Morgunblaðið - 11.06.2007, Page 8

Morgunblaðið - 11.06.2007, Page 8
8 MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Á ALÞJÓÐAFLUGVELLINUM í Pristina í Kosovo blaktir íslenski fáninn við hún, ásamt fána Samein- uðu þjóðanna. Allar skeytasending- ar, svo sem flugáætlanir milli flug- félaga og flugvallarins, fara í gegnum íslenskt tölvukerfi, sem staðsett er í Gufunesi, áður en þau berast flugvallaryfirvöldum í Pristina. Um þessar mundir eru 5 ís- lenskir starfsmenn í Kosovo og ann- ast þeir eftirlit með starfseminni, auk þess sem þeir veita heimamönn- um ráðgjöf um helstu þætti er varða rekstur og endurbætur á flugvellin- um. Til dæmis má nefna undirbúning og útboð framkvæmda, þróun rekstrarkerfa og ýmiss konar mæl- ingar auk þess sem Flugstoðir bera ábyrgð á allri flugumferðarstjórn á flugvellinum. Þá er starfsleyfi flug- vallarins gefið út samkvæmt heimild frá Flugmálastjórn Íslands í sam- ræmi við alþjóðlegar og íslenskar reglugerðir. Jákvæð afkoma 100 mkr. Frá því að Flugmálastjórn, og síð- ar Flugstoðir ohf., tóku við því hlut- verki að beiðni Sameinuðu þjóðanna að vera bakhjarl Pristina-flugvallar hafa 6.300 vinnustundir verið unnar af starfsmönnum þeirra í tengslum við verkefnið og um 70 starfsmenn hafa farið til Pristina til að sinna þessum verkefnum. Flestar voru vinnustundirnar árið 2005, þegar umsvif Íslendinga á flugvellinum voru hvað mest. Heildarvelta verk- efnisins á þessum þremur árum er um 1.150 mkr. og er talið að jákvæð afkoma af því nemi um 100 mkr. þótt enn sé of snemmt að spá fyrir um endanlega niðurstöðu. Forstjóri Flugstoða, Þorgeir Pálsson, segir óeðlilegt að ræða um gróða í þessu samhengi; staðreyndin sé einfald- lega sú að Flugstoðir og Flugmála- stjórn verði að hafa borð fyrir báru. „Við fengum enga fjármuni frá hinu opinbera í þetta verkefni og það hef- ur alltaf legið fyrir að við mættum ekki líða fjárhagslegt tap af þessari starfsemi. Þessum rekstri fylgir hins vegar ýmis áhætta, til dæmis gengis- áhætta og svo hefur verið talsverður órói á svæðinu, sem við verðum að geta brugðist við ef í harðbakka slær,“ segir Þorgeir. „Það sem er fyrst og fremst eftirsóknarvert við þetta verkefni og í raun helsti ávinn- ingur okkar í Kosovo er að svona verkefni gefa okkur færi á að auka umsvif og reynslu, sem aftur gerir okkur kleift að leysa okkar hefð- bundnu verkefni betur en ella,“ segir Þorgeir og skýrir mál sitt frekar: „Í rekstri flugvallar- og flugumferðar- þjónustu eru fjölmörg sérfræðileg viðfangsefni sem menn þurfa að kunna skil á. Á þessu sviði eins og mörgum öðrum er mikilvægt að ná ákveðnum lágmarksumsvifum til að nýta betur og auka þekkingu fyrir- tækisins og starfsmanna þess. Gríð- arlegur ávinningur felst í þeirri reynslu og auknu þekkingu, sem við höfum fengið af verkefnum okkar í Kosovo.“ „Hvetjandi á allan hátt“ Ekki er ljóst hvenær verkefnum Flugstoða og Flugmálastjórnar í Kosovo muni ljúka, en þó hefur það alltaf legið fyrir að ákveðinn enda- punktur væri á núverandi samningi við Sameinuðu þjóðirnar, þar sem markmiðið sé að heimamenn geti tekið reksturinn að fullu í sínar hendur. Að undanförnu hafa Flug- stoðir því verið að draga saman segl- in og fela heimamönnum æ veiga- meira hlutverk í rekstri flugvallarins. „Okkar fólk er í aukn- um mæli í hlutverki stuðningsaðila, sem kemur á staðinn til að ganga úr skugga um að hlutirnir séu í lagi og styðja við frekari uppbyggingu,“ segir Þorgeir. Við eigum reyndar einnig aðild að stjórn flugvallarins og beitum okkur á þeim vettvangi til að þrýsta á um endurbætur á vell- inum. Spurður um hvort möguleikar séu á fleiri verkefnum utan land- steinanna segir Þorgeir að það sé vel hugsanlegt. Flugstoðir hafi um nokkurt skeið unnið náið með utan- ríkisráðuneytinu í sambandi við Ka- búl-flugvöll en um tíma hafði ís- lenska friðargæslan með höndum yfirstjórn á rekstri flugvallarins. Hann segir að Flugmálastjórn og nú Flugstoðir hafi stutt verkefni Frið- argæslunnar með því að láta í té lyk- ilstarfsmenn sem fyrirtækið hafi innan sinna raða. „Við höfum sent fólk þangað til þess að vinna að heild- aráætlun um það hvernig breyta megi herflugvelli, sem Kabúl-flug- völlur er í dag, í borgaralegan flug- völl,“ segir Þorgeir. Hann kveður þó ekkert ákveðið í þessum efnum, þótt NATO hafi sóst eftir að Íslendingar tækju þátt í verkefninu í Afganistan. En hvaða hagsmuni skyldi opin- bert hlutafélag hafa af því að fara út fyrir landsteinana? „Það