og Skrýtla, Karíus og Baktus, Kalli á þakinu og Jón Víðis töframaður skemmtu börnunum. Um kvöldið voru síðan stór- tónleikar í Fjarðabyggðarhöllinni þar sem fjöldi manns mætti. Þar var mætt stórsveit ásamt Felix Bergs- syni, Helga Björnssyni, Andreu Gylfadóttur, Stefáni Hilmarssyni, Ei- vöru Pálsdóttur, Birgittu Haukdal og Björgvini Halldórssyni. Því næst tók við Queen-sýning. Í dagskrárlok var síðan fallhlífarstökk og listflug. Eina með öllu Mikið af pylsum var grillað fyrir veislugesti og nutu þeir veitinganna. Jafnframt var boðið upp á kandíflos, drykki og 16 fermetra súkkulaðiköku auk ýmislegs annars. Trúðslæti Trúðurinn Wally spaugaði fyrir viðstadda en hann sérhæfir sig í fjölskyldu- skemmtunum þar sem enska er ekki móðurmál. Brandarar hans voru fremur neðan beltis. Morgunblaðið/Árni Torfason Leiðtogar framtíðarinnar? Grunnskólabörn á Reyðarfirði aðstoðuðu ráðamenn þjóðarinnar og forsvarsmenn Alcoa við að planta trjánum við álverið. Margir fengu að gróðursetja en Alain Belda, stjórnarformaður Alcoa, sagði að athöfnin væri táknræn fyrir samstarf Alcoa við íbúa svæðisins. Hoppedíhopp Ekki vantaði leiktæki fyrir börninn á opnunarhátíðinni. Þessi unga stelpa lét sér ekki leiðast í hoppirólunni, enda ekki ástæða til. Rosastuð Fjölmargir landsfrægir tónlistarmenn héldu stórtónleika í Fjarðabyggðarhöllinni um kvöldið fyrir mikinn fjölda fólks Gleði og glaumur á Reyðarfirði í tilefni af opnun álvers Alcoa Ekki vantaði fjörið á Reyðarfirði um helgina en þar var opnun álvers Alcoa fagnað. Gunnar Páll Baldvinsson var í hátíðarskapi og fylgdist með fagnaðarlátunum. Morgunblaðið/Árni Torfason Morgunblaðið/Árni Torfason Morgunblaðið/Árni Torfason Morgunblaðið/Helgi Garðarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.