Morgunblaðið - 11.06.2007, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 11.06.2007, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2007 9 FRÉTTIR Opið virka daga kl. 10-18 laugardaga kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 Hörfatnaður Sumarbústaðalóðir við Skorradalsvatn Til sölu sumarbústaðalóðir við Skorradalsvatn (vatnalóðir) í vel grónu kjarri vöxnu landi, hallandi mót suðri. Áhugasamir sendi tölvupóst á netfangið logsol@logsol.is innan 7 daga. Einkatímar og hóptímar í hinni sönnu Pilates tækni. Nánari upplýsingar um tímatöflu, verð og skráningu í netfang: astrosgunnars@internet.is Ekta Pilates í sumar með Ástrós! Eftir Jóhann A. Kristjánsson MIKIL afföll urðu á keppendum í þriðju umferð Íslandsmeistara- mótsins í ralli sem fór fram á Suð- urnesjum um helgina. Einungis tíu keppendum af nítján, sem hófu keppnina, tókst að komast í mark. Ef til vill segir þetta eitthvað um hversu erfitt rallið var. Sumir keppenda vildu þó ekki meina að það hefði verið sérstaklega erfitt og því má einnig draga þá ályktun að mörgum hafi hlaupið kapp í kinn og þeir ofgert ökutækjum sínum og sjálfum sér. Þrír keppendur urðu að hætta keppni eftir að hafa velt bílunum. Mesta tjónið varð vafalaust hjá Jóni Bjarna Hrólfssyni og Borgari Ólafssyni en þeir kútveltu nýjum Subaru Impreza-rallíbíl sínum á hröðum kafla á Djúpavatnsleið. Enn sigra systkinin Daníel og Ásta Daníel Sigurðsson og Ásta systir hans bættu einni fjöður í viðbót í hattinn en þau sigruðu í rallinu, höfðu rúmlega tveggja mínútna forskot á Sigurð Braga Guðmunds- son og Ísak Guðjónsson. Systkinin eru þá komin með níu stiga forskot á Sigurð Braga og Ísak í keppninni um Íslandsmeistaratitilinn. Pétur S. Pétursson og Heimir S. Jónsson, sem keppa á Toyota Co- rolla, styrktu stöðu sína verulega í Suðurnesjarallinu. Þeir eru nú með 21 stig í 200/Max1-flokki, sjö stig- um á undan feðgunum Þórði Bragasyni og Magnúsi. Í Max1- flokki er forysta þeirra Péturs og Heimis enn meiri. Þeir eru þar 17 stigum á undan næstu áhöfn og verður það að teljast mjög gott þegar eknar hafa verið þrjár um- ferðir af sex keppnum Íslands- meistaramótsins. Það verður fróð- legt að sjá hvort þeim tekst að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í Max1-flokki í Skagafjarðarrallinu sem fram fer 21. júlí. Fengu sigurinn á silfurfati Í Jeppaflokki juku bræðurnir Guðmundur Orri og Darri Mckinstry verulega forskot sitt en þeir voru einu keppendurnir sem náðu að klára í þetta sinn. Faðir þeirra og bróðir, Þorsteinn Mckinstry og Þórður Andri, færðu þeim sigurinn á silfurfati þegar þeir veltu á bryggjuleiðinni á föstudags- kvöldið. Staða Guðmundar og Darra er því orðin mjög vænleg og Þor- steinn og Þórður verða að spýta duglega í lófana ef þeir eiga að hafa nokkurn möguleika í titilinn. Þrjár veltur Þorsteinn Mckinstry og Þórður sonur hans veltu LandRover Tomcat-jeppa sínum á bryggjuleið Suðurnesjarallsins um helgina. Í loftinu Pétur S. Pétursson stendur Corolluna flata á Djúpavatnsleið en Pétur sló hvergi af í Suðurnesjarallinu og hafði erindi sem erfiði. Margir heltust úr lestinni Ljósmynd/Jóhann Sigurreifir Pétur S. Pétursson og Heimir S. Jónsson voru kampakátir eftir rallið enda náðu þeir tvöföldum sigri í því og styrktu stöðu sína verulega í keppninni til Íslandsmeistaratitils. Aðeins tíu kepp- endum í Suður- nesjarallinu tókst að komast í mark LÖGREGLAN á Seyðisfirði og Eskifirði héldu úti sameiginlegu umferðareftirliti á laugardaginn. Þurfti meðal annars að hafa afskipti af sautján ára pilti en bifreið hans mældist á 149 km hraða í Fagradal, þar sem hámarkshraði er 90 km. Pilturinn var sviptur ökuleyfi til bráðabirgða en samkvæmt upplýs- ingum frá lögreglunni hefur hann á þeim stutta tíma sem hann hefur haft ökuréttindi verið tekinn tvíveg- is fyrir of hraðan akstur. Jafnframt var nokkuð um hrað- akstur á Suðurnesjum um helgina. Á laugardag voru t.a.m. þrír öku- menn teknir fyrir að aka yfir leyfi- legum hraða á Reykjanesbraut. Sá er greiðast ók var mældist á 135 km hraða. Á brautinni er hámarks- hraði hins vegar 90 km á klukku- stund. Sautján ára piltur tekinn á 150 km hraða

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.