er mjög hvetjandi fyrir starfsmenn og stjórn- endur að taka þátt í þessum verk- efnum. Það eru gerðar miklar kröfur til sérþekkingar og reynslu starfs- manna og svo fylgja þeim líka nýjar áskoranir til að ná árangri í umhverfi sem er ólíkt því sem við eigum að venjast,“ segir Þorgeir. „Við getum líka verið stolt af því að Sameinuðu þjóðirnar skuli leita til Íslendinga til að taka að sér verkefni eins og þær gerðu vegna Kosovo. Það var ekki sjálfgefið að smáþjóð eins og Ísland gæti leyst það verkefni að breyta herflugvelli í alþjóðlegan flugvöll í fjarlægu landi og framandi um- hverfi,“ segir Þorgeir. Þetta hafi tek- ist vegna færni og harðfylgis starfs- manna Flugmálastjórnar og Flugstoða, sem hafi lagt sig alla fram til að ná settu marki. Ávinningurinn fólginn í aukinni þekkingu Ljósmyndir/Jóhannes Long Samstarf Íslendingar ásamt albönskum samstarfsmönnum sínum. Um 70 manns hafa farið á vegum Flugmálastjórn- ar, síðar Flugstoða ohf., til starfa á alþjóða- flugvellinum í Pristina. Friðrik Ársælsson ræddi við Þorgeir Pálsson, for- stjóra Flugstoða. Flaggað Íslenski þjóðfáninn blaktir við hún við flugstöðina í Pristina. Í HNOTSKURN »1. apríl árið 2004 tók Flug-málastjórn Íslands við rekstri flugvallarins í Pristina af Ís- lensku friðargæslunni. »Flugmálastjórn var faliðstjórnsýslu- og eftirlits- hlutverk á flugvellinum auk þess sem henni var treyst fyrir rekstri flugumferðarþjónustunnar. »Flugumferðarþjónustan hef-ur frá ársbyrjun 2007 verið rekin af Flugstoðum ohf. í kjöl- far breytinga á rekstrarfyr- irkomulagi Flugmálastjórnar. »Flugstoðir hafa að und-anförnu verið að draga sam- an seglin í Kosovo, en ekki er ólíklegt að félaginu bjóðist þátt- taka í öðrum verkefnum utan landsteinanna. fridrik@mbl.is AÐEINS tekur 15-16 ár að greiða að fullu það lánsfé, með vöxtum, sem fjármagnar virkjanir Orkuveitu Reykjavíkur. Eftir þann tíma eru þær skuldlausar eignir Orkuveitunnar. Þetta segir í fréttatilkynningu frá OR vegna fréttar í Fréttablaðinu í fyrra- dag, þar sem fullyrt er að virkjanir Orkuveitunnar borgi sig ekki upp á 25 árum með raforkusölu til Helguvíkur. Í tilkynningunni kemur fram að út- reikningar á arðsemi samninga, eins og þess um sölu til Helguvíkur, séu flóknir því taka þurfi tillit til margra þátta s.s. þróunar álverðs, gengis og vaxta til langs tíma, auk meðhöndl- unar á verðbólgu. OR sé hins vegar með lánshæfismat og fjármagni fram- kvæmdir hjá stórum alþjóðlegum fjárfestingarsjóðum, sem allir leggi mat á aðferðafræði OR við arðsemi virkjanna. Líftíminn a.m.k. 50 til 60 ár „OR notar 10% ávöxtun eiginfjár við 25% eiginfjárhlutfall sem lágmark fyrir það hvort virkjað er fyrir stór- notendur. Veginn fjármagnskostnað- ur, WAAC OR, í þessu tilfelli er 6,25% raun. Í tilfelli Helguvíkursamningsins er ávöxtun eiginfjár með þessum for- sendum um 13%.“ Áætlað er að líftími virkjana Orku- veitunnar sé að minnsta kosti 50-60 ár og jafnvel lengri í ljósi þess hve við- hald þeirra er gott, samkvæmt til- kynningu OR. Langur líftími skuldlausra virkjana TVEIR þekktir bloggarar, Pétur Gunnarsson og Andrés Jónsson, hyggjast opna nýjan fréttamiðil á vefnum á næst- unni. Aðspurður sagði Pétur að fréttamiðillinn væri í undirbún- ingi og að hann sjálfur ásamt Andr- ési og nokkrum öðrum stæðu að hon- um og vildu þeir með honum auka fréttaflóruna á vefnum. Pétur hefur haldið úti einni af mest sóttu bloggsíðum landsins en slóðin á henni er hux.blog.is. Andrés hefur hins vegar bloggað á slóðinni godsamskipti.blog.is og þyk- ir víst að hann sé að baki vefnum Orðinu á götunni, ordid.blog.is. Nýr vef- fréttamiðill Pétur Gunnarsson ♦♦♦ MENNINGARHÁTÍÐ Seltjarn- arness var haldin um helgina og var hún sett á Bókasafni Seltjarn- arness síðastliðinn föstudag. Á vef Seltjarnarness kemur fram að há- tíðin sé sú viðamesta hingað til og að yfirskrift hátíðarinnar er „Sel- tjarnarnesið, sjórinn og útgerð“. Dagskráin var fjölbreytt og mik- ið var um tónlistaratriði og voru til dæmis fjörutónleikar á laugardag. Jazzklúbburinn Neskaffi var með dagskrá í félagsheimilinu og aðal- númer kvöldsins var Jazztríó Sunnu Gunnlaugsdóttur og með henni lék norski saxófónleikarinn Tore Brundborg. Jazztríóið HAG kom einnig fram svo og Jazztríóið HÚM. Á myndinni sést hins vegar Aldís Arna Pálsdóttir tromma á pott, en það þarf ekki alltaf eiginleg hljóð- færi til að skapa músík! Fjörutón- leikar og djasstríó Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.